Þjóðviljinn - 25.03.1980, Page 6

Þjóðviljinn - 25.03.1980, Page 6
6 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 25. mars 1980 Hjón meö tvö börn og annað hjóna aflar tekna: Skattlaus miðað við 5,7 miljónir í tekjur Eins og skýrt hef ur verið frá áður hefur ríkisstjórn- in gert tillögur um eftirfarandi skattstiga við útreikning á tekjuskatti: Af fyrstu 3 miljónun króna af tekjuskattsstofni reikn- ast 20%/ af næstu 3 miljón- um reiknast 35%, en af tekjuskattsstofni yfir 6 miljónir reiknast 50%. Frá þeirri fjárhæð skal síðan dregin persónuafsláttur sem er 440 þúsund á einstakling. Sú fjárhæð er Þíngsjá þannig fæst tekjuskattut ársins. Sé miðað viö að almennur frádráttur sé 10% (sem er lág marksfrádráttur) verða skatt- frelsismörk einhleypings í tekju- skatti (þ.e.a.s. hámark tekna sem ekki þarf að greiða af tekjuskatt til rikissjóðs) 2 miljónir og 444 þúsund, en sé miðað við að frádráttur sé 15% af tekjum verða mörkin 2 miljónir 588 þúsund. Vegna sérsköttunar hjóna er ekki auðvelt að tala um skattfrelsismörk þeirra sam- eiginlega, en hafi t.d. annað hjóna aflað allra teknanna verða barn- laus hjón skattlaus séu tekjur þeirra undir 4 miljónum og 470 þúsundum (og er þá miðað við 15% frádrátt frá tekjum). Skattfrelsismörk hjóna með 2 börn (annað yngra en 7 ára), þar sem annað hjóna aflar allra teknanna og frádráttur er 15% af tekjum, verða 5 miljónir 735 þúsund krónur og og skattfrelsis- mörk sömu hjóna verða 7 miljónir 248 þúsund krónur ef þau skipta tekjuöfluninn jafnt á milli sin. — þm Eignaskattur hjóna: Skattfrjáls eign 30 miljónir Skattfrjáls eign hvers einstak- lings verður 15 miljónir króna, en af þeim hluta eignarskattsstofns sem umfram er greiðist 1,2%. Samkvæmt þessu nemur skatt- frjáis eign hjóna í sameiningu 30 ntiljónir króna. Þessar upplýsingar koma fram i frumvarpi til breytinga á tekju- og eignarskattslögunum sem Ragnar Arnalds fjármálaráð- herra mælti fyrir i gær. Sam- kvæmt gildandi skattalögum skal eignarskattsstofni hjóna skipt til helminga milli þeirra og skal hvort um sig skattlagt af sinum hluta sem einhleypingur væri, en samkvæmt eldri skattalögum var eignarskattur lagður sameigin- lega á hjón og var skattfrjáls eign þeirra þá einungis 50% hærri en skattfrjáls eign einhleypings. Af þessari breytingu leiðir að hjón hljóta að bera minni hluta af heildarskatti, sem álagður veröur, en hlutur einhleypinga vex að sama skapi. —þm Keflavíkurbær óskar að ráða starfskraft til aðstoðar félagsmálafulltrúa. Laun skv. kjara- samningi STBK. Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 15. april n.k. Bæjarstjórinn i Keflavik. ! ísfirðingar — j j Vestflrðingar j í tilefni af 30. mars halda herstöðvaand- j stæðingar kvöldvöku i Gúttó fimmtudag- j inn 27. mars kl. 20.30. Fjölbreytt dagskrá. Mætið öll Herstöðvaandstæðingar ísafirði. til greiðenda fasteignagjalda i Kópavogi. Hér meðerskoraðá alla þá, sem eigi hafa lok- ið greiðslu fyrri hluta fasteignagjalda fyrir árið 1980 að gera skil innan 30 daga frá birtingu áskorunar þessarar. Hinn 25. apríl n.k. verður krafist nauðungar- uppboðs skv. lögum nr. 49 1951 á fasteignum þeirra er þá hafa eigi gert f ull skil. Kópavogskaupstaður. - J Einstæö foreldri: Njóta hæstu barnabótanna Barnabætur veröa 130 þúsund krónur meö fyrsta barni en 200 þúsund krónur með hverju barni umfram eitt, samkvæmt frum- varpi þvi til breytinga á tekju- og eignarskattslögum sem Ragnar Arnalds fjármálaráðherra mælti fyrir i gær. Þá er gert ráð fyrir að barna- bætur með börnum yngri en 7 ára verði 50 þúsund krónum hærri. Einstæð foreldri skulu ætið njóta hæstu barnabóta eða 250 þúsund króna með hverju barni. Barna- bætur þessar eru nokkuð hærri en gert var ráð fyrir i gildandi skattalögum, en þó kemur brevt- ingin einkum einstæðum foreldr- um til góða, en i gildandi lögum er gert ráð fyrir að barnabætur til einstæðra foreldra séu 40% hærri en barnabætur með öðrum börn- um. — þm Hærri frádráttur hjá námsmönnum Námsmannafrádráttur verður á þessu ári 500.000 hjá mönnum 16 ára og eldri.enda sé nám stundað i a.m.k. sex mánuði