Þjóðviljinn - 23.02.1980, Side 3

Þjóðviljinn - 23.02.1980, Side 3
Laugardagur 23. febrúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Guörún Helgadóttir, borgatfulltrúi: Þetta er okkur til vansa Félagsmálaráð fékk ekki vitneskju um kœrur vegna aðbúnaðarins ^Dagbl.könnumn* Óskabyr hjá stjórninni 1 skoðanakönnun þeirri sem Dagblaðið gekkst fyrir um siðustu helgi meðal 600 kvenna og karla á öllu land- inu kom i ljós að yfirgnæf- andi meirihluti aðspurðra var hlynntur rikisstjórninni. Jafnvel Geirsmenn og Alþýðuflokksmenn kváðust ekki vera reiðubúnir til and- stöðu við stjórnina og vildu að minnsta kosti gefa henni sjens, að þvl er Dagblaðs- menn segja 1 útskýringum sinum. Miðað viö þaö fylgi stjórn- arandstöðunnar, Alþýðu- flokksins og Geirs Hallgrimssonar, I fyrri hlut- um könnunar Dagblaðsins hefði mátt ætla, að andstæð- ingar rfkisstjórnarinnar reyndust vera um 20 af hundraði. Aðeins átta af hundraði reyndust henni andvigir i könnuninni. Stjórnin hefur þvi mikinn meöbyr, fylgi Sjálfstæöis- flokksins hefur að verulegu leyti færst yfir á Gunnar Thoroddsen og kjósendur Alþýðuflokksins sjálfsagt reiðubúnir til þess að gefa sinum mönnum fri I bili. Fylgi stjónrarinnar reyndist nokkuð jafnt meðal karla og kvenna og eftir landshlutum. Mest bar á andstöðu við stjórnina meðal karla á höfuöborgarsvæðinu. Niðurstöður skoðanakönnun- arinnar urðu þessar: Hlynntir stjórninni 425 eða 70 5/6% Andvigir stjórninni 48 eða 8% Óákveðnir 127 eða 211/6% Ef aðeins eru teknir þeir, sem tóku afstöðu verða niðurstööurnar þessar: Hlynntir st jórninni 89.9% Andvigir stjórninni 10.1% _ liiaiBiiaiiBiiBiiJ „Mér er óskiljanlegt hvernig þaö má gerast að skjólstæðingar Félags- málastofnunar eru Ijós- myndaðir í bak og fyrir á heimilum sínum í því ástandi að þeir geta sjálfir ekki komið neinum vörnum við. Þetta getur ekki skrifast á reikning blaðamannanna, þar sem starfsmaður Félagsmála- stofnunar var viðstaddur Ijósmyndunina. Þetta er nýlunda í vinnubrögðum og frá mínu sjónarmiði em- bættisafglöp sem ekki eiga sér hliðstæðu," sagði Guð- rún Helgadóttir, borgar- fulltrúi og fulltrúi í félags- málaráði borgarinnar í gær í tilef ni skrifa um hús- næði sem Félagsmála- stofnunin endurleigir í Borgartúni 27. „Við i félagsmálaráði munum að sjálfsögðu halda sérstakan fund um þetta mál strax eftir helgina þegar formaður okkar, Gerður Steinþórsdóttir er komin til landsins”, sagði Guðrún. „Það er alveg ljóst að þessum skjól- stæðingum Félagsmálastofn- unarinnar hefur ekki verið sinnt sem skyldi”, sagði hún enn- fremur. „Fjölskyldudeild stofnunarinnar hefur ekki annast málefni ibúa hússins og þetta húsnæði er einungis notað sem húsaskjól. Augljóst er, að ekki hefur verið sinnt um að hrein- lætisaðstaða þar væri boðleg, þar sem ekkert bað er á hæðinni og ekkert eftirlit með ibúunum af hálfu stofnunarinnar, hvorki varðandi heilsufar né umhirðu.” Félagsmálaráð hundsað „Það alvarlegasta i þessu máli er þó það, að algjör tilviljun réði þvi að það kom upp á yfirborðið. Upphaf þess er að 3 hjúkrunar- nemar sem voru að skrifa ritgerð um félagslega þjónustu I borginni komu i húsnæðið 31. janúar s.l. og sáu sig tilneydda til þess að kæra aðbúnaðinn til heilbrigðiseftir- litsins. Siðan eru liðnar 3 vikur en félagsmálaráð hefur ekkert um málið heyrt og heldur ráðið þó fundi einu sinni i viku hverri! Húsnæði og húsnæðisaðstaða á ekki að fara eftir þvi hversu erfið vandamál og aðstæður skjól- stæðinga Félagsmálastofn- unarinnar eru, — til þess er stofn- unin að leysa hin erfiðustu mál eftir bestu getu og ég tel að hér hafi það ekki verið gert. Það er auðvitað löngu ljóst að erfiðustu tilfellin af þessu tagi eru stundum nær óleysanleg, enda hefur stofn- unin takmarkaðan aðgang að sjúkrastofnunum. Okkur er lika ljóst að stundum er lögreglan eina skjólið, sem umkomulaust fólk i bænum á, þó það sé vissu- lega ekki hennar verkefni að leysa félagsleg vandamál þess.” Breytt verkefnaskipting — Hvað er þá til úrræða? „Við höfum unnið að þvi undan- farið að láta gera úttekt á starf- semi Félagsmálastofnunarinnar og þvi verki hefur miðað vel áfram,” sagði Guðrún. Þegar þvi lýkur sem ég vona að veröi innan skamms, má vænta breytinga á verkefnaskiptingu innan stofn- unarinnar. Að lokum vil ég þó segja þetta: Vel má vera að þetta mál séuppsláttarmál gegn hinum nýju ráðamönnum borgarinnar. Að minnsta