Þjóðviljinn - 27.07.1979, Blaðsíða 7
Föstudagur 27. júlf 1979. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
1 -mM ■B*Pj ^
Jp|| w Jffl
HJt v/Jf L > || «, Æ
/
mi 'KÆ ms wm
UMSJÓN:
Berglind Gunnarsdóttir
Dagný Kristjánsdóttir
*
Einar Olafsson
Kristján Jónsson
Silja Aðalsteinsdóttir
Til hvers eru samtök
hómósexualista stofnuð?
Ásíðasta ári voru stofnuð samtök hómósexúal fólks
á íslandi,en þau nefnast „Samtökin 78". Þrátt fyrir
nafnleynd félagsmanna hafði Jafnréttissíðan upp á
tveim félögum úr samtökunum og rabbaði svolítið við
þá. Rétt er að taka það fram að „Samtökin 78" hafa
gefið út tvö fréttablöð og má skrifa eftir þeim og
öðrum upplýsingum til Pósthólfs 4166, 124 Reykjavík
4.
— Hver voru tildrögin aö stofnun
samtakanna og hvernig starfa
þau?
Fyrir fáum árum siöan stofn-
uöu nokkrir menn Iceland
Hospitality sem var aöallega
fyrir útlendinga. Siöan var
ákveöiö aö halda áfram og
stofna félag á sömu llnu. Efst á
blaöi hjá okkur er fræöslustarf, út
á viö og lika inn á viö. Margir eru
ákaflega ófróðir um þetta hjá
okkur. Þaö er lika eölilegt þvi
þeir hafa ekki komist i neinar
bækur eða neitt af vtói. Erlendis
hafa þeir oft umræðuhópa um
þetta. Viö þurfum lika aö koma
okkur upp húsnæði til aö starfa i
og svo er mikilvægt aö menn ger-
ist styrktarfélagar þó þeir séu
ekki i samtökunum.
Þaö eru bæöi karlar og konur i
samtökunum en konur eru þó
miklu færri. Hins vegar er mjög
æskilegt aö bæði kynin séu þar
saman, þá veröur þetta ekki eins
„fixeraö” viö annaö kyniö. í
sumum löndum hefur samstaf
kynjanna gengiö stirt en þaö finn-
ast lika dæmi um hiö gagnstæöa,
svo sem i Noregi. Þar fekk kona
sem heitir Karen-Christine,
Friele einhvers konar málfrelsis-
verölaun fyrir skrif sin um hómó-
sexúal fólk. Hún er mjög virt.
Réttindi og sjálfsvirðing
— Hvers vegna þarf hómó-
sexúalt fólk aö stofna samtök?
I stefnuskránni stendur aö
samtökin berjist fyrir réttindum
út á viö, en þaö er ekki sist til aö
efla sjálfsviröingu félagsmanna
inn á viö, þvi þeir eru sjálfir svo
ákaflega fordómafullir, halda aö
allir séu á móti sér og eru alltaf I
varnarstööu. Menn eru að reyna
aö leyna þessu og kalla þaö tillits-
semi. Ég held að öll þessi leynd
sé versti óvinurinn. Menn eru aö
reyna aö fela sjálfa sig og til-
finningar sinar. En i rauninni
þarf ekki alla þessa leynd. Maöur
þarf ekkert aö gera sig neitt af-
káralegan og ef maöur er spuröur
og kringumstæöur leyfa þá segir
maöur bara hreint út. Fólk
veröur aö taka þvi úr þvi það er
aö spyrja. Og lika aö viöurkenna
þetta fyrir fjölskyldu sinni. Þaö
er alltaf styrkur aö þvi aö geta
opnaö sig.
Einangrun og sambúð
— Einangrast hómósexúalt fólk
hvert frá ööru?
Já, þaö einangrast en getur
samt komist i samband viö fólk ef
þaö vill. En þegar þaö kemur
saman i hópi þá þorir þaö aldrei
aö ræöa vandann heldur flýr frá
honum. Þaö flýr frá þvi aö vera
opiö þó þaö sé kjarni málsins. Og
þó það komist i samband viö aöra
þá er þaö alltaf spurning um gæöi
sambandsins. Þaö er klárt mál
aö þegar menn eru alltaf aö reyna
að leyna þessu taka þeir enga
áhættu i sambandi við til-
finningar, þeir þora ekki aö kafa
djúpt i aðra manneskju.
— Hvernig gengur fyrir tvær
hómósexúalar manneskjur aö
halda stööugu sambandi?
