Þjóðviljinn - 22.04.1979, Page 2

Þjóðviljinn - 22.04.1979, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 22. aprfl 1979. og Jazz Messengers eitt ár við mjög góöan orðstir. Þá fóru Hank Mobley og Doug Watkins yfir i kvintett Horace Silver, en Art Blakey fékk nýja menn til liðs við sig. Hefur Art Blakey starfað nær óslitiö siðan með hljómsveit sina Jazz Messengers með ört breyttri mannaskipan. Blakey skipaði sér snemma i röð hinna færustu trommara og hefur átt drjúgan þátt i þróun trommuleiksins. Hinn kraft- mikli þyrlandi trommusláttur Art Blakey hefur jafnan einkennt leik Jazz Messengers og hvatt meðlimi hljómsveitar- innar til dáða. Art Blakey hefi.r ávalit leikið haröa bop-tónlist og var þáttur Jazz Messengers i aö viðhalda gengi bopsins á tirnum cool- sveiflunnar ótviræður. þessar öru breytingar komið nokkuð niður á þróun hljóm- sveitarinnar, þar eð oft hafa ungarnir flogið úr hreiörinu um þaö leyti sem þroski þeirra hefur verið aö ná fullum blóma. Jazz Messengers hafa verið til I ýmsum myndum og oft hafa afburða tónlistarmenn skipað kjarna hennar. Kvintett eöa sextett t>ó Art Blakey hafi leitt margar og mismunandi gerðir jazzboðbera, eru tvær sveitir sendiboða öðrum frægari. (Er þar undanskilin upprunaleg skipun Jazz Messengers sem er þeirra frægust.) Sú fyrri var starfrækt á árunum milli 1958 og ’59. Var hún skipuð þeim Lee Morgan — trompet, Benny Golson — tenor sax., Bobby Timmons — pianó og Jymie Merritt — bassi. Þessi hljóm- sveit þykir Blakey einna eftir- minnilegust, enda skipuð af- bragðs mönnum. Þessi hljóm- sveit gerði m.a. lag Benny Golson, Blues March, ódauölegt og er það enn á efnisskránni hjá Jazz Messengers. 1962 setti Blakey á stofn sex- tett sem mikið var rómaður fyrir góöa skipulagningu og efnilega tónlistarmenn, sem sextettinn skipuöu. Þar á meðal voru trompetleikarinn Freddie Hubbard, básúnuleikarinn Curtis Fuller og saxófónlcikar- inn Wayne Shorter (sem nú starfrækir Weather Report ásamt Joe Zawinul). Þessi sextett starfaði til ársins 1965. Wayne Shorter tók þarna sln fyrstu framaspor og gáfu út- setningar hans Jazz Messengers nokkuð nýtiskulegri blæ en Blakey að bragði: „Þegar við erum á sviðinu og sjáum að þaö er fólk I salnum sem stappar ekki með fótunum og dillar ekki höfðinu i takt við tónlist okkar, vitum við aö eitthvað hefur fariö úrskeiöis. Þvi að þegar okkur tekst að koma skilaboðunum til fólksins, stappa þessir fætur og hausarnir kinka kolli”. Það er vart við öðru að búast en sendiboðum jazzins takist að koma skilaboðum sinum til is- lenskra jazzunnenda I Austur- bæjarbiói annað kvöld. —jg- áður, þó að aldrei hafi þeir hvik- að langt frá harölinu bopsins. Eftir upplausn sextettsins tók Blakey aftur upp kvintett-form- ið um sinn. Siðan hefur hljómsveitin verið skipuö á ýmsa vegu, allt upp i 9 manna Combó. Meðal þeirra sem hafa haft viðkomu i Jazz Messengers á leið sinni á toppinn, má nefna Keith Jarret pianista, Chuck Mangione trompetleikara, Woddy Shaw trompetleikara, og Cedar Walton pianista, auk þeirra sem áður hafa veriö nefndir. Svartir Músiimar Art Blakey er meðal fjöl- margra svertingja sem snerust til múhameðstrúar i upphafi sjöunda áratugsins. Var það á skeiði hinnar meðvituðu vakningar meöal svartra i Bandarikjunum. Tók Blakey sér múhameðska nafnið Abdullah Ibn Buhaina sem hann notar jafnhliða sinu gamla nafni. Undanfarin tvö ár hefur Art Blakey stjórnaö sextetti og ferðast meö hann viða um heim- inn. Kom þessi sextett m.a. fyrir augu sjónvarpsáhorfenda fyrir nokkru I þætti frá finnsku PORI-jazzhátlðinni. Sextettinn skipa: David Schnitter á tenór sax., Robert Watson á altó sax., James Williams slær pianóið, Dennis Irwing þenur bassann, og sá sovéski Valery Ponamarev blæs á trompettinn. Art Blakey sér svo að sjálfsögðu um að keyra taktinn áfram af eldmóöi og krafti. Þegar _ Nat Hentpff jazzskribent tónlistartimarits- ins Down Beat spurði Blakey um tilkomu nafnsins Jazz Mess- engers i viðtali 1956, svaraði Breski gitarsnillingurinn John McLaughlin hefúr snúiö sér aftur að rafmagnsgitarnum, þvi að á sinni nýjustu plötu Electric Dreams, leikur