Þjóðviljinn - 22.02.1979, Side 1

Þjóðviljinn - 22.02.1979, Side 1
— Enn haröna deilur í stjóm NLFÍ: Vilja lögbann á aðalfundinn Lögmenn vekja athygli saksóknara á ærumeiðandi ummælum Fimmtudagur 22. febrúar 1979 — 44. tbl. —44. árg. 600 hafa staðfest inngöngu í félagid, formaöur neitar að taka þá gilda Á st jórnarfundi Náttúrulækningafélags- ins i gærmorgun gerðist það, að Marinó L. Stefánsson formaður félagsins neitaði alger- lega að taka samþykkt meirihluta stjórnar- innar gilda, en meiri- hlutinn hafði ákveðið að þeir, sem staðfestu inn- göngu í félagið fyrir miðnætti sl. þriðjudags, teldust löglegir félags- menn. borist i haidur skriflegar yfir- lýsingar frá nýjum félags- mönnum eöa umboösmönnum þeirra, alls 600 nöfn, en fyrir ára- mót haföi félaginu borist greiösla á félagsgjöldum 800 manna. Aö sögn Guöjóns er unga fólkiö I félaginu ekki ánægt meö stjórn eldrimannanna á hælinu I Hvera- geröi og telja þar um stöönun aö ræöa, læknisfræöilega og aö ýmsu ööru leyti. Hann sagöi þaö ekki rétt, sem hakiiö heföi veriö fram, aö ungu mennirnir ætluöu aö reka fólk úr störfum á hælinu. „Þaö er tóm vitleysa”, sagöi Guöjón. „En yfirlæknirinn er nú oröinn 75 ára og nýr læknir, sem allir eru sam- mála um aö taka á móti.kemur i haust. Og þaö get ég ekki kallaö brottrekstur.” —eös Ekki kæra segir Hákon Árnason, varaformaður Lögmannafélagsins Stjórn Lögmannafélags íslands hefur vakiö athygli rikissaks ókna ra á um- mælum i greinargerö Félags rannsóknariögreglumanna, sem birt var i blööum i janúar sem svar viö yfir- lýsingu stjórnar Lögmanna- félagsins. Telja lögmenn aö i greinargeröinni séu ummæli sem varöi viö 108. grein hegningarlaganna. „Ég vil ekki segja aö viö höfum kært greinar- geröina,” sagöi Hákon Arna- son varaformaöur Lögmannafélags Islands i samtali viö Þjóöviljann. „Aöeins var vakin athygli saksóknara á þvi, aö tiltekin ummæli i greinargerö rann- sóknarlögreglumanna kynnu aö brjótai bága viö 108. grein hegningarlaganna.” Hákon sagöi aö ástæöan fyrir bréfi Lögmannafélags- ins til rikissaksóknara væri, aö látiö væri aö þvi liggja i greinargeröinni aö aörar hvatir hafi legiö aö baki yfir- lýsingar Lögmannafélagsins en umhyggja fyrir hags- munum skjólstæöinga lög- manna. 108. grein hegningarlaganna lýtur aö ærumeiöingum um opinbera starfsmenn. Hákon sagöi aö lögmenn féllu undir þá grein aö þeirra mati. Þaö væri siöan á valdi saksóknara, hvort hann aöhefsteitthvaö I málinu eöa ekki. —eös Formaöur FUF í varastjórn Varöbergs, Á aöalfundi Varöbergs, féiags áhugamanna um vestræna sam- vinnu, sem haidinn var i siöustu Framhald á 14. siöu Sexttu fóstureyðingar vegna rauðra hunda Yf ir 60 konur hafa sýkst af rauðum hundum undan- farna 4 mánuði á fyrstu þremur mánuðum með- göngutíma og hafa því orð- ið að gangast undir fóstur- eyðingu af þeim sökum. Rúmlega 3000 konur af landinu öllu hafa siöan i októbermánuöi látiö mæla hvort þær hafi mótefni gegn veikinni, en sem kunnugt er veldur þessi annars væga út- brotaveiki alvarlegum fóstur- skaöa á fyrstu vikum meögöng- unnar. Flestar þessara kvenna hafa veriö mældar tvivegis meö hálfs- mánaöarlegu millibili og þær sem eru ófriskar og hafa ekki fengiö veikina hafa veriö mældar viku- lega. Mælingarnar sem fram- kvæmdar hafa veriö á Rann- sóknastofu i veirufræöi viö Eiriksgötu skipta þvi þúsundum, og sagöi Margrét Guönadóttir, prófessor, aö á siöustu árum heföi nær helmingur allra Islenskra kvenna á barneignaaldri veriö mældur, eöa um 18000-19000 kon- ur. Sérstök vakt Faraldursins varö fyrst vart á Noröurlandi s.l. sumar en meö haustinu var hann kominn i þétt- býliö og fór aö gæta verulega i Reykjavik I októbermánuöi. Aö sögn Margrétar er faraldurinn nú i hámarki sums staöar úti á landi, en hér i borginni viröist hann vera i rénun. Þó má búast viö tilfellum hér fram til haustsins og þvi full ástæöa til aö vara viö andvara- leysi þó hættan fari minrikandi, sagöi Margrét. A Heilsuverndarstööinni i Reykjavik var i nóvembermánuöi sett upp sérstök vakt á morgnana vegna þessara aöstæöna, og geta konur, sem hafa grun um aö þær séu ófriskar og eru hræddar um aö hafa smitast, komiö i blóö- töku vegna rauöra hunda, án þess aö fara i almenna mæöraskoöun. 