Þjóðviljinn - 31.01.1979, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 31.01.1979, Blaðsíða 1
DJOOVIUINN Miðvikudagur 31. janúar — 25. tbl. —44. árg. Alþýðubandalagið Miðst j órnarfundur Fundur veröur haldinn i miö- Ragnar Arnalds hefur fram- stjórn Alþýöubandalagsins sögu á fundinum um stjórnar- laugardaginn 3. febrúar n.k. samstarfiö og tillögur flokksins 1 Fundurinn hefst kl. 2 e.h. i húsi efnahagsmálum. Þá veröur kos - Iönaöarmanna viö Hallveigarstig iö í starfsnefndir miöstjórnar, 1. rætt um flokksstarfiö og önnur mál. Kaup Sóknarkvenna á ríkisspítölunum lækkað um 12 -15 þúsund krónur, en sjúkraliða um 22 þúsund Mótmælaaðgerðlr hófust í morgun Skýlaust brot á samningum segir formaður Sóknar I morgun mættu Sóknar- konur og sjúkraliðar til vinnu kl. 7.30 eins og venju- lega i öldrunardeildinni að Hátúni 10B,þó að búið væri að tilkynna þeim að mæta eftirleiðis kl. 8. Eru það mótmæli við því að svipta þær 25 mínútna vinnutíma sem hingað til hefur verið Sóknarkonur og sjúkraliðar í Hátúni Skrifa undir mótmæla- skjal Eins og fram kemur hér á síöunni telja Sóknarkonur og sjúkraliöar samninga hafa veriöbrotna á sér meö þvi aö stytta vinnutima þeirra,en sú stytting hefur þegar komiö til framkvæmda í öldrunar- deildinni aö Hátúni 10B. All- ar Sóknarkonur og sjúkralið- ar sem þar starfa og náöst hefur I hafa nú skrifaö undir mótmælaskjal svohljóöandi: „Sóknarstúlkur og rfkis- starfsmenn Hátúni 10B mót- mæla harölega hverri þeirri kjaraskeröingu sem vera skal, svo sem breyttum vinnutima, þarsem tilskilinn frestur var haföur aö engu.” Undir skjaliö skrifa alls 53 konur. —GFr greiddur með 60% álagi til að vega upp á móti tak- mörkunum á matar- og kaffitímum. Er kveðið skýrt á um það í samning- um. Breytingin þýðir um 12—15 þús. kr. lægra kaup á mánuði en verið hefur hjá hinum láglaunuðu Sóknarkonum, en um 22 þús. kr. lægra kaup hjá sjúkraliðum. Aöalheiöur Bjarnfreösdóttir, formaöur Sóknar, sagöi i samtali viö Þjóöviljann I gær aö hér væri um brot á siöustu samningum aö Framhald á 18. siöu Meö þéttingu byggöarinnar vestan Elliöaáa nýtast mun betur þær fjárfestingar sem þar eru fyrir, svo sem götur, holræsi, skólar og önnur þjónusta. Borgarráö fól i gær skipulags- nefnd aö vinna aö athugun á möguleikum þess að þétta byggö- ina I Reykjavik vestan Elliöaáa. Visitalan hækkar um 1. mars 5,5 7,9% s iOtal hækkunarbeiðnir Afstaöa veröur tekin til allra hækkunarbeiöna sem fyrirliggja, áöur en veröbóta visitalan veröur reiknuö út á fyrstu dögum febrúar sagöi Ólafur Jóhannesson, for- sætisráöherra á alþingi I gær, en Hafstofan áætlar aö hinn 1. mars n.k. muni verðbótavlsitalan hafa hækkaö um 5,5% frá 1. des. s.l., og er þá ekki gert ráö fyrir neinum hækkunum á opinberri þjónustu. Fyrir gjaldskrámefrid liggja hins vegar hækkunarbeiönir frá Pósti og slma, Landsvirkjun, Hitaveitu og Rafmagnsveitu Reykjavikur, Þjóöleikhúsinu og Strætisvögnum Reykjavikur. Veröi umbeðnar hækkanir samþykktar óbreyttar, mun visi- talan hækka um 7,8%. Sé hins vegar reiknaö meö þeim hækkun- um sem viökomandi ráöuneyti hafa mælt meö, mun hækkunin nema 7,3%. Ólafur Jóhannesson sagöi á alþingi i gær i tilefni af fyrirspurn Matthíasar Bjarnasonar um framangreindatriði, aösámögu- leiki væri einnig