hann nær eingöngu á rafmagnsgitar. Indverski fiöluleikarinn L. Shankar starfar enn með hon- um, en að öðru leyti hefur McLaughlin fengið nýja menn tilliðs viösig. Aplötunni er m.a. eitt lag tileinkað meistara Miles Davis, sem hefurveriö i felum I þrjú ár. Ljóöskáldið og pönkdrottning- in Patti Smith er nú tilbúin meö nýja hljómplötu sem ætti að koma á markað innan skamms. Heitir platan Waves og eru ef- laust ýmsir spenntir aö heyra hvaö þessi athyglisverða lista- kona er að gera á þessari plötu. Hún náöi verulegum vinsældum með laginu Because the night eftir strætisrokkarann Bruce Springsteen sem var á siðustu plötu hennar. FINGRARÍM Umsjón: Jónatan Garðarsson Annað kvöld, mánu- daginn 23. apríl kl 22.00, verða tónleikar Art Blakey og Jazz Mess- engers í Austurbaejarbíói. Það er félagið Jazz- vakning sem stendur að þessum tónleikum. Jazz- vakning hefur unnið ötul- lega að eflingu jazzlífs í landinu undanfarin fjög- ur ár. Er þetta sjöunda erlenda heimsóknin sem félagið býður uppá og eru það engir aukvisar sem koma fram á tónleik- unum annað kvöld. Boðberar jazzins Jazzboöberinn Art Blakey er tæpra 60 ára gamall fæddur 11.10. 1919 i Pittsburgh i Banda- rikjunum. Snemma hóf hann aö leika á pianó, en sneri sér fljót- lega að trommunum. Blakey lék með ýmsum hljómsveitum og var einn af meðlimum hljómsveitar Billy Eckstine (1944 — ’47) ásamt brautryðjendunum Dizzy Gille- spie, Charlie Parker, Fats Navarro, Dexter Gordon og fleirum. 1 febrúar 1955 stofnaði hann hljómsveitina Jazz Messengers ásamt pianistanum Horace Silver, trompetleikaranum Kenny Dorham, saxófón- leikaranum Hank Mobley og bassistanum Doug Watkins. Kvintettinn starfaöi i rúmlega Tónleikar annað kvöld Stökkpallur Þegar skipan Jazz Mess- engers riðlaöist sumarið 1956, smalaði Art Blakey saman i nýjan kvintett og hélt ótrauður afram starfrækslu Jazz Mess- engers. Mannabreytingar hafa veriö tiöar I Jazz Messengers og Art Blakey ötull við aö skipa auð sæti hljómsveitarinnar ungum upprennandi tónlistarmönnum. Þannig hefur Blakey unnið ómetanlegt brautryðjandastarf i þágu jazzins. Hefur hann leitt marga af færustu jazzleikurum seinni ára fram á sjónarsviðiö og veitt þeim brautargengi. Hefur Jazz Messengers þvi verið sannkallaður stökkpallur fyrir efnispilta á sviöi jazzins til frægöar og frama. Aö visu hafa BLAKEY Neyslupunktar poppara Einsog þeir vita sem þekktu til jazzbassaleikarans Charles Mingusar, þá lést hann af hjartaslagi 6. jan. sl. Þó Mingus hafi veriö lamaöur siðasta árið sem hann liföi og ófær um bassaleik, samdi hann áfram tónverk sem hljóðrituö hafa verið á tvær plötur. Annað er að finna á plötunni Me, My, and Eye sem leikin var inn af hljómsveit Mingusar. Þó Mingus leiki ekki sjálfur á bass- anner þetta hans siöasta afurði lifanda lifi. Er þá undanskilin hljómplata sem Joni Mitchell söngkona og lagasmiður hljóö- ritaði með verkum Mingusar sem hann samdi sérlega fyrir hana eftir lömunina. Þessi plata er enn óútkomin þrátt fyrir það að henni sé lokið. Astæðan fyrir aö Utgáfan hefur dregist er sú aö til einhverra deilna kom milli erfingja Mingusar og Joni um útgáfuna. Si'ðasta platan sem Mingus sjálfur lék inn á var Cumbria and Jazz Fusion sem út kom á siöasta ári. Charles Mingus Steve Forbert er aðeins 23 ára gamall Bandarikjamaöur. Með sinnifyrstu plötu, Allive at Arri- val, hefur honum tekist að vekja verulega athygli vestan og aust- an Atlantshafsins. Menn kepp- astnúviö aðlikja þessum dreng viö stórgoð á viö Bob Dylan og Bruce Springsteen. Þaö er reyndar engin ný bóla að nýr Dylan sé uppgötvaöur. Menn hafa beöið eftir nýjum Dylan aUa tiö siðan hinn eini sanni af- neitaði byltingarhugsjóninni sem hann byggði á i fyrstu. Hvort Steve Forbert er hinn nýi Dylan holdi klæddur, er of snemmt aðspá um. En strákur- inn á margt sameiginlegt með goðinu. Hann er ungur maður sem spilar á gitar, blæs i munn- hörpu, semur og syngur at- hyglisverða texta og rekur ræt- ur si'nar til blús og þjóðlagatón- listar. Það er vel athugandi að fylgjast nánar meö Steve For- bert i framtiöinni.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.