Þjóðviljinn - 25.03.1980, Page 12

Þjóðviljinn - 25.03.1980, Page 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 25. mars 1980 4skak Umsjón: Helgi ólafsson Áskorendaein vigin: Hiibner með vinnings forskot Vestur-Þýski stórmeistarinn, Robert Hilbner, nóöi forystunni i einvfgi þeirra Anders Adorjan, Ungverjalandi, með sigri í þriðju skákinni, sem tefld var um helgina. Htibner hafði hvitt og upp kom Lasker afbrigöið i Sikleyjarvörn og mátti Adorjan gefast upp eftir 35 leiki. Skákin mun birtast i Þjóðviljanum á morgun. Fjórða skákin var siðan tefld á sunnudag, og eftir aðeins 13 leiki bauð Adorjan jafntefli, sem var þegið. Staðan i einviginu eftir fjórar umferðir er þvi 2.5—1.5 Htibner i vil. — O — Hún var ekki rismikil baráttan i 1. einvigisskák þeirra Htibners og Adorjan i Bad Lauterberg. Frá fræðilegu sjónarmiði þ.e. fyr- ir þá sem gaman hafa að glugga i skræöurnar var þó skákin býsna athyglisverð. Fyrir þaö fyrsta þá beitir Adorjan einu uppáhalds- vopni andstæðingsins þ.e. Grunfeldsvörninni. Hubner fetar i fótspor Kortsnojs, Miles og fleiri góðra manna og viðhefur leikaðferð sem valdið hefur unn- endur Grunfeeldsvarnarinnar talsverðum höfuðverk upp á sið- kastiö. Adorjan hefur greinilega tekið afbrigðið tii gagngerrar at- hugunar og hann á ekki i miklum erfiöleikum með að jafna taflið: Robert Hubner — og Hiibner bauð jafntefli eftir að hafa leikið þessum leik sem Adorjan vitaskuld þáði. Sannköll- uð drepskák. Lokastaðan. Kortsnoj heldur forustunni Þeir Kortsnoj og Petrosjan tefldu sjöundu og áttundu skák- irnar i einvigi sinu á laugardag og sunnudag. Báðar skákirnar end- uðu með jafntefli. í sjöundu skák- inni hafði Kortsnoj hvitt og stóð baráttan i 38 leiki. Eftir aðeins 20 leiki bauð Petrosjan, sem hafði hvitt i 8. skákinni, jafntefli. Hann verður nú heldur betur að hysja upp um sig buxurnar og tefla grimmar til vinnings ef hann ætlar sér ekki að missa af lestinni. Hvitt: Robert Hubner Svart: Andras Adorjan Grtinfeldsvörn 1. d4-Rf6 2. c4-g6 3. Rc3-d5 4. Rf3-Bg7 5. cxd5-Rxd5 6. e4-Rxc3 7. bxc3-c5 8. Be3-Da5 9. Dd2-o—o 10. Hcl-cxd4 11. cxd4-Dxd2+ 12. Rxd2 (Hér hefur einnig verið reynt 12. Kxd2.) 12. ,..-e6 13. Bb5-Bd7 14. Bxd7-Rxd7 15. Ke2-Hfc8 16. Rc4-Bf8 17. Bf4-Hc6 18. Ra5-Ha6 19. Rxb7-Hxa2 20. Kf3-e5 21. dxe5-He8 22. Ha 1-Hb2 23. Hhbl-Hxbl 24. Hxbl-Rxe5 + 25. Kg3-Rd3 26. Be3-Hxe4 27. Bxa7-h5 28. h3 Lokastaöan i 8. skákinni, eftir 20. leik Petrosjans, Dd2. Staðan i einviginu er nú 4.5/3.5 fyrir Kortsnoj. ÚTBOÐ Fjarhitun Vestmannaeyja óskar eftir til- , boðum i lagningu 10. áfanga hitaveitu- | dreifikerfis. útboðsgögn eru afhent á bæjarskrif- stofunum Vestmannaeyjum og verk- fræðistofunni Fjarhitun hf. Álftamýri 9 Reykjavik gegn 50 þús. kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð i Ráðhúsinu