Þjóðviljinn - 19.08.1979, Síða 11

Þjóðviljinn - 19.08.1979, Síða 11
Sunnudagur 19. ágúst 1979 ÞJÓÐVIL.JINN — SIÐA 11, NÆÍK aawv eitA Í£Tt A tAftiWfóKiuiEfrAl UlAVvöíMu fi Dagana 4.—7. júnl I sumar var haldín í Los Angeles I Bandarlkj- unum ráöstefna um velferðbarna á s júkrahdsum. AlþjóNeg samtök sem hafa þetta málefni á sinni könnu og nefnast á ensku Associ- ation For the Care of Children in Hospitals (ACCH) stóðu að ráð- stef nunni, sem var hin f jórtánda i röðinni siðan samtökin voru stofnuð 1965. Sigrlður Björns- dóttir myndlistarkennari er félagi I ACCH, og sótti hún ráð- stefnuna. Blaðamaður Þjóð- viljans heimsótti Sigríði ogspurði hana fyrst hverskonar samtök þetta væru. — ACCH eru alþjóðleg samtök, sem hafa höfuðstöðvar i Banda- rikjunum. Meðlimir þeirra eru fólk sem starfar á sjúkrahúsum, foreldrar veikra barna og aðrir sem áhuga hafa á málefninu og vilja stuðla að þvi að börn fái betri umönnun á sjúkrahúsum. Samtökin halda þing eða ráð- stefnu árlega, og ráðstefnan i Los Angeles var önnur ráðstefnan sem ég hef sótt.Samtökin gefa út timarit sem kemur út fjórum sinnum á ári, og auk þess frétta- bréf annan hvern mánuð. ,,Leikþerapía” A ráðstefnunni i Los Angeles voru haldin fjölmörg erindi. Þar voru einnig settar upp sýningar, sýndar kvikmyndir og farið i heimsóknir á sjúkrahús og aðrar stofnanir. Ég var þarna með fyrirlestur um það sem kallað er á ensku „Creative Therapy”, og setti lika upp sýningu á teikn- ingum barna. Creative therapy er hugtak, sem ekki er til ennþá i is- lensku máli, en með þvi er átt við skapandi starf og leiki, sem notað er i' lækningaskyni. Við getum reynt að kalla það „leikþerapíu”. Það var John Lind, fyrrverandi yfirlænir á Karolinska sjúkra- húsinu i Stokkhólmi, sem átti frumkvæðið að þvi að koma leik- þerapiunni að sem veigmiklum þætti I velferð barna á sjúkrahús- um, og þetta gerðist hér I Reykja- vik, á barnalæknaþingi sem haldið var i MH árið 1973. Siðan hefur leikþerapian verið fastur liður á öllum ráðstefnum um mál- efni sjúkra barna. Umbætur í Svíþjóð Eitt af aðalerindunum í Los Angeles flutti Ivonny Lindquist frá Sviþjóð, sem hefur starfaðfrá árinu 1973 hjá Socialstyrelsen, sænska heilbrigðis- og félags- málaráðuneytinu, sem ráðgjafi og umsjónarmaður leikþerapiu á sænskum barnasjúkrahúsum. Ivonny greindi m.a. frá niður- stöðum rannsóknar, sem gerð var á vegum Karolinska sjúkrahúss- ins og Socialstyrelsen og að frum- kvæði John Lind. Rannsóknin fjallaði um gildi leikþerapiu. Niðurstöðurnar eru mjög at- hyglisverðar, og urðu m.a. til þess að gerðar voru breytingar og umbætur á sænsku barna- verndarlögunum áriö 1977. Þar stendur nú, að stjórnendum sjúkrahúsa og annarra stofnana sem annast heilsuvernd barna beri skylda til að sjá svo um, að veik börn geti tekið þátt í samskonar athöfnum og fram fara á leikskólum og tómstunda- heimilum. Það er yfirlýst stefna sænskra heilbrigðisyfirvalda að veita sér- hverju barni, sem dvelst á sjúkrahúsi um lengri eða skemmri tima, aðgang að leik- þerapiu. Til þess þarf að ráða sér- menntað fólk, og einnig þarf að vera fyrir hendi sérstakt húsnæði fyrir þessa starfsemi á hverju sjúkrahúsi, og leikvöllur fyrir úti- leiki. Að þessu er nú markvisst unnið i Sviþjóð. Engin svör — Geturðu sagt okkur hvernig þessum málum er háttað hér á landi? — Það er skemmst frá að segja, að hér eru ekki til nein lög um leikþerapiu. Ég hef á undan- förnum árum viðað að mér heilmiklum upplýsingum um það sem verið er að gera á þessu sviði i ýmsum löndum, og ég hef talað um þetta mál við þrjá ráðherra síðan 1973, en ekki fengið nein svör. Kristbjörn Tryggvason fyrr- verandi yfirlæknir fékk þvi fram- gengt árið 1969, að gefin var út reglugerð um framhaldsnám fyrir útlærðar fóstrur, og næstu fjögur ár þar á eftir sá ég um slika kennslu á vegum Barna- spitalans Hringsins. En svo datt þetta niður og hefur ekki komist i gang aftur. Uppörvun og aðstoð — Hversvegna er leikþerapla mikilvæg fyrir börn á sjúkrahús- um ? — Það er staðreynd, að alltof mörg börn verða fyrir stöðnun á þroskabraut sinni og alvarlegu tilfinningalegu tjóni við það að dveljast á sjúkrahúsi, einkum ef um langtimadvöl er að ræða. Framfarir i tækni og lækna- visindum hafa leitt til þess, að fleiri börn lifa af sjúkdóma eða fötlun sem áður hefðu orðið þeirra bani. Það er séð fyrir lik- amlegum þörfum þessara barna, þau eru læknuð — en tilfinninga- iegum þörfum þeirra er ekki sinnt að sama skapi. 