Þjóðviljinn - 27.02.1980, Page 5

Þjóðviljinn - 27.02.1980, Page 5
Miðvikudagur 27. febrúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Senn dregur til úrslita í E1 Salvador Alda pólitískra morða - Vinstri öflin eru sameinuð - Stjórnin máttvana Nýlegar fréttir frá El Salvador: ríkissaksókn- arinn myrtur, svonefnd- um hægri öfgasinnurrt kennf um. Ramero erki-' biskup fordæmir ofbeld- isverk til hægri og vinstri — þunginn í ádeilu hans iBfi.HONDOHAS 1 HOWÐUflAS GOATCMALft SAIVADORX NKARAGUA V- COSTARICA" Salvador er minnst rfkja Mið- Ameriku og þeirra þéttbýlast er þó á mannránum og pólitískum morðum vopnaðra sveita hægri- manna. Bandarískir ráðamenn lýsa miklum áhyggjum yfir afdrifum stjórnar, sem er að kremjast á milli tveggja andstæðra fylkinga og reyna að gefa henni líf með innspýtingu fjár- magns. Sú fégjöf gerír illt verra og eykur kúgun i landinu, segir erkibiskup. Hvað er á seyði? E1 Salvador er minnsta og þéttbýlasta riki Mið-Ameriku. Það er aðeins 21.5 þús. ferkm. og ibúarnir um fimm miljónir. Þjóðfélagshættir hafa allir borið svip af gifurlegu djúpi sem staöfest er milli rikra og fátækra: innan viö tvö prósent ibúanna eiga 60% alls ræktan- legs lands, þar sem auöur landsins verður til: kaffi, baðm- ull, sykur. En helmingur allra býla landsins hefur aöeins 5% jarðnæöis til ræktunar. Slik samþjöppun auös einkennir og önnur svið efnahagslifsins. Og hin fámenna yfirstétt (svo- nefndar fjórtán fjölskyldur) hafa stuðst viö litt dulbúið ein- ræði hersins i nær fimmtiu ár. Aðdragandi Arið 1977 var ef nt til kosninga. Carlos Romero hershöfðingi „vann” þær — en mjög þótti sá sigur kosnigasvikum mengað- ur. Hófst nú meira og öflugra andóf gegn valdhöfum en dæmi eru til áður. Innan tiðar höfðu um 100 þúsúndir manna skipað Hermenn bera á brott lfk vinstrisinna: Bandarfkjamenn eru farnir að spyrja hvort þeir eigi að senda „ráðgjafa” á vettvang. sér I fern byltingarsinnuð fjöldasamtök. Eins og búast mátti við svöruðu hægriöflin með þvi að efla morðsveitir gegn vinstrihreyfingum, stund- uöu sveitir þessar mannrán og morð i stórum stil og nutu þegj- andi samþykkis hersins og há- stéttanna til þeirra verka. Hin pólitiska barátta fór si- harðnandi og valdhafarnir ótt- uöust æ meira, að til yrði mjög breið vinstrifylking sem bæri fram til sigurs þjóðfrelsis- baráttu á borð við þá sem þegar hafði rekið Somoza, einvald Nicaragua, frá völdum. í októ- ber i fyrra tóku svonefnd hóf- semdaröfl i hernum völdin I sin- ar hendur með valdaráni án blóðsúthellinga. Sú stjórn her- foringja og miðjumanna úr stjórnmálum, sem þá tók viö, hefur slöan reynt að friða al- menning með fyrirheitum um uppskiptingu jarðnæðis, þjóö- nýtingu banka og öðru þesshátt- ar. En það hefur orðið minna um efndir og þvi hefur valdagrundvöllur stjórnarinnar rýrnaö smám saman, vinstri- hreyfingum hefur vaxið fiskur um hrygg og þær náð að taka upp náið samstarf sin á milli. Ognarsveitir hægrimanna hafa og hert á sinni starfsemi. Gangan mikla Kommúnistar og sósialdemó- kratar höföu veitt hinni blönd- uðu stjórn herforingja og miöju- manna stuðning, en sögðu skiliö við hana upp úr áramótum. I janúar tókst að koma á sam- starfsnefnd róttækra afla, CNR, sem efndi þann 22. janúar til mikillar kröfugöngu i höfuö- borginni sem um 200 þúsundir manna tóku þátt I — og var þó mörgum úr nærliggjandi sveit- um meinað að komast inn I borgina til aö ganga með. Vinstrimenn sýndu að sögn sjónarvotta mikinn sjálfsaga við skipulagningu göngunnar og framkvæmd — en þeim var svaraö með byssukúlum: þjóð- varðlið skaut á göngumenn og drap a.m.k. um 40 manns og særði 200. Siðan þá hafa átökin stigmagnast og kostaö a.m.k. um 50 vinstrisinna lifiö. Meðan Bandarikin reyna að hressa við hina máttvana stjórn, sem ger- ist i reynd æ hlýðnari hægriöfl- | unum, með 50 miljón dollara skyndiaðstoð, brýna fylkingarn- ar vopn sin til úrslitaátaka I stéttastriði. ■ Kröfur vinstrisinna ■ Sem fyrr segir hefur neyöin ■ kennt vinstrisinnum að starfa saman. Þeir hafa og komiö sér á saman um þær kröfur sem þeir I telja forsendu fyrir friösamlegri ■ lausn á þeirri kreppu sem landið | er I. Þeir vilja að stjórnin, sem ■ nú nýtur aðeins stuönings kristi- legra demókrata, fari frá, og I ■ staðinn komi byltingarstjórn margra flokka. Sú stjórn leysi jpp öryggissveitir landsins og pólitisku lögregluna og skipu- leggi i staðinn