Þjóðviljinn - 10.10.1979, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 10.10.1979, Blaðsíða 16
DWÐVIUINN Miövikudagur 10. október 1979 Aðalsimi bjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til föstudaga. kl. 9 — 12. f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum. Utan þess tima er hægt aö ná i blaðamenn og aðra starfs- menn blaðsins i þessum simum_: Ritstjórn 81382, 81527, 11 81257 og 81285, afgreiösla 81482 óg Blaðaprent 81348. Q81333 Kvöldsími er 81348 Regjeringskrise pá 'Island kan sinke Jan ÍMayen-forhandlingene _ Kn »nn«ynli* reswrm^kriM-1 bnrravr <!<■ (!<->«• Mn<i«>.por»mal ibUnd Irurr mnl a spirkr bnn Meo na <r <lvt klart at r<-rirnn*rn Sunder Konw* forh»pnin*rr om a (a *“« splitlet i sporsmllvt om ncstr losl Jan Mayrn sonr sporsmaht ■ »'* statsbudsirtt og hvordan ish-n- loprt av oktobrr Fnrhandlin*rnr dinKrno skal « bukt mrd rn m(l.i inn J.m Mavrn skal cttrr planrn ta *|on som na-rmrr srg 50 prnscnt p4 nn*rn i^Rry kpvik trur- vil Im nm-n l.irhandlingsi Valgrygter pá Island Ledende socialdpmokra- tiske politikere pá Island cr interesscret i et valg evt. til foráret — to ár for tidén. Socialdemokratiet, der1 i sidste ár vandt en stor valg- . sejr undcr mottoet ’Ned jmed inflationen’, har ikke ’kunnet stoppe den okono-‘J miske udvikiing med sine regeringspartncré. Fréttirnar um stjórnarkreppu og kosningar á tslandi I Politiken og Fiskaren. Ólafur Jóhannesson for- sætisráöherra eftir rikis- stjórnarfund I gær. — Ljósm, —eik— Ólafur hættir Ólafur Jóhannesson for- sætisráöherra sagöi i viötali viö útvarpiö I gær, aö hann ætlaöi ekki I framboö f næstu kosningum, þótt þær yröu nú á næstunni. Það hefur legiö alllengi i loftinu, að ólafur hygðist draga sig i hlé úr stjórn- “ málabaráttunni á næstunni. | Þá hefur Halldór E. Sigurös- ■ son lýst yfir þvi að hann gefi I ekki oftar kost á sér til " alþingisframboðs, og Einar Agústsson fyrrv. utanrlkis- ráðherra hverfur einnig af í þingi, þar sem hann mun, I brátt taka við sendiherra- * embætti f Danmörku. — eös . L ■ mm m mm ■ ■■■■■■■■■ J I Stjórnarslitum á Islandi spáð í blöðum á Norðurlöndum fyrir viku Stj órnarkreppa seinkar Jan Mayen-viðræðunum segir norska blaðið „Fiskaren ” á fimmtudag Fréttaþjónusta krata út fyrir landsteinana viröist vera sérdeilis góö. Fyrir viku mátti lesa í Norður- landablöðum um væntan- legt fall íslensku ríkis stjórnarinnar fyrir til- verknað sósíaldemókrata. 1 dönsku blöðunum Land og Folk og Politiken þriðjudaginn 2. október sl. eru klausur um þetta mál. Segir i fyrrnefnda blaöinu á þá leið, að samkvæmt upplýsing- um frá krötum i Reykjavik væru verulegar lfkur á því að stjórnar- samstarfinu yrði slitið þegar al- þingi kæmi saman, þar sem rikisstjórninni hefði ekki tekist að ráöa við verðbólguna. 1 Politiken segir, að sósial- demókratar, sem unnið hafi mik- inn kosningasigur á slðasta ári undir kjörorðinu „Niður með verðbólguna”, hafi ekki getað haft hemil á efnahagsþróuninni með samstarfsflokkum sínum. A forsiöu norska blaðsins Fiskaren fimmtudaginn 4. október segir i fyrirsögn: „Stjórnarkreppa á Islandi kann að seinka Jan Mayen-viðræðun- um.” I fréttinni segir að þriggja flokka rikisstjórnin i Reykjavik sé klofin um fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár. Það sé þvi óvist að nokkur rikisstjórn með umboð til viöræðna verði i Reykjavik þegar Jan Mayen-fundurinn á að hefjast, 23. október. Enn fremur segir í ffettinni, að það séu einkum sósialdemókratar, sem vilji komast úr stjórnarsamstarf- inu. „Stjórnmálafréttaskýrendur telja að hugsanlegt sé að stjórnin hangi saman þangað til alþingi kemur saman hinn 10. október. Eftir þann tfma eru örlög rikis- stjórnarinnar óráðin,” sagði að lokum i frétt Fiskarens. — eös Mokveiði Mjög góð veiði hefur verið hjá loðnuveiðiskipunum undanfariö. Frá miðnætti á sunnudag til mið- nættis á mánudag tilkynntu 24 skip um afla samtals 17850 lestir og er þá heBdaraflinn á þessari sumar-og haustvertíð orðinn um 250 þúsund