Þjóðviljinn - 19.08.1979, Page 5
Sunnudagur 19. ágúst 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
„Neita verkefnum aðeins ef þau striða gegn pólitískri sannfæringu
minni.”
Rœtt við finnska leikmyndagerðar-
manninn Pekka Ojamaa sem kennir
íslenskum áhugaleikhúsmönnum
og það endaði á þvi að við vorum
að gangaaf hverju ööru dauðu. Ég
held að það sé æskilegast að leik-
stjóri, leikmyndagerðarmaður,
höfundur og aðrir sem bera á-
byrgð á hinum einstöku listrænu
þáttum sýningarinnar, vinni for-
vinnuna sameiginlega áður en
byrjað er að æfa. Og ég kæri mig
heldur ekki um að vinna með leik-
stjóra, sem er búinn að ákveða
endanlega hvernig sýningin á að
lita út þegar ég hætti. Ég hef
mjög góða reynslu af þvi að lesa
leikritið fyrst með leikstjóra upp-
hátt og skrá strax hjá mér fyrstu
sýn eða „vision” af verkinu.
Siðan vil ég geta unnið að þvi að
greina verkið með leikstjóra og
finna þvi form i samræmi við þá
afstöðu sem við tökum sameigin-
lega til verksins. Og til að tryggja
rétta „vision” af verkinu byrja
ég aldrei á þvi að hugsa um
hvernig ég geti sparaö, heldur
sker niður eftir að ég hef fengið
grunnhugmynd til að vinna út
frá.”
Námskeiðið
„Geturðu sagt okkur hvernig
þú byggir námskeið eins og þetta
upp?”
„Ég vinn mjög svipað með á-
hugafólki og atvinnufólki, eini
munurinn er sá að áhuga-
flokkarnir hafa venjulega minna
fé á milli handanna. Ég byggi þvi
námskeið fyrir áhugaleikara upp
á mjög svipaðan hátt og um at-
vinnufólk væri að ræða. Ég byrja
á þvi að kynna leikmyndageröina
með myndum og tali og útskýra
sögu hennar og jafnfr. nýjar leiö-
ir. Ég fer i gegnum greiningarað-
ferðina sem ég nota við lestur
leikrits og siðan byrjum við að
vinna við verkefnið sem ég hef
valið fyrir námskeiðið, en þaö er
„Máfurinn” eftir Tsjekov. Við
gerum töflu þar sem öllum stað-
reyndum um verkið er safnað
saman, þ.e. atriðafjölda, persón-
um, sviðsmyndum, ljósum hljóð-
um o.s.frv. Siðan gera allir sinar
teikningar og við fjöllum um þær.
Ég mun einnig kynna fólkinu
hvernig hægt er að vinna úr
ýmsum gögnum.málaralist, bók-
menntum og ýmsu sem snertir
timabilið. Við slika grunnvinnu
fær maður oft hugmyndirnar sem
maður byggir verk sitt á. Sem
dæmi get ég nefnt að þegar ég átti
að gera leikmynd við „My Fair
Lady” datt mér hreint ekkert i
hug. Það var ekki fyrr en ég fór
að grúska i sögu ensku kven-
réttindahreyfingarinnar og skoða
myndir úr baráttu súfragettanna
að ég fékk þá hugmynd sem ég
siðan lagði til grundvallar. Ég
legg mjög mikið upp úr búningum
i leiksýningum og þar getur
maður oftast leyft sér að kosta
meiru til, þvi búningar eru oftast
miklu ódýrari en leiktjöldin
sjálf. Það er lika ástæða til að
taka búningavalið mjög alvar-
lega, þvi búningaval er oft byggt
á ýmiss konar fordómum. Hver
þekkir ekki drusluverkið sem
hengt er á þá sem leika fátækl-
ingai leikritum? Hins vegar sýnir
sagan okkur að fátækt fólk er ein-
mitt oft mjög snyrtilegt, og nýtni
er oft frekar einkenni þess en
larfar.
Ég mun halda fyrirlestur um
rússneska málaralist á nám-
skeiðinu, en ég á orðið eitt besta
safn rússneskra málverkabóka
sem til er i Finnlandi.
Skipulag vinnunnar við
sýninguna og áætlunargerð fyrir
allan æfingatimann er einnig
mjög þýðingarmikill póstur i
vinnu leikmyndagerðarmanns og
leikstjóra, þvi þeir bera ábyrgð á
að allt komi á réttum tima. og við
munum fara i gegnum þá skipu-
lagningu.
Fjandmaður
naturalismans
„Aðhyllist þú einhverja á-
kveðna stefnu i vekum þinum?”