vopnaöar sveitir ■ alþýðu. Auk þess vilja þeir að jarðnæði sé skipt, utanríkis- m verslun og nokkrar lykilgreinar ■ iðnaðar verði þjóðnýttar, stutt ' viö bakið á smærri iðnfyrirtækj- um og gert stórátak i húsnæöis- málum og heilsugæslumálum. ■ En það eru engar llkur til að hægriöflin fallist á kröfur af ■ þessu tagi. Ekkert sýnist llk- legra en uppreisn alþýðu. AB ] Vikingasýningin í London: hún hugmyndir um þá bófa? Þessi nákvæma eftirllking af Gaukstaöarskipinu norska stendur fvrir utan British Museummeðan á sýningu stendur. Skipi þessu vari Ifyrra siglt frá Noregi til eyjarinnar Manar I tilefni þinghátfðar þar. Námsmenn í Frakklandi: Kjaraskerð- ing verði bætt í vorláni Fundur Parísardeildar Sambands íslenskra náms- manna erlendis hefur sent frá sér eftirfarandi álykt- un á fundi fyrr i mánuðin- um: „I vetur hefur veröbólgan hér I Frakklandi veriö mun hærrien al- menn prósentutala gefur til kynna. Nægir I þvi sambandi aö benda á húsaleigukostnaðinn sem rokiö hefur upp úr öllu valdi hér ) Paris. Vill fundurinn minna á að 85% brúun framfærslukostnaðar eins og hann er reiknaður, nægir ekki til framfærslu. Mótmælir fundurinn þvi harölega þeirri stefnu aö draga allar tekjur námsmanna beint frá námsláni og er það krafa fundarmanna að þessi kjaraskerðing verði bætt i vorláni. Eins og málum er nú háttað er ekki gerlegt aö framfleyta sér á námslánum einum og ætti þaö aö vera öllum ljóst aö sú stefna bitn- 'ar fyrst og fremst á þeim sem hafa ekki annan stuðnings til náms en L.l.N þvi vill fundurinn minna á þá eölilegu jafnréttis- kröfu að lánið brúi 100% fjárþörf, að lániö sé reiknað i gjaldmiðli þess lands sem nám er stundaö og aö endurgreiðslur fari eftir tekjum að námi loknu.” Vilhemina Hansson með nokkra sýningargripi. íslendingar sýna í Malmö Menningarmiöstöð innflytjenda i Malmö I Sviþjóð efnir nú til Islandsmánaðar sem stendur fram i miöjan mars. Islendingafélagiö I Malmö, sem telur um 300 manns, hefur m.a. skipulagt sýningu I Menningar- miðstöðinni. Þar eru ýmsir munir sem fengnir eru til láns af söfnum i Reykjavlk, einnig listmunir (silfurmunir, munir úr skinni, prjónles, keramik, tréskurður og fleira). Fleiri sýningar um Is- lensk efni veröa haldin I Malmö með vorinu. Formaöur Islendingafélagsins I Malmö er Vilhelmina Hansson. Tilgangurian meö sýningar- starfi I Menningarmiðstööinni er sá, að „reyna að færa Svia og innflytjendur nær hver öörum”, segir Irma Karlsen, ein þeirra sem veitir miðstöðinni forstööu. Fegrar manna Um þessar mundir er haldin I British Museum mikil sýning um menningu Vlkinga. Þetta er stærsta sýning um þetta efni sem hingað tií hefur verið sett saman og mun hún, þegar komið er fram á sumar, verða tekin upp og flutt til Metropolitan safnsins I New York. Ýmsir þættir hafa komið sam- an til að gera þessa sýningu sem stærsta og glæsilegasta. Fjár- munir frá breskum stórblöðum, SAS og Norræna menningar- sjóðnum. Og mikill áhugi á vik- ingatimunum, sem hefur gripið um sig siðan bústaðir vikinga voru grafnir upp I Dyflini og Jór- vlk og þótti þá fleira koma fram um hversdagslegt lif hinna her- skáu forfeöra Norðurlandabúa en menn höföu áður gert sér almennt grein fyrir. Mikið hefur verið um sýning- una skrifað i breskum blöðum og eru þau skrif einatt á þá leið, að hún breyti verulega þeirri mynd sem einmitt Ibúar Bretlandseyja hafa gert sér af þeim blóöþyrstu ræningjum og siölausu brenni- vörgum, sem lögðu I rúst klaust- ur, brenndu bækur og bilæti og nauöguöu konum. Finnst mönn- um sýningin bera þvi vitni að þeir hafi kunnað meira fyrir sér I list- um ýmislegum og handverki en áöur var taliö. Ekki eru þó allir á sama máli. Til dæmis skrifar W. Janusczak grein um sýninguna i Guardian og lætur sér fátt um finnast. Hann segir sem svo: „Viö þekkjum hér aftur þá vikinga sem irskar forn- sögur hafa gert ódauölega sem „miskunnarlaust, ofsafengiö, framandi og hundheiðiö fólk”. Einhvernveginn er það svo, aö sýningunni i British Museum mistekst aö opinbera okkur eitt- hvað þaö sem kæmi okkur veru- lega á óvart um þessa menn. Þeg- ar gerðar eru eftirlikingar af hi- býlum Norðurlandabúa til forna gerist ekkert annað en það, aö lögð er áhersla á það sem okkur grunaöi hvort sem var: að hinir grimmu og heiftúðugu heiðingjar áttu sér ofur venjulegt heimili sem þeir gátu snúið aftur til”.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.