Þjóðviljinn - 18.10.1979, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 18.10.1979, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 18. október 1979 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 15 Þorsteinn ö. Stephensen leik- Arndis Björnsdóttir lék Völu I stýrir. Geröum. Aö rísa úr duftínu • Útvarp kl. 20.10 (Jtvarpsleikrit vikunnar, sem flutt veröur kl. 20.10 I kvöld, heitir „Brimar viö Böi- klett” og er gert eftir sam- nefndri sögu Vilhjálms S. Vilhjálmssonar. Ctvarps- handritiö geröi Þorsteinn ö. Stephensen, og er hann jafn- framt leikstjóri. Af leikendum má nefna Baldvin Halldórs- son, Rúrik Haraldsson, Arn- disi Björnsdóttur, Harald Björnsson og Val Glslason. Leikritiö var áöur flutt áriö 1965. Leikurinn segir frá lifs- baráttu manna i sunnlenzku sjávarþorpi snemma á öldinni. Nýr tími er aö ganga i garö meö breyttum atvinnu- háttum, en þaö eru ekki allir tilbúnir aö laga sig eftir þvi. Guöni í Skuld er einn þeirra sem vill „risa úr duftinu”, eins og hann oröar þaö, berjast viö danska kaupmannsvaldiö og fyrir mannsæmandi kjörum. En þeir sem haröir eru, eins og Arngrimur borgari, eiga lika sinar veiku hliöar. Vilhjálmur S. Vilhjálmsson fæddist á Eyrarbakka 1903. Hann tók Samvinnuskólapróf 1925 og var blaöamaöur viö Alþýöublaöiö 1926-46, en skrifaöi þó fastan dálk i þaö eftir aö hann hætti blaöa- mennsku. Vilhjálmur var einn þeirra fyrstu sem geröu viötöl i blööum aö sérgrein sinni. Hann ritstýröi bæöi tlmaritum og bókaflokkum um alllangt skeiö. Þekktastur er hann sennilega fyrir viötalsbækur sinar, en hann samdi einnig flokk skáldsagna og smá- sögur. Ein þeirra, „Nýtt hlut- verk” var kvikmynduö og seinna sýnd i sjónvarpi. Þá þýddi Vilhjálmur einnig nokkrar bækur. Hann lést áriö 1966. Enn um Thompson Útvarp kl. 22.50: — Viö höldum áfram aö kynna Richard Thompson, — sagöi Guöni rúnar Agnarsson, sem sér um Afanga I kvöld ásamt Asmundi Jónssyni. — Viö ákváöum aö ráöast I þetta verkefni þegar viö heyröum nýjustu plötu Thompsons. 1 undanförnum þremur þáttum höfum viö rakiö feril hans allt frá þvi hann byrjaöi meö hljómsveit- inni Fairport Convention áriö 1967. Þaö var merkileg hljóm- sveit, og viö höfum rakiö þróun hennar og tónlistar- breytingar. Thompson er tvimælalaust einn merkasti tónlistarmaöur Bretlands á sinu sviöi, sem er rokkiö. Hann hefur veriö miö- punktur mikilla tónlistarhrær- inga i Bretlandi I ein tlu ár. Uppistaöa þáttarins I kvöld veröur tónlistin á þremur nýjustu plötum Thompsons. Elsta platan af þessum þremur hefur reyndar nokkra sérstööu, þvi aö hún er samsafn fágætra og áöur óút- gefinna hljóöritana, og eins eru þar hljómleikaupptökur. Þetta er einskonar yfirlits- plata. Þess má aö lokum geta, aö meöal laganna sem viö ætlum aö leika I kvöld veröur eitt vin- sælasta lag Thompsons, I Want to see the Bright Lights Tonight. Þaö er Julie Coving- ton sem syngur þaö, en Tompson leikur meö. —ih Dagur í París Utvarp kl. 22.00: — Þetta eru leikmannsþankar, — sagði Anna Snorradóttir, sem veröur meö þáttinn viö gröf Chopins I útvarpinu kl. 22.00 I kvöld. — Ég ætla mér ekki aö gera neina úttekt á Chopin eöa tónlist hans. I þættinum er rifjaöur upp dagur 1 Paris núna á útmánuöum. Ég kom þá i kirkjugaröinn þar sem Chopin er jaröaöur, og skrif- aöi siöan niöur hjá mér þær hug- renningar sem komu upp viö ieiöi hans. Inn i þetta flétta ég frásögn af fyrstu kynnum mlnum af grammófóni. Þaö var grammó fónn sem ég eignaöist meö systkinum minum. Svo veröur auövitaö tónlist eftir Chopin, og ég segi litillega frá honum, en ekki sem fagmaöur Nú eru liöin hundraö ár siöan Chopin dó, hann dó 17. október 1879, aöeins 39 ára aö aldri. Af þvi tilefni flyt ég þessa frásögn núna Vimdamál hjónuklúbba á Suðurnesjum Fyrir árum 40 Mörg eru hin félagslegu vandamál, einsog Flosi Ólafs- son hefur margoft bent á. Um eitt þeirra er rækilega fjallaö i nýjasta hefti Suðurnesjatiðinda. Þaöer vandamál hjónaklúbba á Suðurnesjum. Þessu máli eru gerö skil i inngangsgrein og þremur viötölum viö formenn klúbbanna. Blaöiö segir, aö nokkrir hjónaklúbbar séu starfandi á Suöurnesjum, misjafnlega virk- ir þó.