Þjóðviljinn - 10.10.1979, Page 10
10 StÐA — ÞJ6ÐVILJINN Miðvikudagur 10. október 1979
Þökkum innilega öllum þeim sem auösýndu samúö oe
heiöruðu minningu
Haralds S. Guðmundssonar
stórkaupmanns.
Sigurbjörg Bjarnaddttir
Haraid G. Haraldsson
Sólveig Haraldsdóttir Hart
Sigriöur Haraldsdóttir
Sigriöur G. Benjamin
og barnabörn.
Elisabet Gunnarsdóttir
NeilHart
Sigurjón Sigurösson
• Blikkiðjan
Asgaröi 1, Garðabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verötilboð
SÍMI53468
Tökum að okkur
viðgerðir og nýsmiði á fasteignum.
Smiðum eldhúsinnréttingar: einnig við-
gerðir á eldri innréttingum. Gerum við
leka vegna steypugalla.
Verslið við ábyrga aðila
TRÉSMIÐAVERKSTÆÐIÐ
Bergstaðastræti 33,
sími 41070.
Er
sjónvarpió
bilað?
Skjárinn
Spnvarpsverhstói
Bergstaðasírati 38
simi
2-1940
húsbyggjcndur
ylurinn er
^ góóur
Afgieiðiim einauyiunaipldsi a
Stui Reyk|dvikmsvaeðið fia
manudeyi fostudays
Afhendum voiuna a byygingaistað
viðskiptamonnum að kostnaðai
lausu Hagkvæmt veið ug
greiðsluskilmalai
við flestia h*li
„4
SKIPAUTGtRB RIKISINS
M.S. BALDUR
fer frá Reykjavtk þriöjudag-
inn 16. þ.m. til Breiöa-
fjaröarhafna.
Vörumóttaka alla virka daga
til 15. þ.m.
RAUDA
DAGATAUD
Fæst i bókaverslunum
Dreifing: Mál og menning
MINNING:
Sigurður Ottó
Steinsson
f. 13.10. 1904—d. 1. 10.1979
Hann Otti minn er allur.
Hvernig er hægt aö minnast hans
Otta i nokkrum orðum. Orðin
duga svo skammt á heilli manns-
ævi.
Eg læt hugann reika til baka og
þá man ég Otta fyrst i kjallaran-
um hjá Pfaff á Skólavörðustig 1 i
litilli kompu þar sem allt var i röð
og reglu. baö var lika einkenni
hans Otta i gegnum árin hvað allt
var snyrtilegt I kringum hann og
allt sem hann gerði vel gert.
Sigurður Ottó Steinsson fæddist
á Isafirði 13.10.1904. Foreldrar
hans voru Steinn Sigurðsson og
Olöf Guðmundsdóttir. Otti var
næst elstur niu systkina. Elstur
var Guðmundur fæddur 1903 dá-
inn sama ár. Þá komu Otti, Stein-
ar, Guðrún, Ingimundur, Sigur-
bergur, ölöf, Gróa, móðir min og
svo siðastur Brynjólfur. Enn eru
á lífi þau Ingimundur, Ólöf, Gróa
og Brynjólfur. bau systkinin
fæddust og ólust upp á Isafirði.
Móður sina misstu þau 1929 en
Guðrún elsta systirin hélt áfram
heimili fyrir föður sinn og syst-
kini. En hart var i ári og smám
saman fluttust systkinin til
Reykjavikur i atvinnuleit. Otti
kom til Reykjavikur 1938 með son
sinn ölaf og Guðrúnu systur slna.
Upp úr 1940 voru þau öll komin til
Reykjavikur ásamt föður sinum
nema Steinar sem bjó áfram á
ísafirði I um 20 ár.
Haustið 1941 byrjaði Otti að
vinna hjá Magnúsi Þorgeirssyni i
Pfaff. Alla sina ævi vann hann i
Pfaff á Skólavörðustig og nú sið-
ustu árin bjó hann á sama stað.
Otti minn gifti sig aldrei en tvo
syni eignaðist hann, ólaf Stein og
Halldór. Ólaf Stein ól hann upp á-
samt systrum sinum. Báðir hafa
synirnir orðið honum til mikillar
gleði. Olafur á fjórar dætur og
eina dótturdóttur, langafa til
mikillar ánægju og Halldór eina
dóttur og einn son er heitir Ottó
, eftir afa sinum.