lestir að sögn Andrés- ar Finnbogasonar hjá Loðnu- nefnd. Siguröur RE er enn aflahæstur og er búinn að fá hátt 110 þúsund lestir en Andrés kvaðst ekki hafa haft tíma til að taka saman ná- kvæma skýrslu um afla einstakra báta undanfarið. Sem kunnugt er af fréttum, hafa fiskifræðingar lagt til að á þessari vertið og á komandi vetrarvertið verði ekki leyft að veiða meira en 600 þúsund lestir af loönu, samtals.Núþegar er þvi búið að veiöa um 370 þúsund lestir af þessum kvóta. íslendingar 250 þúsund lestir og Norðmenn 120 þúsund lestir. Eftir standa þá að- eins 230 þúsund lestir fyrir þann tima sem eftir lifir haustvertlðar og komandi vetrarvertfð. Og ef svo heldur fram sem horfir að góð veiði verði á loðnumiðunum næstu daga gæti svo fariö að ekki stæðu eftir nema um 100 þúsund lestir fyrir komandi vetrarvertíð. Þá er aðeins um tvennt að velja, annaðhvortað hlusta ekki á fiski- fræðingana'og hækka kvótann eða leggja öllum nótaskipaflotanum, þ.e. þeim skipum sem sérsmföuð eru fyrir nótaveiði og þau eru ekki fá. — S.dór Mikið flóð varð á Suöurlandsbraut rétt við Hótel Esju I gær. Þarna er verið aft breyta umferftareyjusn og vift uppgröft kom grafa niftur á vatnslögn meft þeim afieiftingum sem myndin sýnir (ljósm. Jón). Hjálmar Vilhjálmsson fiskifrœðingur um loðnuna Sé engin teikn sem auka mér bjartsýni Þar sem drvinnsla gagna úr þessum sameiginlega rann- sóknarieiftangri okkar og Norö- manna er rétt aft hef jast, er ekki hægt aft slá neinu föstu enn sem komift er. Samt sem áftur hef ég ekki séft nein teikn sem auka bjartsýni mina um aft hægt verfti aft ieggja til aft hækka loftnukvöt- ann umfram þau 600 þúsund tonn, sem lagt hefur verift til aft leyft verfti aft veifta, sagfti Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræftingur er vift ræddum vift hann 1 gær. Hjálmar sagði aft svæðið frá Vestfjörðum til Jan Mayen hefði veriö rannsakað i þessum leiö- angri, sem hafði 2 rannsóknar- skip til umráða dagana 26. sept. til 5. okt. s.l. Og þarna hefði verið kannað allt útbreiðslusvæði löðn- unnar. Fljótt á litið, sagöi Hjálmar virðast niöurstöðurnar ætla að verða þær sömu og við mælingarnar i ágúst í sumar. Niðurstöður úr þessum sameigin- lega leiðangri íslenskra og norskra f iskifræöinga sagði Hjálmar að ættu að geta legið fyrir seint í næstu viku. Um næstuhelgi heldur Hjálmar svo i enn einn leiðangurinn á Bjarna Sæmundssyni. Fyrst mun hann rannsaka rækjumiðin en undir lok þessa mánaöar gera enn frekari mælingar á stærð loðnu- stofnsins út af Vestfjöröum og Norðurlandi. — S.dór Verkamannasamband íslands Þingar um helgina 9. þing Verkamannasambands islands verður haldið á Akureyri dagana 12. -14. október n.k. Þing- ið verður á Hótel KEA. Gert er ráð fyrir að þinghald hefjist kl. 20.30 á föstudagskvöld 12. október og að þvi ljúki á sunnudagskvöld, 14. okt. í VMSl eru 46 verkalýösfélög með um 22 þúsund félagsmenn. Rétt til þingsetu eiga um 120 full- trúar. Auk venjulegra þingstarfa verður aðalmál þingsins kjara- mál. Formaður Verkamanna- sambands Islands er Guðmundur J. Guðmundsson, og sagði hann i gær að VMSÍ gengi sameinaö og sterkt til þessa þings, enda veitti ekki af þar sem gera mætti ráð fyrir hörðum átökum á vinnu- markaðnum um næstu áramót, gegn endurnýjuðum og harð- skeyttum samtökum atvinnurek- enda. s.dór Félagsfundur með Lúðvík og Svavari Hvað er framundan? Albvðubandalaeið i Revkiavik boöar til félagsfundar að Hóte! Esju á morgun, fimmtudag, kl 20.30. Fundarefni: Hvað er framund- an eftir brotthlaup Alþýöu- flokksins úr rikisstjórninni? Frumm æiendur: Lúðvfk Jósepsson formaður Alþýðu- bandalagsins, og Svavar Gests- son viðskiptaráðherra. Fundarstjóri: Sigurjón Péturs- son forseti borgarstjórnar. Lúðvik Svavar Stjórn Alþýðubandalagsins I Reykjavik hvetur félaga til þess að fjölmenna á fundinn og fylkja Sigurjón þar liöi til baráttu gegn hægri sókninni I landinu. Stjórn ABR, Reykjavik Alþýðubandalagið i Reykjavík

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.