Þjóðviljinn - 21.10.1979, Side 23
,*40*t<*
''ír&y-'-f
•'/■'K 4tt - v •-
íj.íí,*? ->?y
•fcMfcer 1*79 WéÐVIUINN — MDA 23
Pétur
postuli
Þessa mynd sendi
Berglind Heiðarsdóttir, 6
ára. Hún á heima á Hæli í
Austur-Húnavatnssýslu.-
Margir krakkar hafa sent
Kompunni mynd af Pétri
postula og þau vita öll, að
hann hét í raun og veru
Símon en Jesús gaf hon-
um þetta nafn, þvi hann
átti að vera eins og klett-
ur í starfi sínu.
Athyglisvert er það að
engum hefur dottið í hug
að teikna Pétur sem
fiskimann, en það var
hann áður en hann gerðist
lærisveinn Jesú, eða þá
með lyklakippu við beltið,
því eins og allir vita gætir
hann lykla himnaríkis og
er stundum kallaður
Lykla-Pétur.
Þær fá
kort frá
Kompu
Steinunn Arndís
Auðunsdóttir, Eyri,Mjóa-
firði í Reykjafjarðar-
hreppi sendi rétta lausn á
Talnaleik og Berglind
Salvör Heiðarsdóttir,
Hæli, Austur-Húnavatns-
sýslusendi rétta ráðningu
á krossgátunni og mynd
af Pétri postula. Helga
Aðalheiður Jónsdóttir,
Hrauntungu 16, Kópavogi
sendi svar við myndagát-
unni í síðasta blaði. Auk
þess sendi hún smellna
sögu um Karlinn í tungl-
inu og mynd líka. Það
getið þið séð í næsta blaði,
en svarið við gátunni
kemur ekki fyrr en í
næstu Kompu.
Kannski fáum við fleiri
svör og skemmtilegt efni
með.
Teikning er
nú valgrein
í 9. bekk
Uppi í risi í Austur-
bæjarskólanum hefur
verið útbúin stofa handa
þeim sem hafa valið sér
teikningu Í9. bekk. Stofan
er hentug til þessa með
þakgluggum svo Ijósið
fellur ofan á teikniblöðin
og birtan er því góð.
Kakkarnir geta farið
þangað upp hvenær sem
þau hafa tíma og gripið í
myndina sína.
Kompan spurði Jón E.
Guðmundsson teikni-
kennara hvernig honum
líkaði þessi tilhögun.
Jón E. Guömundsson:
Þetta er fyrsta árið sem
ég fæ til kennslu krakka
sem hafa valið sér teikn-
ingu. Þau eru bara úr 9.
bekk. Hér finnst mér far-
ið að eins og á að gera.
Þetta eru börn sem ég er
búinn að hafa síðan þau
voru níu ára gömul, svo
ég gjörþekki þau. Þessir
krakkar eru með hæfi-
leika og ég fæ nú tækifæri
til að segja þeim til. I
hópnum eru tólf börn.
Þau fá að kynnast þeim
efnum sem venjulega eru
notuð í myndlist. Ég
byrja með blýant, síðan
tökum við teiknikolið
fyrir, þá vatnsliti og svo
olíuliti, en þá er ætlunin
að vinna töluvert úti ef tir
því sem veður leyfir. Og
loks ef við komumst yfir
það fá þau að kynna sér
dúkskurð líka.
Það er mikils virði að
eitthvað er gert fyrir þá
Dóra Berglind Sigurðardóttir,
15 ára, i 9. bekk S
Dóra Berglind Sigurðardóttir, 15 ára, í 9. bekk S.
Kompan: Hversvegna valdir þú teikningu?
Dóra: Mér finnst bara gaman að teikna.
Kompan: Ferðu upp í risið í frítímum?
Dóra: Nei, ég hef aldrei farið nema í teiknitímum
sem eru á miðvikudögum. Tveir tímar.
Kompan: En teiknar þú ekki heima?
Dóra: Jú, stundum — það sem mér dettur í hug.
Kompan: Lestu myndasögurnar í blöðunum?
Dóra: Já, mérfinnst Foldagóðog Stína og Stjáni.
Kompan: Hvað ætlar þú að gera næsta vetur?
Dóra: Ég veitekki — ég er ekkert búin aðákveða.
sem eru með listræna
hæfileika. Það hefur
löngum verið svo- að
teikningin hefur ekki
skipað sama sess og bók-
legu fögin, hún var köiluð
aukafag og galt þess oft
við gerð stundatöflunnar
— teiknitímarnir stund-
um á versta tíma dagsins.
Þetta er í áttina, en nú f er
ég bara að hætta kennslu,
á ekki eftir nema 4 eða 5
ár. En ég er glaður yfir
því að hafa fengið tæki-
færi áður en ég hætti.
Það er vissulega nokk-
ur tilkostnaður í sam-
bandi við þetta — en í vor
þegar við höldum skóla-
sýninguna fær fólkið að
sjá árangurinn sem við
höfum náð við þessi
starfsskilyrði.
Ólafur Guðbjörnsson S
(samfélagsfræði)
Ölafur Guðbjörnsson, 15 ára, er í 9.S (sam-
félagsfræði).
Kompan: Hvers vegna valdir þú teikninguna?
ólafur: Það er gaman að teikna
Kompan: Hefur þú farið í teikniskóla?
ólafur: Þegar ég var 12 ára var ég í Myndlista-
skólanum við Freyjugötu í leirmótun, en það var
litil teikning.
Kompan: Hvernig finnst þér þetta hérna?
ólafur: Það er mjög skemmtilegt.
Kompan: Notfærir þú þér það að geta skroppið
hingað upp þegar þú átt frí?
ólafur: Já, ég fer hingað oftast þegar ég hef
tíma. Ég fór til að mynda í daa oq vann við mynd-
ina mína í hálftíma, það var hálftíma, hjá mér.
Kompan: Teiknar þú mikið heima?
ólafur: Ég hef gert það, en það er verið að endur-
byggja húsið heima, svo ég hef enga aðstöðu til að
teikna þar í vetur — þess vegna skiptir það mig
miklu máli að fá þessa aðstöðu í skólanum. Ég er
þakklátur fyrir hana. Jón er góður kennari.
Kompan: Ferðu oft á málverkasýningar?
Ólafur: Já, ég gerði þaðoftáður, en nú hef ég svo
lítinn tíma út af skólanum.
Kompan: Er einhver sýning þér minnisstæð?
ólafur: Ég varð afskaplega hrifinn af sýningu
Errós á Kjarvalsstöðum á síðustu Listahátíð. Ég
fór oftar en einu sinni á hana. Erró hefur svo
ofsalegt hugmyndaf lug. Svovar ég Ifka hrif inn af
sýningu Einars Hákonársonar.
Kompan: Heídur þú áfram næsta vetur?
ólafur: Ég fer í auglýsingateiknun f Handíða og
myndlistaskólanum og verð þar í f jögur ár.
Umsjón:
Vilborg
DagbjartscJóttir