kosti minnist ég þess ekki að hafa áður kynnst mynda- tökum og myndbirtingum af þessu tagi, — sist af öllu að viðstöddum starfsmönnum Félagsmálastofnunar. Það er hins vegar ekki hægt að lasta það að dagblaö upplýsi borgarana um kjör þeirra sem erfiðast eiga i samfélaginu og frétt af þesu tagi er okkur vissulega til vansa. Ég hirði hins vegar ekki um það hvort fréttaflutningur sem þessi er smekklegur gagnvart þeim sem ihlut eiga. Mér er meira mál sem ábyrgum fulltrúa i félags- málaráði að þurfa að horfast i augu við að einhverjir samborg- aranna búi við slik kjör. Það er ekki mitt hlutverk aö verja slikt, heldur horfast i augu við það og bæta úr þvi.” —ai Borgartún 27: Startismenn Félagsmála- stofnunarinnar voru við- staddir myndatökurnar Reyndu ad hindra þær að sögn húsnæðisfulltrúa 1 gær birtist enn i Visi ljósmynd af einum ibúa Borgartúns 27 og er m.a.s. tekið fram I myndatexta að hann sé þar ósjálfbjarga. Af myndinni er hins vegar ljóst að starfsmenn Félagsmálastofn- unarinnar voru viðstaddir myndatökurnar, þar sem einn þeirra sést þar og er tilgreindur. Hljóta myndatökur þessar þvi að skrifast á reikning stofnunar- innar þó birting myndanna sé að sjálfsögðu á ábyrgð ritstjóra VIsis og beri smekk hans vitni. Gunnar Þoriáksson húsnæðis- fulltrúi Félagsmálastofnunar- innar sagði I samtali við Þjóð- viljann af þessu tilefni i gær, aö um hádegisbil á þriðjudag hefði maður, sem vinnur við afleys- ingar hjá stofnuninni komið I Borgartúnið ásamt sendibilstjóra og hafi þeir ætlaö að hreinsa út úr húsnæðinu. Hefði hann siðan kallað á Ágúst Isfjörö, (sem er fulltrúi Gunnars), þegar honum varð ljóst ástandiö á ibúunum og Ágúst kallað á lögreglu og komið sjálfur á staðinn. Hefði blaöa- menn Visis borið að um leið og hefði Agúst ekki fyrr vitað en blossi frá ljósmyndaranum skall á honum. Gunnar sagði, að vakin hefði veriö athygli ljósmyndara og blaðamanns á þvi að myndatökur af fólkinu væru ónauðsynlegar og ennfremur sagöist Gunnar sjálfur hafa lagt á það áherslu i samtali við blaðamanninn dagin eftir að þeim einstaklingum, sem þarna áttu I hlut yrði haldiö utan við málið sem slikum, enda bæri sér að gæta réttar skjólstæðinga stofnunarinnar. Honum heföi virst blaöamaöurinn skilja það sjónarmið mætavel og þvl hefðu myndirnar komið sér mjög á óvart. Gunnar sagði að hann vissi reyndar ekki hvernig þvi væri Framhald á 13. siöu. BSRB: Samningafundir byrja á mánudag I gær ræddi 8 manna nefnd BSRB við Ragnar Arnalds fjár- málaráðherra og fleiri frá fjár- málaráðuneytinu. „Það var skipst á skoðunum á stöðunni I samningaviðræðunum og upplýs- ingum varðandi kröfúgerð okkar Fundaröð ABR um jafnréttis mál: Edda óskarsdóttir myndlistar- maður Guðrún Ásmundsdóttir leikari Helga Kress bókmenntafræð- ingur KONUR OG LISTIR Þriöji f undurinn í f undaröð Alþýðubandalagsins um konur og sósíalisma verður haldinn nk. þriðjudags- kvöld í fundarsal Sóknar á Freyjugötu 27 og er fund- arefnið að þessu sinni Konur og listir. Þrír ræðumenn hafa skipt með sér framsögu, þær Helga Kress, sem f jallar um Konur og bókmenntir, Edda óskarsdóttir talar um Konur og myndlist og Guðrún Ásmundsdóttir um Konur og leiklist. Fulltrú- ar annarra listgreina munu og mæta á fundinn og ræða sín viðhorf. Góð aðsókn og líflegar umræður hafa verið á fyrri fundunum um þetta efni, en alls er ráðgert að þeir verði fimm. -vh og fleira”, sagði Haraldur Stein- þórsson f ra mk v æm das t jóri BSRB i samtali við blaðið I gær. Fyrsti sáttafundur opinberra starfsmanna og rikisvaldsins hefst kl. 10 á mánudagsmorgun i húsi BSRB aö Grettisgötu 89. Samningafundimir verða haldnir þar, vegna þess að húsnæöi þaö sem sáttasemjari rikisins á aö fá undir sáttafundi er ekki tilbúiö. Frumvarp um að þrengja heimild til fóstureyðingar Félags- legar ástœöur dugi ekki Þorvaldur Garðar Kristjánsson hefur iagt fram frumvarp á Alþingi sem felur i sér að þrengd verði heimild til fóstureyðinga. Samkvæmt frumvarpi Þorválds er lagt til að fella niður að félágs- legar ástæður geti heimilað fóst- ureyðingu. Samkvæmt gildandi lögum er fóstureyðing heimiluð af þrenns konar ástæðum, þ.e. i fyrsta lagi af félagslegum ástæöum, i öðru lagi af læknisfræðilegum ástæð um og I þriðja lagi ef konu hefur verið nauögað eða hún oröið þunguð sem afleiðing af öðru refsiverðu atferli. þ.m.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.