Þjóðviljinn - 03.02.1979, Qupperneq 9
Laugardagur 3. febrúar 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
FRÁ UMRÆÐUM í BORGARSTJÓRN
Kjarvalsstaðír og deilan
við Bstamannasamtökm
A fundi borgarstjórnar s.l. fimmtudag var staöfest
meö 10 samhljóöa atkvæöum ráöning Þóru Kristjáns-
dóttur i starf listráöunautar Kjarvalsstaöa, eins og
skýrt hefur veriö frá i Þjóöviljanum. Borgarfulltrúar
Alþýöubandalagsins sátu hjá viö afgreiöslu málsins.
Guörún Helgadóttir.sem sæti á I stjórn Kjarvalsstaöa
og greiddi þar atkvæöi meö ráöningu ólafs Kvaran sem
listamannasamtökin mæltu meö til starfans kvaddi sér
hljóös á borgarstjðrnarfundinum og ræddi aödraganda
málsins. Guörún tók fram aö þó fulltrúar Alþýöu-
bandalagsins sætu hjá viö þessa atkvæöagreiöslu, þá
vænti hún sér mikils af starfi Þóru Kirstjánsdóttur og
samstarfi viö hana á Kjarvalsstööum. Hún heföi sak-
laus dregist inn i þessa ógeöfelldu umræöu, — máliö
heföi aldrei snúist um hæfni hennar, heldur hvort fara
ætti aö tillögum listamannasamtakanna eöa ekki.
Albert Guömundsson talaöi á eftir Guörúni og lýsti
Guörún
þeirri skoöun sinni aö timi væri til kominn aö borgar-
yfirvöld tækju alla stjórn Kjarvalsstaða I sinar hendur.
Þótti honum að þegar listamenn, sem búiö væri aö
byggja yfir stórt og mikið hús vildu ekki sýna þar, gætu
þeir bara farið annaö. A sinum tima lagöi Albert til I
borgarstjórn aö Kjarvalsstööum yröi breytt I ráö-
stefnuhús, þar sem listamenn heföu meö banni sinu
forgert öllum rétti til frekari listsýninga i húsinu.
Sjöfn Sigurbjörnsdóttirtalaöi næst og lýsti þvi yfir aö
hún heföi aldrei tekiö þátt i neinu baktjaldamakki um
ráðningu listráðunautar, sem hún svo heföi svikiö,
eins og hún væri nú ásökuö um, enda þótt ekki vantaöi
aö eftir þvi hefðiveriö leitaö. Skoraöi hún á Guörúnu aö
koma I ræöustól og bera þessum sannleika vitni, en
heita ódrengur ella.
Daviö Oddssonsagöi aö þau orö heföu vissulega ver-
Albert
Sjöfn
Daviö
iö látin falla aö auövitaö yröi verulegt tillit tekiö til
óska eöa umsagna listamanna. Sjálfsagt heföi veriö aö
segja þaö og viö þau orö heföi veriö staöiö.
Sagöi Daviö aö oft heföi veriö vitnaö til þess I
samningaviöræðum um Kjarvalsstaöi aö stefna bæri
aö svipuöum rekstri og er I Norræna húsinu. Menn
heföu veriö sammála um aö ýmislegt væri þangaö aö
sækja og ráöning Þóru Kristjánsdóttur væri spor i þá
átt.
Þá ræddi Davlð um listamannasamtökin og óeiningu
innan þeirra og minnti á að þegar Kjarval heföi kvatt
félaga sina I þeim samtökum, heföi hann gert þaö meö
þeim oröum aö nú ætlaöi hann aö gera þaö sem and-
skotinn aldrei heföi gert, — yfirgefa þá.
AI
RÆÐA GUÐRÚNAR HELGADÓTTUR í BORGARSTJÓRN:
Deilt um menn en ekki málefhi
Sú þjóð sem afneitar listamönnum
sinum ber merki úrkynjunar
Það hefur mikið verið rætt um
Kjarvalsstaði þaðsem af er þessu
kjörtímabili, eins og jafnan áður.
