Þjóðviljinn - 03.02.1979, Síða 14

Þjóðviljinn - 03.02.1979, Síða 14
14 StÐA — ÞJÓDVILJINN Laugardagur 3. febrúar 1979 íþróttirf^l íþróttirí^) íþróttír / J ■ Umsjón -.INGÓLFUR HANNF.SSOnI ° J ■ Mest áhersla lögö á frjálsar íþróttir hjá Ungmenna- og íþróttasambandi Austurlands f fyrrasumar vakti íþróttafólk frá Austurlandi verulega athygli á keppnismótum, einkum knatt- spyrnumenn og frjálsíþróttamenn. Eftir svo blómlegt starf yfir sumarmánuðina gætu einhverjir haldið að f remur dauf legt væri á veturna hjá íþróttafólki Aust- firðinga, en það er nú eitthvað annað. Fá stórverkefni eru framundan hjá afreksmönnum I frjálsum iþróttum, en sumir þeirra æfa af miklu kappi. Stefán Hallgrimsson er að komast i toppform og ætlar til Kaliforniu i febrúar að æfa þar fram á vorið með þekktustu köppum Bandarikjanna. Pétur Pétursson æfir i Reykjavik og er ákveðinn að verða i sviðsljósinu næsta sumar. Pétur er einn af efnilegustu tugþrautarmönnum landsins, en vantaði herslumun- inn i fyrrasumar til þess að ná virkilega góðum árangri. Stefán ■ Friðleifsson hástökkvari er nú i flugnámi i Keflavik og æfði af kappi þangað til hann slasaðist á fæti fyrir skömmu. Stefán er einnig mjög góður körfuknatt- leiksmaður. Borgfirsku hlaupagikkirnir Guðrún Sveinsdóttir og Björn Skúlason eru farin til Gautaborg- ar. Þar ætla þau að æfa við hinar ákjósanlegustu aðstæður fram á vorið, en i Gautaborg býr Brynjólfur Hilmarsson frá Nes- kaupstað, sem hljóp margan góð- an sprettinn fyrir (JlA i sumar. Óvist er um það hvort Brynjólfur kemur upp næsta sumar. Ofantaldir ættu að verða harö- asti kjarni frjálsiþróttaliðs UIA næsta sumar, en auðvitað eru miklu fleiri ótaldir, t.d. öll yngri kynslóðin og alltaf má búast við nýjum „spútnikum”' meðan öfl- ugu iþróttastarfi er haldið gang- andi. Islandsmót yngstu aldursflokk- anna I frjálsum iþróttum innan- húss fer fram á Selfossi á morg- un. Ekki ætla þeir Austfirðingar að liggja á liði sinu og senda 5 keppendur á mótið: Vigdisi Hrafnkelsdóttur, Hetti, Sigfinn Viggósson, Þrótti, önnu Mariu Arnfinnsdóttur, Hetti, Ármann Einarsson, Hetti og Magnús Steinþórsson, Hetti. Allt eru þetta krakkar i toppæfingu og má vænta góðs árangurs af þeirra hálfu. Fararstjóri krakkanna er hinn ötuli frjálsiþróttaþjálfari Austfirðinga, Helga Alfreðsdótt- ir, iþróttakennari. Hér að framan hefur mest verið fjallað um frjálsar iþróttir, en á Aust.f jörðum er nokkuð mikið um blak og handbolta. Reyndar er blakið i nokkuö mikilli sókn og virðist vera vinsælla en handbolt- inn. Þá má einnig geta þess, að ÚIA hyggst standa fyrir keppni i innanhússknattspyrnu um pásk- ana og mundi mótið að öllum lik- indum fara fram i hinu glæsilega iþróttahúsi á Eskifirði. Spurningakeppni er á dagskrá A myndinni hér að ofan afhendir Sigurjón Bjarnason, formaöur (JlA, efnilegum iþróttakrökkum verðlaun fyrir unnin afrek. (JlA I vetur og veröur með svip- uðu sniði og I fyrra, nema nú verða þaö kvenfélög á Austur- landi, sem keppa um skjöld, sem gefinn var af Plastiðjunni h.f. fyr- ir ári siðan og er nú varðveittur af sveitarstjórn Eiöahrepps. Riðla- keppnin fer fram 24. febrúar og verður keppt samtimis á 5 stöð- um: Hjaltalundi, Iðavöllum, Seyðisfirði, Reyðarfirði og I Stað- arborg. Skiðaiþróttin á vaxandi vin- sældum að fagna á Austurlandi, en þeim þætti verður gerö betri skil á næstunni. I lokin er ástæða til þess aö taka undir með „grátkór” (JÍA og heita á