Vest- mannaeyjum þriðjudaginn 8. april kl. 16.00. | Stjórn Veitustofnana Vestmannaeyjabæjar Betri horfur meö hrossaútflutning 1 tsienskir hestar i Austurriki &2H Söluhorfur á hrossum úr landi erunúheldur betri en i fyrra.að þvi er Sambandsfréttir upplýsa. Útflutningur á hrossum i ár er nú að hefjast. Nú á næstunni munu 100 hestar fara til ýmissa staða i Evrópu.Verða þeir flutt ir flugleiðis og mun flugfélagið Iscargo annast flutningana. Gerter ráð fyrir þvi að Búvöru- deildin sjái um sölu á 5—600 hestum úr landi á þessu ári. 1 fyrra voru talsverðir erfiðleikar á þessum viðskipt- um, m.a. vegna vorkulda og vandkvæða á að fá hey handa hestunum. Atti þetta m.a. við um eitt helsta viðskiptaland okkar á þessu sviði, Vestur- Þýskaland, en I ár er útlitið þar mun betra en á sl. ári. _ mhg Frá Styrktarfélagi van- gefinna á Vestfjörðum Bæjarstjórn Isafjarðar úthlutaði nýlega Styrktarfélagi vangefinna á Vestfjörðum byggingarlóð innan við Selja- landshverfi á Isafirði. Jafn- framt var fallið frá úthlutun lóðar, sem áður hafði verið ætl- uð félaginu austan Olfarsár á Isafirði. Byrjað er að teikna mannvirki á lóðina og eru arki- tektar Vilhjálmur og Helgi Hjálmarssynir, Reykjavik. Þaö er ætlun stjórnar, að fram- kvæmdir á lóðinni verði hafnar á þessu ári og skakkar þá einu ári frá þvi, sem upphaflega var fyrirhugað að hefja fram- kvæmdir 1979. Hinn 1. jan. sl. tóku gildi ný lög um aðstoð viö þroskahefta. Eru Vestfirðingar eitt 8 starfs- svæða á íslandi með tilliti til aöstoðar við vangefna. Skal starfa hér 5 manna svæðisstjórn og er hún þannig skipuð: Magnús Reynir Guðmundsson, bæjarritari á Isafirði og Guðmundur Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolungarvik, tilnefndir af Fjórðungs- sambandi Vestfirðinga og skip- aðiraf ráðherra félagsmála, frú Evlalia Sigurgeirsdóttir húsfrú i Bolungarvik, tilnefnd af Styrktarfélagi vangefinna á Vestfjörðum, skipuð af ráö- herra, auk fræðslustjóra, séra Sigurðar K.G. Sigurðssonar og héraðslæknis. Þar með er það komið I hendur rikisins að koma á fót þeim stofnunum, sem þroskaheftir þurfa á aö halda. Af kostnaði vegna reksturs þeirra greiðir rikissjóður 85% en sveitarsjóðir 15%. Fram- kvæmdir eru fjármagnaðar af sjóöi, er nefnist Framkvæmda- sjóður. Tekjur hans eru fyrst og fremst tillag rikissjóðs, a.m.k. 1000 milj. árlega, og hækkar i hlutfalli viö verölagsvisitölu. Félaginu hafa borist margar rausnarlegar gjafir að undan- förnu. A árinu 1979 bárust þess- ar gjafir; Lionshreyfingin á Vestfjörðum kr. 3.659.721, Kvennadeild slysavarnafélags- ins Snæljóss á Flateyri kr. 100 þús^Kvenfélag Mosvallahrepps kr. 10 þús., Kvenfélagið Vonin á Þingeyri kr. 103 þús, Ogurhreppur 20 þús.; Onefndur 100 þús., Aheit 15 þús., Lions- klúbbur Isafjaröar kr. 500 þús. og frá Vigursystkinum