Þjóðviljinn - 08.08.1979, Qupperneq 16
PJOÐVIU/NN
Miðvikudagur 8. ágúst 1979.
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til
föstudaga, kl. 9 — 12. f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum.
Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfs-
menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, afgreiösla 81482 og Blaðaprent 81348.
C 81333
Kvöldsími
er 81348
Á að kœfa þjónustumiðstöð fyrir
aldraða í fæðingu?
Sjöfn á sveif
meö íhaldinu
og tveir embœtismenn félagsmáld-
stjóra fjalla um úthlutun íbúða fyrir
aldraða í Dalbraut
Á fundi félagsmálaráðs
s.l. fimmtudag gerðist það
rétt einn ganginn að Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir fulltrúi
Alþýðuflokksins gekk í lið
með íhaldinu og samþykkti
að hundsa hina nýju stjórn
þjónustumiðstöðvar aldr-
aðra varðandi úthlutun
ibúða við Dalbraut og fela
Geirþrúði H. Bernhöft og
Gunnari Þorlákssyni að
gera tillögur um úthlutun
en það hafa þau reyndar
séð um í st jórnartíð íhalds-
ins í Reykjavík.
A siðustu þremur fundum ráðs-
ins hefur verið rætt um hvernig
staðið skuli að úthlutun þessari,
en ibúðirnar við Dalbraut verða
væntanlega teknar i notkun i okt-
óbern.k. Er ekki seinna vænna en
umsækjendur,sem eru fjölmarg-
ir, fari að fá vitneskju um hvort
þeir fá inni i húsunum eða ekki.
Lagði félagsmálastjóri, Sveinn
Ragnarsson.til að umsóknirnar
yröu lagðar fyrir stjórn Þjónustu-
miðstöövarinnar en húsnæðisfull-
trúanum (Gunnari Þorlákssynil
og ellimálafulltrúanum (Geir-
þrúði Bernhöft) siðan falið að
gera tillögur til félagsmálaráðs
um úthlutun.
Þótti fulltrúum Framsóknar og
Alþýðubandalags sem i þessari
tillögu væri gróflega gengið
framhjá hinni nýju þjónustumið-
stöð, sem m.a. er ætlað að sam-
hæfa alla þjónustu og aðstoð við
aldraða Reykvikinga bæði á fé-
lagslega sviðinu og á heilbrigðis-
sviðinu. 1 stjórn Þjónustumið-
stöðvarinnar sitja þrir starfs-
menn félagsmálastjóra, — for-
maðurinn er Jónina Pétursdóttir
forstöðumaður heimilishjálpar-
innar, Guðrún Kristinsdóttir for-
stöðumaður fjölskyldudeildar og
Geirþrúður H. Bernhöft ellimála-
fulltrúi. Þá eiga tveir fulltrúar
heilbrigðisþjónustunnar sæti i
stjórninni, dr. Friðrik Einarsson
læknir Hafnarbúða og Kolbrún
Agústsdóttir deildarstjóri heima-
hjúkrunar.
Lagði Guðrún Helgadóttir til að
stjórninni yrði falið i samráði við
húsnæðisfulltrúa að gera tillögur
um úthlutun enda er til þess ætl-
ast að félagslegar aðstæður og
heilsufar umsækjenda verði
kannað. Sjöfn felldi þessa tillögu
með ihaldinu og samþykki þessi
nýji meirihluti i félagsmálaráði
siðan að fela þeim Gunnari Þor-
lákssyni ög Geirþrúði Hildi Bern-
höft að leggja mat á umsóknir
manna eftir að hafa fengið um-
sögn frá stjórn Þjónustumið-
stöðvarinnar.
Ljónagryfjan minnir á fljótandi ruslahaug þar sem bflhræ og annað óþverradrasl teygir anga sfna langt
út úr gryfjunni og niður eftir öllum hliðum. Hafnarf jarðarbær er kominn langt meðað útbúa nýja rusla-
hauga inni i bæjarlandinu.
Mynd Leifur.
Nýir ruslahaugar í
landi Hafnarfjarðar
„Þeir sem vilja járnaruslið geta fengið það fyrir ekki
neitt”, segir bœjarverkfrœðingur
,,Það er betra að hafa
þessi bilhræ á sama stað
heldur en dreifð út um
allan bæ” sagði Björn
Arnason bæjar-
verkfræðingur í Hafnar-
firði i samtali við Þjóð-
Fjórir nefndarmenn i Harðindanefnd leggja til:
Fimm ára áætlun
um aðlögun búvöruframleiðslu að innanlandsþörfum
Eins og fram kemur í
áliti meirihluta harðinda-
nefndar telur hann nauð-
synlegt að sú fjárútvegun
sem hann leggur til, 3
miljarðar til að bæta að
nokkru óverðtryggðan út-
flutning, verði tengd að-
gerðum til að aðlaga fram-
leiðslu landbúnaðarvara
sem best neysluþörfum
þjóðarinnar. I sérstakri
bókun taka Kjartan ólafs-
son, Ásgeir Bjarnasón,
Ingi Tryggvason og Jón
Guðmundsson fram að
þessum aðgerðum verði að
haga þannig að þær valdi
sem minnstri röskun á
högum bænda og verði við
það miðaðar að ekki þurfi
að flytja inn landbúnaðar-
vörur.
Siðan segir i bókun þessara
fjögurra nefndarmanna:
„Við erum þvi fylgjandi, að
gerð verði áætlun til 5 ára til að ná
þessum framleiðslumark-
miðum. Til að ná þeim viljum
við leggja til að eftirfarandi ráö-
stafanir verði gerðar:
1. A næstu 5 verðlagsárum verði
útflutningsbótaréttur óbreyttur
að verðgildi frá þvi sem er á
þessu ári.
