Þjóðviljinn - 03.02.1979, Side 3
Laugardagur 3. febrúar 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Erlendar
fréttir í
stuttu máli
Fundiir FIDE á sunnudag
OLTEN, Sviss,'2/2 (Reuter) — Svissneska skáksambandiö til-
kynnti i dag aö hin nýja stjórn FIDE myndi hittast i Austurriki
nú um helgina til aö ákveöa hvort úrslitum siöasta heimsmeist-
araeinvigis veröi breytt.
Fundað verður i Graz á sunnudag og rætt um kröfu Kortsnois
um að skákir þeirra Karpovs verði tefldar að nýju.
Svissneska skáksambandiö styður Kortsnoi, en hann kvartaöi
undan þvi að rússneskur sálfræöingur heföi reynt að dáleiða
hann. Hann mótmælti þvi einnig aö sálfræðingurinn hefði setiö
óvenju framarlega á áhorfendabekkjum.
Konur til Khomeinis
TEHERAN, 2/2 (Reuter) — Þúsundir svartkiæddra kvenna
þyrptust aö Khomeiniidag til aö fagna trúarleiötoganum. Þegar
hliðiö aö bústaö hans opnaöist þyrptust klökkar konur inn um
þaö. Gleöitár þeirra breyttust þó fljótlega i angistartár, þar sem
troðningurinn varö geysilegur og hrúguöust konurnar ofan á
hverja aðra.
Ein kona baö fréttamann um skriffæri og reit hún skilaboð til
Khomeinis um aö tveir synir hennar heföu nú þegar yfirgefið
herinn til að þjóna trúarleiðtoganum. Tveir óvopnaðir hermenn
voru bornir i axlarhæð til aö sýna trúarleiðtoganum hlýðni þjóð-
arinnar og veifaði hann hljóölátur i viöurkenningarskyni.
Skammt frá stóðu hervagnar, þar sem hermenn fylgdust með
atburðunum. Þar stóðu einnig feöur og synir sem biðu kvenn-
anna.
Ráöamenn segja að Baktiar og Khomeini veröi að ræðast við
innan þriggja daga ef koma á I veg fyrir blóöbaö.
Verkfallsréttur verði takmarkaður
BROSSEL, 2/2 (Reuter — Martin Bangemann, v-þýskur vara-
formaður frjálslyndra á Evrópuþinginu sagöi i dag að breskir
verkalýðsforingjar misnotuðu núna verkfallsrétt sinn. Starfs-
menn sjúkrahúsa þar i landi hafa nú veriö i verkfalli siöustudaga.
Sagði Bangemann að þeir frjálslyndu sem næðu kjöri I
kosningum til þings Efnahagsbandalags Evrópu i júni myndu
berjast fyrir ákvæðum sem kæmu i veg fyrir slik verkfallsrétt-
indi. Einnig ætti að koma i veg fyrir að verkalýösfélög yrðu fyrir
áhrifum stjórnmálaflokka.
Plötuspilarinn
sem plötumar kunna að meta
- minnkað plötuslit - tónarmur sem allstaðar
hefur vakið athygli - listrænt útlit - gott verð
og hagstæð greiðslukjör. Vegna mikillar
eftirspurnar er rétt að geta þess að
framleiðslu-upplagið er takmarkað
útsölustaöir
um landið:
AKRANES: Lárus Ingibergsson, Skólabraut 8, simi: 2154
AKUREYRI: Vöruhús KEA — Hafnarstæti 91 —95 simi: 21400
ESKIFJORÐUR: Rafvirkinn, Strandgötu 34, simi: 6165
ISAFJöRÐUR: Verslun Kjartans R. Guömundssonar, Hafnarstræti 1, slmi 3507
KEFLAVtK: Radlóoaust — Hafnargötu 25, slmi: 3787
VESTMANNAEYJAR: Halldór Axelsson Rafeindav. Kirkjuvegi 67, simi: 1757
útsölustaður I Reykjavík:
STERÍÖ — verslun meö hágæða hljómvörur —
gegnt skattstofunni við Tryggvagötu, simi: 19630
Framleitt á tslandi með leyfi:
Transcriptors Ireland Ltd.,
söiuskrifstofa að Armúla 5 Reykjavfk
opin 1 — 5 e.h. simi: 82980
Yfirlýsing frá Guðmundi Vigfússyni
Höfn í Hornafiröi:
Samþykktí ekkí
t frétt I Rikisútvarpinu að
kvöldi 1. þ.m. var ýtarlega skýrt
frá ræðu er Gunnar Thoroddsen
fyrrv. iðnaðarráöherra haföi flutt
þá um daginn á Alþingi utan dag-
skrár og fjallaði um Járnblendi-
félagið og umdeilda breytingu á
23. grein rafmagnssamnings þess
við Landsvirkjun. Ræða alþingis-
mannsins er svo birt I heild I
Morgunblaðinu i dag.