1 rauöu hunda faraldrinum sem gekk á árunum 1963-1964 voru skráö um 6000 tilfelli og var á sin- um tima komist aö þeirri niöur- stööu aö 40-50 börn sem fæddust á þvi timabili hafi veriö heyrnar- skert. Fyrstu 8 vikurnar Menn eru sammála um aö meirihluti þeirra barna.sem fæö- ast eftir aö móöir hefur veikst af rauöum hundum fystu mánuöi meögöngutimans, hafi einhvern meöfæddan kvilla af völdum veikinnar. A fyrstu 8 vikunum er hættan mest og geta þá fleiri en eitt liffæri skemmst en siðan fer hættan minnkandi. Þaö var tyrst áriö 1966 sem tókst aö búa til bóluefni gegn rauöum hundum og áriö 1975 var fariö aö nota þaö hér á iandi. Nú hafa þrir árgangar 12 ára stúlkna (fæddar 1963, 64 og 65) veriö sprautaöir gegn veikinni. Bólu- efnið er lifandi, en veiklaöur virus og er hann skaölegur fóstrinu á sama hátt og hinn náttúrulegi vir- us. Þvi er ekki ráölegt aö bólu- setja fullþroska konur á barn- eignaaldri gegn rauöum hundum, nema þvi aöeins aö þær ábyrgist aö þær veröi ekki ófriskar næstu 3 mánuöina og noti öruggar getn- aöarvarnir á þeim tima. -A1 Myndin er tekin um borð í Bryndísi iS 69 á rækjuveiðum á isaf jarðardjúpi í siðustu viku. f brúnni er Finnbogi Jónasson skipstjóri. i opnu blaðsins í dag er sagt f rá þessum rækjutúr í máli og myndum og er það f yrsta greinin af mörgum sem birtast í Þjóðviljanum á næstunni um menn og málefni við Djúp en þar voru blaðamenn Þjóðvilj- ans á ferð. Myndina tók Leifur. -GFr. Guöjón B. Baldvinsson, gjald- keri félagsins, sagöi i viötali viö Þjóöviljann i gær,aö formaöurinn heföi sett stjórninni þá úrslita- kosti, aö annaðhvort samþykkti hún þann félagalista, sem hann og Björn Jónsson varaformaöur félagsins og yfirlæknir NLFl-hælisins i Hverageröi heföu samþykkt>eöa sett yröi lögbann á aöalfundinn, sem auglýstur hefur veriö nk. laugardag. Lögfræöingur þeirra Marinós og Björns undirbýr nú beiöni um lögbann á aöalfund Náttúru- lækningafélagsins. „Þetta veröur fróölegt”,sagöiGuöjón. „Ég held aö þaö hafi ekki komiö fyrir áöur aö beöiö séum lögbann án þess aö nokkrar fjárkröfur séu haföar uppi. Tilgangurinn viöröist ein- göngu veraisá, aö varna þvi aö fólk gangi i félagiö.” Guöjón sagöi aö honum heföu FLU GMANN ADEILAN: Atkvæði talin í dag Ný miöiunartillaga var lögö fram á fundi meö deiluaöilum i flugmannadeilunni I gærdag. Guölaugur Þorvaldsson, háskólarektor, sem nú er eini sáttanefndarmaöurinn sem er á landinu, hefur boöaö annan fund i dag kl. 11 og á þá afstaöa deilu- aöila til nýju tillögunnar aö liggja fyrir. A fundi Félags Isl. atvinnu- flugmanna I gærkvöld var fjallaö um tillöguna og greidd atkvæöi, en þau siðan innsigluö ogveröa talin áfundinum I dag. Aö sögn Magnúsar Torfa Ólafssonar blaöafulltrúa rikis- stjórnarinnareraövenju ekkert uppgefiö um eöli tillögunnar til annarra en deiluaöila. Magnús sagöist þó geta sagt aö þaö sem birst heföi i fjölmiðlum um inni- hald tillögunnar væri meira og minna úr lagi fært. Ef flugmenn Flugfélags Islands hafna þessari tillögu skellur verkfall þeirra á i fyrra- máliö, eri sem kunnugt er hefúr félagsmálaráöherra boöaö aö þá veröi gripið til róttækra aö- geröa, jafnvel lagasetningar til að koma I veg fyrir aö flugiö stöövist. Boöaöar aögeröir FIA manna eru sem hér segir: A föstudag fljúga félagsmenn ekki millilandaflug og ekki til Akur- eyrar, Sauöarkróks eöa Húsa- vikur. Á laugardag munu þeir ekkert fljúga I innanlandsflugi en þá verður millilandaflug met eölilegum hætti. —AI Á RÆKJU í ÍSAFJARÐARDJÚPI

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.