Það fer eftir ýmsu, t.d. hvort
þær eru i leyndinni. Það er alltaf
átak ööru hverju aö komast hjá
henni. En maður eflist, þaö er
litiö hænufet i einu. Svo lika
hættir þetta aö snúast bara um
þaö aö vera hommi en lika þaö aö
vera manneskja og geta lifaö sem
manneskja. Svona sambönd
hljóta aö vera viökvæm en þaö
eru lika ekki svo margar fyrir-
myndir sem maöur hefur kynnst.
Fordómar
— Hafiö þiö oröiö fyrir aökasti?
Nei, viö höfum ekki orðið fyrir
aökasti, helst er að fólk vill ekki
vita af þessu og ætlast til þess aö
maöur þegi yfir þvi. Mikilvægt
skref er að hætta aö hlæja aö
hommabröndurum. Meira aö
segja hommar hlæja aö þeim,
sennilega i varnarskyni. Annars
eru hommar ekki eins fátiöir og
fólk heldur. Samkvæmt Kinsey-
skýrslunni sem gerö varistriöinu
og var byggö á kynhegöun fólks
en ekki hneigöum þess, eru menn
sem eru algjörlega hómósexúal
alla ævi 4% en i nýrri skýrslu sem
byggist á kynhneigð er talaö um
aö þeir séu um 13%. Þetta sést
lika af þvi að viö fáum bréf frá
fólki allsstaöar utan af landi,
jafnvel afskekktustu byggöar-
lögum. Sveitungar þess vita
ekkert um þetta.
Annars held ég aö fólk sé ekki
eins fordómafullt og menn
halda. Ef ég kem hreint til dyr-
anna þá er alla vega léttara aö
vinna á fordómunum þvi þá þarf
ég ekki aö óttast aö fólk gruni
eitthvað.
— Hvernig er háttaö réttindum
hómósexúal fólks hér á Islandi?
Agætlega, miöaö viö hvernig
þaö hefur verið viöa erlendis.
— Dreifist hómósexúalismi
jafnt yfir allar stéttir þjóöfélags-
ins?
Það hefur komiö i ljós aö þeir
sem koma úr lægri stéttunum
semja sig frekar aö siöum þjóö-
félagsins. Þeir sem eru betur
settir leyfa sér meira. En þaö er
ekki þar meö sagt aö hómó-
sexúalismi sé gundinn viö efrí
stéttirnar.
Hugmyndir og veruleiki
— Eru hommar kvenlegri en
aörir karlmenn?
Þaö er algjör þvæla. Ég þekki
3-4 sem eru kvenlegir af öllum
þeim skara sem ég þekki. Hvers
vegna skyldu hommar ekki vera
háöir sömu fordómun og aörir
karlmenn t.d. hvaö varöar til-
finningar? Ég er viss um aö
margir hommar leggja méira
upp úr þvi að rembast viö aö vera
karlmannlegir en aðrir karl-
menn. Sama gildir þegar talaö er
um aö annar aöilinn sé i kvenhlut-
verki og hinn i karlhlut-
verki. Hvers vegna ætti maður
aö sækjast eftir kvenlegum karl-
manni, sem falskri kvenimynd i
staöinn fyrir aö fara til raunveru-
legrar konu?
— Mótast þetta ekki einmitt af
heföbundnum hugmyndum um
samband karls og konu?
Jú einmitt, svo er fólk lika svo
þrælbundið hugmyndum um sér-
staka tækni eöa aöferðir i kyn-
lifinu, eins og tvær konur, þaö
hvarflar ekki aö þvi aö t.d. tvær
konur geti veriö saman.
— Eru ekki hugmyndir fólks um
homma og lesbiur mikiö tendar
vangaveltum um kynlif og kyn-
færi?
Jú, hvað er þaö sem fólki finnst
svo ógeöslegt viö mann sem
homma? Ég meina sem mann-
eskju. Þú heitir þetta og svo
ertu hommi. Þaö er eins og
forstjóratitill eöa eitthvaö. Aö
vera hommi er bundiö viö þetta i
bólinu, hvernig þaö fer fram.
Drykkfelldir?
— Er hómósexúalt fólk drykk-
fellt?
Þaö eru margir sem tengja
hommaskap algeru sukki. En
auövitaö drekka margir út af
streitu. Fólk heldur ekki út
leikaraskapinn. Ef maður er einu
sinni töfaldur i roöinu, bara
skugginn af sjálfum sér, þá hlýtur
það aö koma út einhvern veg-
inn. Annars er þaö undarlegt aö
aldrei skuli vera talaö um þetta
hérna. Þaö er ábyggilega fjöldi
manns sem leitar til sálfræöinga
útaf þvi aö þeir eru hómó-
sexúal. Við höfum hitt fólk sem
sálfræðingar sögöu viö:
„Gleymdu þvi bara”. Aörir hafa
farið til sálfræðings meö þetta
sem sitt vandamál, og þá heldur
hann áfram aö tala um þaö sem
vandamál, eins og einhvern sjúk-
dóm sem þurfi aö lækna. Maöur
veitum þó nokkra sem hafa leitaö
til sálfræöings. Maöur hefur hitt
þá daginn eftir. 1 rusli. Og oröið
þá sjálfur aö „porra” þá upp. Þvi
er þaö mikilvægt aö efla meö
þeim sjálfsviröingu.
