Þjóðviljinn - 19.01.1980, Síða 5
Laugardagur 19. janúar 1980. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Gudrmendar
og
Geirfinnsmál
vörnin
höfstígær
Lögregluvörður mikill er um hús Hæstaréttar meðan á málflutningi Guðmundar og Geirfinnsmálanna
stendur. (Ljósm. — eik —)
urður Óttar Hreinsson heldur
þvi fast fram að bifreiöin hafi
verið staðsett mun ofar I Drátt-
arbrautinni en hin. Engin leið
væri til að treysta fyrri fram-
burði ákærðu eftir þessa svið-
setningu.
Kristjáni Viðari er gefið að
sök að hafa stolið veski með 5
þús. kr. i af Geirfinni, sem og
blýanti. Páll benti á að kona
Geirfinns hefði borið að hann
hefði verið peningalaus þetta
kvöld; hún hefði látið hann hafa
peninga fyrir sigarettum og
hvorki hún né vinir hans hefðu
kannast við að Geirfinnur hefði
átt blýantinn, sem Kristján
sagðist hafa tekið af líki Geir-
finns.
Hræddur viö ákærðu
begar Páll fjallaði um það að
allir ákærðu og vitni hefðu dregið
framburði sina til baka, nefndi
hann það sem Sigurður óttar
Hreinsson sagði þegar hann dró
sinn framburð til baka og rikis-
saksóknari minntist á. Sigurður
Óttar sagðist hafa dregið fram-
burð sinn til baka af ótta við á-
kærðu, ef að þeir yrðu sýknaöir i
héraði. Páll sagðist draga þetta i
Omengað rannsók narréttarfar
— sagði Páll A. Pálsson verjandi
Kristjáns Viðars um rannsókn
Guðmundar og Geirfinnsmálanna
Vörnin i Guðmundar- og Geir-
finnsmálunum hófst fyrir
Hæstarétti i gærmorgun. Fyrst-
ur talaði Páll A. Pálsson, verj-
andi Kristjáns Viðars. Hóf hann
vörn sina kl. 10.00 og lauk mál-
fiutningi hans kl. 14.45. Þá tók til
máls Jón Oddsson, hrl. verjandi
Sævars Marinó Ciecielskis og
var hann enn að þegar rétti var
frestað til kl. 10.00 nk. mánudag.
Þess má geta að Páll A. Pálsson
var þarna að flytja fyrsta próf-
mál sitt fyrir Hæstarétti.
Það fór sem rikissaksóknari
Þórður Björnssonn spáði undir
lok ræðu sinnar sl. fimmtudag,
að verjendur myndu einkum
byggja vörn sina á þvi að hvorki
lik Guðmundar Einarssonar né
Geirfinns Einarssonar hafa
fundist og eins hinu að ákærðu
hafa dregið framburði sina til
baka.
Páll A. Pálsson ræddi mikið
um þessi atriði. Auk þess varð
honum tiðrætt um það harðræði,
sem ákærðu segjast hafa verið
beittir við rannsókn málanna á
sinum tima. Þá vék hann að
blaðamannafundi sem rannsókn-
arlögreglan ásamt Karli Schutz
hélt á sinum tima, skrifum blað-
anna um málið og almenningsá-
litinu eftir það. Taldi hann að
þetta hefði haft mjög mikil áhrif,
þó svo að hann vildi ekki fullyrða
um að þetta hefði haft áhrif á nið-
urstöðu héraðsdóms.
Krafa um sýknu
Eftir að Páll hafi reifað á-
kæruatriðin krafðist hann al-
gerrar sýknu til handa skjól-
stæðingi sinum Kristjáni Viðari
fyrir ákærurnar um manndráp
og likflutning, en vægasta hugs-
anlega dóms fyrir þjófnaðará-
kærurnar. Páll tók það fram
strax i upphafi að ekkert það
hefði komiðfram sem sannaði að
Kristján Viðar hefði verið við-
riðinn hvörf Guðmundar Einars-
sonar og Geirfinns Einarsson-
ar.
Benti Páll á að hvorki játning-
ar Kristjáns i þessum málum,
né sannanir væru óyggjandi i
málunum. Þá benti hann á sem
fyrr að Kristján Viðar hefði
dregið framburð sinn og játn-
ingu til baka i þessum málum 27.
sept. 1976.
