Þjóðviljinn - 19.04.1980, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 19.04.1980, Blaðsíða 11
Laugardagur 19. april 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Þannig er fjallað utn hinn goðsagnakennda frjálsiþróttamann, Jesse Owens, sem lést nýlega, i alfræðiriti dr. Ingimars Jónssonar um iþróttir. Þarna er einungis að finna hiö „hlutlæga” mat á Owens, en hið „huglæga” hefur á seinni árum orðið honum til mikils fram- dráttar. Hann var það sem kalla má sannur iþróttamaður, I orö- anna fyllstu merkingu. ólympíuhugsjónin var honum allt ólympiuhugsjónin var Owens ætið mjög hugstæð, hann eyddi miklum hluta lifs sins i að inn- ræta ungum iþróttamönnum þessa hugsjón, sem e.t.v. er best skýrð með eftirfarandi oröum Coubertins, aðalhvatamanns ólympiuleika seinni ára: „Gleði af vöðvaáreynslu, lotning og fegurð, starf i þágu fjölskyldu og samfélags, þetta þrennt i órjúfanlegri einingu, það er ólympiuhugsjónin. „Fyrir mér eru ólympiuleik- arnir stærsta stund I lifi iþrótta- manna sem þangaö komast á hverjum tima og einnig hinna sem keppa að þvi markmiöi að komast þangað. Það hreinlega hrærir mina aumu sál aö 12 þús. Iþróttamenn frá 150 löndum koma saman, borða saman, syngja saman o.s.frv., án tillits til litarháttar og stjórnmála- skoðana. Krakkarnir eignast kunningja meðal þátttakenda annarra þjóða og sá kunnings- skapur varir oftast lengi. Þarna er okkur sýnt hvað gera má ef skilningur og vinátta ræöur rikjum,” sagði Jesse i viðtali árið 1975. í sin 4 gullverðlaun á ólympiu- leikunum 1936 krækti Owens þegar hann var i sigursveit Bandarikjanna i 4x100 m boð- hlaupi. „Owens, Jesse (James Cleveland), bandariskur frjálsiþrótta- maður, 12.9. 1913, ÓS 1936 i 100 m hl. (10,2 sek.), 200 m hl. (20,7 sek.), langstökki (8.06 m) og 4x100 m boðhl. (bandariska sveitin hljóp á nýju heimsmeti 39,8 sek.) Árið 1935 setti O. að jafnaði 4 heimsmet á rúmum 2 kist.: 100 jardar: 9,4 sek., 220 jardar: (bein braut): 20,3 sek., langstökk: 8,13 m, 220 m grindahl. (bein braut): 22,6 sek.” „Hinn sanni íþrótta- maður” C W1 NS yrðu að nota hverja smugu sem gæfist. Þannig myndu svert- ingjar tryggja lýðréttindi sin til frambúöar. „A þriðja áratugnum höfðu svertingjar enga fyrirmynd, sem þeir gátu farið eftir. A þeim var troðið miskunnarlaust og engin virk andstaða var til. Þegar ég vann mina sigra á ólympíuleikunum og Joe Luis barði hvern á fætur öörum i gólfiö, jafnt hvita sem svarta, þá eignaöist fólkið fyrirmyndir og þaö fór að mótmæla órétt- lætinu sem það varö fyrir. Siðar komu menn eins og dr. Martin Luther King og veittu barátt- unni i þann farveg að hún skilaði árangri. Þannig hefur okkur svertingjunum tekist að opna hurðina mikið, en við eigum enn nokkuð langt I land meö að opna hana alveg.” 1 þessu sambandi má minna á aö eftir sigra Jesse Owens á ólympiuleikunum 1936 varð hann fyrir margs konar aðkasti samlanda sinna. Frægðin dugði honum skammt. Virtur og dáður af öllum Siðustu árum ævi sinnar eyddi Jesse Owens i aö flytja fyrir- lestra um gjörvöll Bandarikin um hugöarefni sin, sem flest voru tengd iþróttum og réttindabaráttu svertingja. Hann var virtur og dáður af öllum sem til hans þekktu og mjög eftirsóttur alls staðar þar sem mannréttindabarátta og/eða iþróttir voru á dagskrá. Jesse Owens var eitt af mikil- mennum 20. aldarinnar. —IngH tók saman Kom ekki til Berlin ti þess að heilsa Hitler Þátttaka Jesse Owens I ólympiuleikunum 1936 varð fræg um heim allan. Hann sigraði I 4 greinum eins og getið er um hér að framan og ólymplumetiö hans i langstökki var ekki slegið fyrr en á leik- unum I Róm 1960. Hann nánast kollvarpaði öllum kenningum Hitlers og nasistanna um yfir- buröi hins ariska kynstofns. Hitler varð nánast óður af bræöi manninn og hugsjóna- manninn Jesse Owens Jesse sigraði með miklum ólympluleikunum 1936. Hér er hann hlaupinu. I 100 og 200 m hiaupum á fara úr startholunum I 200 m þegar Owens var aö vinna sigra sina og neitaöi að taka I hönd honum. Owens var spurður um þetta atvik. „Þaö skipti mig ekki hinu minnsta máli hvort Hitler tæki i höndina á mér eða ekki. Ég fór á leikana til þess að hlaupa og stökkva, ekki til þess að heilsa Hitler. Reyndar hafði þetta slæm áhrif á allt andrúmsloftið á leikunum,en þaö var ekki min sök.” „Þrátt fyrir þessa hegðun Hitlers, varð hinn þýski keppi- nautur minn I langstökkinu, Luz Long einn af minum bestu vinum. Hann lést i striðinu, en ég hélt áfram aö skrifast á viö son hans og þannig hélst sam- bandiö, sem hófst á ólympiu- leikunum 1936.” Iþróttir vopn i réttinda- baráttu svertingja Barátta Jesse Owens fyrir fullu jafnrétti svertingja var mjög fræg og óhætt að segja að þar hafi hann náð góðum árangri. Hann var óþreytandi i að benda á að svertingjar ættu að nota iþróttirnar I baráttu sinni, þær væru ein leiö af mörgpm, sem yrðu að góðu gagni. Hann hélt þvi fram að svertingjar yrðu að sækja fram á öllum sviðum, i visindum, i listum, I iþróttum o.s.frv. Þeir Hér til hliðar er Jesse Owens I sigurstökki sinu I langstökki á ólympiuleikunum 1936, en þá stökk hann 8.06 m. Heimsmet hans i langstökki, 8,13 m, stóð óhaggað i 25 ár og er álitið eitt besta afrek i frjálsum iþróttum. iþróttír 0 íþróttir g) íþróttir (§

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.