Á móti náttúrunni?
— Nú eiga tveir heterósexúal
karlmenn mjög erfitt meö aö tala
um sina kynreynslu ööru visi en
sem grobb. Kemur þetta eins út
hjá hómósexúal karlmönnum?
Ætli þaö sé ekki þaö sama á
þessu sviöi sem öörum að hómó-
sexúal karlmenn hugsi eins og
hinir. Sumir segja meir aö segja
„karlafarssögur”. Hugsana-
gangur homma er alveg jafnt i
anda karlveldisins hvaö snertir
hlutverkaskipti karla og kvenna
t.d. aö komast yfir einhvern. Þaö
var annars merkilegt sem kom i
ljós I rannsókn einni i Bandarikj-
unum um kynlif, að heterósexúalt
fólk geti margt lært af hómó-
sexúölu fólki, einkum heterókarl-
menn af lesbium.
— Er hómósexuel kynhneigð „á
móti” náttúrunni?
Þaö mál alveg eins spyrja hvort
pillan sé á móti náttúrunni. Aöur
fyrr skipti frjósemi meira máli i
sambandi við kynlif. En ekki
lengur. I dag fellur sú röksemda-
færsla niöur.
— Eru margir bisexúal?
Sumir segja að fók sem er „bi”
þori ekki aö viöurkenna til fulls
fyrir sér aö það sé hómó-
sexúal. Aðrir segja að bisexúal
fólk hafi meiri breidd i kynlifi
sinu. Þaö sé hiö ideala. En þaö
er varla hægt aö kalla þaö fólk
blsexúalt sem hefur þvingað sig i
hjónaband. Ég held að þaö sé
ekki æskilegt.
— Nú ber minna á lesbíum en
hommum. Hvernig stendur á
þvi? Eru þær ragari viö að opin-
bera sig?
Þaö getur lika verið aö fólk á
léttara meö aö viðurkenna
lesbiur, að konur sýni hvor
annarri bliðuatlot, haldist i
hendur og haldi hvor utan um
aöra og jafnvel og þær búi saman
frekar en tveir karlmenn. Þær
þurfi ekki eins mikla leynd. Lika
aö þaö skipti ekki eins miklu máli
þó konur sé hómósexúal. Maöur
heyrir samt meira talað um
lesbiur. Þaö er t.d. allt i lagi aö
græða peninga á þessu öllu. 1
kvikmyndum er t.d. voöa vinsælt
aö hafa tvær lesbur. Og lika
homma. Það er gott aö hafa ein-
hverja afkáralega týpu i kvik-
mynd. Þaö er allt i lagi. En að
frétta aö nágranni þinn sé hómó-
sexúal, þaö er allt annaö. Þó er
Framhald á 14. siöu
Takið nú eftir
Jafnréttissiöufólk er stööugt
aö rekast á fréttir i blööum og
okkur berast sögusagnir af þvi
aö konur og karlar veröi fyrir
andstyggilegasta ofbeldi af
hálfu starfsfólks á veitinga-
stööum borgarinnar. Viö
höfum nú þegar nokkrar frá-
sagnir af sliku, allt frá hnjaski
upp i hreinar pyntingar. Fólk
á hins vegar erfitt meö aö leita
réttar sins I slikum málum og
þau vilja oftar en ekki
„stranda I kerfinu” — ef þau
eru kærö á annaö borö.
Viö höfum áhuga á aö taka
þessi mál upp á Jafnréttissiöu
og skorum á þá sem lesa þetta
og hafa beina reynslu i
þessum efnum aö láta okkur
vita. Viö vitum það öll aö
samstaöan er liklegust tU aö
koma einhverju til leiðar. Viö
á Jafnréttissiðu heitum full-
kominni þagmælsku um nöfn
og vonum að þiö bregöist nú
vel viö.
Hringiö i Kristinu Asgeirs-
dóttur, blaöamann á Þjóö-
viljanum — simi 81333 — frá
mánudegi til miövikudags, ef
þiö viljiö leggja okkur liö.
Dagný/Kristján/tíerg-
lind/Einar og Silja