Og það væri gott til þess að vita,
að þessi umræða orsakaðist af ást
á staðnum og listamanninum,
sem staöurinn er kenndur við, en
langt er frá þvi aö svo sé.
Minning Jóhannesar Kjarvals
hefur verið dregin niður i svaðið i
allri þessari umræöu, eins og aðr-
ir þeir listamenn, sem rætt hefur
veriðviðogum þessa sjö mánuði
sem ég hef þurft að sitja i stjórn
Kja rvalsstaða. Og ég segi þurft,
þvi að það hefur verið mikil raun
að Sitja i mannlausu húsinu og
hlusta á smásmugulegt raus um
reglugerðarákvæði að þvi lút-
andi, hvort listamenn -jigi að
verða þess heiðurs aðnjótandi að
sitja sem fullgildir i' stjórnar-
nefnd viö hliö háttvirtra borgar-
fulltrúa. Og helst var séö, að til
þess kæmi ekki. Þaö var ekki fyrr
en ljóst var, aö listamenn mundu
alls ekki leggja neina list til húss-
ins viö þær aöstæöur, aö meiri-
hluti stjórnarinnar neyddist til aö
samþykkja aöild þeirra aö stjórn-
inni.
Samningar tókust þó ekki
fyrr en komiö var að jólum, og
höföu þá átt sér staö þær
ómerkilegustu viðræöur, sem
ég minnist aö hafa oröiö aö
hlusta á i öllu pólitisku starfi
fyrr og siðar, og er þá langt til
jafnaö. Eftir linnulausar
móðganir viölistamenn tókust þó
sættir meö fögrum fyrirheitum
um, að nú skyldi allt þetta
gleymt, og nú skyldi tekið til við
að reisa Kjarvalsstaði úr þeim
rústum, sem blasaö hafa við.
Einkum var á það lögð áhersla,
að listamenn skyldu hafa veru-
leg áhrif á ráðningu listráðu-
nautar þar sem allir voru sam-
mála um, aö náin samvinna
þyrfti að veramilli hans og lista-
manna. Alkunna er að mikil
vandamál hafa steðjað að rekstri
hússins, og hinn nýi listráðunaut-
ur fengi erfitt verkefni. Lista-
menn voru lengi mjög andvigir
þvi að hafa ekki atkvæðisrétt um
ráðningu hans, heldur einungis
umsagnaraöild um hæfni um-
sækjanda, en hvaö eftir annaö var
það itrekað i samræðum, að auð-
vitað yrði tekið tillit til fulltrúa
þeirra, sem málfrelsi og tillögu-
rétt hafa i stjórninni, einnig um
þetta atriði. Og báðir fulltrúar
listamannasamtakanna mæltu
mjög með Ólafi Kvaran, en þeir
eru Þorgeröur Ingólfsdóttir frá
Bandalagi isl. listamanna og Jón
Reykdal frá Félagi islenskra
myndlistamanna. Þar fyrir utan
höfðu formenn samtakanna einn-
ig óskaö eftir ráöningu Ólafs
Kvaran.
Þvert gegn vilja þeirra allra
var svomæltmeð ráðningu Þóru
Kristjánsdóttur.
Ég greiddi atkvæði með Ólafi
Kvaran i fullu samræmi við þann
eindregna vilja minn og mins
flokks, að listamenn skuli hafa
veruleg áhrif á rekstur staðarins.
Ég lýsti þvi þó yfir, áð ef fyrir
mig værulögðóyggjandi rök fyrir
þvi aö eðlilegt væri að ganga hér
gegn vilja listamannasamtak-
anna, skyldi égfúslega skipta um
skoðun. Þau rök komu aldrei og
þvi sá ég enga ástæðu til að gera
það. Borgarfulltrúarnir Sjöfn Sig-
urbjörnsdóttir og Davið Oddsson
kusu hins vegar að halda upp-
teknum hætti og virða að vettugi
óskir listamanna.