011 börn hafa þörf fyrir að tjá sig og fá eðlilega útrás fyrir til- finningar sinar. Þau þurfa upp- örvun og aðstoð til að leysa úr persónulegum vandamálum sinum. Þess eru mörg dæmi, að likamleg veikindi barna eiga rætur að rekja til tilfinningalegra vandamála, og i slikum tilvikum getur leikþerapia, ef rétt er að henni staðið, beinlinis læknað börnin. 1 öðrum tilvikum getur hún breytt viðhorfi barnanna til sjúk- dómsins, gert þau jákvæðari gagnvart umhverfi sinu og þvi fólki sem annast lækninguna. Óviðunandi Börn á sjúkrahúsum eru ekki aðeins s júklingar, þau eru lika lif- andi einstaklingar. Meðferð þeirra má aldrei verða vélræn og ópersónuleg. Stúndum er viðhaft á spitölum eitthvað sem gengur undir nafninu leikþerapia, en er það ekki i raun. Þá er verið að láta börnin fást við tilbúin verk- efni, sem eru lögð upp i hendurn- ar á þeim og þau eiga að útfylla eftir einhverri nákvæmri for- skrift. Þetta getur oft verið verra en ekki neitt, þvi að með þessu læra börnin að vera yfirborðsleg og fölsk og vantreysta sjálfum sér. Leikþerapia verðurað byggjast á þvi, að það sem börnin fást við sékomið frá þeim sjálfum, að þau séu að tjá sig,en ekki föndra til að þóknast fóstrunni. Mér finnstekki hægtaðuna öllu lengur við það ástand sem rikir i þessum málum. Þekkingin er kominmiklu lengra en aðgerðirn- ar. Fjöldi rannsókna hefur verið gerður og niðurstöðurnar sýna allar að leikþerapia er jákvæð og Toyota Cressida Bumœ' ISrf TOYOTA NÝBÝLAVEGI 8 KÓPAVOGI SÍMI 44144 UMBOÐIÐ MS.lt vi$ s'jfcKT 6JÖRNS* dótTuiX vn 1 UOJ nauðsynleg. Samt hjakkar allt i sama farinu ennþá. Að visu hafa orðið nokkrar breytingar til bóta frá þvi sem áður var; t.d. er for- eldrum yfirleitt orðið frjálst að vera hjá börnum sinum á sjúkra- húsunum, en oft vantar for- eldranastuðning til að geta hjálp- aðbörnunum. Það skortirmikið á að unnið sé fyrirbyggjandi starf með börnum á sjúkrahúsum. Það þyrfti lika að hyggja aö vandamálum sem upp koma i fjölskyldum veikra barna. Það þarf að hafa i huga að börnin fara heim til sin og út i þjóðfélagið þegar sjúkrahúsdvölinni lýkur. Á alþjóðlegum þingum er nokkuð fariðað ræða þesSa hlið á málinu, en sú umræða hefur ekki náð lengra, enn sem komið er. — Er ekki eitthvað um aft vera á Norfturlöndum i sambandi vift þessi mál? — Jú, I nóvember i haust verð- ur haldin ráðstefna i Gautaborg um efnið Þarfir veikra barna og hefur Islendingum verið boðið að senda fimm fulltrúa þangað. Ætlunin er að stofna i Gauta- borg norræn samtök, hliðstæð ACCH. Það hefur sýnt sig að slik samtök geta komið að miklu gagni, einkum með þvi að þrýsta á stjórnvöld i viðkomandi rikjum og fá fram umbætur og jákvæðar aðgerðir. Þungamiðja ráðstefnunnar i Gautaborg verður umræða um samstarf allra þeirra aðila sem hafa með heilsuvernd barna að gera, ogeinnig samstarf þessara aðila við foreldra barnanna. Það er engin tilviljun, að svo mikið er rætt um þessi má! á barnaárinu. Þarna er um að ræða mikilvægt hagsmunamál barna. Þau eiga rétt á manneskjulegri umönnun, líka þegarþau þurfa aö dveljast á sjúkrahúsum. —ih ' ' ^ Toyota bílar eru ekki bara sparneytnir — þeir eru meö viðhaldsléttustu og traustustu bílum í heimi. — Auk þess að vera sannkallaðir lúxusbílar í ytra sem innra frágangi. Sá er heppínn sem ekur á Toyota Eyðir aðeins ca. 9,5 i á 100 km.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.