Þjóðviljinn - 12.04.1980, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 12.04.1980, Qupperneq 7
Félagsmálapakki sjómanna Laugardagur 12. aprll 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 7 Aukinn réttur til launagreiðslna Sveinn Jónsson Fyrirspurnir á Alþingi: Hvaöa úrbóta er aö vænta í símamálum Austurlands spyr Sveinn Jónsson Sveinn Jónsson sem nú sit- ur á Alþingi i forföllum Helga Seljan hefur lagt fram á Alþingi fyrirspurn til sam- gönguráöherra um simamál á Austurlandi. Fyrirspurn- inni veróur svarað á næst- unni. Fyrirspurn Sveins er i þremur lióum og hljóóar svo: 1. Hve mikill hluti sveita- bæja á Austurlandi (svæöi 97) er án þjónustu frá miö- stöö á kvöldin og nóttunni og um helgar? 2. Hverra úrbóta er aö vænta i málum þessum? 3. Hverjar eru áætlanir um sjálfvirkan sima i sveitir Austurlands, sbr. laga- frumvarp Ragnars Arnalds á s.l. hausti um fjögurra ára áætlun um sjálfvirkan slma i allar sveitir landsins?” Þa hefur Eiöur Guönason lagt fram fyrirspurn til sjávarútvegsráðherra um veiöar erlendra fiskiskipa i islenskri fiskveiöilögsögu og er fyrirspurnin eftirfarandi: »1 1. Hversu mörg erlend fiski- skip stunda nú veiöar i íslenskri fiskveiöilögsögu, samkvæmt serstökum samningum eða undan- þágum? 2. Hverra þjóða skip eru þetta? 3. Hvaöa veiöar stunda þau? 4. Hver var afli þeirra s.l. ár? 5. Hvert er talið aflaverð- mæti slikra skipa s.l. ár? 6. Ráögerir núverandi rikisstjórn einhverjar breytingar aö þvi er varö- ar veiöar erlendra fiski- skipa i Islenskri fiskveiöi- lögsögu?” AÖ lokum hefur Pétur Sig- urösson beint eftirfarandi fyrirspurn til sjávarútvegs- ráöherra um tilraunaveiöar meö dragnót: „Hefur sjávarútvegsráö- herra gert ráðstafanir til á- framhaldandi tilraunaveiöa með dragnót i Faxaflóa og víðar á árinu 1980 og til hag- kvæmnirannsókna þeirra vegna?” — þm í veikinda- og slysatilfellum 1 þeim hluta félagsmálapakka sjómanna sem ræddur var á Alþingi á fimmtudag er gert ráö fyrir auknum rétti sjómanna til launagreiöslna I veikinda- og slysatilfellum. Steingrimur Hermannsson sjávarútvegs- og samgönguráö- herra mælti s.l. fimmtudag fyrir frumvarpi um breytingu á sjó- mannalögum. Frumvarp þetta er liöur i svokölluöum félagsmála- pakka sem samiö var um i árslok 1978 og er markmiö frumvarpsins tvenns konar. 1 fyrsta lagi er miö- aö aö þvi aö auka rétt sjómanna til greiöslu launa f veikinda- og slysatilfellum til samræmis viö aukin réttindi landverkafólks á þessu sviöi. 1 ööru lagi á aö tryggja sjómönnum réttmætar kaupgreiöslur eftir aö afskráning hefur fariö fram, en á þessu hefur oröiö nokkur misbrestur. 1 máli Steingrims kom fram aö samtök sjómanna hafa gert nokkrar athugasemdir viö frumvarpiö og veröa þær til umfjöllunar I sam- göngunefnd neöri deildar. Stein- grfmur lagöi áherslu á aö frum- varp þetta yröi aö lögum fyrir þingslit i vor. Nokkrar umræður uröu um frumvarpið og lýstu menn sig ánægöa meö að frumvarpiö væri þingsjá nú loksins komiö til umfjöllunar þingsins. Guörún Helgadóttir vakti athygli á þvi aö undir- og yfirmönnum væri mismunað i frumvarpinu hvaö varöar launa- greiöslur er menn væru frá vegna sjúkdóms eöa meiösla. 1 frum- varpinu er gert ráö fyrir þvl aö stýrimenn, vélstjórar, brytar og loftskeytamenn skuli fá greidd laun i tvo mánuöi þurfi þeir aö vera svo lengi frá vinnu vegna sjúkdóms eöa meiösla, en aörir skipverjar geta hins vegar mest haldiðlaunum sinum i þessum til- vikum I einn mánuö. Sagðist Guö- rún telja eölilegt aö undirmönn- um væri þarna tryggöur sami réttur og yfirmönnum. 1 máli Magnúsar H. Magnússonar og Péturs Sigurössonarkom fram aö yfirmenn hafa haft þennan 2 mánaöa rétt, en meö frumvarp- inu væri veriö aö tryggja undir- mönnum þennan rétt i 1 mánuö, sem þeir heföu ekki haft áöur. Aö lokinni umræöu var frum- varpinu visaö til samgöngunefnd- ar og 2. umræöu. — þm Nokkur hluti fundarmanna á hinum fjölsótta fundi Alþýöubandalagsins um borgarmálefnin. Velheppnað fiindarfotm Alþýöubandalagiö i Reykjavik hélt félagsfund I fyrrakvöld um borgarmálefnin. Á fundinum var reynt i fyrsta skipti nýtt fundar- form sem fólst i þvi aö skipta fundarmönnum upp I umræöu- hópa þar sem helstu málefni borgarinnar voru rædd. Þá var á fundinum kosin uppstillinganefnd sem gera á tillögur um næstu stjórn Alþýöubandalagsins i Reykjavik fyrir aöalfund þess i vor. Hið nýja fundarform