Þjóðviljinn - 19.01.1980, Page 13
Laugardagur 19. janúar 1980. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Kröfur
Framhald af bls. 12
verði teknar upp viðræður við
rikisvaldið um löggjöf um sam-
skipti orlofsheimila verkalýðs-
félaga annars vegar og rikis-
valdsins, sveitarfélaga og land-
eiganda hins vegar.
20. Dagvistun—húsnæðis-
mál aldraðra
I komandi kjarasamningum
verði teknar upp viðræður við
rikisvaldið um úrbætur i dag-
vistunar- og húsnæðismálum
aldraðra með það fyrir augum
að með breytingum á lögum um
Húsnæðismálastofnun rikisins
verði tryggt, að fullnægt verði
lánsfjárþörf fyrir dvalarheimili
aldraðra og dagvistunarstofnan-
ir aldraðra og stóraukin verði
framlög á fjárlögum til nýbygg-
inga umræddra stofnana. Einnig
að heimilaðar verði breytingar á
reglugerðum lifeyriss jóðanna
með það fyrir augum að þeim
verði heimilað að nota allt að 10%
af ráðstöfunarfé sinu til að
byggja ibúðarhúsnæði, sem
sjóðurinn leigi húsnæðislausum
elli- og örorkulifeyrisþegum,eða
til þess að lána til byggingar
dvalar- og dagvistunarstofnana
fyrir aldraða.
21. Tölvunotkun
Miðstjórn ASI verði falið að
gera drög að heildarstefnu ASÍ
um tölvunotkun þar sem haft
verði að leiðarljósi atvinnu-
öryggilaunþega.Tillögur þessar
verði lagðar fyrir næsta þing
ASl til umfjöllunar.
22. Trúnaðarmenn
I komandi kjarasamningum
verði um það samið við atvinnu-
rekendur, að trúnaðarmenn
skuli einskis i missa af launum
sinum þegar þeir sækja
trúnaðarmannanámskeið.
23. Farandverkafólk.
Með samningum við atvinnu-
rekendur og rikisvaldið verði
aðstaða og kjör farandverka-
fólks betur tryggð m.a. með
eftirfarandi:
1) Allt húsnæði, sem ætlað er
farandverkafólki til ibúðar,
verði með þeim hætti, að það
standist almennar kröfur,
sem gerðar eru til ibúðarhús-
næðis, Sett verði sérstök
reglugerð um ibúðarhúsnæði
farandverkafólks.
2. Samið verði um hámarksverð
á fæði til farandverkafólks eða
fæðispeninga og settar reglur
um greiðslur ferðakostnaðar.
3. Tryggt sé, að i hverri verstöð
sé trúnaðarmaður, sem sinni
réttmætum kröfum farand-
verkafólks og gæti hagsmuna
þess gagnvart atvinnurekend-
um.
Kammersveitin
Framhald af 2 siðu
Laxnes s. Zeit heyr is t nú i fyr s ta
sinn hér. Þá verður frumfluttur
Sembalókonsert eftir sænska
tónskáldiðMiklos Maros. Er það
pantað af NOMUS-nefndinni
fyrir Kammersveitina, tileinkað
Helgu Ingólfsdóttur sem fer með
einleikshlutverkið og Páli S.
Pálssyni, s t jór nandanum .
Maros er ungverskrar ættar en
lengi verið búsettur iSviþjóð, eitt
efnilegasta tónskáld Svia af
yngri kynslóöinni.
Frumflutt verður Lanpao eftir
PálP. Pálsson. Lampao er eyja i
nágrenni Hong Kong og hóf Páll
samningu verksins þar. Má i
verkinu kenna áhrif frá Kinaför
Páls með Karlakór Reykjavikur
fyrr i vetur. Pál þarf ekki að
kynna fyrir Islenskum tónlistar-
unnendum.
Loks er Concert o lirico eftir
Jón Nordal, nýlegt verk, samið
fyrir sænska flytjendur og frum-
flutt i Sviþjóð. Hefur einu sinni
heyrst hér áður.
Kammersveitin hefur starfað
um árabil og heldur árlega 4
tónleika. Hefur vakið athygli
fyrir vandaðan flutning og verk-
efnaval. Formaöur hennar er
Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari.
