Þjóðviljinn - 22.12.1979, Side 5
Laugardagur 22. desember 1979. fcJOÐVÍLJINN — SÍÐA á
Strax I upphafi þeirra viö-
ræðna, sem fram hafa farið um
myndun rikisstjórnar Framsókn-
arflokks, Alþýðubandalags og
Alþýðuflokks lagði Alþýöubanda-
lagið fram hugmyndir slnar um
nokkur helstu grundvallar stefnu-
atriöi væntanlegt stjórnarsam-
komulags. Þar var vikiö aö flest-
um þeim málaflokkum, sem
semja verður um, ef til stjórnar-
samnings á að koma.
Hér skal vikið með fáum oröum
að nokkrum þessara atriða.
1. Stefnan i launa- og kjaramál-
um.
Augljóst er að eitt mikilvæg-
asta atriðið I nýjum stjórnarsátt-
mála er stefnumörkun I launa- og
kjaramálum. A þeirri stefnu
verður siðan að byggja ýmsar
ráðstafanir i efnahagsmálum. í
tillögum Alþýðubandalagsins er
eftirfarandi grundvallarstefna
mörkuð:
a) að sérstök áhersla verði lögö á
aö auka kaupmátt lægstu
launa.
b) að elli- og örorkullíeyrir hækki
c) aðalmenn laun séu verðtryggð
d) að stuðlað verði að jöfnum
réttindum launafólks, m.a. i
lifeyrismálum, húsnæðismál-
um og á sviði vinnuverndar og
vinnuaðbúnaðar.
2. Þriggja ára áætlun um hjöðnun
verðbóigu, jöfnun llfskjara og efl-
ingu Islenskra atvinnuvega.
Hér er einnig um grundvallar-
stefnumörkun að ræða. Slíka
þriggja ára áætlun verður að gera
með hliðsjón af þeirri stefnu, sem
ákveðin er I kaupgjalds- og kjara-
málum. Alþýðubandalagið leggur
áherslu á jöfnun launa, þ.e.a.s. á
að lægri laun verði hækkuð mest.
Hjöðnun verðbólgu verður slðan
að nást með ströngu aðhaldi I
verðlagningarmálum, með hag-
kvæmari innkaupum til landsins,
með breyttri stefnu I skattamál-
um, með aðhaldi og gætni I rlkis-
fjármálum, með breyttri stefnu I
peningamálum og með lækkun
vaxta I áföngum. Jafnhliöa þarf
svo að leggja höfuðáherslu á
aukna framleiðslu og aukna hag-
ræðingu I öllum rekstri, svo
meira verði til skiptanna.
3. Full atvinna verði tryggð.
Það er ófrávíkjanleg krafa
Alþýðubandalagsins að full at-
vinna verði tryggð um allt land.
Alþýðubandalagið er þvi andvigt
tillögum um samdrátt félags-
legra framkvæmda og öllum
þeim samdráttartillögum sem
gæti leitt til atvinnuleysis.
4. Skipuleg fjárfesting: aukin
verðmætasköpun.
Alþýðubandalagið leggur
áherslu á aö tekin verði upp
skipuleg fjárfestingarstjórn sem
við það sé miðuð að tryggja sem
hagkvæmasta fjárfestingu fyrir
þjóðarheildina.
Alþýðubandalagið lætur sér
ekki nægja að lögbinda tölu um
hámark fjárfestingar i hlutfalli
við þjóðarframleiðslu, en leggur I
þess stað höfuðáherslu á I hvaö
fjárfestingarfjármagnið fer.
Það bindur sig heldur ekki við
fastákveðna tölu um heildarút-
gjöld ríkissjóðs, en leggur meiri
áherslu á til hvers útgjöldum
rikisins er varið.
Hagkvæm fjárfesting miðar
jöfnum höndum að félagslegum
umbótum og þvi að leggja grund-
völl að aukinni framleiöslu og
framleiðni.
Leggja verður þunga áherslu á
að efla atvinnuvegi landsmanna i
þeim tilgangi að auka verðmæta-
sköpun.
5. Efnahagslegt og stjórnmála-
legt sjáifstæði.
Alþýðubandalagið er andvigt
stóriðjurekstri erlendra auðfé-
Smásögur
Jónasar
stýrimanns
Farangur heitir safn 12
smásagna eftir Jónas Guðmunds-
son, rithöfund^ myndlistarmann
og blaðamann.
Þær eru flestar skrifaðar á þessu
ári og gerast I samtimanum.
Sumar hafa verið þýddar á
erlend mál og ein þeirra hefur
verið tekin til flutnings I danska
útvarpið.
Þetta er fimmtánda bók
höfundar.
Alþýðuflokkurinn vildi ekki vinstri stjórn, Framsókn vildi lögbinda kauplækkun, og kauplækkunartil-
lögur Alþýðuflokks gengu enn lengra.
