Þjóðviljinn - 25.08.1979, Side 5

Þjóðviljinn - 25.08.1979, Side 5
Jólabækur Iðunnar í ár. Laugardagur 25. ágúst 1979. ÞJÓÐVILJINN — StÐA'5 Nýjar bækur eftir Thor, Hannes P, Þórarin Eldjárn og Gunnar Gunnarsson Fólk yantar í fiskvinnu BÚR auglýsir jafnvel eftir óvönu fólki — Suðurnesjaskipin sigla með aflann Meðal jóiabóka Iðunnar í ár verður ný skáldsaga eftir Thor Vilhjálmsson sem ekki hefur hlotið nafn ennþá/ Gátan leyst/ lög- reglusaga eftir Gunnar Gunnarsson, Erindi, ný Ijóðabók eftir Þórarin Eldjárn og bók um kveð- skap Jónasar Hallgríms- sonar eftir Hannes Péturs- son skáld. Þessar upplýs- ingar veitti Jóhann Páll Valdimarsson forstjóri hjá Iðunni Þjóðviljanum í gær. Aörar forvitnilegar bækur frá Iðunni veröa t.d. Hvunndags- Gunnar. Allveruleg umf jöllun hefur ver- ið I Þjóðviljanum um vaxtakjör til nýbyggingar fiskiskipa. Þar hefur komið fram að Ltú telur vaxtakjör Fiskveiðasjóðs svo ó- aðgengileg að ekki sé forsvaran- legt að láta byggja skip. Hefur LIÚ gefið út útreikninga þar sem fram kemur að allt að 85% afla- verðmætis fari til greiöslu af- borganaog vaxta eftir 10 ár af 18 ára lánstima og undir lokin dugi ekki allt aflaverðmætið. Aðilar I Islenskum skipasmiða- iðnaði hafa mótmælt þessum út- reikningum og talið þáóraunsæja. Væri þar byggt á röngum for- sendum, bæði of lágu aflamagni svo og röngum forsendum um dráttarvexti hjá Fiskveiðasjóði. Llú hefur þegar svarað gagn- rýninni á það að of lágt aflaverö- mæti sé notað og segjast nota meðalafla togaranna 1978 og með hetjan eftir Auði Haraldsdóttur en undirtitill hennar er: Þrjár öruggar aöferðir til að eignast ó- skilgetin börn. Þá kemur út heildarútgáfa á ljóðum Stefáns Harðar Grlms- sonar með myndskreytingu eftir Hring Jóhannesson. Þýddar bækur eru m.a. Upp- gjör eftir danska rithöfundinn Bente Clod, en hún er sjálfsævi- söguleg skáldsaga sem vakið hef- ur mikla thygli I Danmörku fyrir hreinskilni, og Kastaniugöngin eftir Deu Trier-Mörck I þýðingu Ólafar Eldjárn. Meðal frumsamins barnaefnis er bókin Agnarögn eftir Pál H. Jónsson. —GFr Thor núverandifiskverði að viðbættum liklegum hækkunum til áramóta. I útreikningum Ltú kemur fram að þeir reikna meö 48% dráttarvöxtum á ári. Þetta telja gagnrýnendur útreikninganna alveg óraunsætt, sllka dráttar- vexti noti Fiskveiðasjóður ekki. Af þvi tilefni hefur Llú sent Þjóðviljanum eintak af tilkynn- ingu frá Fiskveiöasjóði um láns- kjör 1979 l henni segir m.a.: „Dráttarvextir verða I aðalatrið- um þeir hæstu, sem Seölabanki Islands heimilar á hverjum tima.” Hæstu leyfilegir dráttar- vextir Seðlabankans eru nú 4% á mánuði, eða 48% á ári. Sam- kvæmt orðanna hljóðan eru for- sendur Llú réttar hvað þetta varöar. Annað mál er svo hvort Fiskveiðasjóöur fylgir þessu út i ystu æsar. eng. i Eftir trega atvinnu hjá skólafólki og fleirum i sumar virðast hlutirnir nú vera að snúast við og farið að bera á vinnu- aflsskorti. Vakti athygli i gær er BtJR auglýsti jafnvel eftir óvönu fólki í fiskvinnu og frá Suður- nesjunum er farið að láta togarana sigia með aflann þar sem fólk vantar til að vinna hann. Okkur kemur til með að vanta um 40 manns I vinnu um næstu mánaðamót ef vel á að vera.sagði Svavar Svavarsson, verkstjóri i fiskiðjuveri BÚR, i samtali við Þjóðviljann. Svavar sagði, að skólafólkiö sem veriö hefði i vinnu i sumar væri nú að tinast aftur i skólana og myndu t.d.40unglingarhætta vinnui dag og annað eins i næstu viku. Bæjarútgerðin auglýsti i gær i útvarpi eftir starfsfólki, bæði vönu og óvönu. Svavar sagði að talsvert hefði verið spurt um vinnuhjá þeim i gæren ekki væri hægt að tala um neinn hasEff i þvi sambandi. Hann sagðist þess full- viss, að þó nokkuð stór hópur fólks hér á Reykjavlkursvæðinu, sem aldreihefðiunnið i fiski, væri tilbúið að fara i slfka vinnu um takmarkaöan tima ef þvi yrði leiðbeint við störf til að byrja með. Meö