Þjóðviljinn - 19.01.1980, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. janúar 1980.
Eftirfarandi kröfugerð var
samþykkt á kjaramálaráðstefnu
Alþýðusambands tslands föstu-
daginn 11. janúar sl.
Kjaramálaráðstefnan sam-
þykkir að lagðar verði fram
eftirfarandi kröfur:
D.Almenn 5% kauphækkun á
alla kauptaxta.
2. Verðbætur launa verði reikn-
aðar á eftirfarandi hátt:
a) A þau laun sem eru 300 þús.
kr. eða lægri á mánuði
greiðist sömu verðbætur i
krónutölu og á 300 þús. kr.
b) A laun á bilinu 300-400 þús. kr .
á mánuði greiðist verðbætur i
prósentum.
c) A laun sem eru hærri en 400
þús. kr. á mánuði greiðist
sama krónutala og á 400 þús.
kr.
3. Félagslegar umbætur verði
tryggðar i samræmi við
hjálagðar tillögur samtakanna
um einstök atriði.
4. Landssambönd og félög semji
hvert fyrir sig um sérkröfur
eftir þvi sem við á.
Frá kjaramálaráðstefnu ASl á Hótel Loftleiðum föstudaginn n. janúar.
13. Stjórn lífeyrissjóða
Itrekaðar eru fyrri sam-
þykktir um að meirihlutaaðild
verkalýðssamtakanna verði
tryggð á sjóðstjórnum lifeyris-
sjóðanna, og lögð verði þung
áhersla á að i komandi samning-
um verði breytingu i þá átt fylgt
eftir.
14. Slysatryggingar
I komandi kjarasamningum
verði um það samið við atvinnu-
rekendur að tryggingarfjárhæð-
ir samningsbundinna slysa-
trygginga verði hækkaðar frá
þvi sem nú er.
15. Lögfestir verði frídag-
ar á öllum fiskiskipum yfir
jóladagana.
Nú þegar verði teknar upp við-
ræður við rikisvaldið um, að lög-
festur verði ákveðinn fjöldi fri-
daga um jól hjá sjómönnum á
fiskiskipum.
16. Aukið ríkisframlag til
byggingar og reksturs sjó-
mannastofa.
Kröfur Alþýöusambands íslands
í launa-, félags- og réttíndamáhim
Ur almennum lífeyrissjóðum á
samningssviði ASl.
4.Kostnaður vegna tannvið-
gerða verði tekinn inn i
almannatryggingar með sama
hætti og kostnaður vegna ann-
arra sjúkdóma.
8. Innheimta í
sjúkra- og orlofssjóði
I komandi kjarasamningum
verði um það samið við atvinnu-
rekendur að samhliða innheimtu
i lifeyr iss jóði verði innheimt
gjöld atvinnurekenda i s júkra- og
orlofss jóði.
9. Afnám eftirvinnu
i áföngum
1 komandi kjarasamningum
verði um það samið við atvinnu-
rekendur og/eða rikisvaldið að
eftirvinna verði alveg felld niður
i áföngum þannig að fimmtudag-
urinn faili út 1980 og siðan einn
dagur á ári hverju þar til öll
eftirvinna er aflögð.
10. Frumvarp til laga um
aðbúnað og hollustuhætti
Brýnt er að frumvarp til laga
um aðbúnað og hollustuhætti,
sem lagt var fram’á síðasta þingi,
verði samþykkt hið allra fyrsta,
með þeirri breytingu að bætt
verði við ákvæðum um verbúða-
fólk og ákvæðum sem tryggi áð
vinnutimi barna verði tak-
markaður með eftirfarandi
hætti: Börnum yngri en 15 ára
verði bönnuð öll yfirvinna og
börnum yngri en 16 ára verði
bönnuð öll næturvinna.
Nú þegar verði teknar upp við-
ræður við rikisvaldið um aukið
framlag rikissjóðs til byggingar
og reksturs sjómannastofa.
Lögfest verði að rikissjóður
greiði ákveðið hlutfall af bygg-
ingar- og rekstrarkostnaði sjó-
mannastofa, að fengnum tiilög-
um sjómannasamtakanna.
17. Húsnæðismál
Nú þegar verði teknar upp við-
ræður við rikisvaldið um nýskip-
an húsnæðismála á grundvelli
fyrri samþykkta og tillagna ASl
um þessi mál. Ráðstefnan leggur
áherslu á, að Byggingarsjóði
verkamanna verði tryggt nægi-
legt fjármagn til þess að hann
geti fjármagnað a.m.k. þriðjung
af ibúðarþörf landsmanna, láns-
timi og önnur lánskjör i heild
verði i samræmi við greiðslu-
getu láglaunafólks og Alþýðu-
sambandinu verði veitt aðild að
stjórn Byggingars jóðs verka-
manna, þannig að samtökunum
verði gert kleift að gæta hags-
muna umbjóðenda sinna.
