Þjóðviljinn - 03.02.1979, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 03.02.1979, Qupperneq 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 3. febrúar 1979 UOWIUINN á sunnudag „Aðalatriðið er að missa ekki kjarkinn Viðtal við Jóhann Pétur Sveinsson Ingólfur Margeirsson skrifar um miljónkrónumenn og minni spámenn I Fingrarími er viðtal við Nafnlausa sönghópinn • / Frelsi Friedmans í Israel — grein eftir Einar Karl Haraldsson • Hver fjandinn varð af háttvirtum / kjósendum? Arni Bergmann skrifar. • Helgarviðtalið er við Jón Múla Árnason Martha Tikkanen hlýtur bókmenntaverðlaun norrœnna kvenna UÚÐVIIIINN Halldór Sigurðsson: Páfinn í Róm- önsku Ameríku Hlutverk kirkj- unnar er að verja hina snauðu, — segir erkibiskupinn í Brasiliu Þeir snauöu verða snauðari, þeir riku rikari og auðhringirnir æ öflugri. — Þessi mynd er frá Brasilfu. Fimmtudaginn 25. janúar lagði Jóhannes Páli 2. af stað til Rómönsku Ameriku til að sitja þing biskupa álfunnar. Er þetta fyrsta utaniandsferðin sem páfi fer i eftir að hann tók við embætti og er þvi ekki úr vegi að birta hér grein sem Halidór Sigurðsson fréttamaður i Danmörku skrifaði. — 0 — Þegar landkönnuðurinn Francisco Pizarro kom að strönd- um Inkarikis árið 1531 kom hann auga á indiána. Pizarro og prest- ur sem með honum var bentu hin- um innfæddu aö koma nær og stungu hlut I hönd hans sem vináttuvott. Indiáninn leit á gjöf- ina og fleygöi henni skelkaður frá sér. Gjöfin var biblia. — 0 — Heimsókn páfa til Mexikó er fyrsta utanlandsferð hans i em- bætti. Hann mun setja 3. þing biskupa Rómönsku Amerlku en auk þess mun hann taka þátt i mörgum öðrum fundum. Hann ætlar að ræða við margs konar hópa, þar á meðal hina pólitisku stúdenta sem ætluðu allt um koll aö keyra þegar ólympiuleikarnir voru haldnir i Mexikó árið 1968. Hann ætlar að halda blaða- mannafund en það er nánast óal- gengt að páfi geri slikt — 0 — Biskupaþingiö er hvorki bæna- samkoma né hversdagslegt fyrir- bæri. Hið fyrsta var haldið áriö 1955. Þá hittust biskuparnir i Rio de Janeiro og stofnuöu Biskupa- ráö Rómönsku Ameriku (CELAM), sem á að fjalla um sameiginleg mál kaþólikka þar um slóöir. Annað biskuþaþing var haldið áriö 1968 i Medellin I Kólombiu og reyndist það sögulegt uppgjör viö fortiöina. Þar voru aldagömul tengsl sverðs og kross, þ.e. kirkju og valdastétta viöruð. 130 biskup- ar og aðrir yfirmenn kirkjunnar fordæmdu fjárhagsleg og stjórn- málaleg itök heimsvaldasinna i álfunni og undirokun fólksins. — 0 — Ekki eru margir fulltrúar ibúa Rómönsku Amerlku i efsta turni rómversk-kaþólsku kirkjunnar. Aðeins 10% kardlnála eru þaðan, þrátt fyrir aö 4% af hinum 732 miljón mönnum sem tilheyra þessum 2000 ára gamla söfnuöi búi i Suður-Ameriku. Hvergi annars staðar i heimin- um, nema kannski helst i heima- landi páfans er kirkjan jafn póli- tisk eins og I Rómönsku Ameriku. Tengsl kirkju og rikis eru oft spennt, td. á Spáni Francos, Austurlöndum og Suður-Afriku, en á okkar heimshorni eru biskupar ekki ofsóttir af stjórn- völdum. I Rómönsku Ameriku geta þeir átt von á fangelsi og jafnvel ööru enn verra. — 0 — Frá þvi að biskupaþingiö var haldið i Medellin fyrir tiu árum hafa 90 prestar verið myrtir af hægri mönnum og stjórnvöldum. Tvisvar sinnum hefur hinn þekkti erkibiskup 1 Brasiliu, Hélder Cámara oröið fyrir morötilræði. Sama gildir um landa hans.Pedro Casaldáliga biskup. — 0 — Fyrir stuttu ávarpaði páfi kardinála og sagði þá meðal ann- ars aö friður gæti ekki oröið án réttlætis og virðing» fyrir mann- réttindum. Þvi er ljóst að hann veröur að taka skýra átefnu I þessum mdlum er hann fer nú til Rómönsku Ameriku, þar sem hann er æðsta vald þess safnaöar þar sem sifellt er strið milli gam- als og nýs. Þaö kemur á óvart að hann skuli koma viö i þvi landi þar sem bandarlskra áhrifa gætir hvað mest i heiminum, en þaö er Dóminiska lýðveldiö. Þangaö fór hann 25. janúar og staldraði þar við I tvo daga, á leiö til Mexikó. — 0 — Hélder Cámara erkibiskup sem áður hefur verið á minnst, sagði við mig fyrir skömmu: ,,A siðasta fundi biskupa i Brasiliu sam- þykktu 244 biskupar yfirlýsingu sem mælti gegn kúgun einræðis. Aðeins 4 biskupar mæltu á móti. Þessi samþykkt okkar verður grundvöllur þingsins i Puebla (i Mexikó).” „Vegna þeirrar kúgunar, hélt hann áfram, sem rikir i löndum RðmBnsku Amerlku er nú meiri þörf en nokkru sinni áð> ur fyrir kjarkmikla kirkju. Þeir snauðu veröa snauöari, þeir riku rikari og auðhringirnir æ öflugri. Viö kirkjunnar menn verðum að standa með þeim fátæku, við veröum að verja þá rétt eins og Jesús Kristur gerði.” Stjórnmálastefna sú sem páfi mun kynna á þinginu i Puebla sem annars staöar I Mexikó verö- ur prófáteinn á hvernig hann mun halda á málunum við stjórnun á kaþólsku kirkjunni það sem eftir er af hans valdatið. (ESþýddi) mikia kirkju. af erfendum vettvangi

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.