„Ég er fjandmaður naturaiism-
ans, en baráttumaður fyrir
realisma. Realismi i list er ekki
köld og dauð einföldun á stað-
reyndum, heldur sú dýpt og sá
Framhald á bls. 21
Fjandmaður natúralismans
Bandalag islenskra leikfélaga
hefur undanfarin sumur gengist
fyrir námskeiðahaldi fyrir á-
hugaleikara á hinum ýmsu svið-
um leiklistar og fengið bæði inn-
lenda og erlenda leikhúsmenn til
að sjá um kennsluna. Norræni
menningarsjóðurinn styrkir hina
erlendu kennara og hefur tekist
að fá hingað fremstu menn á sinu
sviði og má þar nefna t.d. sænska
brúðuleikhúsmanninn Michael
Mesche og núna finnska leik-
myndagerðarmanninn Pekka
Ojamaa.
Pekka Ojamaa hefur undan-
farin ár unnið jöfnum höndum
sem kennari i leikmyndagerð við
sænska og finnska leiklistarskól-
ann i Finnlandi við Konstindu-
striella Högskolan sem útskrifar
leikmyndagerðarmenn og jafn-
framt gerir leikmyndir við
sýningar hjá atvinnu- og áhuga-
leikhúsum.
Samband áhuga- og
atvinnuleikhúsa
„Sambandið á milli áhuga- og
atvinnuleikhúsa hefur jafnan
verið allmikið i Finnlandi, likt og
hér. Finnsku áhugaleikhúsin eru
að verulegu leyti sprottin frá
verkalýðsfélögunum sem héldu
uppi umfangsmikilli menningar-
starfsemi fyrr á öldinni. Undir
kúgun seinni heimstyrjaldar-
innar áttu þessir hópar i miklum
erfiðleikum og voru jafnvel bann-
aðir. Nú er unga fólkið i atvinnu-
leikhúsunum farið að vinna að
auknu sambandi við áhugafélögin
og það hefur komið auga á póli-
tiska þýðingu þessarar sam-
vinnu.”
„Hvernig hefur þér likað að
kenna við leiklistarskólana?”
„Það hefur verið mjög spenn-
andi að vinna við finnsku leik-
listarskólana, þvi þeir eru taldir
þeir bestu á Norðurlöndunum.
Þróunin i leiklistarkennslu i
Finnlandi hefur verið mjög at-
hyglisverð og þessir skólar eru
nú fyrirmynd flestra rikisleik-
listarskólanna á Norðurlöndum
og viðar. Ég ætla hins vegar að
snúa mér enn frekar að vinnu
sem leikmyndateiknari i leik-
húsum næsta vetur og kenni þá
ekki við Konstindustriella Hög-
skolan.
Rússnesku
höfundarnir
„Eru einhver sérstök leikrit
sem höfða til þin frekar en
önnur?”
„Ég held að ég geti sagt að
rússnesku höfundarnir séu mitt
uppáhald, bæði þeir eldri og þeir
yngri, sem við sjáum þvi miður
allt of litið af. Ég hef glimt mikið
við Tsjekov og Gorki og haft m jög
gaman af. Við þessar uppfærslur
höfum við eytt miklum tima i að
kynna okkur alla hina furðulegu
siði rússnesku millistéttarinnar
og aðalsins á þessum tima. Og öll
þau óteljandi smáatriði sem við
grófum upp t.d. i sambandi við
drykkjusiði og mataræði
reyndust ómetanleg hjálp við að
skynja andrúmsloft þessara
verka.”
„Nú hefur þú unnið i ýmiss
konar leikhúsum, með hópum og
eirinig i svokölluðum „stofnana-
leikhúsum”. Hvers konar fyrir-
komulag hentar þér best?”
„Aðferðirnar við sýningarnar
hafa vissulega gefið misgóðan
árangur. Ég hef reynt hópvinnu
af þvi tagi þegar ailir eru með frá
upphafi i öllum ákvarðanatökum
islenskir áhugaleikhúsmenn á leið norður I Varmahlíð, þar sem námskeiðið var haldið. Alls voru 17
þátttakendur, og er þetta þvi aðeins hluti af hópnum. Pekka er efst til vinstri og Helga Iljörvar fyrir
miðri myndinni (aftast), en hún kenndi námskeiðahald fyrir áhugaleikara.
Bílar dagsins í dag
og á morgun...
Toyota bílar eru ekki bara sparneytnir— þeir
eru með viðhaldsléttustu og traustustu bílum í
heimi. — Auk þess að vera sannkallaóir
lúxusbílar í ytra sem innra frágangi.
Sá er heppinn sem ekur á Toyota
TOYOTA
UMBOÐIÐ
NÝBÝLAVEGI 8
SÍMI 44144
KÓPAVOGI
Toyota
Corolla
mest seldi bíll
í heiminum
síðastliðin 3 ár.
Eyðir aðeins
ca. 7,5 I
^ á100km.
r