Þjóðviljinn - 19.04.1980, Page 1
UuÐVIUINN
Laugardagur 19. apríl 1980. —88. tbl. — 45. árg.
Alþýðubandalagið:
Miðstj órnarfundiir
Miöstjórnarfundur hefur veriö ákveöinn hjá Alþýöubandalaginu dag-
ana 2. og 3. mal. Fundurinn hefst föstudagskvöld 2. maf klukkan 8. 30 og
veröur fram haldiö laugardag, og e.t.v. einnlg sunnudag, ef nauösyn-
legt reynist.
Á fundinum veröur rætt um baráttuleiöir I herstöövamálinu og
öörum þjóöfrelsismálum, skýrsla veröur gefin frá aöalfundi verkalýös-
málaráös Alþýöubandalagsins og i þvi sambandi rætt um stööuna f
kjarasamningum, — þá veröur fjallaö almennt um störf rikisstjórnar-
innar og loks veröa önnur mál á dagskrá.
Kýlapest í laxaseiöum í fiskeldis-
stööinni aö Húsatóftum viö Grindavík
Tugmiljóna-
króna tjón
,,t>aö er óhætt aö segja aö þetta
er tjón sem nemur tugum miljóna
króna, og óvisst er um fébætur,
þvi aö tryggingarfélögin hafa
ekki ennþá viljaö tryggja gegn
skakkaföllum sem þessum”,
sagöi Siguröur St. Helgason lif-
eölisfræöingur og fiskiræktar-
maöur aö Húsatóftum viö
Grindavik.
Kýlaveiki sem er einn alversti
smitsjúkdómur sem þekkist I
fiskrækt hefur komiö upp I laxa-
seiöum I fiskeldisstööinni aö
Húsatóftum og hafa þegar drepist
50 þúsund seiöi en önnur 40 þús. til
viöbótar hafs sýkst, og biöur
þeirra nú ekkert nema dauöinn.
Þegar blaöamenn Þjóöviljans
komu aö Húsatóftum i gær, var
Siguröur þar viö sln daglegu
störf, sem hafa veriö heldur
óskemmtileg siöustu vikur og
mánuöi, aö tina dauö seiöi uppúr
fiskkerjunum.
„Ég var fyrst var viö, aö ekki
var allt sem skyldi, stuttu fyrir
siöustu áramót, og fékk þá Sigurö
Helgason fisksjúkdómafræöing á
Keldum, til aö kanna þetta nánar.
Hann hefur fylgst mjög náiö
meö þróun mála hér aö Húsa-
tóftum. Sjúkdómsgreiningin
liggur nú fyrir, en alls er óvist
ennþá, hvar upptök sýkinganna
eru” sagði Siguröur.
Seiöin fékk Siguröur viöa aö af
landinu, en hann hefur ekki ennþá
veriö meö neitt klak sjálfur.
Seiöin áttu aö vera tilbúin sem
gönguseiði nú i júnimánuöi.
Siguröur sagöi að aöeins heföi
oröiö vart viö kýlaveikina I
seiöunum, en hann væri nýbúinn
aö slátra fullvöxnum fiski. Sjúk-
dómseinkennin eru ósýnileg á
seiöunum, en á stærri fiskum
koma þau fram I sárum á roöi eöa
blæðingum viö ugga.
„Þaö sem er einna erfiöast viö
fiskeldi, er smithættan sem lýsir
sér vel I þessu tilviki, þar sem
þéttleiki er þaö mikil I
kerjunum.”
Siguröur sagöi aö lokum, aö
þennan sjúkdóm væri hægt aö
uppræta algjörlega, meö þvi aö
drepa öll seiöin 40 þús. sem enn
eru á lifi, en finna þyrfti fyrst
hina upphaflegu orsök sýkingar-
innar, áöur en fariö yröi út i
frekari seiöarækt aö sinni. —lg
Siguröur St. Helgason Htur ofant eitt af fiskræktarkerjunum, aö Húsa-
tóftum, en kýlapest er nú langt komin meö ab drepa öll laxaseiöin I
eldisstööinni. A innfelldu myndinni sjást dauö seiöi. — Mynd —gel.
Sjómannadeilan á ísafirði að leysast?
Samninganefndir
ræddu við ráðherra
• tel aö þær viöræöur geti liökaö jyrir samningum
sagöi Pétur Sigurösson formaöur ASV
Samninganefndarmenn
sjómanna og útgerðar-
manna á ísafirði fóru til
Reykjavíkur sl. þriðjudag
og áttu viðræður við tvo
ráðherra, félagsmála- og
sjávarútvegsráðherra.
Rætt var um félagsmála-
pakka til sjómanna og at-
riði varðandi samningana,
sem sjávarútvegsráðu-
neytið gæti liðkað til, ef
það yrði til þess að auð-
velda samninga.
— Eg tel, aö þessi ferö hafi ver-
ib til nokkurs gagns og gæti hugs-
anlega liökaö fyrir þvi aö samn-
ingar tækjust, sagöi Pétur Sig-
urðsson, formaöur Alþýðusam-
bands Vestfjaröa I samtali viö
Þjóöviljann I gær. Hann sagöi aö
þarna heföi ekki verið um aö ræöa
neina samninga, heldur einskon-
ar „áþreifingar” I málunum og
aö undirtektir heföu veriö i þá átt
aö auka mönnum heldur bjart-
sýni en hitt.