Þrír hinir virkustu ogfjöl- mennustu séu Hjónaklúbbur Suöurnesja, Unghjónaklúbbur- inn og Nýi hjónaklúbburinn. Markmiö allra klúbbanna er dansleikjahald. Einnig er þeim þaösameiginlegt, aö inngöngu i þá fá aöeins hjón, ekki einstakl- ingar. Siöan spyr blaöamaöur: En hversvegna starfar ekki bara einn klúbbur — og hvernig er skiptingu þeirra háttaö? Aö sögn Ingólfs Báröarsonar, sem var formaöur Nýja hjóna- klúbbsins og áöur formaöur Unghjónaklúbbsins, voru á- stæöurnar fyrir stofnun Nýja hjónaklúbbsins þær, aö hópi fólks fannst þaöekki lengur eiga samleiö meö yngsta fólkinu. Auk þess var mikil aösókn I klúbbana tvo sem þá voru starfandi, svo mikil, aö ekkert skemmtihús gat rúmaö slikan fjölda.... Taldi Ingólfur aöþann- ig heföi veriö kominn grundvöll- ur fyrir þriöja klúbbinn. Ekki eru allir sammála Ing- ólfi. Logi Þormóösson, f ormaö- ur Unghjónaklúbbsins,segir t.d. aö þátttakan hafi veriö góö meöan klúbbarnir voru bara tveir, „en eftir aö „millifóta- klúbburinn” var stofnaöur hafi aösóknin I alla klúbbana minnk- aö.” Logibendirá fleiri vandamál. Hann er þeirrar skoöunar aö ekki sé rétt aö selja miöa fyrir allan veturinn i einu. „Benti hann á aö fólk i Unghjóna- klúbbnum stæöi enn i barneign- um og tók sem dæmi, aö barn gæti komiö undir eftir fyrsta balliö, og þá væri sjálfkrafa bú- iö aö kippa grundvellinum und- an þátttöku i þeim siöustu”, Stundvisi er talin til æöstu dyggöa I Unghjónaklúbbnum. „Um skemmtiatriði sagöi Logi, aöreglanværisú.aö menn yröu aö mæta fyrir kl. 10. Þeir sem mættu siöar yröu aö gera eitt- hvert „fiflaverk”. Þaö væri I sjálfu sér skemmtiatriöi. Þó væri reynt aö hafa slikt fremur leiöinlegt fyrir gerandann til aö „egóistar” af ýmsu tagi færu ekki aö gangast upp. Reglan heföi veriö sett til aö örva fólk til aö mæta snemma en ekki til aö örva skemmtiatriðin”. Þorbergur Friöriksson, for- maöur Hjónaklúbbs Suður- nesja, segir 1 einu viötalanna að i klúbbnum sé fólk á öllum aldri. Fólk sem i hann komi I sé ’ í honum fram eftir öllum aldri, eða bara þangaö til þaö hætti.aö geta dansaö. „Aö lokum vildi Þorbergur leggja áherslu á þaö, hversu gamall klúbburinn væri og aö þetta væri fyrsti klúbburinn á landinu. Sagöi hann aö Hjóna- klúbbur Suöurnesja væri gott fordæmi um starfsemi þar sem ekki væri kynslóðastarfsemi. „Undanfarna daga hefur sú saga gengiö staflaust hér um þennan bæ, aö ég hafi heitið þvl aö hengja mig, ef Rússar réöust meö herafla á Pólland. Og ekki veröur betur séö en allur al- menningur beri þaö stórum meira traust til loforöa minna en annarra landa vorra, sem nú á tlmum gera sér loforöasvik aö lifsuppeldi, aö múgur manns viröist hafa tekiö sögunni mjög alvarlega, sumir komist I sjö- unda himin, öörum daprast lif- iö, en sannkallaöur harmagrát- ur hertekiö alla, sem meira gaman hafa aö skemmtilegum bókum en leiöinlegum.” Þórbergur Þóröarson i Þjóöviljanum 4. okt. 1939. „Ct af ummælum Þjóöviljans um aö Eysteinn Jónsson viö- skiptamálaráöherra ætti all- mikiö af kolum óskaöi ráöherr- ann eftir lögreglurannsókn heima hjá sér I gær og bauö rit- stjórum Þjóöviljans aö vera viöstöddum rannsóknina. Þaö kom i ljós, aö veslings ráöherr- ann átti aöeins nokkra kolamola til neöan í fötu, svo aö heimiliö varalveg kolalaust. Viröist ekki vanþörf á, aö þjóöin taki til athugunar hvaö gera skuli til aö bjarga sinum ágæta ráöherra úr kolaleysi hans.” Þjóöviljinn 5. október 1939 Myndin I gær var af Inga R. Helgasyni hæstarréttarlögmanni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.