bónuskerfi væri hægt aö hafa góðar tekjur á skömmum tima út úr fiskvinnunni og þvi væri tilvalið fyrir þá sem van- hagaði um vinnu að drifa sig i fiskinn. Svavar sagði, að mikil vinna heföi verið h já BÚR i sumar. Þar heföu starfað um 200 manns, þar af um 70 skólakrakkar. Þetta hefði verið allt harðduglegt og vinnusamt fólk og þvi heföi gengiö vel að vinna úr þeim land- burði af afla sem veriö hefur i sumar. Aðeins heföi þurft að vinna 1 laugardag i allt sumar. Svavarsagðist eiga von á að jafn- mikil vinna myndi haldast i vetur og var I sumar. Togarar bæjarút- geröarinnar lönduðu reglulega og öfluðu ágætlega. A Suöumesjunum hefur einnig veriö landburöur af afla I allt sumar. Einar Kristinsson i Sjö- stjðrnunni I Keflavik sagði i samtali viö Þjóöviljann, að þar hefði allt verið á fullu I fiskyinnslunni frá þvi um áramót. 1 Sjöstjðrnunni hafa starfaö 1 sumar um 85 manns, þar af 50 skólakrakkar. Einar sagði, að þegar þau hyrfu aftur i skólann nú um mánaðamótin kæmu hús- mæðurnar til vinnu i frysti- húsunum i staðinn. Tveir togarar, þeir Olafur Jónsson og Erlingur, sigldu með aflann nú I vikunni og var veriö að landa úr Bergvíkinni um 70 tonnum af þorski. -lg- Rafbíll Háskólans senn á götuna Kemur til landsins á miðvikudag Rafmagnsbíllinn,sem Háskól- inn hefur fest kaup á, kemur til landsins á miðvikudag að sögn Gisla Jónssonar prófessors. Hann kvaðst ekki viss um hvenær billinn yrði kominn á götuna, þvi honum fylgdu tals- verðir varahlutir ásamt bilunarleitartæki, og þaö myndi vafalaust kosta timafrekt þref við toll og fjármálaráðuneyti að koma þvi tollalausu inn i landið. En einsog Þjóðviljinn greindi frá á sinum tima ákvað rikis- stjórnin að fella niður tolla af einum rafbil fyrir Háskólann. Gisli sagði að sú tegund sem hann fær til landsins væri á góðu verðiog heföi fengið góða dóma. Þvi taldi hann, að gripu opinber fyrirtæki til þess ráðs að kaupa rafbila, einsog rikisfyrirtæki víða erlendis hafa gert, þá ættu þau tvimælalaust að kaupa sömu tegund, Electra Van 600. —ÖS Maður rændur á Austuryelli Á fimmtudag síðdegis var fullorðinn maður rændur á Austurvelli. Hann var með rúmar 50 þús. kr. á sér/ en tveir ó- prúttnir náungar höfðu af honum veskið og vínflösku sem var með í spilinu. Atvikið gerðist með þeim hætti að þegar maðurinn var að spóka sig i göngugötunni Austurstræti viku tveir menn sér að honum. Þeir tóku tal saman og fór svo vel á meö þeim að þeir fóru saman i bfl og renndu I rfkið. Slðan var haldið á Austurvöll og sopið i góöa veðrinu. Skipti þá engum togum aö félagarnir rændu veskinu með rúmum 50þús. kr. og flöskunni af manninum og komu sér á brott. Þegar sföast fréttist voru þeir ó- fundnir. Að sögn lögreglunnar gerast svona atburðir nánast á hverjum degi og því ætti þessi frásögn að verða mönnum viti til varnaðar. —ká Fyrirlestur í Háskólanum Dr. George E. Davie, prófessor i heimspeki viö háskólann I Edin- borg, flytur opinberan fyrirlestur I boði heimspekideildar Háskóla Islands og Félags áhugamanna um heimspeki sunnudaginn 26. ágúst 1979 kl. 14.30 i stofu 101 I Lögbergi. Dr. Davie hefur einkum lagt sig eftir heimspeki Davíðs Humes og hefur ritað margt um hann og aöra þá menntamenn, er uppi voru samtlða Hume i Skotlandi. Höfuörit Davies fjallar þó um skoska háskólamenn á 19. öid og nefnist: The Democratic Intellect Scotland and her úni- versities in the Nineteenth Cen- tury. Fyrirlesturinn nefnist: „The Philosophical Foundations of Adam Smith's Economics” og fjaliar um tilurð og stofnun hag- fræðinnar sem fræöigreinar. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku, og aðhonum loknum mun dr. Davie svara fyrirspurnum um efnið. öllum er heimill aðgangur. Vax takjör Fiskveiðasjóðslána: Dráttarvextir 48% samkvœmt reglunum. — Ekki framfylgt til fullnustu

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.