I gær haföi samningafundur
ekki veriö boöaöur I deilunni en
Pétur bjóst við að fundur yröi
boöaöur strax eftir helgi og þá
m.a. rætt um þau atriði sem
komu fram I Reykjavikurferð
samninganefndarmanna.
Pétur Sigurösson formaöur ASV
haföi nóg aö gera vlö aö svara I
sfmann á skrifstofu ASV sl. þriöju
dag þegar þessi mynd var tekin
Verkfall sjómanna á Isafiröi
hefur nú staöiö á annan mánuö og
er þegar fariö að segja verulega
til sin á Isafirði, þar sem hundruö
manna eru atvinnulausir.—S.dór
j Stefna samvinnu og samhjálpar, segir Adda Bára Sigfúsdóttir um Qárhagsáætlun Reykjavíkur
íhaldið vill stööva uppbyggingu BÚR
„Þetta er fjárhagsáætlun sem
glögglega ber merki breyttrar
stefnu, stefnu samvinnu og
samhjálpar og ég mun meö
ánægju taka ábyrgö á henni og
túlka hana og verja fyrir
Reykvikingum”, sagöi Adda
Bára Sigfúsdóttir m.a. I umræö-
um um nýja fjárhagsáætlun
borgarinnar I fyrrakvöld.
Viö sama tækifæri ræddi
Sigurjón Pétursson niöur-
skuröarhugmyndir Sjálfstæöis-
manna og sagöi þær einkennast
af sýndarmennsku og ósk-
hyggju. M.a benti Sigurjón á aö
hin gamla andúö Ihaldsins á
Bæjarútgerö Reykjavfkur kæmi
fram I tillögu þess um aö fram-
lagiö til hennar yröi lækkaö um
350 miljónir króna. Endurupp-
bygging BÚR er nú I fullum
gangi, afkastageta frystihússins
hefur tvöfaldast og BÚR skilar
hagnaöi á sl. ári. Meö tillögu
ihaldsins væri komiö I veg fyrir
aö BÚR eignaðist frystigeymsl-
ur en meö aukinni afkastagetu
ykist þörfin.
Ef frystigeymslur yröu ekki
byggöar á árinu myndi þaö leiða
til óhagkvæmni I rekstrinum.
Meö tillögu sinni vildu Ihalds-
menn stööva uppbyggingu BÚR
sem meirihlutaflokkarnir væru
stoltir af, enda fyrirtækiö nú
komiö I röö best reknu fisk-
vinnslufyrirtækja og skilaöi
hagnaöi.
—ekh
Sjá sídu 5
Aðalfundur Verka-
lýðsmálaráðs
Alþýðubandalagsins
hefst á morgun
Staðaní
samninga-
málum
A morgun kl. 10 hefst aöalfund-
ur Verkalýösmálaráös Alþýöu-
bandalagsins á Hótel Loftleiöum.
Baldur óskarsson starfsmaöur
ráösins sagöi I gær aö hann bygg-
ist viö góöri fundarsókn, en I
verkalýösmálaráði eru um 270
liösmenn Aiþýöubandalagsins i
verkalýöshreyfingunni viösvegar
aö af landinu.
Benedikt Davlösson formaöur
verkalýösmálaráös setur fundinn
á morgun, en aö setningu lokinni
flytur Svavar Gestsson félags-
málaráöherra ræöu. Þá veröa al-
mennar umræöur til hádegis.
Baldur óskarsson sagöi aö síö-
degis á sunnudag yröu tekin fyrir
þau mál sem hæst bera þessa
stundina, þaö er aö segja samn-
ingamálin og sú flókna staöa sem
nú er uppi á þvl sviði. Um þau
fjalla þeir Asmundur Stefánsson
framkvæmdastjóri ASÍ og Guö-
mundur Arnason formaöur
Landssambands grunnskóla-
kennara. Eftir framsöguræöu um
samningamálin taka viö almenn-
ar umræöur og afgreiösla mála. 1
fundarlok sem er áætlaö aö verði
um kl. 18, veröur kosin ný stjórn
verkalýðsmálaráðs.
Baldur Óskarsson tók sérstak-
lega fram aö aöalfundur
verkalýösmálaráös væri opinn
öllum þeim félögum Alþýöu-
bandalagsins sem áhuga hafa á
verkalýösmálum og hvattifélags-
menn til þess aö fjölmenna á
fundinn og taka þátt I áhugaverð-
um og mikilvægum umræöum.
—ekh
Kjaradeilan
á Suöureyri og
Flateyri___________
Verulegar
líkur á
samningum
Seint I gærkvöldi höföu ekki
náöst samningar Ideilu sjómanna
og útgeröaraöila á Suöureyri og
Flateyri. Fundur haföi staöiö yfir
frá þvi um miöjan dag I gær á
Suöureyri, en þegar slöast var
vitaö haföi fundur ekki hafist á
Fiateyri. Taliö var aö aöilar á
Flateyri vildu bíöa og sjá hvemig
mál þróuöust á Suöureyri.
Samningsaöilar vildu ekki tjá
sig I gærkvöldi um einstaka þætti
málsins, en þó var talið aö samn-
ingshorfur væru frekar góöar.
Leidrétting
Ólafur Haukur Slmonarson rit-
höfundur hefur beöiö Þjóðviljann
aö koma þeirri leiöréttingu á
framfæri aö hann muni ekki taka
viö starfi leikhússtjóra Alþýðu-
leikhússinsfyrr en eftir 9 mánuöi.
Ólafur hlaut styrk úr Launasjóöi
rithöfunda og mun þvl sinna rit-
storfum næstu mánuði.