ótti við lögregluna
Páll spurði þvi næst, hvers
vegna Kristján hefði játað á sig
sakir . Jú, hann hefði lýst þvi yfir
að hann hefði talið sér skylt að
játa fyrir lögreglunni. Sakborn-
ingar hefðu verið yfirheyrðir
saman og sagt að muna atburði
og siðan hafi þessu verið raðað
saman með leiðandi spurning-
um. Páll benti á að vissulega
hefði ekkert komið fram við
rannsókn um að ákærðu hefðu
verið beittir harðræði, en i ljós
hefði komið að borið hefði verið á
milli þeirra. Þá sagði Páll að
Kristján Viðar hefði ekki verið
með s jálfum sér um þær mundir
sem yfirheyrslur stóðu yfir, yf-
irheyrslur hefðu lagst afar
þungt á hann og Kristján hefði
viljað ailt til vinna að vera laus
við þær, meira að segja að játa á
sig sakir. Benti Páll á að Hall-
varður Einvarðsson, þáverandi
vararikissaksóknari hafi tekið
eftir þvi við yfirheyrslur hve
ruglaður Kristján var og krafist
þess að hann sætti geðrannsókn.
Eins og fram kom við geð-
rannsókn var Kristján haldinn
drykkjusýki og ofnotaði lyf um
þær mundir sem rannsókn mál-
anna fór fram.
Vitnisburður
litils virði
Þá ræddi Páll um framburð
ýmissa vitna i Guðmundarmál-
inu. Taldi hann þá stangast á og
litt marktæka. Sama væri að
segja um játningu ákærðu, fram-
burður þeirra væri ósamstæður
og ruglingslegur. Hann minntist
einnig á blóðbletti þá sem fund-
ust á frakka Kristjáns Viðars,
en það blóð reyndist vera i A eða
AB-flokki. Talið er að Guðmund-
ur Einarsson hafi verið I AB -
flokki. Benti Páll á að þorri
íslendinga væri i þessum tveim-
ur blóðflokkum og þvi sannaði
þessi blóðrannsókn ekki neitt.
Auk þes s benti Páll á að Kr is tján
Viðar hefði lent I bilslysi eitt sinn
og þá verið i þessum sama
frakka.
Að lokum laeði Páll þunga á-
herslu á, að lik Guðmundar hefði
ekki fundist og önnur sönnunar-
gögn i málinu vafasöm. Þess
vegna þyrftu játningar ákærðu
að vera fullkomnar en á það
vantaði i þessu máli.
Ef Hæstiréttur hins vegar
teldi Kristján sekan, þá ætti hann
málsbætur. Hér hefði ekki verið
um ásetning að ræða, að drepa
Guðmund Einarsson. Málið hjá
þeim hefði snúist um peninga til
áfengiskaupa, og hver drepur
mann út af sliku? spurði Páll.
Loks vitnaði Páll i fyrri dóma
Hæstaréttar þar sem vafi lék á
ásetningiog var það taliö ákærðu
til málsbóta. Páll taldi að hér
hefði verið um manndráp af gá-
leysi að ræða, enda heföi Hæsti-
réttur beðiö sækjanda og verj-
endur að hafa lagagreinar þar
um einnig i huga.
Geirfinnsmálið
Þessu næst vék Páll að Geir-
finnsmálinu. Páll rakti málið
nokkuð. Hann benti á að rikis-
saksóknari teldi ákærðu brot-
lega i málinu. Páll taldi aftur á
móti ekki nægar sannanir vera
fyrir þvi að ákærðu hefðu orðið
Geirfinni Einarssyni að bana.
Hann benti einnig á að ósannað
væri að Geirfinnur Einarsson
væri látinn. Þvi sagðist Páll
krefjast sýknu til handa skjól-
stæðingi sinum.
Páll rakti atriði úr málflutn-
ingi rikissaksóknara þar sem
hann taldi sök sannaða. Páll
benti á að ákærðu heföu allir
dregið framburð sinn til baka
nema Guðjón Skarphéðinsson, en
hans framburður væri afar
þokukenndur. Eins benti Páll á
að engin sönnunargögn hefðu
fundist I þessu máli, þrátt fyrir
ýtarlega rannsókn, þá ýtarleg-
ustu sem fram hefur farið i is-
lensku sakamáli. Játningar á-
kærðu væru svo ruglingslegar
að ekki væri hægt að fá sönnun
útúr þeim.