Þaö sem hér skilur á milli eru
ekki menn, heldur málefni. Og
máiefniö er listin sjálf. Hún er
mörgu fólki hentug á hátiða-
stundum og engum finnst verra
að f járfesta i verkum Jóhannesar
Kjarvals. En það hefur verið látið
átölulaust, þó að ekkerthafi verið
gert til að vinna á Kjarvalsstöö-
um, sem þó bera nafn eins mesta
vinnuþjarks þjóðarinnar. Ekkert
er að finna um Jóhannes Kjarval
á staðnum, ekkert hefur veriö
gert til aðf ræða okkur um málar-
ann og list hans, ekkert hefur ver-
ið gert i að skrásetja verk hans.
Reykvisk alþýða á ekki verk
Kjarvals á veggjum sinum, hún á
rétt á að njóta þeirra á Kjarvals-
stöðum. Jóhannes Kjarval málaði
þetta fólk, fiskimenn og bændur
við leik og störf af þvi aö honum
þótti vænt um þaö og landið þess,
en ekki menningarpjattrófur,
sem staöurinn hefur verið rekinn
fýrir. Þetta þurfa háttvirtir borg-
arfulltrúar að skilja, þetta skiija
flestir listamenn.
í röðum listamannahafa lengst
af verið helstu málsvarar is-
lenskrar alþýðu —og alþýðu allra
landa. Það er húi endanlega úr-
kynjun þjóðar, þegar hún afneitar
listamönnum sinum. Sósialistum
sæmir ekki að taka þátt i þeim
gráa leik, þeir hafa alla tiö skUiö
að tilvist þjóðar stendur og fellur
með menningu hennar.
Þóra Kristjánsdóttir hefur sak-
laus dregist inn i þessa ógeðfelldu
umræðu. Við höfum ekkert viö
hana aö sakast og ég vænti hins
besta af starfi hennar og sam-
starfi viö hana. Málið snerist
aldrei um hæfni hennar. Ég hef
gert henni afstöðu mina ljósa, ég
hygg hún virði hana. En viö Al-
þýöubandalagsmenn munum
vera við hlið listamannasamtak-
anna til enda og sitja hjá við
þessa atkvæöagreiðslu.
Kennarasamtökin mótmæla
Mæðraheimilinu lokað
en vandinn óleystur
Formenn fjögurra félagasam-
taka, Mæörafélagsins, Ljós-
mæörafélags tslands, Félags ein-
stæöra foreldra og Bandalags isl.
kvenna hafa mótmælt harölega
lokun Mæöraheimilisins viö Sól-
vallagötu og segir I frétt frá þeim
aö rekstur heimilisins sé brenn-
andi baráttumál kvennasamtak-
anna.
A Sólvallagötu 10 hefur Reykja-
, vikurborg rekið heimili fyrir
mæöur sem af einhverjum ástæö-
um geta ekki eöa hafa ekki aö-
stöðu til aö annast kornabörn sin
sjálfar.
Var formanni félagsmálaráðs
sent bréf frá ofangreindum sam-
tökum 31. janúar s.l. og hann
jafnframt beöinn aö kynna efrii
þess á borgarstjórnarfundi s.l.
fimmtudag, þar sem máliö var á
dagskrá. Segir i frétt frá for-
mönnum félagasamtakanna aö
Geröi Steinþórsdóttur, formanni
félagsmálaráös hafi verið synjaö
um að flytja málsittá fundinum,
en Geröur er' varaborgarfulltrúi
Framsóknarflokksins.
3 borgarfulltrúar eiga sæti I fé-
lagsmálaráði og hafði þeim ekki
borist beiðni um aö taka erindi fé-
lagasamtakanna upp á fundinum.
Þessir borgarfulltrúar eru Guö-
rún Helgadóttir, Sjöfn Sigur-
björnsdóttir og Markús örn
Antonsson.
