Þjóðviljinn - 14.11.1979, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 14.11.1979, Blaðsíða 1
Er Tíminn að endurtaka söguna frá 1974? UOÐVIUINN Miðvikudagur 14. nóvember 1979 248. tbl. 44. árg. Hafin endurprentun svikaleiðara frá ’74 I Tímanum í gær hóf Þórarinn Þórarinsson endurprentun svikaleiðar- anna frá 1974. Nú er á ný hafinn söngurinn um and- Vélstjórafélag Sudurnesja: Mótmœlir aðild út- lendinga að fisk- eldis- málum A fundi stjórnar og trún- aðarmannaráðs Vélstjórafé- lags Suðurnesja 3. nóvember sl. var samþykkt aö mót- mæla eindregið öllum hug- myndum um aðild erlendra aöila að fiskeldis- og fiski- ræktarmálum tslendinga. „Harmar fundurinn að hugmyndir um aðild er- lendra fjáraflamanna skuli koma fram nú, i ljósi þess að á undanförnum árum hafa fariö fram árangursrikar til- raunir á þessu sviði af hálfu islenskra aðila. sem benda eindregið til þess að Islend- ingar sjálfir séu einfærir um að annast um þessi mál,” segir i samþykkt fundarins. Fundurinn hvatti opinbera aðila til að sýna þessum til- raunum þann skilning sem verðugt er, þar sem hér sé um að ræöa atvinnugrein sem skilað geti þjóöarbúinu miklum verðmætum. -eös t gær hlóð niður dálitlum snjó f Reykjavfk og æskan tók honum fagnandi eins og sést á þessari myna sem -eik- tók. stæðurnar milli Fram- sóknarflokksins og Sjálf- stæðisflokksins. Það er í senn kátbroslegt og ömurlegt þegar sagan endurtekur sig með þessum hætti. Fyrir kosningarnar 1974 birti Þórarinn Þórarinsson hvern leiðarann á fætur öðrum þar sem íhaldsand- stæðingum var boðaður sá fögnuður að sigur Fram- sóknarflokksins kæmi í veg fyrir valdatöku Sjálf- stæðisf lokksins. Tveimur mánuðum eftir kosn- ingar var ólafur Jóhannesson hinsvegar búinn að vinna það einstæöa afrek að mynda rikis- stjórn fyrir Geir Hallgrlmsson og leiöa ihaldið til hásætis i islenskum stjórnmálum. Fram- sóknarflokkurinn undi svo glaður i fjögurra ára árekstrarlausri samvinnu viö Sjálfstæðis- flokkinn. Sögunni frá 1974 má enginn gleyma. Þessvegna rifjar Þjóð- viljinn hana upp I dag með tilvitn- unum þá og nú i Timann. Sjá síðu 12 Leiftursókn gegn lífskjörunum „Amk. 15 % gengisfelling strax í desembermánuði t yfirlýsingum sinum um efna- hagsmál að undanförnu hefur Sjálfstæðisflokkurinn meðai ann- ars flutt launamönnum eftir- farandi boðskap: 1. Vlsitölubætur á laun verði felldar niður. Þetta þýddi 15% kaupskeröingu þegar I staö og 20-30% kaupskerðingu á næsta hálfa ári. Með þvi að kjósa Ihaldsflokkana eru menn að ákveða að vinna kauplaust Hjörleifur Guttormsson um boðskap Sjálfstœðisflokksins um hœkkað orkuverð jrá RARIK: íyrir þá i tvo til þrjá mánuði á ári. 2. Allar hækkanabeiðnir sem ríkisstjórnin liggur nú á — 28 talsins — eiga aö ganga fram. 3. Gengið á aö lækka um áramót- in samhliöa fiskverðsákvörðun. Kuldalegar kveöjur til landsbyggdarinnar „Þetta mundi að sjálfsögðu þýða stórhækkun á gjaldskrá Rafmagnsveitna rlkisins og frek- ari erfiðleika en nú er við aö gllma i fjárhag fyrirtækisins,” sagði Hjörleifur Guttormsson fyrrv. iðnaðarráöherra er Þjóð- viljinn spurði hann um áhrif þess ef Rafmagnsveitur ríkisins yrðu reknar án halla. Það er einn þátt- ur hinnar nýju og grimulausu efnahagsstefnu Sjálfstæðisflokks- ins að þjónustufyrirtæki rlkisins standi undir rekstri sinum. Eru þar sérstaklega tiinefnd Póstur og simi og Rafmagnsveiturnar. „Þetta gengur lika þvert á þá viðleitni til verðjöfnunar, sem fyrrverandi rlkisstjórn beitti sér fyrir," sagði Hjörleifur. „Þá tókst að lækka muninn á heimilis- taxta hjá RARIK miöað við Rafmagnsveitu Reykjavikur úr 90% niður i 53,4%. Við afgreiðslu siðustu