Þjóðviljinn - 20.01.1979, Qupperneq 9
Laugardagur 20. janúar 1979. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
TILLÖGUR ALÞÝÐUBANDALAGSINS í EFNAHAGSMÁLUM
ÝTARLEGAR
TILLÖGUR
i gær lagði Ragnar Arnalds fram í ráðherranefndinni ýtarlegar tillögur frá
Alþýðubandalaginu um nýja atvinnustefnu oq samræmda hagstjórn. Hér er um að
ræða mjög ýtarlega tillögugerð þar sem sett eru fram milli 70 og 80 stefnuatriði.
Þessi flokkslega samþykkt Alþýðubandalagsins um stefnumótun í efnahagsmál-
um verður rækilega kynnt í Þ jóðvil janum síðar, en hér á siðunni er stiklað á megin-
atriðum hennar í mjög grófum dráttum.
SAMRÆMD HAGSTJÓRN
MARKMIÐ EFNAHAGSSTEFNUNNAR:
að tryggja fulla atvinnu
að draga úr verðbólgu
að vernda og auka kaupmátt launa
F járf estingarst j óm
Deild í Framkvæmdastofnun geri fjár-
festingaráætlun og hafi eftirlit með fram-
kvæmd hennar. Reynt verði að tryggja að lán-
veitingartil framkvæmda séu í samræmi við
f járfestingaráætlun.
Hagræðing í atvsnnurekstri
Fyrstu verkefni verði að ná 10 til 15% f ram-
leiðniaukningu í f iskiðnaði og í almennum iðn-
aði. Tryggt verði f jármagn sem nemi 3 mil-
jörðum króna til þessa verks.
Framleiðni frystihúsanna verði aukin í það
sem nú gerist hjá 20 bestu frystihúsunum.
I almennum iðnaði verði framleiðsla álit-
legustu greinanna stóraukin, unnið að skipu-
lagsbreytingum, auknu samstarfi fyrirtækja
og almennri hagræðingu.
Sparnaður í hagkerfinu
Rækileg endurskoðun fari fram á rekstri
ríkisins og ríkisstof nana með sparnað í huga.
Unnið verði að einf aldari rekstri en árangurs-
ríkari í þjónustu við almenning. Tillögum um
sparnað verði skilað jafnóðum þó að heildar-
tillögur komi síðar
Einf öldun og sparnaður eigi sér einnig stað í
rekstri annarra en opinberra stofnana. Þann-
ig verði bönkum fækkað, vátryggingarfélög-
um fækkað, olíufélögum fækkað og vöru-
flutningar skipafélaga gerðir ódýrari.
Innílutníngsverslun
Dregiðverði úr gífurlegum kostnaði við inn-
flutningsverslun. Innflutningsverð á vörum
lækkað til samræmis við það sem gerist í ná-
lægum löndum. Útboð verði gerð á stórum
vöruinnkaupum.
Ný stefna i verðlagsmálum
Verðlagseftirlit verði fært yfir til neytenda-
samtaka og annarra f jölmennra samtaka al-
mennings. Stórlega verði auknar upplýsingar
um verðlag og verðmerkingar m.a. með
fræðsiu í útvarpi og sjónvarpi. Þá verði veitt-
ar skilmerkilegar upplýsingar um rétt inn-
f lutningsverð á vörum.
Hámarksverð verði ákveðið i samræmi við
lægsta fáanlegt innflutningsverð.
Kjami tillagnanna er:
að auka framleiðni þýðingamestu
framleiðslugreina þjóðarinnar, fisk-
iðnaðar og almenns iðnaðar, um 10 til
15%.
Slík aukning næmi 20 til 30 miljörð-
um króna á ári.
að spara i yfirbyggingarkostnaði
hagkerfisins og rekstri ríkis- og ríkis-
stofnana m.a, með:
— fækkun banka
— fækkun vátryggingarfélaga
— fækkun olíufélaga
— hagkvæmari innflutningsverslun
— ódýrari vöruf lutningum að og frá
— viðtækari hagræðingu í opinber-
um rekstri.
Með samræmdum ráðstöfunum á
þessu sviði mætti spara aðra 20 til 30
miljarða króna á ári.
að hagnýta betur en nú er gert ýmsa
framleiðslumöguleika m.a. með auk-
inni fullvinnslu á framleiðsluvörum
og með því að færa inn i landið ýmis
framleiðslu- og þjónustustörf, sem nú
eru unnin af útlendingum fyrir lands-
menn.
að stjórna betur f jármunum þjóðar-
innar, ekki síst á sviði f járfestinga.
Samræmd stefna
í peningamálum
Rækileg endurskoðun fari fram á öllu
bankakerf inu, þar með talið Seðlabankanum.
Reynt verði að tryggja að stefna í lána- og
peningamálum verði í samræmi við stefnu
ríkisstjórnarinnar t efnahagsmálum.
Rekstrarlán atvinnuveganna og lán til
íbúðabygginga verði gerð hagkvæmari en
verið hefur.
Vextir lækki í samræmi við minnkun verð-
bólgu.
Verðgildi sparif jár verði verndað án óeðli-
legrar íþyngingar fyrir heilbrigðan atvinnu-
rekstur.
Einföldun skattakerfisins
Unnið verði að einföldun á óbeinum skött-
um, þannig að yfirleitt sé aðeins einn tollur
eða skattur lagður á sömu vörutegund. Á
sama hátt verði beinir skattar gerðir einfald-
ari með fækkun frádráttarliða og breyttum
skattstigum. Skattþunganum verði dreift á
annan veg en nú er.
Lækkun húsnæðiskostnaðar
Gert verði stórátak til lækkunar á húsnæðis-
kostnaði m.a. með auknum íbúðabyggingum á
félagslegum grundvelli og með hagkvæmari
lánskjörum.
Lög verði sett um sölu og leigu íbúðarhús-
næðis.
Eignakönnun
Fram fari heildarkönnun á eignamyndun í
landinu með sérstöku tilliti til verðbólgugróða
undanfarandi ára.
Orkuspamaður
Gerð verði áætlun um víðtækan orkusparnað
m.a. i atvinnurekstri, húshitun og heimilis-
notkun, einkum hvað varðar innflutta orku-
gjafa.
Samstarf við
samtök launafólks
Rik áhersla skal lögð á að samtök launa-
fólks eigi f ullan rétt á beinni þátttöku í mótun
efnahagsstefnunnar og til að hafa áhrif á
framkvæmd hennar.
Þannig eigi fulltrúar ASI og sjómannasam-
takanna aðild að þeim nefndum sem vinna að
hagræðingar- og framkvæmdamálum á sviði
sjávarútvegs og fiskiðnaðar, fulltrúar iðn-
verkafólks og iðnaðarmanna að framkvæmd-
um á sviði iðnaðar, fulltrúar opinberra starfs-
manna að rannsókn á ríkiskerfinu, og f ulltrú-
ar launaf ólks að endurskoðun skatta- og tolla-
kerf isins og öllum aðgerðum á sviði húsnæðis-
mála.
NOKKUR AÐALATRIÐI TILLAGNANNA