fyrir hendi aö gjaldskrárnefnd geröi tillögur um lægri hækkanir en ráöuneytin mæltu meö, þannig aö ekki væri hægt aðsegja til um hver endan- leg útkoma þessa máls yröi. Auk framangreindra beiðna sem liggja fyrir gjaldskrárne&id liggja 14 erindi fyrir verölags- nefnd. Ólafur minnti á aö áöur heföi þaö gerst átölulaust aö hækkanir heföu veriö leyföar eftir mánaöa- mót en áöur en visitalan væri reiknuð og heföu slikar hækkanir ávallt veriö teknar inn i visitöl- una. —-AI. Sjá 4. síðu Samþykktin er gerö meö þaö fyrir augum aö dreifð nýbyggingar- svæöi I gamla bænum veröi tilbú- in til úthlutunar og byggingar strax i sumar. Siguröur Haröarson formaöur skipulagsnefndar sagöi I samtali viö Þjóöviljann I gær, aö þó engin formleg könnun heföi fariöfram á þessum möguleika ennþá, þá teldi hann mjög raunhæft að þétta byggöina. Hann sagöi aö skipu- lagsnefnd myndi væntanlega fela Þróunarstofnun framkvæmd könnunarinnar og aö slik könnun myndi taka 1 — 2 mánuöi. A næstunni veröur úthlutaö i Reykjavik lóöum undir 362 ibúöir auk þess sem 178 lóöir i Selási veröa geröar gyggingarhæfar. Verr horfir meö lóöaúthlutun á næstu árum, þar sem ný- byggingarsvæöin sem byrja átti framkvæmdir á 1981 skv. skipu- lagi eru alls ekki I eigu Reykja- vlkurborgar, heldur rikisins og stendur nú mikill styrr um hvort byggt veröur ilandi Keldna, eins og fyrrverandi borgarstjórn samþykkti án samráös viö eig- endur landsins. —AI RAGNAR ARNALDS UM VÍSITÖLUMÁLIN í RÁÐHERRANEFNDINNI: EKKERT SAMKOMULAG Ég var satt aö segja mjög undr- andi þegar ég hlustaöi á þetta viö- tal i fréttaauka útvarpsins áöan, sagöi Ragnar Arnalds, fulltrúi Al- þýöubandalagsins I ráðherra- nefndinni, þegar Þjóöviljinn haföi i gærkvöld samband viö hann vegna yfirlýsinga Steingrims Hermannssonar, formanns nefndarinnar um aö samkomulag væri f nefndinni um vfsitölumáliö. Menn geta veriö bjartsýnis- menn, sagöi Ragnar, en menn megaekkiruglasaman vonum og veruleika. Þaö hefur ekkert sam- komulag veriö gert um visitölu- málin. Þau eru til meöferöar i sérstakri nefnd og mikil umræöa hefur veriö I gangi I verkalýös- hreyfingunni um hvort menn teldu sig tilbúna til aö gera breyt- ingu á verðbótavlsitölunni. Viö Alþýöubandalagsmenn höfum margir lýst þvi yfir, aö viö teljum einhvers konar viðmiðun viö viö- skiptakjör skynsamlega ráöstöf- un og þaö kom einmitt fram i viö- tali, sem Þjóöviljinn átti viö mig s.l. sunnudag. Mér dettur hins vegar ekki I hug aö slá því föstu aö samkomulag hafi tekist um slika breytingu meöan máliö hefurekki veriö nægjanlega rætt. Alþýöubandalagiö stendur ekki aö samkomulagi um neina breyt- ingu á vísitölunni án þess aö hafa fullt samráö viö forsvarsmenn verkalýöshreyfingarinnar og þess vegna er þaö algjörlega út i hött aö samkomulag liggi fyrir um þessi mál. Þaö veröur aldrei fyrr en I fyrsta lagi eftir 10—14 daga. — En tekst að ná samkomulagi fyrir 1. febrúar I ráðherranefnd- inni, eins og til stóö? Þaö er alveg ljóst aö viö erum sammála um ýmsa hluti, en þó er enn langt i land. Fyrir 1. febrúar næst þvi aöeins samkomulag um takmarkaöan hluta þess sem um- ræðan hefur snúist um, sagöi Ragnar aö lokum. —AI Fráleitt að slaka á verðlagseftirliti. — Sjá 6. síðu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.