lánsfjáráætlunar var gert ráð fyrir sérstöku framlagi úr rikissjóði, 60 miljónum króna, til Rafmagnsveitnanna á þessu ári. Við undirbúning fjárlaga fyrir 1980 lögðum við Alþýðubanda- lagsmenn rika áherslu á það að algjör stefnubreyting yrði I sam- bandi við fjármál Rafmagns- veitna rikisins, þannig að rikis- sjóður standi framvegis undir kostnaði við þær félagslegu framkvæmdir sem Rafmagns- veitunum er ætlaö að ráðast i, samkvæmt ákvörðun Alþingis hverju sinni. En sllkar óarðbærar framkvæmdir eru taldar nema yfir 60% af þeim framkvæmdum sem gert var ráö fyrir skv. fjár- lagafrumvarpinu að ráöist yröi i á næsta ári. Inn á fjárlagafrumvarp hafði fjármálaráöherra tekið aðeins einn miljarð, en I athugasemdum var um það getið að fariö yröi yfir þessi mál og þessar félagslegu framkvæmdir yrðu teknar inn að fullu, fjármagnaðar af rikissjóöi, þegar á næsta ári. Hér er verið að boða fráhvarf frá þessari stefnumörkun, sem ótvirætt mun þýöa stórhækkaö raforkuverö til viðskiptavina RARIK, sem búa nú þegar við Framhald á bls. 17 A héraðsmóti Sjálfstæöis- flokksins á Austurlandi greindi formaður Sjálfstæðisflokksins frá þvi aö gengið væri nú ranglega skráð — krónan þyrfti að falla meira gagnvart erlendum gjald- miðlum. Hann taldi með öðrum oröum að gengissigið að undan- förnu heföi ekki veriö nægjanlegt. Hann telur einnig að áhrif gengis- lækkunar eigi ekki að bætast i kaupi. A héraðsmótinu greindi formaður Sjálfstæðisflokksins frá þvi að um áramót þyrfti aö fella gengið um aö minnsta kosti 15%, en i frásögn Morgunblaösins hljóðarboðskapurinn svo, eftir að hafa gert grein fyrir efnahags- málunum aö undanförnu: ,,.. auk þess sem þegar er oröin að minnsta kosti 15% gengisfelling.” t mæltu máli þýðir þetta að Sjálf- stæðisflokkurinn mun þegar i desember, fái hann til þess völd, fella gengiö um 15%, um leiö og visitölubætur á laun verða bann- aðar. 1—. „ "—■ ■ '. ' ■——— " 1 iHvammstangi Leikhús Bdnaður Fiskiþing Niðurskurður | Staður á uppleið. Fólksfjölgun á Hvammstanga undanfarin ár hefur verið allt upp 110% milli ára og þar hefur verið allt frá þvi að vinstri stjórnin 1971 tók við rifandi atvinna og mikil uppbygging. Þórður Skúlason sveitarstjóri segir frá þorpinu og atvinnullfi þar. Nýir leikhússtjórar. t fyrrakvöld var ákveöið á framhaldsaðalfundi Leikfélags Reykjavikur að ráða þá Stefán Baldursson og Þorstein Gunnarsson leikhússtjóra frá l. september 1980. Við erum bjartsýnir, brattir og spenntir, segja þeir félagar I samtali við Þjóöviljann. Sivaxandi fyrirtæki. Forráðamenn Alafoss h.f. skýrðu frá þvl á blaðamanna- fundi, að allt siðan 1973 hafi framleiðsla fyrirtækisins vaxið um 6% á ári og hafi aldrei gengið betur en nú. Aðspurðir um álit á þeirri hugmynd að selja nú fyrirtækiö einstak- lingum, svöruöu stjórnarmenn þvi til aö þeir sætu ekki I stjórn Alafoss h.f. til að selja það, heldur til að efla það eftir mætti. Harðar deilur. Fiskiþing hélt áfram I gær. Til umræðu kom stjórnun fiskveiöa i framtlöinni og urðu snarpar deilur meö mönnum útaf þvl máli. Virtist sem hreppapóli- tikin réöi mestu um afstöðu manna, en hinar ýmsu leiöir við stjómun fiskveiðanna koma mjög misjafnlega niður á hinum ýmsu byggðarlögum. Þjónusta og lifskjör. „Þaö gleymist oft aö þjónusta ; á vegum rikisins er hluti af lifskjörum hvers og eins. M.a. þess vegna upplifum við nú þá tima aö stjórnmálamenn telja vænlegt til árangurs i kosninga- baráttunni aö lofa niðurskuröi á útgjöldum rikisins”, segir Hörður Bergmann i dagskrár- grein i dag. Sjá siðu 9. Sjá opnu. Sjá síðu 13. Sjá siðu 3. Sjá opnu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.