Þjóðviljinn - 29.05.1979, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 29.05.1979, Blaðsíða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 29. mal 1979 ■þrottir íþrottir / J ■ umsjón: INGÓLFUR HANNESSON íþróttir Sagt eftir leikinn Lefkgleðina vantaði þegar Vestur-Þjóðverjar sigruðu Islendinga á laugardaginn 3-1 Tvö mörk Vestur- Þjóðveria á sömu min. í knattspyrnulandsleiknum gegn islendingum á laugardaginn gerðu út um leikinn. Eftir það var eins og bæði liðin sættu sig við orðinn hlut og olli leikurinn nokkrum vonbrigðum þeim 9 þús. áhorfendum Laugardalsvallarins. — Lokatölur urðu síðan 3-t fyrir Vestur-Þýskaland. Þjóðverjarnir hófu leikinn með sunnangoluna i bakið en það voru okkar menn sem fengu fyrsta tækifærið. Strax á 2. mln braust Atli upp aö endamörkum, gaf fyrir, en Pétur var aðeins of seinn að ná til knattarins. Stuttu slðar þurfti Jóhannes að hreinsa frá islenska markinu með nokkuð glæfralegri hjólhestaspyrnu. Nokkuð dauft var yfir leiknum fyrstu 15 min., t.d. hafði Ingi Björn enn ekki komið við boltann. A 19. mln stóð Hoeness einn fyrir framan islenska markið með boltann, en skaut framhjá. Tveimur min, slðar skeði umdeilt atvik. Janus lenti I miklu kapphlaupi við varnarmann þýskan, komst i gegn og átti aðeins eftir Maier, markvörð. Þá flautaði Irski dómarinn og dæmdi aukaspyrnu á Þjóðverjana rétt fyrir utan vitateiginn. Aö flestra áliti var dómarinn þarna heldur fljótur á sér. Upp úr aukaspyrn- unni skallaði Jóhannes naumlega framhjá. Minútu siðar fengum við dauðafæri þegar Atli braust upp hægri kantinn, gaf fyrir, en Ingi Björn var aðeins of seinn. Ef hann hefði náð til knattarins var öruggt að við hefðum komist yfir. Tvö mörk á sömu mín. A 33. min. skeöi stóra slysið. Þjóðverjarnir gáfu fyrir islenska markið, Þorsteinn hljóp út, greip boltann, en missti nokkuð klaufa- lega út i teiginn. Þar var Walter Kelsch mættur og renndi knettin- um af öryggi i markið, 1-0 fyrir Þýskaland. Segja má, aö þetta mark hafi haft nokkurn aðdraganda, þvi Þorsteinn hafði misst svipaða bolta frá sér 3-4 sinnum áður i leiknum. Okkar menn hófu leikinn á miðju, en misstu boltann, sem var gefinn inn á miðjan vallarhelming tslands til Dieter Hoeness. Hann lék aðeins áfram og skaut siðan þrumuskoti af um 30 m. færi og bolti hafnaði I islenska markinu án þess að Þorsteinn kæmi vörn- um við, 2-0 fyrir Þýskaland. Þetta mark er með því glæsilegasta, sem undirritaður hefur séð á Laugardalsvellinurri. Eftir þetta gerðist fátt markvert nema hvað Þjóðverjarnir áttu dauðafæri, sem rann út I sandinn. í hálfleiknum fór markvörður- inn heimsfrægi Sepp Maier út á völlinn og sýndi atriði, sem flestir trúðar hefðu verið fullsæmdir af. Vakti þetta tiltæki hans mikla hrifningu áhorfenda. Daufur seinni hálfleikur Mjög dofnaði yfir leiknum eftir leikhléið og lftiö um góð færi. Það besta var þegar Þorsteinn varði vel langskot frá Hoeness eftir aukaspyrnu. A 60. min. voru Ingi Björn og Pétur teknir útaf og i þeirra stað komu Jón Oddsson og Viðar Halldórsson. Þeir félagar megnuðu þó ekki að gæða leikinn lifi. Þjóðverjarnir skoruðu sitt þriðja mark á 66. min. Gefið var fyrir islenska markið á Schuster, sem renndi boltanum til Hoeness. Hann átti ekki I miklum erfiðleik- um með að skjóta framhjá Þorsteini I markinu, 3-0. Spurn- ingin er aðeins hvar miöverðirnir islensku voru. Undir lokin lifnaði Islenska liðið nokkuö við og góö færi gáfust. Uppskera fékkst siðan á 83. min. þegar Atli skoraði eftir að boltinn barst til hans út i teiginn. Hann hikaði ekkert og þrumaði knettin- um i þaknet þýska marksins, 3-1. Framhald á 14. siðu A myndinni hér að ofan sést aödragandinn aö fyrsta markinu. Þorsteinn hefur misst knöttinn frá sér og Walter Kelsch á ekki i miklum erfiölcik- um meö aö skora. Youri llichev/ lands- liðsþjálfari: — Þaö kom margt gott fram i þessum leik hjá okk- ur. Við verðum að gera okk- ur grein fyrir þvi að Þjóð- verjarnir eru meö mjög sterkt lið og ekki auðsigrað- ir. Annars komu mörkin upp úr mjög slæmum varnarmis- tökum hjá okkur. — Ég var hissa á Þorsteini og það kom mér á óvart hve taugaslappur hann var I leiknum. — Þaö voru mikil mistök hjá dómaranum þegar hann dæmdi á brotið á Janusi eftir að hann hafði sloppiö f gegn. Dómarinn dæmdi mikiö á móti okkur. Pétur Ormslev: — Þjóðverjarnir eru tekn- iskir og erfiðir og ekki gott að leika gegn þeim. — Jú, vissulega er maöur taugaveiklaður I sínum fyrsta landsleik, en þó losn- aði furðufljótt um spennuna hjá mér. Klaus Hilpert, þjálfari IÁ: — Þetta var ekki góður leikur, sérstaklega ekki af hálfu Þjóðverjanna. Fyrir Island er i rauninni allt I lagi að tapa 1-3. Þaö er ekki svo slæmt. — Leikmaður nr. 10 i is- lenska liðinu (Pétur Ormslev) var góður og einn- ig nr. 8 (Atli Eðvaldsson). I þýska liðinu var Sepp Maier I hálfleik bestur. Kenneth J. Hope, dómari: — Það var enginn vafi varðandi brotið á Islenska leikmanninum nr. 2. Þýski varnarleikmaðurinn hindr- aði hann ólöglega og ég flautaöi. Eftir það slapp hann innfyrir. — Leikmaður nr. 8 (Atli Eðvaldsson) var mjög góður i þessum leik, en aðrir voru ekkert sérstakir. — Ef ísland hefði leikið all- an leikinn eins og fyrstu 15 min. og siöustu 15 min. hefðu úrslitin orðið önnur. Hans Miiller: V- Þýskalandi: — Þetta var sæmilegur leikur. Við áttum mörg góð færi sem ekki nýttust. — Það eru nokkrir góðir leikmenn i islenska liðinu sérstaklega nr. 8 og 10 (Atli og Pétur). • „Á 22. mín. fengum við dauðafœriþegar Atli braust upp hægri kantinn, gaf fyrir, en Ingi Björn var aðeins of seinn ”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.