Þjóðviljinn - 19.09.1979, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 19.09.1979, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 19. september 1979 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 3 Engin brögð í tafli ALÞJÓÐLEG VÓRUSÝNING INTERNATIONAL ™RD1979 GESTAHAFPDBÆTFI Blaðinu er kunnugt um þrálát- an orðróm og alvarlegar ásakanir i garö stjórnenda Alþjóðlegu vörusýningarinnar I Laugardal, ásakanir um að ekki hafi verið staöiö að útdrætti vinninga i gesta happdrætti sýningarinnar með þeim hætti, sem viðunandi má telja. Við spuröum framkvæmda- stjóra Kaupstefnunnar hf., Bjarna Ólafsson, sem fýrir sýn- ingunni stóð, hvort þeir hefðu sótt um fógetaleyfi fyrir happdrætt- inu. Hann kvaö nei við þvi, og Heimdallur mótmœlir Skorar á stjórnvöld Tékkóslóvakíu að leysa pólitíska fanga úr haldi Fulltrúar Heimdallar, samtaka ungra Sjálfstæöismanna i Reykjavik, afhentu utanrikisráð- herra Tékka, sem hér hefur verið i opinberri heimsókn, mótmæla- orðsendingu 1 gær. 1 orðsendingunni skorar stjórn Heimdallar á forseta og stjórn- völd i Tékkóslóvakiu að leysa úr haldi alla þá er f fangelsum sitja vegna skoðana sinna og veita þeim fullt frelsi. Heimdallur skorar einnig á yfirvöld Tékkó- slóvakiu og koma I raun á fuliu lýðræði og einstaklingsfrelsi i landinu. „Þaöer sterkasta vopniö sem þekkist til eflingar friöi 1 heiminum”, segir í orösending- unni. Þá segir ennf remur að árið 1968 þegar Rússar réðust inn i Tékkó- slóvakiu hafi enn einu sinni komið i ljós að frjáls hugsun og almenn mannréttindi þrifist ekki I lönd- um kommúnista. Fangelsanir og réttarhöld yfir meðlimum mann- réttindahreyfingarinnar VONS sýni að enn lifi fasismi góðu lifi i Kommúnistaflokki Tékkósló- vakiu. Vörusýn- ingin velti 200 milj. Samkvæmt upplýsingum fram- kvæmdastjóra Kaupstefnunnar hf., Bjarna ólafssonar, mun heildarvelta sýningarinnar Heimilið 79 hafa numið á að giska 200 miljónum króna. Bjarni sagði að ekki væri búið að gera upp alla reikninga og enn væru margir óvissuþættir varð- andi uppgjöriö. Heildar veltan kæmi trúlega til með að veröa einhversstaðar i bilinu 160-220 miljónir króna. -úþ F orseta- hjónin til Belgíu Forseti Islands og kona hans hafa þekkst boö konungshjóna Belgfu um að koma í opsnbera heimsókn til Belglu dagana 16. tii sagði að það hefði ekki veriö gert fyrir happdrætti fyrri sýninga. Fulltrúi fógeta var þvi ekki við- staddur útdrátt vinninga. — Voru vinningar dregnir út úr miöum, sem ekki voru afhentir gestum þegar aðgöngumiðasölu lauk? spurði blaöamaöur. — Að sjálfsögðu ekki, svaraði Bjarni. — Voru miðar teknir úr miða- bunka áður en miðasala hófst? — Ekki svo ég viti. — Fullyrteraðmiðar hafiverið teknir úr miðasölu og að vinning- ar hafi fallið á þá. Er þetta rétt? — Ég veit ekki hvernig þaö hefði getað gerst. Gestahapp- drættið er hluti af þvi að fá fólk á sýninguna. Þaö er okkar hagur að sem flestir vinningar gangi út og að við getum auglýst um vinn- ingshafa sem glaða og heppna sýningargesti. — Hvað hafa margir vinnings- hafar gefið sig fram? — Sjö (af 17). Sex vinningshaf- ar höfðu gefið sig fram áður en blööinhættu