á tekjuárinu. Sé nám stundað skemur en I sex mánuði lækkar frádrátturinn hlutfallslega. Sé nám stundað erlendis skal framangreindur frádráttur verða tvöfalt hærri. Þessar upplýsingar koma fram i frumvarpi um breytingu á tekju- og eignarskattslögum sem Ragnar Arnalds fjármálaráð- herra mælti fyrir i gær. Hér er um að ræða hækkun á náms- mannafrádrætti, þvi eins og kunnugter þá haföi verið gert ráð fyrir að námsmannafrádráttur- inn yrði 430 á þessu ári. Þá er i frumvarpinu gerl ráð fyrir að frádrátturinn sé ekki lengur tengdur launatekjum þess er námið stundar. Af þessari breyt- ingu leiðir að frádrátturinn nýtist maka tekjulauss námsmanns. — þm Bændur fá þriggja miljarða króna lán I gær var samþykkt sem lög frá alþingi heimild til að veita bændum 3ja miljarða króna lán vegna tekjutaps sem þeir urðu fyrir á siðasta ári af völdum óverðtryggðs útflutnings búvara. Four Marality Plays Edited with an introduction and notes by Peter Happé. Penguin English Library. Penguin Books 1979. Exempla eða dæmisögur voru mjög vinsælar á miðöldum, þær voru ætlaðar mönnum til and- legrar uppbyggingar og umþenk- inga. Sjónleikir taka siðan smátt og smátt við hlutverki dæmisög- unnar og hér eru prentaðir fjórir slikir leikir þar sem höfundarnir stefna að andlegri uppbyggingu sýningargesta. The Castle of Perseverance lýsir vegum sálu- hjálparinnar, Magnyfycence Skeltons og King Johan kenndur við Bale eru ma. áróðurskenndir og sömuleiöis Ane Satire of the Thrie Estaitis. Ágætur inngangur skýrir efni og tilgang höfundanna með verkunum. Leikritin eru skrifuð milli 1400 og 1562. The Mill on the Floss George Eliot. Edited with an introduction and notes by A.S. Byatt. Penguin English Library. Penguin Books 1979. Bók þessi kom út i fyrstu 1860 og er nokkurs konar lokabindi fyrsta áfanga skáldsagnagerðar Georges Eliots. Sagan er tilraun til raunsærrar lýsingar á venju- legum fjölskyldum, eins og Scenes of Clerical Life og Adam Bede. Allar þessar þrjár skáld- sögur gerast á fyrri hluta og um miðbik aldarinnar og mjög tengd- ar lifshlaupi skáldkonunnar sjálfrar. Sögusviðið í Mill on the Floss er Lincolnshire og aðalper- sónan er Maggie Tulliver, sem rýfur hefðbundin. hegöunarmáta og kemst i andstöðu við umhverf- ið og einnig við bróður sinn. Hér er dregin upp nærfær mynd af mannlifi próvinsunnar, baráttu þess, sem neitar að hlýta almenn- ingsáliti um hegðun og tilfinn- ingar, þ.e. mynd skáldkonunnar sjálfrar. IHeaven's Command — Pax Britannica — Farwell the Trumpets. James Morris. Penguin Books 1979. Bækurnar komu út i fyrstu út- gáfu á árunum 1968-1978 hjá Faber & Faber og eru nú endurút- gefnar hjá Penguin. Sagan spannar timabilið frá valdatöku Viktoriu drottningar 1837 og allt til jarðarfarar Sir Winstons Churchills 1963. Þetta er saga breska heimsveldisins saga Viktoriutimabilsins og eftir- hreyta þess. Það má segja að breska heimsveldið væri jarðað meö Churchill, þótt jarðarför þess hafi lfklega dregist nokkuð lengi. Morris segir þessa sögu i þessum mjög svo læsilegu þremur bindum. Frásögnin er lifleg og skemmtileg aflestrar en efniö er vitaskuld viðameira en svo að það veröi afgreitt með 1500 blaðsið- um. Höfundurinn fjallar eðlilega um geðslegri og dramatiskari hliðar þessa heimsveldis, þvi varð bókin vinsæl og hún er einnig ætluö þeim sem syrgja með við- hlitandi kurteisi það sem hefur lifað sjálft sig. Að lokum má geta þess, aö höfundurinn skipti um kynferði á meðan hann vann að þessari samantekt, og skrifar nú undir heitinu Jane Morris. Selected Essays and Note- books. Albert Camus. Edited and trans- lated by Philip Thody. Penguin Books 1979. Þetta er endurútgáfa útgáf- unnar frá 1970. Camus er kunnur hér á landi m.a. af þýðingu Jóns Óskars á La Peste. 1 þessu úrvali er leitast við að fram komi hinar ýmsu hliöar þessa ágæta höfund- ar, sem féll alltof ungur. Hér eru birtar úrvalsritgerðir höf. skrif hans varðandi L’Etranger ogLa Peste og kaflar úr minnis- bókunum. Úrvalið er hentugt sem inngangur að frekari lestri verka _ Camus.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.