Þjóðviljinn - 27.07.1979, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 27.07.1979, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 27. jlíli 1979. Umsjón: Magnús H. Gíslason Frá Hellissandi: Yfírdrífin atrínna svona vinnslu heldur er þetta fyrst og fremst gert til þess aö halda uppi atvinnu. t vor var fariö aö vinna hörpu- disk hér i húsinu og er þaö góö framleiöslugrein, skapar a.m.k. gjaldeyri. En þaö komst aldrei i gegnum skiffinnskuna aö styrkja þessa starfsemi aö þvi marki aö hún stæöi undir sér og þurfti þó rúmlega helmingi minni upphæö til þess en þá, sem greidd var úr atvinnuleysistryggingarsjóöi hing- aö á staöinn yfir mánuöina april-mai. Er þaö óneitanlega dálitiö kúnstug hagfræöi aö borga fólki frekar fyrir þaö aö gera ekki neitt en aö vinna að störfum, sem skapa verömæti. bs/mhg Fornleifarannsóknir og tornminjaverndun á Austurlandi Áformað er að dagana 23. júlí til 18. ágúst fari fram forleifarannsóknir á gamla verslunarstaðnum f Gautavík í Berufirði, að því er Gunnlaugur Haraldsson, minjavörður, segir í Austurlandi. Rannsókn þessa mun Torsten Chapelle, prófessor við háskólann í MUnster í Þýskalandi ann- ast ásamt fimm þýskum fornleifafræðistúdentum. Er hér um að ræða efndir á fyrirheiti um rannsókn á íslenskum forleifum, sem Vestur- Þjóðverjar gáfu á þjóð- hátíðarárinu 1974. Af hálfu Þjóðminjasafnsins munu Guðmundur Ólafs- son safnvörður og Gunn- laugur Haraldsson vinna að uppgreftrinum. Naumast þarf aö ætla, aö rann- sókn á verslunarstaönum ljúki á þessu sumrjen þó ætti aö finnast nokkur lausn á þeirri gátu hver saga og þýöing hins forna kaup- vangs var á fyrstu öldum Islands- byggöar, uns kaupskapur hófst á Djúpavogi. Þá veröa og i sumar skráöar skipulega forn- og þjóöminja- rannsóknir á Jökuldal, Jökuldals- heiöi og jafnvel viöar. Er sú vettvangskönnun liður i þvi mikla framtlðarverkefni aö kortleggja allar forn- og söguminjar á Austurlandi. Mun Gunnlaugur Haraldsson annast þessa skrán- ingu i sumar. Byggðasafn Austur-Skaft- fellinga Aö undanförnu hefur staöiö yfir viögerö á Gömlu búö á Höfn i Hornafiröi o£ raiðar henni vel áfram. Viðgerö er aö ljúka hiö ytra og langt kominn frágangur á kjallara. Þórketill Sigurösson smiöur hefur annast tréverkiö, meö mikilli prýöi. Hugmyndin er aö munir safnsins, um 1500 aö tölu, veröi fluttir i Gömlu búö i þessum mánuöi. Veröur þá væntanlega tilbúin aöstaða til viögeröa og hreinsunar á mun- unum, sem er forsenda þess, aö hægt verði aö stilla þeim upp til sýningar. Byggöasafnsnefnd hefur ráðiö Gisla Arason á Höfn sem safn- vöröihálft starf. Er það framtak i fullu samræmi viö þann stórhug og skilning, sem sýslunefnd hefur sýnt safnamálum þar i héraði. Þarf ekki aö efa hvilik lyftistöng það verður byggða- safnsmálum sýslunnar aö hafa þegar i upphafi á aö skipa safn- veröi til aö sinna þeim fjölþættu verkefnum sem úrlausnar biöa á safninu áöur en þaö veröur til- búiö til sýningar almenningi. Er aö þvi stefnt aö svo geti oröiö á næsta sumri. Húsverndun A sviöi varöveislu og viögeröa gamalla húsa er þaö helst á döf- inni i sumar aö áfram veröur haldiö viögeröum á gamla torf- bænum á Galtastöðum frammi i Hróarstungu. 