aökomaút. Eftir það gaf sig aöeins einn vinningshafi fram, en hann hafði heyrt ávæn- ing af þvi að hann kynni að vera vinningshafi i gegn um útvarps- auglýsingar og hringdi þvi til okkar til þess að fá það staðfest. — Hvaö hefur hátt hlutfall af vinningum í gestahappdrætti fyrri sýninga veriö sóttur? -70-80%. En það hefur oft tekið marga mánuði að fá inn alla vinn- ingshafana, dæmi er um að tvö ár hafa liöið frá þvi vinningur var dreginn útog þar til hans var vitj- að. — Hvernig stendur á þessu lága hlutfalli sóttra vinninga þegar dregið er dagiega? — Veitingamaður, sem séö hef- ur um veitingasöluna i sýningar- höllinni, segir okkur að á undan- förnum sýningum hafi starfsfólk veitingasölunnar fundið mikiö af happdrættismiðum á borðum veitingaskálans, og oft er miðun- um kastaö og þeir týnast með ein- um eða öðrum hætti. Því gripum við til þess ráðs að hafa miöana svo stóra sem þeir voru aö þessu sinni aö fólk héldi frekar i þá en ella. viö útdrátt vinn- inga gestahapp- drættis Vörusýn- ingarinnar, segja aöstandendur — Get ég fengið uppgefin nöfn vinningshafa? — Sjálfsagt: Þau eru Halla Guðmundsdóttir, Efstasundi 67, Sigrún Einarsdóttir, Mosfells- sveit, Heimir Einarsson, Háteigsv. 12 Rvik., Guðmundur Birgisson, Hraunkambi 5, Hafnarf., Lára Magnúsdóttir, Skáltúni, Mosfellssveit, Gestrún Gestsdóttir, Lyngbraut 21, Kópa- vogi ý og Hlöðver Oddsson, Laugateigi 42 Rvik. Sex þeir fýrsttölduskiluöu sérfyrir blaöa- stoppiö. — Er happdrættismiðinn reiknaður inn i verð aðgöngumið- ans? — Allur tilkostnaður, hverju nafni sem nefnist, hvort sem það er aðkeypt vinna, auglýsingar eða aðdráttarkostnaður er að sjálfsögðu metinn þegar ákvörð- un er tekin um það hver aögangs- eyrir á að vera. — Neitar þú þvi Bjarni, að ein- hver brögð hafi verið I tafli varð- andi útdrátt vinninga I happ- drættinu? — Ég neita þvi alfariö og skil ekki af hvers konar toga slikar aödróttanir 1 okkar garö eru sprottnar. Blaðamaöur hafði samband við dómsmálaráðuneytið, sem gefur út leyfi til happdrættisreksturs. Samkvæmt upplýsingum þaðan, mun ekkiþurfa að fá leyfi ráðu- neytisins til þess að reka þess lags happadrætti sem rekiö var I Höllinni á meöan á vörusýning- unni stóð samkvæmt núgildandi lögum, en samkvæmt lögum, sem voru samþ. á alþingi en frestað að láta taka gildi, mundi þurfa ráðu- neytisleyfi til sliks happdrættis- reksturs, og fógetafulltrúa við út- drátt vinninga. -úþ Slysagildrur á skólalóð Á lóð nýjasta skóla borgar- innar.Seljaskóla, úir og grúir af slvsagildrum. Frágangi lóðarinnar er ekki lokið, bygg- ingu skóiahússins er ekki lok- ið. Þetta eru að sjálfsögðu ástæðurnar fyrir þvi að við hvert fótmál nemendanna biasa við hættur. Þessa mynd tók ljósm. Þjóðviljans —eik— við Selja- skóla i gær; ungur námsmaður að leik á skólalóöinni sinni. Það hlýtur að vera krafa borgarbúa, foreldra þeirra barna, sem Seljaskóla sækja.svo og krafa nemenda skólans og kennara, aö verk- taki sá, sem aö skólabygging- unnistendur.girði þegar i stað af allar þær slysagildrur sem á skólalóöinni og I nágrenni hennar er að finna áður en slys hlýst af. -úþ Tveir fasteignasalar