Þjóðviljinn - 25.08.1979, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 25.08.1979, Blaðsíða 6
6 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 25. ágúst 1979. Ný samtök: Vidskipti og verslun Stofnuð hafa verið ný hagsmunasamtök undir heitinu ,,Viðskipti og verslun”. Að þessum samtökum standa bæði hagsmunaaðilar eig- enda i verslun sem og verslunarmanna. Þau samtök launþega i verslunarstétt sem að- ild eiga að samtökunum eru Landssamband ísl. verslunarmanna, Verslunarmannafélag Reykjavikur og Lif- eyrissjóður verslunar- manna. Af atvinnurekenda hálfu eru þessir aðilar: Verslunarráð íslands, Verslunarbankinn, Kaupmannasamtök ís- lands, Félag islenskra stórkaupmanna og Bil- greinasambandið. Markmið hinna nýju samtaka er af miklum metnaði sett, þar á meðal að auka álit verslunar og viðskiptalifs. Einnig er samtök- unum ætlað að stuðla að aukinni menntun og betri kjörum starfs- manna og fyrirtækja, eins og seg- ir i fréttatilkynningu frá samtök- unum. Samtökin hyggjast reyna að kynna almenningi verslun og við- skipti, sýna þátt verslunar og samgangna og koma á námskeið- um fyrir starfsfólk verslunar- innar. Einnig á að vinna aö aukinni kynningu um llfeyrissjóðamál meðal sjóðfélaga Lffeyrissjóös verslunarmanna. Stjórn samtakanna skipa: Sig- urður Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri, Guðmundur H. Garðarsson, viðskiptafræðingur, Jón Hákon Magnússon, fram- kvæmdastjóri og Sigurður E. Haraldsson, kaupmaður. Sam- tökin hafa skrifstofu í Banka- stræti 5. uppi á 4. hæð. Pétur Sveinbjarnarson. Ráðinn fram- kvæmdastjóri Pétur Sveinbjarnarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri samtakanna „Viðskipti og verzl- un”. Pétur hefur undanfarin 3 ár starfaö fyrir samtök iðnaðarins, fyrst sem framkvæmdastjóri ísl. iðnkynningar og síðar fram- kvæmdastjóri Félags isl. iðnrek- enda. Aður gegndi Pétur starfi framkvæmdastjóra Umferöa- ráðs. Samtökin Viðskipti og verzlun hafa opnað skrifstofu I Banka- stræti 5, 4. hæö. 1.sepCJM.sept.'80 HINN FERSKI BLÆR i BAmruNNi '0MIS5/MI mLPARmi VERD kr.3ooo Dreifing Mál og menning, simi 15199. Náttúruverndarsamtök Austurlands: Setja þarf skordur við stórfelldri steinasöfnun Á aðalfundi Náttúru- verndarsamtaka Austurlands — NAUST — sem haldinn var i skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs við Snæfell 18. og 19. ágúst voru gerðar fjölmargar samþykktir m.a. um að setja þyrfti skorður við stórfelldri steinasöfnun, á svæðum þar sem eru sérstæðar steinateg- undir, bergtegundir og steingervingar, og raski sem henni fylgir. Hjörleifur Guttormsson sem verið hefur formað- ur samtakanna frá upp- hafi eða i 9 ár baðst und- an endurkjöri og var kjörinn formaður í hans stað Einar Þórarinsson jarðfræðingur i Nes- kaupstað. A aðalfundinum sem sumpart var haldinn úti við I góðviðri var fjallað um störf samtakanna og lögð áhersla á framhaldsvinnu við náttúruminjaskrá og undir- búning friðlýsinga þar á meðal athugun á verndun sérstæðra steintegunda og steingervinga. Hét Arni Reynisson, fram- kvæmdastjóri Náttúruverndar- ráðs, sem sótti fundinn, stuðningi ráðsins við það verk. í NAUST eru nú 230 einstakl- ingar sem félagar og 38 fyrirtæki og stofnanir sem styrktaraðilar. Fundinn við Snæfell sóttu 75 manns. Auk Einars skipa nú stjórnina Anna Þorsteinsdóttir Eydölum, varaformaður, Sigrið- ur Kristinsdóttir Eskifirði gjald- keri, Anna Kjartansdóttir Höfn ritari, Magnús Hjálmarsson Egilsstöðum meðstjórnandi er varamenn eru Jón Einarsson Neskaupstað, Öii Björgvinsson Djúpavogi og Guðrún A. Jóns- dóttir Hlööum. —GFr. Akstur verði samræmdur akstri allra almennings- farartækja Samtök norrænna leigubifreiðastjóra eða Nordisk Taxir&d héldu hið árlega þing sitt að Hótel Sögu i Reykjavik dagana 12. — 15. ágúst 1979, og er það i fyrsta sinn, sem það er haldið hér á landi. Nordisk Taxirád var stofnað 1958 og var þetta 22. þing ráösins en 6. þingið sem tslendingar taka þátti. Af hálfu tslands sátu þingiö Olfur Markússon, formaður Bandalags Islenskra leigubif- reiðastjóra, Guðmundur Valdi- marsson, GIsli Jónsson og Björg Sigurvinsdóttir. A þinginu var einkum rætt um oliukreppuna og afleiðingar hennar fyrir leigubifreiðastjóra. Kom þar fram hjá öllum fulltrú- um þingsins vilji til að hvetja til eldsneytissparnaðar, og að akst- ur með leigubifreiðum nyti sömu viðurkenningar yfirvalda og aðrir almennings farþegaflutningar eins og strætisvagnaferðir og slíkt. t tilmælum sem þingiö samþykkti að senda rlkisstjórn- um allra Norðurlanda er bent á nauðsyn betri nýtingar leigubif- reiða, sem m.a. mætti ná með aukinni samræmingu við rekstur almennings farartækja, er eink- um fælist I þvi, að almenningi einkum I dreifbýli, gæfist kostur á sameiginlegum flutningi til aðalleiöa almenningsvagna og járnbrautarlesta á sama hátt og leigubifreiðar ættu að vera eðli- legur valkostur þeirra, sem vegna heilsufars eða af öðrum á- stæðum gætu ekki notaö önnur al- mennings farartæki. Skilyröi til þess er þó, segja bilstjórarnir, að breyting verði á afstöðu til leigubifreiöaaksturs, að leigubifreiðum sé bæöi I um- ferðinni og efnahagslega (opinber gjöld) gert jafnhátt undir höfði og öörum almennings-farartækjum. Bent er á, að á hinum Noröur- löndunum hafa stjórnvöld gert sér grein fyrir mögulegum sparn- aði með aö láta leigubifreið ann- ast flutninga sjúklinga til eftir- meðferðar og endurhæfingar I stað þess að halda sjúkrarúmum dögum saman meö öllum þeim kostnaði, sem þvl fylgir. Nú er hafinn vísir að slíkri þjónustu hér á landi, sem er einn þátturinn I að gerafólki, sérstaklega öldruðum, kleift að búa heima hjá sér eins lengi og frekast er unnt, I staö þess að vista það á sjúkrastofnun- um.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.