sveitarfélög Austurlands að sýna þessu dugmikla sam- bandi dyggilegan stuðning. IngH Frjálsiþróttafólk (JtA vann margan glæsilegan sigur á Landsmóti UMFI á Selfossi i sumar. Guðrún Sveinsdóttir hefur hér tekiö forystuna i 1500 m. hlaupi sem hún hélt sfðan allt til ioka. 6 ÆFINGAR A VIKU og morgunleikfími aö auki Gmoch er hér á sinni fyrstu æfingu með leikmönnum Skeid. Það vakti mjög mikla athygli I knattspyrnuheiminum þegar hinn frægi þjálfari Pólverja, Jacek Gmoch, réðst til starfa hjá norska fé- laginu Skeid. Gmoch hefur náö frábærum árangri með pólska iandsliðið og stjórnaöi þvf f sfðustu heimsmeistarakeppni. Þegar kappinn kom til starfa hjá Skeid I vikunni var hann ekkert að tvinóna við hlutina og fyrirskipaði sex æfingar i viku hverri og ef leikmenn væru I lélegri æfingu þyrftu þeir að stunda leikfimi á hverjum morgni. „Mér list mjög vel á ailar aðstæöur og félagið hefur yfir aö ráöa mörgum snjöllum leikmönnum”, segir Gmoch. Og hann heldur áfram: „Við byrjum aö ná upp þreki og þoli og siöan kemur tækni- þjálfunin inn I dæmið. Hraöaæfingum veröur lætt inn I áætlunina smátt og smátt”. tslenskum knattspyrnumönnum þætti hér eflaust nokkuö geyst farið af stað, en þó hafa margir þeirra kynnst sliku álagi, einkum þar sem erlendir þjálfarar hafa komiö nærri. IngH Iþróttir um helgina BLAK Laugardagur: IMA — Vikingur, 2. d. ka., Akureyri kl. 16.00 IMA — Þróttur, 1. d. kv., Akureyri kl. 17.00 Mimir —I.S., l.d. ka., Laugarvatnikl. 14.00 Sunnudagur: KA — Vikingur, 2. d. ka., Akureyri kl. 13.00 JODÓ Sunnudagur: Seinni hluti Afmælismóts Júdðsambands tslands verður á morgun, sunnudaginn 4. feb. Verður þá keppt I opnum flokki karla, þ.e. án þyngdartakmarkana, en um siðustu helgi var keppt i þyngdarflokkum. Þá veröur á sunnudaginn keppt I flokkum ungl- inga 15-17 ára og aö likindum einnig i kvennaflokki. Keppnin verður I iþróttahúsi Kennaraháskólans oghefstkl.14.00. Handknattleikur Laugardagur: UMFN - I.R., 2. d. kv„ Njarðvik kl. 13.00 IBK — Fylkir, 2. d.kv., Njarðvik kl. 14.00 K.R. — Armann, 2. d. ka„ Höllin kl. 15.30 K.R.—-Haukar, 1. d. kv„ Höllin kl. 16.45 Leiknir —Stjarnan2. d. ka„ Höllinkl. 17.45 BORÐTENNIS Sunnudagur: Reykjavikurmót i borðtennis verður i Laugardalshöllinni á morgun og hefst keppnin kl. 13.00 með keppni leinliðaleikiunglinga Einliðaleikur old boys hefst kl. 14.00 og kl. 15.00 hefst tvenndar- leikur. Allir tvlliðaleikir hefjast kl. 16.00 og kl. 18.00 veröur punkt- urinn settur yfir i-ið með keppni I einliðaleik karla og kvenna. KÖRFUKNATTLEIKUR Laugardagur: K.R. - I.R., úd„ Hagaskóli kl. 14.00 KFl-lBK, 1. d. ka„ Hagaskólikl. 15.30 K.R. — I.S., 1. d. kv„ Hagaskóli kl. 17.00 IV —UMFG, 1. d. ka„ Vestmannaeyjar kl. 13.00 Sunnudagur Fram —Snæfell, 1. d. ka„ Hagaskóli kl. 13.30 Armann — KFt, 1. d. ka„ Hagaskóli kl. 15.00 Mánudagur: K.R. — UMFN, úd, Laugardalshöil kl. 20.00 SKIÐI Laugardagur: Punktamót I norrænum greinum veröur i Reykjavik, bæði i flokki fullorðinna og unglinga 17-19 ára og heldur keppnin áfram á morgun. LYFTINGAR Laugardagur: Kraftlyftingamót i Vestmannaeyjum með þátttöku fatlaðra keppnismanna. FRJALSARIÞRÓTTIR Sunnudagur: Meistaramót yngstu aldursflokkanna innanhúss fer fram i Iþróttahúsinu á Selfossi á morgun, sunnudaginn 4. febrúar, og hefst keppnin kl. 14.00. Keppnisgreinar I öllum flokkum eru: Hástökk með atrennu og langstökk með atrennu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.