Bílferðin
til Keflavíkur
Þessu næst vék Páll að bilferð
fjórmenninganna til Keflavikur.
Hann dró i efa að þau hefðu feng-
ið bilaleigubil á leigu, enda hefði
enginn samningur þar um fund-
ist. Þá taldi hann ógerlegt að
hægt hafi veriö að komast til
Keflavikur á WV bil með fjórum
I, á þeim tima sem sagt er miðað
við ferðir þeirra innanbæjar.
Prófun sú sem tögreglan hefði
gert á þessu, hefði veriö fram-
kvæmd á Volvo.bifreið, sem er
margfalt aflmeiri en WV bifreið
og þvi ekki marktæk.
Framburði ákærðu um þessa
bilferð dró Páll mjög i efa, enda
eru þeir ósamstæðir og gætu
ekki talist sönnun i málinu.
Einnig dró Páll i efa að Krist-
ján Viðar hafi verið sá er hringdi
til Geirfinns úr Hafnarbúðinni I
Keflavik. Hann væri alls ólikur
þeim manni sem þar kom inn til
að fá að hringja að sögn af-
greiðslustúlknanna, sem sáu
hann. Páll minntist þessu næst á
sviðsetningu atburða i Dráttar-
brautinni og benti á að þar hefðu
ákærðu verið ósammála um
marga hluti, m.a. staðsetningu
sendiferðabifreiðarinnar. Sig-
efa, það hefði verið samviska
Sigurðar sem hvatti hann til
þess að draga framburð sinn til
baka.
Vegna þess að vitni og ákærðu
hafa dregið framburði sina til
baka, sagðist Páll lita alla rann-
sókn málsins mjög gagnrýnum
augum. Hann benti á að Kristján
Viðar hefði marg-reynt að draga
framburð sinn til baka,en verið
neitað um það viö rannsókn
málsins og hann neyddur til að
halda fram röngu máli. ,,Það eru
stór orð, en þau verða að segj-
ast, þetta er ómengað rannsókn-
arréttarfar”, sagði Páll A. Páls-
son.
Loks minntist Páll á þátt
Karls Schutz við rannsókn
málsins og yfirheyrslur hans.
Hann gagnrýndi það mjög að fá
erlendan mann, sem ekki þekkti
isl. réttarfar til að stjórna yfir-
heyrslum og rannsókn, enda
hefði hann farið út fyrir ramma
laganna. Kristján. Viðar hefði
verið yrifheyrður i rúmar 8
klst. i einu, þó lög segi fyrir um
að ekki megi yfirheyra menn
lengur en i 6 klst.
Varðandi rangar sakagiftir
krafðist Páll sýknu til handa
Kristjáni. Hann hefði ekki átt
upptök að þeim og hefði verið
leiddur til að bera rangar sakir
á menn. Honum hefði margsinnis
verið neitað um að fá réttar-
gæslumann sinn, sem hann átti
þó fullan rétt á við yfirheyrslur.
Að lokum taldi Páll upp það
sem orðið gæti Kristjáni til
málsbóta ef Hæstiréttur teldi
hann sekan. Nefndi hann þar til
ungan aldur en Hæstiréttur hef-
ur oft tekið tillit til þess, og eins
þess andlega ástands sem hann
var i um þær mundir er atburðir
þeir er nú vær i ver ið að f jalla um
hefðu átt sér stað.
Jón Oddsson tók við þegar Páll
A. Pálsson lauk máli sinu kl.
14.45 igær. Þegar rétti var frest-
að kl. 17.00 i gær hafði Jón ekki
lokið vörn i Guðmundarmálinu,
og Geirfinnsmálið og allt annað
sem Sævar Ciecielski er ákærð-
ur fyrir þvi eftir. Vörn Jóns
Oddssonar verða þvi gerð skil i
Þjóðviljanum n.k. þriðjudag.
— S.dór.
Garðabær
Starfskraftur óskast hálfan daginn að
leikskólanum Bæjarbóli frá 1. febrúar n.k.
Upplýsingar gefur forstöðukona i sima
40970.
Félagsmálaráð Garðabæjar