ABR á félagsfundinum um borgarmál- efnin gafst mjög vel en fundurinn var fjölsóttur. Fundarmenn skiptu sér 1 6 umræöuhópa, þar sem rædd voru skipulagsmál og framkvæmdamál á- vegum borgarinnar, heilbrigöis- Iþrótt- a- og æskulýösmál, félags- og húsnæöismál, fræöslu- og skóla- mál, atvinnumálog aö lokum um- hverfis- umferöarmál og málefni Strætisvagna Reykjavikur. A fundinum var auk þess kosin uppstillinganefnd fyrir aöalfund félagsins og hlutu eftirfarandi einstaklingar kosningu: Baldur Öskarsson, Guöjón Jónsson, Skúli Thoroddsen, Snorri Styrkársson, Svanur Kristjánsson, Hrafn Magnússon og Kristin Guöbjörns- dóttir. ■ Þig Bifreiðakaup öryrkja Heildarlækk- un gjalda 1,5 m.kr. Frumvarp um 50% hækkun á niöurfellingu gjalda á bifreiöum til öryrkja var samþykkt eftir 2. umræöu I neöri deild Alþingis s.l. fimmtudag. Frumvarp þetta er flutt af Alexander Stefánssyni og Þórarni Sigurjónssyni. Eftir breytinguna hljóöar viökomandi lagagrein svo: „Lækkun gjalda af hverri bif- reiö má nema allt aö 750.000 krón- um og heildarlækkun aö meötöldu innflutningsgjaldi allt aö 1.500.000 krónum. Þó skal heimilt aö lækka gjöld af allt aö 25 bifreiöum árlega um allt aö 1.500.000 krónum fyrir þá sem mestir eru öryrkjar, en geta þó ekiö sjálfir sérstaklega útbú- inni bifreiö. Heildarlækkun aö meötöldu innflutningsgjaldi má nema allt aö 3.000.000. 'króna af hverri bifreið samkvæmt þessari málsgrein.” Tvær breytingartillögur komu fram viö frumvarpiö. önnur var frá Guörúnu Helgadóttur þess efnis aö stytta þann tima sem llð- ur frá þvi aö bifreiö er keypt og þar til heimilt er aö selja hana aftur. Tillaga Guörúnar gerir ráö fyrir aö öryrkjar sem njóta niöur- fellingar á þessum gjöldum geti selt bifreiö sina aftur aö 4 árum liönum, en þessi timamörk hafa verið 5 ár. Þá gerir tillagan ráö fyrir að þeir sem mestir eru öryrkjar geti selt bifreiö sina aft- ur aö 3 árum liönum. Hin tillagan var frá Jóhönnu Siguröardóttur og Arna Gunnarssyni þess efnis aö heimilt skuli vera aö hækka undanþágu þessa árlega meö til- liti til verölagsþróunar á hverjum tima. Fram kom I máli Guörúnar Helgadóttur aö mikilvægt væri aö hraöa afgreiöslu þessa frum- varps þvi beöiö væri meö aö út- hluta leyfum til lækkunar gjald- anna þar til Alþingi hefur tekiö afstööu til frumvarpsins. Til aö flýta fyrir afgreiöslu málsins féll- ust þvi flutningsmenn breyt- ingartillagnanna á aö draga þær til baka til 3ju umræöu en fjár- hags- og viðskiptanefnd mun fjalla um þær fram aö þeirri um- ræöu. — þm Orkujöfnunar gjald sam- þykkt sem lög Frumvarp rfkisstjórnarinnar um 1,5% orkujöfnunargjald varö aö lögum s.l. fimmtudagskvöld. Þessu gjaldi er ætlaö aö standa straum af kostnaöi viö greiöslu oliustyrks til húshitunar og leggst á söluskattsstofn og þvl mun sölu- skattur hækka um 1,5% og tekur sú hækkun gildi n.k. mánudag. Þá varö einnig aö lögum þetta kvöld frumvarp rlkisstjórnarinn- ar um lækkun oliugjalds til fiski- skipa ur 5% f 2,5% en frumvarp þetta var flutt til að greiða fyrir ákvöröun fiskverös. — þm VIÐ STOFNUM Æskulýösfélag sósíalista laugard. 12. apríl kl. 13:15 i Lindarbæ Af hverju? Knýjandi nauösyn er á þvl aö stofna sósialiskt æskulýösfélag, sem er i stakk búiö til aö kynna og útbreiöa kenningar sóslalismans meöal ungs fólks, til aö svara sivaxandi áróöri auövalds- og hernámssinna I skólum og fjölmiölum, og til aö vinna aö sóshaliskum iausnum á hagsmuna- málum uncs' fólks. Pólitiskur grunnur Stefnuskrá Alþýöubandalagsins veröu lögð til grundvallar starfsemi félagsins. Markmiö okkar er aö hrista rykiö af þeirri islensku þjóöfélagsgreiningu og markmiöslýsingu sem birtist I þeirri bók og starfa eftir henni. Félag þetta veröur ekki i neinum skipulags- legum tengslum viö Alþýöubandalagiö. Almennir fundir félagsmanna munu aö öllu ööru leyti ákveöa félaginu viöfangsefni og móta starfshætti þess. Hverjir geta gerst félagar? Rétt til inngöngu i æskulýðsfélag sósíalista hafa allir þeir sem telja sig geta unnið aö sósial- isma og þjóðfrelsi samkvæmt stefnuskrá Alþýöubandalagsins. og eru annað tveggja: ekki meölimir I neinum flokkspólitiskum samtökum eöa eru félagar i Alþýðubandalaginu Stofnfundur félagsins mun setja félaginu starfsreglur, þar sem meöal annars veröur kveöiö á um aldursskilyrði og önnur slik atnöi. l'ndirbúningsnefndin.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.