Þjóðviljinn - 19.04.1980, Qupperneq 7
Frystihúsið Norðurtangi á tsafirði. Það var heldur dauft þar yfir þegar þessi mynd var tekin þvi engin
vinna var i fiskverkunarsölum hússins.
Sjómannadeilan og
atvinnuleysið á ísafirði
Ekkí hægt að lifa
á því sem búið er
ad eyða
hjónin Ólafur Þór Guðmundsson
og Hulda Hafsteinsdóttir
fá ekki atvinnuleysisbœtur
Hinar furöulegu reglur
atvinnuleysistryggingasjóðs um
aðfólk, sem hefur haft 4.9 milj. i
laun siðustu 12 mánuði áður en
það verður atvinnulaust, fær
engar bætur, þ.e.a.s. ef um hjón
er aö ræða, geta komiö mjög illa
niður á fólki.
Ung hjón á tsafirði, sem i fyrra
ogfram á þetta ár hafa staðið i aö
koma þaki yfir höfuðið og bæði
unniö úti og eins mikið og þau
hafa getað, eins ogallir verða að
gera sem eru að byggja, eru nú
bæði atvinnulaus vegna
sjómannaverkfallsins og fá engar
bætur. Þau heita Olafur Þór
Guðmundsson og Hulda
Hafsteinsdóttir. Við ræddum
stuttlega við Huldu um máliö.
— Við erum yfir þessu 4.9
miljdna króna marki vegna þess
að við uröum að vinna eins
mikið og við gátum vegna
hússins. Allir okkar peningar
hafa farið i það og þvi enginn af-
gangur eftir. Og það sjá allir aö
maður lifir ekki af þvi sem búiö
er að eyöa.
— Hvað er þá til raöa?
— Ég veit það satt að segja
ekki. Ef verkfalliö dregst á
langinn er ljóst aö Ólafur veröur
aðfara i aðra vinnu, og ég myndi
gera það lika ef ég gæti en það
stendur þannig á að ég get þaö
ekki núna. Þetta ástand er alveg
nýtt fyrir okkur og ekki langur
timi liöinn siöan maður varö
atvinnulaus, þannig að maður
finnur ekki fyrir þessu svona
alveg strax, en þaö fer senn að
liða að þvi aö maður verði var viö
erfiðleikana.
— Heldurðu að það séu margir
á tsafirði i svipaðri stööu og þið?
— Þeir eru nú kannski ekki
margir en ég veit þó um dæmi.
Annars bitnar þetta verkfall mun
verr á konum en körlum, þar sem
konur eru I miklum meirihluta i
frystihúsunum.
Hulda sagðist ekki hafa kannaö
hvort hægt væri aö fá einhverja
undanþágu þegar svona stendur á
eins og hjá þeim hjónum, en
sagöist ekki vongóð um aö slik
undanþága fengist.
-S.dór.
Nýr salur MÍR:
Lenín-
sýning
og fyrir-
lestrar
í dag kl. 15 verða ný húsakynni
MÍR á Lindargötu 48, 2. hæð,
tekin I notkun og jafnframt opnuö
sýning á ljósmyndum, mynd-
verkum og bókum I tilefni 110 ára
afmælis Lenins. Þá mun dr. Fél-
ix Volkov vararektor Moskvu-
háskóla flytja fyrirlestur um
efnið: Meginreglur Lenins um
sósialiskd hagfræði, en siöan
verður kvikmyndasýning.
Dr. Volkov flytur annan fyrir-
lesturað loknum aðalfundi MIR á
morgun kl. 3 um Moskvuháskóla
225 ára.
Styrkir til framhaldsnáms iðnaðarmanna
erlendis
Menntamálaráöuneytið veitir styrki til iðnaðarmanna,
sem stunda nám erlendis, eftir þvi sem fé er veitt I þessu
skyni í fjárlögum 1980.
Styrkir verða fyrst og fremst veittir þeim, sem ekki eiga
kost á styrkjum eða námslánum úr lánasjóði islenskra
námsmanna eða öðrum sambærilegym styrkjum og/ eða
lánum. Heimilt er þó, ef sérstaklega stendur á, að veita
viðbótarstyrki til þeirra er stunda viðurkennt tækninám,
ef fé er fyrir hendi.
Styrkirnir eru eingöngu veittir til náms erlendis, sem ekki
er unnt að stunda hér á landi. Skal námið stundað við
viðurkennda fræðslustofnun og eigi standa skemur en tvo
mánuöi, nema um sé að ræða námsferö, sem ráöuneytiö
teiur hafa sérstaka þýðingu.
Styrkir greiðast ekki fyrr en skilað hefur veriö vottorði frá
viðkomandi fræðslustofnun um að nám sé hafið.
Umsóknum um styrki þessa skal komiö til menntamála-
ráöuneytisins, Hverfisgötú 6,101 Reykjavik, fyrir 15. mai
næstkomandi.
Umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
15. april 1980.
Félag
járniðnaðar-
manna
FELAGSFUNDUR
verður haldinn mánudaginn 21. apríl 1980
kl. 8.30 e.h. að Hallveigarstig 1, kjallara.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. Kosning fulltrúa á 9. þing Málm- og
skipasmiðasambands Islands
3. önnur mál.
Mætið vel og stundvislega.
Stjórn
Félags járniðnaðarmanna.
Laugardagur 19. april 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
BoMkingar
sviku okkur
segir Guðjón
Andersen sjómað-
ur á ísafirði
— Það má eflaust deila um
hvort rétt var af okkur sjó-
mönnum á Isafirði að riöa einir á
vaðið 1 kjarabaráttunni nú,
kannski heföum við átt að biöa
eftir öðrum, til að mynda að láta
BSRB semja fyrst . En úr þvi aö
við fórum út i þetta veröum við aö
standa saman og sigra. Þess
vegna voru þessir smánar-
samningar sem Karvel geröi
fyrir Bolvikingana svik við vest-
firska sjómenn og alveg sérstak-
lega okkur, sem búnir erum að
vera I verkfalli I margar vikur,
sagði Guðjón Andersen linusjó-
maður á Isafirði i samtali við
blaðamann Þjóðviljann.
Aðspurður hvort ekki væri er-
fitt að samræma sameiginlegar
kröfur fyrir linusjómenn og tog-
aramenn sagði hann:
— Vissulega er það erfitt og i
raun og veru ættu þessir hópar að
semja sitt i hvoru lagi. Launa-
munur þessara hópa er of mikill
til þess aö þeir eigi samleið I
kjarasamningum. Þetta er mitt
álit á þessu atriði.Hitt er annaö,
að þegar út i verkfallsbaráttuna
er komiö bakkar hvor annan upp,
ég efa það ekki. Og i þessu verk-
falli hafa togaramennirnir verið
mun haröari en viö.
— Hvaða atriði I kröfum ykkar
telur þú vega þyngst?
— Ég tel að aukin laugardags-
fri og aukamaöur I beitningu
alveg frá hausti séu mikilvæg at-
riði , sem og fritt fæði.-Varðandi
aukamann i beitninguna þá er
þaö þannig, að linan er lengri á
Guðjón Andersen
haustvertið og við viljum að út-
gerðin greiöi laun aukamannsins
en ekki að hlutur okkar skerðist
vegna tilkomu hans.
— Þú nefndir áðan að þú efaðist
um að þið hefðuð átt að riða á
vaðið. Attu þá við að þú óttist um
að samstaöa mann bresti?
— Ég segi þaö kannski ekki, ég
hygg aö úr þvi aö viö riöum á vaö-
iö muni menn berjast til þrautar.
En við erum litill hópur og þvi
heföi mér þótt skynsamlegra að
biða eftir öðrum, eins og til aö
mynda BSRB, eins og ég sagði
áðan, og Iáta þessa sterku hópa
byrja. Við heföum getaö fylgt
þeim, það heföi mér fundist
eðlilegra. Hinsvegar vona ég
bara að samheldni sjómanna hér
á ísafiröi rofni ekki, þaö má ekki
gerast, við verðum að sigra I
þessari deilu.
-S.dór
Orlofshús
Verkakvennafélagsins Framsóknar
Mánudaginn 21. april n.k. verður byrjað
að taka á móti umsóknum félagsmanna
varðandi dvöl i orlofshúsum Verka-
kvennafélagsins Framsóknar.
Þeir sem ekki hafa dvalið áður i orlofs-
húsum félagsins, hafa forgang 21.—23. og
25. april.
Félagið er með 3 hús i ölfusborgum og eitt
hús i Flókalundi.
Leigan greidd við pöntun. Vikugjaldið kr.
25.000.- Upplýsingar i sima 26930 og 26931
frá kl. 09.00—12.00 og 13.00—17.00.
Stjórnin.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 13., 16. og 21. tölublaði Lögbirtingar-
blaðsins 1980 á eigninni Graskögglaverksmiöjan Flatey I
Flatey á Mýrum, Austur-Skaftafellssýslu, þinglýst eign
Landnáms rikisins fer fram eftir kröfu Byggðasjóðs á
eigninni sjálfri þriðjudaginn 22. aprll 1980 kl. 16.
Sýslumaðurinn i
Austur-Skaftafeilssýslu.
Friðjón Guðröðarson.
§ Sjúkraliðar
Aðalfundur Sjúkraliðafélags íslands verð-
ur haldinn laugardaginn 19. april kl. 13.30 i
Hótel Heklu Rauðarárstig 18» Venjuleg að-
alfundarstörf. Lagabreytingar.
Stjórnin.