1 fyrra tókst aö ljúka endurbyggingu á búri og bæjargöngum, en i sumar er áformað aö ljúka bæjarhúsi og baðstofu meö fjósi undir palli. Safnastofnun Austurlands hefur umsjón meö verkinu i um- boöi Þjóðminjasafns, sem stendur straum af kostnaöi, meö tilstyrk Þjóöhátiöar- sjóös. Timburvinna er i höndum Auöuns H. Einarssonar kennara á Egilsstööum, en hann hefur veriö ráöinn til starfa hjá SAL i sumar viö þetta verk og önnur áþekk. Torf- og grjóthleöslu mun annast sem áöur Sveinn Einars- son, vegghleöslumaöur,og Friðrik Lúöviksson. Við viögerö á Galtastaöabæ gefst kostur á verndun dæmi- gerðs austfirsks smábýlis, til mótvægis viö þau sýnishorn af höfðingjasetrum, sem varöveitt hafa verið i nokkrum eintökum hérlendis (Glaumbær, Burstafell o.fl.). önnur verkefni af þessum toga eru viögeröir safnahúsanna Framhald á 14. siöu stööum eins og hér er mikil þörf fyrir leikskóla þvi máttar- stólpar atvinnulifsins eru fyrst og fremst húsmæður. Fyrir dyrum standa og fram- kvæmdir viö gatnagerð. Hefur veriö samþykkt aö freista þess að leggja oliumöl á tvær aöal- göturnar hér i þorpinu, Hösk- uldarbraut og Naustabúö. Jafn- framt þeim framkvæmdum veröur svo unniö aö holræsa- gerö, en hér hafa ekki verið nein holræsi, heldur hefur þaö mál veriö leyst meö þvi að búa til þrær I hraunið. Flugbraut Auk framkvæmda sveitar- félagsins er svo um ýmislegt fleira aö ræöa. Undanfarnar 5-6 vikurhefurveriö hér að störfum vinnuflokkur við aö leggja flug- braut viö Rif og er þeirri fram- kvæmd nú senn lokiö. Þetta er 800 m braut, sem lögð er i sumar en áætluð er að hún veröi 1200 m, þannig aö hún hafi fulla lengd fyrir Fokkervélar. Þá er og aö þvi stefnt að leggja aðra braut svo hægt veröi aö lenda hér I svo til hvaða vindáttsem er. Völlurinn á Rifi hefur veriö mikiö notaöur af ibúum Rifs, Hellissands og Ólafsvikur og er mikil nauösyn á aö þessum framkvæmdum veröi haldiö áfram svo aö lend- ingarskilyröi veröi sem trygg- ust, en hingað til hefur mikiö Atvinnuastand hefur veriö mjög gott hér á Hellissandi, sagöi Skúli Alexandersson er Landpóstur ræddi viö hann i fyrVa dag. Þaö hefur veriö alveg sæmi- legt fiskiri hjá smábátunum en veiöi þeirra er uppistaöan I afl- anum hér yfir sumariö. Stærri bátar réru hér meö net alveg fram aö netaveiöibanni þannig aö fiskur hefur veriö nægur til vinnsluog allir haft yfirdrifiö aö gera, unglingar jafnt sem aörir. Framkvæmdir hjá sveitarfélaginu A vegum sveitarfélgasins er allmikiö um framkvæmdir. Má þar fyrst telja skólahússbygg- ingu og er stefnt að þvi aö koma henni undir þak I sumar. Þetta er 1200 ferm. bygging á einni hæð. Arkitektinn er Guð- mundur Þór Pálsson en Verkfræöiskrifstofa Siguröar Thoroddsens sér um verkfræði- hliöina. Við höfum veriö i vand- ræðum með skólahúsnæöi og höfum t.d. orðiö aö kenna á þremur stöðum. Stefnir þaö nú allt til betri