S.l. vor samþykkti þáverandi
félagsmálaráö aö leggja starf-
semi Mæöraheimilisins niöur þar
sem nýting á þvi var mjög léleg
og rekstur dýr. Var samþykkt aö
taka Sólvallagötuna undir rekstur
unglingaheimilis og var sú
ákvöröun staöfest af borgarstjórn
á sinum timg. Ekki varð þó af
opnun unglingaheimilisins nema
á pappirunum (þar sem Sól-
vaúagatan var skráö sem ungl-
ingaheimili i skjölum borgarinn-
ar i nokkra mánuði), heldur var
rekstur mæöraheimilisins endur-
skoöaöur og rýmkuö skilyröi um
dvöl þar. Batnaöi nýtingin af
þessum sScum og kom þar s.l.
haust aö félagsmálaráö endur-
skoöaöi afstööu sina varöandi
lokun heimihsins og samþykkti
loks I 18. janúar aö halda rekstr-
inum áfram þannig aö auk þeirr-
ar þjónustu semþar er nú gætu
einstæöar mæöur i húsnæöishraki
fengiö leigt þar.
Þessi samþykkt sem félags-
málaráö stóö einróma aö hlaut
hins vegar ekki staðfestingu i
borgarráöi og borgarstjórn, þar
sem taliö var aö reksturinn i
þessu formi yrði allt of dýr, en
hann var áætlaður 25 miljónir
króna á þessu ári. Þótti tillaga
félagsmálaráös einnig seint
fram komin meö tilliti til fjár-
hagsáætlunarvinnu.
Féllust borgarmálaráö meiri-
hlutaflokkanna á þessa röksemd,
aö þvi er Guðrún Helgadóttir upp-
lýsti i borgarstjórn á fimmtudag.
Eftir stendur aö leysa þarf vanda
þeirra mæðra, sem ekki geta ann-
ast kornabörn sin sjálfar og hafa
ekki aöstööu til þess, sagöi
Guörún. Slik tilfelli eru nokkur á
ári og þvl þarf þessi þjónusta aö
vera fyrir hendi.
Samþykkt félagsmálaráös um
aö halda áfram rekstri Sólvalla-
götunnar I breyttri mynd miöað-
ist aöallega viö aö leysa hús-
næðisvanda einstæöra mæöra, og
þaö veröur aö viöurkennast aö
meö þvi aö reka heimiliö bæöi
sem stofnun meö tilheyrandi
starfsliði og sem leiguibúöir þá er
þaö dýr lausn, sagöi Guörún. Fé-
lagsmálaráð hefur haft til athug-
unar leiguibúöir borgarinnar sem
eruum 1000 talsins og kannað aö-
stæður þeirra sem I þeim búa.
Sagði Guðrún aö verulegur fjöldi
ibúa i þeim heföi of háar tekjur
miöab viö þau mörk sem setja
yrði, og þvi heföi félagsmálaráð
fariö fram á aö fá aö gera tillögur
um úthlutun í 15% þeirra ibúða
sem innan tiöar verður úthlutaö
hjá Verkamannabústööunum.
Mun félagsmálaráö leggja
áherslu á aö losa leiguibúðir
borgarinnar meö þvi aö auðvelda
þeim sem það geta aö kaupa ibúö-
irnar i Verkamannabústöðunum.
Ef leiguibúöir borgarinnar losna
með þessum hætti er þar komin
mun ódýrari lausn á húsnæöis-
vanda einstæðra mæðra og ann-
arra sem minna mega sin en meö
rekstrinum aö Sólvallagötu 10.
Sagði Guörún nauðsynlegt að
félagsmálaráö fjallaöi á næsta
fundi um þessi tvö aökallandi
mál, — vanda mæöra sem ekki
geta hugsaö um kornabörn sin
sjálfar oghúsnæöismál einstæöra
mæöra meö aðrar lausnir i' huga
en sameiginlega þjónustu fyrir
hvoru tveggja aö Sólvallagötu 10.
—AI