L ÚÐ VÍK JÓSEPSSON
Um stjórnar-
myndunarvið-
ræðurnar
laga I islensku atvinnulifi, m.a.
vegna þess að slikur rekstur felur
i sér stórfellda hættu I sambandi
við efnahagslegt sjálfstæði þjóð-
arinnar. A sama hátt er það krafa
Alþýðubandalagsins að banda-
riski herinn verði á brott úr land-
inu þar sem vera hans ógnar
sjálfstæði landsins bæði beint og
óbeint.
— 0 —
Hér hafa verið nefnd nokkur
þeirra grundvallar stefnuatriða,
sem Alþýðubandalagið hefir sett
fram i stjórnarmyndunarviðræð-
unum.
Um þessi atriði öil þurfti að fá
fram afstöðu flokkanna áður en
lengra væri haldið um útfærslu
einstakra málaflokka.
Framsóknarflokkurinn hefir
Tvœr megin-
ástœðurnar
til þess að
upp úr
slitnaði
með tillögum sinum um aðgerðir i
efnahagsmálum frá 10. desember
svarað nokkrum atriðum I tillög-
um Alþýðubandalagsins. Hér skal
vikið i stuttu máli að þessum til-
lögum Framsóknarflokksins:
1. Launa- og kjaramálin
1 tillögum Framsóknarflokks-
ins er lagt til að fastbinda verð-
lagsbætur á laun.þannig að verð-
tryggingin fari lækkandi og verði
8% 1. mars n.k., 7% 1. júni, 6% 1.
sept. og 5% 1 des. o.s.frv., eða um
28% samtals árið 1980.
1 umsögn Þjóðhagsstofnunar
um tillögurnar segir m.a. orðrétt:
„Enda er beinlinis gert ráð
fyrir þvi i þriöja lið kjaramála-
tillagnanna, að þessi skuli vera
launabreytingin, þótt verðbóta-
visitalan að óbreyttum lögum
fari fram úr þessum mörkum”.
Ctreikningar Þjóðhagsstofnun-
ar á tillögum Framsóknarflokks-
ins eru siðan gerðir á þessum
kauplækkunar-grundvelli, eða
eins og orðrétt segir I umsögn
stofnunarinnar:
,,t dæmi hér á eftir verður rak-
ið, hvernig spár um almennar
verðbreytingar á næstu miss-
erum, sem fyrst og fremst eru
gerðar á grundvelli forsendna
tillagnanna um launa- og geng-
ismál, rima við takmörkun,
Lúðvik Jósepsson: Sú stefna sem
fram kemur i tiliögum Fram-
sóknarflokksins og Alþýðuflokks-
ins er i algjöru ósamræmi við
markaða stefnu launþegasam-
takanna.
sem fram er sett um verðbreyt-
ingar, þ.e. 8, 7, 6 og 5%
ársfjórðungslega 1980 og lægri
tölur þaðan af”.
TJtreikningar Þjóðhagsstofnun-
ar eru þvi fyrst og fremst um
beinar afleiðingar af tiltekinni
kauplækkun og ákveðinni 5-6%
gengislækkun nú I upphafi árs.
I umsögn Þjóðhagsstofnunar
kemur þó skýrt fram að sú kaup-
hækkun sem varð 1. desember,
rúm 13%, og samsvarandi fisk-
veröshækkun, rúmist engan vég-
inn innan 5-6% gengislækkunar.
Niðurstaða stofnunarinnar er
að skerðing kaupmáttar yrði 5-6%
árið 1980 og 3% 1981 samkvæmt
tillögunum, en auðvitað verulega
meiri, ef um meiri gengislækkun
yröi að ræða og ef áætlaö yrði
fyrir liklegum viðbótarverð-
hækkunum erlendis frá.
Meginniðurstaðan er þvl sú, að
tillögur Framsóknarflokksins
fela i sér kaupmáttarlækkun sem
að öllum Hkindum nemur 10-12%
á árinu 1980 og 5-7% á árinu 1981.
Verðbólgustigið yrði aldrei
undir 40-45% I árslok 1980, ef tillit
er tekið til þeirrar gengislækkun-
ar, sem reiknað er með af hálfu
þeirra aðila sem mestu ráða um
fiskverð og útflutningsgengi.
Þessar tillögur Framsóknar-’
flokksins fara þvi algjörlega i
bága við grundvallar tillögur
Alþýðubandalagsins um hækkun
lægstu launa og verðtryggingu al-
mennra launa.
Tillögur Alþýðuflokksins fara
Framhald á bls. 13
Einar Laxness:
Jón
Sigurðsson
forseri
Höfundur tekur mið af
nýjum rannsóknum og
breyttum viðhorfum og
býr i hendur okkar bók
sem lengi hefur skort.
Þetta er yf irlitsrit með yf-
ir 200 myndum.
Félagsverð kr. 13.800.-
Búðarverð kr. 15.975.-
Sögufélag
Gardasirœti 13 B
og i Bernhöftstorfu
w
73
C/5
SOGl'-
f-'KI.Af. >
KINAR
LAXNKSS