18. Breytingar á lögum um
rétt verkafólks til upp-
sagnarfrests frá störfum
og til launa vegna
sjúkdóms-og slysatíIfella
1 komandi kjarasamningum
skuliteknar upp viðræður við at-
vinnurekendur og rikisvaldið um
breytingu á iögum um rétt
verkafólks til uppsagnarfrests
frá störfum og til launa vegna
sjúkdóms-og slysatilfella með
eftirfarandi i huga.
Ofangreindar tillögur miðast
við það að draga úr þeim launa-
mun sem er á milli félagsmanna
ASI og annarra launahópa og öll
kröfugerð og samningar hljóta
að vera til endurskoðunar miðað
við það sem gerist hjá launþega-
hópum utan ASl. SamaNgildir
verði samið við aðra launþega-
hópa um hagstæðara verðbóta-
kerfi.
Orfærsla á Iið2 i kröfugerð
Verðbæturnar reiknist af
óskertri framfærsluvisitölu og
komi á grunntaxta þannig að
áiög, reiknitöiur og kaupaukar
skerðist ekki. Viðmiðunarkrónu-
tölur visitöluútreiknings (300 og
400 þ. kr.) breytist i samræmi
við þær kauphækkanir sem
verða.
1. Breytingar á lögum um
atvinnuleysistryggingar
Brýnt er að nú þegar verði
gerðar verulegar breytingar á
lögum um atvinnuleysis-
tryggingar, sem m.a. feli i sér-
rýmkaðan bótarétt, hækkun
bóta, lengri bótatima og flutning
greiðslna i fæðingarorlofi frá
Atvinnuleysistryggingasjóði til
almannatrygginga.
Kjaramálaráðstefnan felur
samninganefnd og miðstjórn ASI
að fylgja þessu máli fast eftir við
stjórnvöld á grundvelli sam-
þykktar miðstjórnar frá 21. júni
1979.
2. Fæðingarorlof
1 komandi kjarasamningum
verði um það samið við rikis-
valdið og/eða atvinnurekendur
að foreldri skuli eiga rétt á
fæðingarorlofi á fullum launum i
þrjá mánuði. Laun á umræddu
timabili greiðist af almanna-
tryggingum.
3. Leyfi og launagreiðslur
til foreldra i veikindum
barna
1 komandi kjarasamningum
verði um það samið við atvinnu-
rekendur og rikisvaldið að for-
eldri barns sem yngra er en 10
ára geti i eftirtöldum tilvikum
fengiö leyfi frá vinnu til umönn-
unar á barni:
a) Þegar barnið er veikt.
b) Þegar sá sem venjulega
annast barnið er veikur, gild-
ir þá einu hvort það er heima-
vinnandi foreldri, sem er
veikt, dagmamma eða annar
aöili.
c) Þegar foreldri þarf að fylgja
barni í læknisskoðun.
d) Þegar foreldri þarf að hafa
samband við þá uppeldis-
stofnun sem barnið kann að
vera á,t.d. dagheimili.
e) Þegar faðirinn þarf að vera
heima til þess að annast barn
eða börn fjölskyldunnar undir
10 ára aldri vegna fæðingar
nýs fjölskyldumeðlims.
1 leyfi af þessum sökum skal
foreldri halda fullum launum i
allt aö 10 vinnudaga á hverju
almanaksári fyrir fjölskyldu
með eitt barn. Fjölskylda með
tvö börn skal eiga rétt á leyfi i 13
daga og fjölskylda með 3 börn
eða fleiri i 15 daga.reiknað á
sama hátt.
Útgjöld vegna launagreiðslna
af þessum sökum greiðast af
almannatryggingum.
4. Dagvistunarheimili
I komandi kjarasamningum
verði teknar upp viðræður við
rikisvaldið með það fyrir augum
að gerðar verði nauðsynlegar
ráðstafanir til að tryggja að dag-
vistunarþjónusta aukist i
áföngum þannig að fullnægt verði
eftirspurn eftir þessari
þjónustu. Skal þessu marki náð á
næstu 7 árum. I þessu sambandi
verði sérstaklega hugað að
byggingu og rekstri dagvistar-
heimila fyrir fjölfötluð börn.
Meðal þeirra ráðstafana sem
óhjákvæmilegt er að gripa til i
þessu sambandi er, að þegar á
næsta ári verði veittar 1.100
millj. kr. á fjárlögum rikisins til
byggingar dagvistarheimila og
gerðar ráðstafanir til þess að
auka möguleika. ófaglærðra
starfsmanna dagvistarheimila
til menntunar á þessu sviði m.a.
með 2-3 mánaða námskeiðum,
sem haldin verði fyrir starfsfólk
dagvistarheimila um allt land.
5. Orlof
I komandi Kiarasamningum
verði samið við atvinnurekendur
og r ikis valdið um lengingu oriofs
með eftirgreindum hætti:
1. Allir starfsmenn, sem orðnir
eru 35 ára eða náð hafa 10 ára
starfsaldri hjá sama atvinnu-
rekanda eða i sömu starfs-
grein eiga rétt til orlofs i 27
virka daga og 9,7% orlofsfé.