áttar meö þessari byggingu. Þá eru uppi hugmyndir um aö sveitarfélagið hefji fram- kvæmdir viö byggingu leik- skóla. Við fengum smá fjár- veitingu á núgildandi fjárlögum til þess aö hefja verkið. Leik- skóli hefur veriö hér i nokkur ár en i mjög lélegu húsnæöi. En á Frá Hellissandi vantaö á þaö og völlurinn mátt heita lélegur. Hafnarbætur I Rifshöfn er verið aö lengja viðlegukant um 50 m. Er þar sett niður nýtt stál- þil. Undanfariö hafa verið nokkur þrengsli i höfninni um háannatimann og bætir þetta mjög alla aöstööu þar. En hingaö til hefur það veriö svo, að hafi fleiri en eitt flutninga- skip verið í höfninni hefur veriö mjög erfitt um landanir fyrir báta. Ottadekk Þá komum við loks að þeim framkvæmdum, sem flestir hér biða eftir meö mestri eftirvænt- ingu en þaö er að Vegagerö rikisins mun leggja svokallað Ottadekk á veginn frá ólafs- vikurenni og hingaö út á Hellis- sand. Þessum vegi hefur veriö mjög erfitt að halda við vegna umferðarþunga. Viö fögnum mjög þessari framkvæmd og erum þakklát öllum þeim, sem að þvi hafa unnið, að þetta yröi gert. Búist er viö, að á þessu verki veröi byrjaö um miöjan ágúst. Þaö er nú af sem áöur var, að atvinnulif var hér dauft og fólk flutti burtu, en nú er hér hver kompa fullsetin og vantar hús- næði til þess aö fólk sem vill setjast hér aö, geti þaö. sa/mhg — Svo miklar byggingarfram- kvæmdir eru nú hér á Hólmavik að ég man ekki eftir þeim meiri áöur, sagði Brynjólfur Sæmunds- son, ráöunautur á Hólmavik er Landpóstur átti viö hann tal nú nýlega. Verið er að byggja 13 eða 14 ibúöir i sumr. Þá er verið aö byggja við frystihúsiö. Er þar um að ræöa rúm fyrir rækju- vinnslu og er fyrsti áfangi af tölu- vert stórri byggingu við frysti- húsiö. Svo er veriö aö byggja viö skólann og loks hús yfir Búnaöar- bakann svo þú sérö, að þetta eru talsverö umsvif. Hins vegar horfir alls ekki nógu vel meö atvinnumálin hér á Hólmavik. Aflaleysi hefur veriö hjá færabátunum. Viö erum alltaf aö berjast i þvi aö fá hingað togara. Hægagangur mikill er hjá stjórnvöldum á þeirri af- greiðslu. Viö erum þó engan veg- inn vonlausir meö endalokin enda er þaö alveg dauöadómur yfir okkur fáum við ekki ný atvinnu- tæki, þaö er öllum full ljóst hér. Frystihúsiö er i hráefnis- svelti. Þriöjungur af þeim fiski, sem hér hefur veriö unninn I júni og júli hefur veriö flúttur hingaö af svæöinu frá Þingeyri til Skaga- strandar. Hafa þeir flutningar bæöi farið fram á sjó og landi. Kaupfélagsstjórinn sagöi nú á dögunum aö hann væri búinn aö borga 3 milj. kr. i hráefnis- flutninga hingaö þessa tvo mán- uöi og þó byrjaöi ekki vinnsla fyrr en nokkuð var liðið á júni. Svo þetta stendur nú ekki vel. Viö teljum aö Hólmavik sé ekki verr fallin til togaraútgeröar en aörir staöir hér á Vestfjörðum. Auö- vitaö veröur ekki hagnaöur af Pipulagnir Nýlagnir/ breyting- ar, hitaveituteng- ingar. Sími 36929 (milli kl. 12 og 1 og eftir ki. 7 á kvöldin). Hólmavik Mikið byggt á Hólmarík

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.