kærdir Tveir fasteignasalar hafa verið kærðir til rannsoknarlögreglu rikisins fyrir aðgreinanlega mis- notkun stöðu sinnar. Erla Jóns- dóttir, deildarstjóri hjá ranns- 'oknarlögreglunni, sagði að bæði væru málin það skammt á veg komin I rannsokn, að ekki væri unnt að gefa nánar upplýsingar um eöli þeirra. Þó gaf Erla þær upplýsingar að annað máliö væri kæra seljanda Ibúöar á hendur fasteignasala fyrir aö hafa selt Ibúö undir kostnaöarveröi. Hitt máliö snýst um vinnubrögð fasteignasala þar sem hætt var viö fasteignakaup og greitt haföi veriö inn á ibúöaverö. Sala á ibúöum undir markaös- veröi hefur á umliönum árum helst átt sér staö ef seljanda hefur skort reiöufé af mikilli skynd- ingu. -úþ Herstöðvaandstæðingar um flotaheimsóknina; Ögrun viö hvern sem ber fridarhugsjónir í brjósti Ætlaö aö skapa jákvœö viöhorf til vigbúnaöar og stuöla aö langvarandi setu hersins Santök herstöðvaandstæöinga sendu i gær frá sér mótmæli gegn „heimsókn” Natóflotans, en eins og fram kemur i frétt á forsiöu reistu samtökin niðstöng á hendur Nató i gærmorgun og efna I dag til mótmælafundar við Sundahöfn. Mótmæli her- stöðvaandstæðinga eru svo- hljóðandi: Samtök herstöövaand- stæðinga mótmæla harölega komu átta herskipa úr fasta- flota Nato til landsins. Þvl vil fulltingis hefur niðstöng veriö reist i Laugarnesi, mögnuö og rúnum rist, þar sem þessum manndrápsfleytum er óskað ófamaðar i hvivetna, svo ög þeim myrkraöflum sem að baki standa, Nató og handbendum þess hérlendis og erlendis. 1 þessari flotaheimsókn felst svivirðil’eg tilraun til að skapa jákvæö viðhorf meðal lands- manna til vigbúnaðar og hernaðarbrölts. Henni er það ætlaö að stuöla aö langvarandi setu ameriska hersins á Miönesheiði og þátttöku Islands i striðsbandaiaginu. Það er ihugunarvert, aö eitt þeirra herskipa sem sagt er, aö opið veröi almenningi i Sunda- höfti, freygátan Baccante, t«Mc beinan þátt I yfirgangi breska flotans i islenskri landhelgi. Landsmenn hafa ekki gleymt þessum ofbeldisaögeröum Nato herskipa, sem stefndu lifi og öryggi Islenskra sjómanna I hættu. Skipum herflotans I Reykjavlkurhöfnum er sist fegurra hlutverk ætlað. Þessum stórvirku drápstólum er beint gegn öllum framfarasinnuöum þjóðfélagsbreytingum sem alþýðuhreyfingar á áhrifasvæöi Nató kunna að hrinda af stað. Þaö er fágæt ósvifni af hálfu rlkisstjórnarinnar og utanrlkis- ráöuneytisins aö taka þátt i undirbúningi þessarar heim- sóknar. Hún er argvitugasta ögrun viö alla þá, sem staöiö hafa gegn hersetu á Islandi. Hún er ögrun við alla þá, sem staðiöhafa gegn vopnaskaki og vigaglaumi. Hún er ögrun viö hvern þann mann, sem ber friöarhugsjónir i brjósti. Herstöövaandstæðingar munu ekki láta þessum ögrunum ósvarað. Þvl mun efnt til útifundar þar sem herskipin liggja við bryggju inn við Sundahöfn klukkan 17.30 á mið- vikudag. Nið herstöðvaand- stæðinga, sem hvein I rám og reiðum skipanna á leið til Islands, og tafði þau stórum mun þar hrina á flotanum svo i minnum veröur haft allt til ragnaraka. Miðnefnd. I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I i i ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.