— mhg
Listaverkakaup
Framhald af bls. 16
falla en Albert kvað eðlilegt að
borgarráð tæki allar ákvarðanir
um kaup á listaverkum. Kristján
Benediktsson taldi að allt of flókið
væri að láta listamenn i stjórn
Kjarvalsstaða — „sem ekki væru
bara reykviskir listamenn, held-
ur jafnvel menn úr öðrum sveit-
arfélögum” gefa umsögn, ef
Reykjavikurborg vildi festa kaup
á málverki eða höggmynd. Með
þvi væri verið að færa þeim vald
sem væri utan eðlilegra marka.
Guðrún Helgadóttir og Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir lögðu til að
reglugerðin yrði samþykkt eins
og hún lá fyrir. Guðrún sagði, að
fulltrúar listamanna í stjórn
Kjarvalsstaða hefðu gert athuga-
semdir við að þeir hefðu ekki at-
kvæðisrétt i slikum málum. Þetta
hefði hins vegar verið niður-
staðan, enda væri umsögn lista-
mannanna engin skuldbinding
fyrir borgina.
Tillaga Kristjáns var siðan
samþykkt með atkvæðum allra
Sjálfstæðisflokksmannanna auk
Björgvins Guðmundssonar og
flutningsmanna.
Reglugerðin var siðan sam-
þykkt.
Jafnrétti
Framhald af bls. 6
koma aftur. Þessvegna bjóst
ég viö að mitt mál yrði leyst i
gegnum „Dagvistun barna”.
Framkvæmdastjóri Dagvist-
unar barna hafði siðan
samband við félagsmálastjóra,
sem er hans yfirmaður, en þá
var það sem ákveðið var að
gera ekkert i málinu.
Jrs : llver voru rökin fyrir
þvi?
Eva: Rökin voru þau, að
þetta væri regla, og að þeir
væru hræddir við að gefa
fordæmi. En min skoðun er sú
að fordæmi geti ekki orðið
fordæmi nema upp komi hlið-
stætt og mjög iikt tilfelli. Ég er
búin að vinna sem fóstra i fimm
ár samfellt, og nú ætla ég að
fara að eignast barn, og þá á ég
bara að fara i 3ja mánaða
ólaunað fri, og svo er ætlast til
að ég ko.mi aftur, þegjandi og
hljóðalaust.
Jrs : Hvað með
Fóstrufélagið?
Eva: Ég hef aðeins rætt
þetta við konu sem vinnur hjá
Fóstrufélaginu, en hún tjáði
mér að félagið gæti ekki tekið
neina afstöðu i þessu máli, af
þvi að það væri ekki stéttar-
félag. Fóstrufélagið er bara
áhugamannafélagr og það
finnst mér algjörlega rangt.
Mér finnst að fóstrur ættu að
gera félagið að stéttarfélagi,
þannig að það geti gert eitthvað
i svona málum. Þetta er mikið
hagsmunamál fyrir fóstrur,
ekki siður en fyrir aðrar
konur.
Jrs: Hvernig er staðan á
skóladagheimiiinu nú?
Eva: Þegar ég var búin að
ráða mig hingað, þá komst ég
fyrst að þvi að allt starfsfólkið
var að hætta, svo að ég þurfti
að byrja á þvi að ráða nýtt
starfsfólk i allar stöður. Nú
þegar hefur einn af starfs-
mönnunum sem byr juðu i haust
þurft að hætta, og annar hættir
i april n.k. Það segir sig þvi
sjálftað frekari breytingar eru
mjög óæskilegar fyrir börnin.
En það virðist ekki vera atriði i
þessu máli. Ég hef tekið það
skýrt fram, að ég mundi skuld-
binda mig til að koma aftur,
fengi ég friið borgað.
Jr s : II vað s egja
foreldrarnir?
Eva: Núna er i gangi undir-
skriftasöfnun, sem
foreldrarnir standa fyrir, og
verða listarnir siðan afhentir
félagsmálastjóra.
Jrs : Ertu staðráðin i að
hætta, fáir þú ekki greitt
fæðingarorlof?