2. Fjármunir þeir sem sparast
kunna á næstu 5 árum vegna
minnkaðrar framleiðslu verði
notaðir til að endurgreiða við-
bótarútflutningsbætur þær sem
greiddar verða á verðlags-
árunum 1978-1979 og 1979-1980 og
til að aöstoða bændur við að að-
laga framleiðslu sina. settum
markmiðum.
3. Niðurgreiðslur á smjöri og
dilkakjöti lækki ekki hlutfallslega
á næsta verðlagsári.
4. Teknir verða upp samningar
milli rikisvaldsins og bænda um
nánari framkvæmd þessara til-
lagna.”
—ekh.
Svartoliukerfi í Tý og Ægi:
Engin ákvöröun enn
Morgunblaðið greindi
á sunnudag frá þvi að
fyrirhugað væri að
breyta vélum varðskip-
anna Ægis og Týs
þannig á næstunni, að
þær geti brennt svart-
oliu. í viðtali við Garðar
Pálsson hjá Landhelgis-
gæslunni kom hins
vegar fram að ekki hefði
nein ákvörðun verið
slika breyt-
tekin um
ingu.
Garðar sagði, að það væru
menn sem reru að því öllum árum
að vélum varðskipanna væri
breytt til svartoliubrúks. Hins
Framhald á 14. siðu
viljann i gær þegar um-
hverfi „Ljónagryfj-
unnar” á Hvaleyrarholti
i Hafnarfirði var borið
undir hann.
„Ljónagryfjan” svonefnda
myndaöist þegar tekið var stór-
grýtí vegna hafanarframkvæmda
við Suðurgarðinn i Hafnarfirði
fyrir nokkrum áratugum. Fyrir
nokkrum árum notaði Fiski-
mjölsverksmiðjan Lýsi & mjöl
gryfjuna fyrir loðnuþró, en nú
hefur Hafnarfjarðarbær nýtt
hana sem geymslu fyrir bilhræ í
nokkurn tima.
Aðkoman aö gryfjunni er
óskemmtileg eins og myndirnar
hér að ofan bera meö sér. Menn -
eru hættir að hafa fyrir þvf að
koma bílhræjunum fyrir inni i
gryfjunni, heldur skilja þau eftir
á viðavangi fyrir utan hana og
eins virðast margir lita á þetta
athafnasvæði Hafnarfjarðar-
bæjar sem nýja ruslahauga inni i
bæjarlandinu.
Aöspurður sagði Björn, að það
væri of dýrtfyrir bæjarfélagið að
halda uppi vakt við gryfjurnar
allan sólarhringinn, til aö passa
upp á að vel væri gengið um
þarna, en mikiö hefur borið á, að
fólk nái sér i varahluti Ur hræj-
unum um leið og það losar sig við
rusl að heiman I gryfjuna. Þá
sagði Björn að heilbrigðisfulltrú-
inn hefði i samráði við sig séð um
að fá jarðýtu til að hreinsa til
fyrir framan gryf juna á nokkurra
mánaða fresti. Sagðisthann vera
oröinn nokkuð langeygur eftir
jarðýtunni I þetta skiptið, þvi aö
óneitanlega væri orðið heldur
mikið rusl fyrirframan gryfjuna.
Þá varBjörn spurður um skipu-
lag þessa svæðis i framtiðinni og
hvort ráögert væri að hafa þarna
ruslageymslu til eiliföar.
Björn sagði, að bærinn lifði f
voninni um að einhverjir, sem
hefðu yfir stórri pressu aö ráöa,
t.d. Sindrastál, tækju bilhræin og
pressuðu þau saman i brotajárn,
en járnahrúgan væri alveg verð-
laus eins og hún liti út i
dag. Björngat þess einnig, að ef
einhverjir væru tilbúnir að hirða
járnarusliö gætu þeir fengið það
fyrir etóci neitt.
Til viðbótar því mikla um-
hverfislýti, sem ruslahaugurinn
er á einum fegursta stað bæjar-
ins, er vert að benda á þá miklu
slysahættu sem bæjarfélagið
býður upp á i næsta nágrenni við
stórt ibúðarhverfi en svæðið i
kringum gryfjurnar er ógirt með
öllu og litið sem ekkert eftirlit
haft með ruslahaugnum.
-*g
Mörg
slys um
helgina
Margir ökumenn voru
teknir fyrir ölvun viö akstur
um verslunarmannahelgina
og nokkur umferðarslys urðu
og óhöpp.
A laugardag varð bilslys á
Snæfellsnesi og á mánudag
slasaðist ungur maður al-
varlega er bifhjól hans fór út
af Grindavikurveginum.
Maðurinn kastaöist um 100
metra af hjólinu og hlaut
slæmt höfuðhögg. Bill valt á
veginum milli Sandgerðis og
Garðs á sunnudagsmorgun
og ökumaður slasaðist tals-
vert. Um svipað leyti ók ölv-
aður maður bifreið sinni út
af veginum við Rauðavatn,
en slapp litiö meiddur. Þrir
slösuðust i bilveltu á Vaðla-
heiði I fyrrakvöld, en ekki
mun um alvarleg meiðsl að
ræða. A sunnudag varð harð-
ur árekstur I Skagafirði milii
tveggja bila, en engin slys
urðu á mönnum. Slðdegis á
mánudag varð talsvert harð-
ur árekstur hjá umferöar-
ljósunum á aðalveginum á
Keflavikurflugvelli. öku-
maður annarrar bifreiöar-
innar fékk höfuðhögg og báö-
ar bifreiðarnar eru talsvert
skemmdar.
■ eos