í frátt Rikisútvarpsins og i
ræöu G. Th. I Mbl. er komist
þannig að orði, að unnt er aö
skilja á þann veg aö ég hafi sem
fulltrúi Alþýðubandalagsins i
stjórn Landsvirkjunar samþykkt
umrædda breytingu á rafmagns-
samningi Járnblendifélagsins og
Landsvirkjunar. Þar sem þetta er
ekki i samræmi við staðreyndir
málsins óska ég að taka fram eft-
irfarandi:
Þegar rafmagnssamningurinn
var upphaflega samþykktur I
stjórn Landsvirkjunar 22. mai
1975 greiddi ég atkvæöi gegn
samningnum með sérstakri og
ýtarlegri bókun. A siðari stigum
málsins þegar fjallaö var i stjórn
Landsvirkjunar um fyllri út-
færslu samnings (16. sept. 1976)
og endanlegan frágang hans (13.
des. 1976) visaði ég meö bókunum
til fyrri afstöðu minnar og hef þvi
hvorki samþykkt umræddan
samning né neinar siðari breyt-.
ingar á honum.
Reykjavlk, 2. febrúar 1979.
Guömundur Vigfússon
Dýpkunarskipid
er komið austur
og dýpkun hafnarinnar hefst um
helgina
Guðmundur Vigfússon
Eins og skýrt hefur verið frá i
Þjóöviljanum hefur innsiglingin
til liafnar i Hornafirði grynnkað
svo undanfarið, að nauðsynlegt er
að gripa til sanddælingar, og er
það i fyrsta sinn sem slikt er
nauösynlegt.
Eymundur Sigurðss. hafnsögu-
maöur á Höfn sagði i stuttu viðtali
við Þjóðviljann i gær aö litil
Jóhann Bjarni Kristjánsson.
Aðstoðar-
kaupfélags-
stjóri
KRON
Jóhann Bjarni Kristjánsson
hefur verið ráðinn aðstoðarkaup-
félagsstjóri Kron.
Jóhann er fæddur 1. mai 1948.
Hann lauk prófi i viðskiptafræði
frá Háskóla Islands 1976. Hann
hóf störf hjá Kron á námsárum
sinum og hefur starfaö þar siðan.
Þörf ákveðnari aðgerða
— en 35% gjaldið skref í rétta átt
Aögerðir stjórnvalda, sem
ákveðnar voru til stuönings inn-
lendum húsgagna- og tréiðnaði
eru skref I rétta átt, segir I álykt-
un, sem stjórn Sambands
byggingamanna samþykkti á
fundi sinum sl. laugardag. Er þá
fyrst og fremst átt viö 35% inn-
borgunargjaldiö til þriggja mán-
aða i innflutning fullunninnar
trjávöru.
Siðan segir I ályktuninni:
Fundurinn telur þó að 35%
gjald af þessu tagi sé of lágt og
þrir mánuðir of skammur timi.
Fundurinn vill hvetja stjórnvöld
til að endurskoöa stuðningsað-
gerðir sinar og gripa hiklaust til
ákveðnariaögerða I þeim tilgangi
að minnka raunverulega inn-
flutninginn og efla þannig inn-
lendu framleiðsluna.
Sérstaklega er ástæða til að
gagnrýna, að enn eru veigamiklir
hlutir, eins og fullbúin hús, flutt
til landsins án allra takmarkana,
á sama tima og atvinnuleysi
húsasmiða fer vaxandi.
Fundurinn telur að atvinnurek-
endur og samtök þeirra, sem á
sinum tlma hvöttu til þess að Is-
land gerðist aðili að EFTA, geti
nú séð afleiðingar þess i skýru
ljósi vaxandi atvinnuleysis hér á
landi og ótryggrar framtiðar
fólks i ýmsum greinum iðnaöar.
Þeir hljóta þvi meöal annara aö
teljast ábyrgir þessa ástands.
Það vekur þvi furðu að Félag ‘
islenskra iönrekenda skuli beita
sér gegn ákörðun stjórnvalda um
innborgunarskyldu á innflutt hús-
gögn og innréttingar.
Fundurinn vill árétta þá skoðun
8. þings S.B.M., aö riki og bæjar-
félög hafi forgöngu um kaup á Is-
lenskri framleiðslu. Fundurinn
telur raunar óverjandi að rlki og
sveitarfélög kaupi fullunna
iðnaðarvöru erlendis frá á sama
tima og umtalsvert atvinnuleysi
er i þessum greinum”.
breyting heföi orðið á innsigling-
unni aftur, eftir að hún breytti sér
á dögunum; þaö væri þvi nauö-
synlegt aö reyna sanddælingu og
þess vegna hefði sanddæluskipið
Perlan verið fengið austur. Um
árangur þorði hann engu aö spá,
enda hefur dýpkun aldrei verið
reynd I innsiglingunni að Höfn.
Eymundur sagöi aöspuröur um
þá kenningu að landiö væri aö
hækka fyrir austan, að þaö væri
staðreynd og aö fróðir menn teldu
það hafa hækkað um 1 sm á ári
siöustu 50 árin. Kollar á klöppum
stæðu nú uppúr á flóöi, sem alls
ekki sáust fyrir nokkrum árum.
Um breytingarnar á innsigling-
unni sagði Eymundur að botninn
hefði alltaf veriö aö breyta sér
eitthvað, en aldrei svona mikið
eins og i vetur. Sagði hann enn-
fremur aö mjög vel þyrfti aö
fylgjast með botninum þvi
breytingar væru tiðar og kæmu
snöggt. Nú væri bara aö biða og
sjá hvaða árangur þaö gæfi aö
reyna sanddælingu.
—S.dór