Eva: Já, ég er alveg ákveðin
hvað það snertir. Þegar i ljós
kom að kröfum minum var
algjörlega hafnað þá tilkynnti
ég f r a m k v æ m da s t jó r a
Dagvistunar barna að ég
mundi hætta um áramót. En
ástæðan fyrir þvi að ég er enn
ekki hætt er sú, að sem fyrr
segir var einn starfsmaður
hér aö hætta og mér finnst ég
alls ekki geta farið fyrr en ég
hef fengið annan i hans stað.
Jrs : Hvað er s vo
framundan?
Eva: Dagvistun barna
virðist ekki ætla að taka á sig
ábyrgðina að ráða nýtt fólk, og
hef ég þvi auglýst stöðu mina
lausa. En hingað til hefur engin
umsókn borist, svo útlitið er
ekki bjart framundan.
-sh
Bridge
Framhald af bls. 10
Nýir menn á toppnum hjá
TBK:
Eftir 4 umferðir af 15 i
sveitakeppni TBK hefur sveit
Ragnars Óskarssonar tekið
forystuna. Allt útlit er fyrir
skemmtilega keppni, en athygli
vekur léleg frammistaða
meistaranna sem hafa tapað 3
leikjum.
Staða efstu sveita er þessi:
1. Sveit Ragnars Óskarssonar
66 stig
2. Sveit Steingrims Steingrims-
sonar 62 stig
3. Sveit Tryggva Gislasonar
57 stig
4. Sveit Ingvars Haukssonar
54 stig
5. Sveit Olafs Tryggvasonar
51 stig
6. Sveit Þorsteins Kristjáns-
sonar 49 stig
7. Sveit Jóns Amundasonar
47 stig
8. Sveit Þórhalls Þorsteins-
sonar 44 stig
A fimmtudaginn kemur leika
m.a. saman sveitir Ragnars og
Ingvars og Steingrims og Jóns
A.
Bridge á miðvikudaginn:
A miövikudaginn verður
greint frá úrslitum móta um
helgina. Framvegis verður
þátturinn einnig á miðvikudög-
um, svo framarlega að efni
berist fljótt og vel frá félögum,
sérstaklega utan af landi.
Benda má á, að sérstaklega
er áhugavekjandi fyrir félög að
senda reglulega fréttir af
starfsemi, þó ekki nema til
þess að minna á eigin tilvist.
Utanáskriftin er: Þjóðvilj-
inn — Bridge — Siöumúla 6.
AI
Alþýðubandalagið:
Alþýðubandalagið á Húsavik
Aðalfundurverður haldinn i Snælandi sunnudaginn 20. jan. kl. Í6.00.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga
2. Venjuleg aðalfundarstörf
3. Onnur mál.
Félagar fjölmennið. Nýir félagar velkomnir. Stjórnin.
Alþýðubandalagið á Akranesi og nágrenni
Bæjarmálafundur
Alþýðubandalag Akraness og nágrennis heldur almennan félagsfund
mánudaginn 21. janúar nk.
Dagskrá:
1. Bæjarmálin
2. Kosning i árshátiðarnefnd.
3. önnur mál. Stjórnin.
Alþýðubandalagið i Borgarnesi og nærsveitum
heldur almennan félagsfund sunnudaginn 20.
jan. 1980 kl. 14.00 i húsnæði félagsins.
Fundarefni:
Hreppsmál Borgarness
Fræðslustarf félagsins
Stjórnarmyndunarviðræður og
Viðhorfin framundan.
önnur mál.
Skúli Alexandersson kemur á fundinn. —
órnin.
Alþýðubandalagið í
Reykjavik.
heldur opinn umræðufund n.k. þriðju-
dagskvöld um KONUR OG STJÓRNMAL
i Sóknarsalnum, Freyjugötu 27. kl. 20.30.
Adda Bára Sigfúsdóttir verður
frummælandi á fundinum.
Þetta er fyrsti fundurinn af fimm um
sósialisma og kvenfrelsi.
KALLI KLUNNI
— Komið nær, ég hef einmitt þörf fyrir ykkur, þvi — Kalli — Kalli, flýttu þér, —(Jff, Yfirskeggur er loksins fundinn — húrra — nei,
ég hef nefnilega fengið eina af minum góðu hug- Maggi er búinn að finna dálitið! dragðu hann aftur inn, Maggi, það er synd að vekja
myndum! biessaðan drenginn!
FOLDA