Nú seinni árin er við systkinin
urðum eldri og fórum að kynnast
heiminum, þvi betur kunnum við
að meta og virða rólyndi og
ábyrgöartilfinningu Otta til vinnu
sinnar og umhverfis.
Eitt þarf að taka fram um Otta
og það er hversu viðförull hann
var, þrátt fyrir það, að hann tal-
aði ekkert mál aö gagni nema is-
lensku. Hann fór til hinna ýmsu
landa i norður- og suður-Evrópu.
Ég spurði hann einu sinni hvernig
hann færi að þvi að gera sig skilj-
anlegan. enginn vandi sagði Otti
ég tala bara islensku, pata og
bendi, og þaö gengur ágætlega.
Otti átti góðan vin i gegnum ár-
in, Jón Brynjólfsson. Sjaldan
hugsum við til Otta án þess að
minnast Jóns ileiöinni.Ottiog Jón
voru ferðafélagar okkar systkin-
anna á sólarströnd i fyrra. Þá var
Otti minn hress og kátur. Nú i
sumar vorum við enn ferðafélag-
ar en heldur hafði honum hrakað.
Nú í haust dró af honum og siðast
28. september vann hann slna
vinnu fram á miöjan dag en fór þá
upp til sin af þvi að honum varö
kalt. Móðir min kom til hans um
kvöldið og úr varð að hann var
fluttur upp á Landakot. Þaðan
átti hann ekki afturkvæmt og ég
held að hann hafi vitað það fyrir.
Um nóttina eftir að hann lést
fór ég til hans upp á sjúkrahús og
sá þar sviphreinan og ungan
mann. Þannig mun ég minnast
þin elsku Otti minn þar til við sjá-
umst aftur.
Ég flyt kveðjur til þin Otti
minn, frá foreldrum minum,
systkinum og vandamönnum, þin
frænka
Guðrún Halldórsdóttir.
Atriði úr kvikmyndinni „Og hér rikir kyrrö i dögun”, sem MIR sýnir n.k. laugardag.
MÍR sýnir sovéskar
kvikmyndir
Næstu daga veröa sýndar i
MtR-sainum, Laugavegi 178,
fimm sovéskar kvikmyndir, nýj-
ar og gamlar, I tiiefni af 60 ára af-
mæli sovéskrar kvikmyndagerö-
ar. Sýningarnar veröa sem hér
segir:
í dag miðvikudaginn 10. okt. kl.
20.30: Seigla(Voskhosdenie) eftir
Larissu Shepitko. Þetta er talin
ein besta kvikmyndin sem gerð
hefur verið I Sovétríkjunum á sið-
ustu árum. Seigla var sýnd hér á
kvikmyndahátið Listahátlðar i
fyrra, og hefur verið sýnd mjög
vfða og hlotið margháttaða viður-
kenningu, m.a. aðalverðlaunin á
kvikmyndahátiöinni i V-Berlin
1977.
Fimmtudaginn 11. okt. kl.
20.30: Verkfall(Statska) — fyrsta
kvikmynd brautryðjandans
Sergei Eisensteins, frá árinu 1924.
Laugardaginn 13. okt. kl. 15: Og
hér rikir kyrrð I dögun (A sori
sdés tikhie), rómuð verðlauna-
mynd eftir Stanislav Rostotski
frá árinu 1964.
Sunnudaginn 14. okt. kl. 15:
Hamlet, viðfræg kvikmynd eftir
Grigori Kosintsef, gerð árið 1964.
Miðvikudaginn 17. okt. kl.
20.30: Spartakus, ballettkvik-
mynd Júri Grigorovitsj og Vad-
ims Derbenefs frá árinu 1975.
Siðar I vetur, fram að áramót-
um, verða kynnt verk fleiri úr
hópi kunnustu kvikmyndageröar-
manna Sovétrikjanna, m.a.
Gerasimofs, Ordinskis, Alexand-
rofs, Raismans, Jútkevitsj, Don-
skoja ofl.
Aðgangur að kvikmyndasýn-
ingum MÍR er ókeypis og öllum
heimill meöan húsrúm leyfir.
vMl b-4Æ'
Sáluhjálp i viólögum
Ný þjónusta — Símaþjónusta frá kl. 17-23 alla
daga vikunnar. SIMI 81515 Þjáist þú af áfengis-
vandamáli? Er áfengisvandamál einhvers náins*
að eyðaleggja þitt lif? Hrin«du - og ræddu málið
SAMTÖK AHUGAFOLKS
UM ÁFENGISVANDAMÁLIÐ