til minn- ingar um foreldra þeirra, Björgu Björnsdóttur og Bjarna Sigurösson skuldabréf að innlausnarverði 1. jan. 1979 kr 1.020.217. Það sem af er þessu ári hafa Umsjón: Magnús H. Gísiason eftirtaldar gjafir bonst téiag- inu: Kvenfélag Isafjarðarkirkju kr. 100 þús., Kvenfélagið Hlif á ísafirði kr. 500 þús., frá þremur ungum piltum: Arna Marias- syni, Birki Helgasyni og Rúnari Karlssyni ágóði af hlutaveltu kr. 7.120 og frá þremur öðrum piltum, þeim Þóri, Óskari og Daniel Jakobssonum, ágóði af hlutaveltu kr. 1.610. Samtals nema ofantaldar gjafir kr. 6.136.668. Aðalfundur félagsins verður haldinn að Hótel Flókalundi i Vatnsfirði,laugardaginn 14. júni 1980, og eru áhugamenn um málefni félagsins hvattir til þess að sækja hann. I stjórn félagsins eru: Séra Gunnar Björnsson i Bolungar- vik,formaður, Ragnheiöur Þóra Grimsdóttir, tsafirði, ritari, Ólafia Aradóttir Isafirði, gjald- keri, Kristjana M. Olafsdóttir Isafirði og Páll Jóhannesson, Bæjum. 1 varastjórn eiga sæti: Kristján J. Jónsson, hafnsögu- maður á Isafirði, Elias H. Guðmundsson, stöðvarstjóri i Bolungarvik og Evlalia Sigur- geirsdóttir, Bolungarvik. I byggingarnefnd eiga sæti: Guðmundur Kristjánsson, Bolungarvik, Kristján J. Jóns- son, ísafirði og Kristinn Jón Jónsson rekstrarstjóri, Isafirði. Búnaðarþing: Framkvæmd Allsher jarnefnd Búnaðar þings lagði fyrir þingið erindi um framkvæmd byggingarlaga. Búnaðarþing afgreiddi erindið meö eftirfarandi ályktun: „Búnaðarþing felur stjórn Búnaöarfélags Islands að safna upplýsingum frá öllum bún- aðarsambandssvæöum um fyrirhugaða framkvæmd nýrra byggingarlaga og með hvaða hætti ráðgert væri, að störfum byggingarfulltrúa verði háttað, þegar hin nýju byggingarlög koma til framkvæmda. Upplýsingasöfnun verði lokið, áöur en Búnaöarþing 1981 kem- ur saman, svo aö þaö þing geti fjallað um málið, ef þurfa þyk- ir”. I greinargerö segir: „Breyt- ingar á byggingarlögum hljóða m.a. upp á breytta skipan á störfum byggingarfulltrúa i sveitum og greiðslu á launum þeirra og öðrum kostnaöi við þessi störf. Að loknum 5 ára aölögunar- tima skal allur kostnaöur við þessi embætti greiddur af heimaaðilum, þ.e. sveitarfélög- um eða sýslunefndum eftir þvi, hvernig málum verður skipað á viðkomandi stöðum. Sú hætta er fyrir hendi, að skipulag þessara mála geti riðlast og einhver sveitarfélög veröi án eða eigi erfitt meö aö ná til þeirrar þjónustu, sem byggingarfulltrúum er ætlað að veita. Þá eru i þessum lögum ýmis ákvæði önnur, sem erfiö kunna aö reynast, er til framkvæmda kemur, og jafnvel óæskileg. Þvier ástæða til þess, að Bún- aöarfélag íslands fylgist hér vel með og hafi áhrif á gang mála og fari fram á breytingar á lög- unum, ef það sýnist ráðlegt að vel athuguöu máli — mhg hg j

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.