2. Starfsmaður sem náð hefur
50 ára aldri skal auk þess,
sem segir i lið l,eiga rétt á
orlofi án launa I 4 virka daga
tilviðbótar (laugardagur ekki
talinn meö). Starfsmaður sá,
sem hér um ræðir, skal eiga
rétt á orlofsgreiðslu frá
almannatryggingum, sem
svarar 4/21.67 af fullum
mánaðarlaunum hans i þeim
mánuði, sem hann tekur orlof.
3. Allir starfsmenn I fullu starfi
skulu fá greitt orlofsframlag
þegar þeir fara i orlof og skal
það nema kr. 60.000,- m.v.
kauplag i desember 1979 og
fylgi h1utfa11s1egum
breytingum næst lægsta taxta
Dagsbrúnar. Skipti starfs-
maður um launagreiðanda
skal greiða inn á orlofskerfið
fjárhæð sem svarar til þess
hluta orlofsársins sem
starfsmaður hefur verið i
starfi hjá viðkomandi launa-
greiðanda. Fjárhæðin skal
miðast við kauplag eins og að
framan segir, þegar starfs-
maður fer i fri og skiptir um
starf. Starfsmenn sem ekki
eru i fullu starfi njóti hlut-
fallsiegra réttinda.
4. Vextir af orlofsfé verði
hækkaðir til samræmis við
ársvexti af sparisjóðsreikn-
ingum.
6. Skattamál
I komandi kjarasamningum
skuli teknar upp viðræður við
rikisvaldið um skattamál, sem
miði að eftirtöldum atriðum.
1. Upp verði tekin samtima-
sköttun.
2. Hækkun barnabóta.
3. Hækkun persónuafsláttar.
4. Aukið skattaeftirlit.
5. Húsaleiga verði frádráttar-
bær til skatts.
Sérstök áhersla verði lögð á,
að skattleysismörk verði
hækkuð og skattkerfinu beitt til
þess að tryggja lágmarkstekjur
t.d. með útborganlegum
persónuafslætti og hækkun
barnabóta.
7. Bætur almannatrygg-
inga —
eftirlaunaaldur
1 komandi kjarasamningum
verði teknar upp viðræður við
ríkisvaldið um breytingar á lög-
um um almannatryggingar með
eftirfarandi i huga.
1. Þeir sem gert hafa
sjómennsku að ævistarfi sinu
og stundað s jómennsku i 25 ár
eða lengur öðlist fullan rétt til
ellilifeyris, er þeir hafa náð
sextugsaldri.
2. Lög um almannatryggingar
verði gerð sveigjanlegri þann-
ig, aö fólk eigi rétt til ellilif-
eyris frá 62 ára aldri, ef um
skerta starfsorku er að ræða.
3. Bætur almannatrygginga
verði hækkaöar frá þvi sem nú
er og reglum um tekjutrygg-
ingu breytt á þann veg, að
tekjuskipting verði ekki skert
vegna greiðslna úr lifeyrissjóð-
um til þeirra, sem greiðslur fá
11. Lögskráning sjómanna
Nú þegar verði teknar upp við-
ræður við rikisvaldið um breyt-
ingu á lögum um lögskráningu
sjómanna, sem feli i sér að með
stórhækkuðum sektarákvæðum
og missi veiði- og skipstjórnar-
réltinda verði tryggt að skip séu
ekki gerð út með óskráða áhöfn.
Jafr.'framt verði þær breyting-
ar gerðar á lögum að tryggt
verði að sjómaður haldi launum
sinum' ‘samkvæmt kjarasamningi
þótt hann hafi verið afskráður af
skipi.
12. Réttur sjómanna til
launa i veikinda- og slysa-
tilfellum
Nú þegar verði teknar upp við-
ræður við rikisvaldið um
breytingu á sjómannalögum,
semfeliisér aðréttur sjómanna
til launa i veikinda- og slysatil-
fellum verði aldrei minni en sá
réttur sem landverkafólki er
tryggður með lögum.
1. Hlutur þeirra sem eru i hluta-
starfi verði betur tryggður en
gert er i núverandi lögum og
réttur starfsfólks i störfum
þar sem ekki er um samfelld-
an rekstur að ræða allt árið
vegna verkefnaskorts verði
tryggður betur en nú er.
2. 3. gr. laganna veröi felld niður
eða þrengd verulega frá þvi
sem nú er.
3. Athugað verði hvort ekki sé
heppilegra að flytja allar
greiðslur eða hluta greiðslna i
veikinda- og slysatilfellum t.d.
eftir hálfan mánuð frá at-
vinnurekendum til almanna-
trygginga til þess að veikja
ekki stöðu eldra fólks á vinnu-
markaðnum og tryggja betur
en nú er að fólk njóti þess rétt-
ar, sem það á samkvæmt lög-
um.
19. Löggjöf um orlofsheim-
ili
I komandi kjarasamningum
Framhald á bls. 13