Þjóðviljinn - 22.04.1980, Page 7
Stjórnarmyndun á Italíu
Þriöjudagur 22. april 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
Craxi, formaður sósialista og Cossiga forsætisráðherra eru hér komnir
saman leina tunnu sem heitir Tviiitur. Svo bættist þriðji flokkurinn við
(teikning úr Kommúnistablaðinu Rinascitá)
eru margar. En kannski skiptir
sú einna mestu máli, að þeir fara,
ásamt sósialistum, með stjórn
allmargra héraöa á ttaliu (Rauða
beltið svonefnda: Umbria,
Toscana, Emilia-Romagna ofl.).
Þessar héraðsstjórnir hafa all-
viðtækt umboð i ýmsum málum,
en opinberum fjármálum er samt
svo háttað, að stjórnin i Róm hef-
ur þar flesta tauma í sinum hönd-
um, og getur mismunað héraða-
valdinu eftir pólitiskum lit þess.
Þvi hefur það þótt nauðsyn
kommúnistum aö geta haft nokk-
urn aðgang að rikiskassanum og
lánastefnunni til að koma i veg
fyrir að rauðar borgir og sveitir
séu hafðar i f jársvelti og umbóta-
viöleitni þar torvelduð með slik-
um hætti.
Á hinn bóginn leysir þaö vissan
vinstri vanda hjá PCI aö hafna I
stjórnarandstöðu. Viöleitnin til
samstarfs við kristilega á ýmsum
sviðum, sem mjög varð áberandi
i tiö minnihlutastjórnarAndreottis
sem viö völdum tók 1978, olli hin-
á blað baráttu gegn hermdar-
verkum.Eins og kunnugt er eru
pólitisk mannrán og banatilræði
fastur þáttur orðinn i itölsku
þjóðlifi og liggja þar margar
leiðir undarlegar milli byltingar-
hyggju á villigötum, refskapar
vissra deilda lögreglunnar og
ómengaðra fasista. Allir helstu
flokkar viðurkenna stærð þessa
vandamáls — en hitt mun mönn-
um ekki koma saman um, hvern-
ig hermdarverk veröi niöur kveð-
in án þess að i leiöinni verði stigin
hættuleg skref i átt til lögreglu-
rikis. Kommúnistar hafa yfirieitt
verið miklir lögreglusinnar I
þessum málum, en menntamenn
meöal sósialista og svo mann-
réttindaflokkurinn róttæki, PR,
hinsvegar beitt sér gegn stór-
auknum völdum til lögreglunnar.
Efnahagsmál
1 þriðja lagi skal barist gegn
verðbólgunni. Reyndar var efna-
hagsleg útkoma siðasta árs ekki
slæm og er þar að finna eina af
Húseign eftir vali fyrir 35 milljónir.
/KEfTimTI/NEKKJA-
300 utanferöir á 500 þúsund.
Níu íbúðavinningar á 10 milljónir.
SKemmtisnekkja meö öllum búnaöi til
úthafssiglinga, aö verömæti um 18,2
milljónir.
Sumarbústaöur aö Hraunborgum í
Grímsnesi fullfrágenginn og meö öllum
búnaöi, aö verömæti um 25 milljónir.
Ford Mustang Accent í maí, aö verö-
mæti 7,4 milljónir.
Peugeot 305 í október, aö verömæti 7,2
milljónir.
Aðrir vinningar:
7 bílavinningar á 3 milljónir, 91 bílavinningar á 2 milljónir, auk ótal húsbúnaðar-
vinninga á 35 þúsund, 50 þúsund og 100 þúsund.
Endurnýjun ársmiða og flokksmiða hafin, endurnýjunarverð 1400 krónur, ársmiðinn 16.800
krónur. Sala á lausum .
miðum hafin. miÐI ER mÖGULEIKI ^
Dúum ÖLDRUÐUm ÍSHl ( ] i—J
ÁHYGGJULAU/T ÆVIKVÖLD V ^ V J
ÍDÚDIR-
Söguleg málamiölun var
lögö í salt
eftir Árna Bergmann
Borgaraieg öfl á ttaiiu hafa i
stórum dráttum haldið mjög fast
við eina pólitiska formúlu: Kristi-
legir demókratar verða að fara
með stjórnartauma. Og næst-
stærsti flokkur landsins,
Kommúnistaflokkurinn, PCI, má
ekki i stjórn fara, — jafnvel þótt
hagkvæmt gæti talist að flækja
hann að nokkru I pólitlska ábyrgð
eins og reynt var á timum
næstslðustu stjórnar.
Einn af foringjum hægri arms
kristilegra, Cossiga, hefur fyrir
nokkrum dögum myndað þriggja
flokka stjórn. I henni sitja 15 ráð-
herrar frá DC, hans eigin flokki,
niu frá sósialistaflokknum PSI og
þrir frá Lýðveldisflokkinum,
PRI. Það sem gerist við slíka
stjórnarmyndun er fyrst og
fremst það, að Cossiga hefur tek-
ist að vinna bug á sterkri tregðu
innan Sósialistaflokksins, sem
hafði um hrið gert það að yfir-
lýstri stefnu sinni að fara ekki I
stjórn nema kommúnistar væru
með.
Staða kommúnista
Þessi stjórnarmyndun sýnist
leggja I salt um ófyrirsjáanlegan
tima hugmyndir um „sögulega
málamiðlun” sem gerðu ráö fyrir
samábyrgð tveggja stærstu
flokkanna, kristilegra og
kommúnista á stjórn landsins.
Aldo Moro, sem myrtur var af
Rauðu sveitunum svonefndum,
var fyrir þeim armi Kristilegra
demókrata sem vildi láta reyna á
þennan möguleika, en liðsmenn
þeirrar stefnu munu nú i miklum
minnihluta i flokknum,
Tiðindin hljóta að vera nokkuð
áfall fyrir formann kommúnista,
Berlinguer, sem hefur um nokkra
ára skeið lagtá þaðmikla áherslu
að ekki sé hægt að stjórna ítaliu
án kommúnista. Astæðurnar fyrir
þvi, að kommúnistar hafa sótt
það allfast að komast i rlkisstjórn,
um herskárri hluta flokksins
vonbrigðum og hugarvili. I
stjórnarandstöðu mun ekki fara
eins mikið fyrir slikum ágrein-
ingi.
Sósialískur hikandi
PSI, Sósíalistaflokkurinn
gengur ekki einhuga til stjórnar-
samstarfs. Sem fyrr segir höfðu
foringjar hans um alllangt skeið
lagt á það áherslu að flokkurinn
þyrfti að vera samferða
kommúnistum inn i stjórn. Flokk-
arnir eiga mikið samstarf sin i
milli bæði I verkalýðshreyfing-
unni og i héraða- og borgarstjórn-
um, og auk þess óttast Sósialist-
ar, að séu kommúnistar einir i
stjórnarandstöðu, muni þeir njóta
góðs af atkvæðum óánægðra
vinstrisinna. Muni þar með auk-
ast munurinn á fylgi verkalýös-
flokkanna, en kommúnistar hafa
nú nálægt þrisvar sinnum meiri
stuðning en PSI. Má vera að hin
nýja staða leiði til þess að all náin
samvinna takist milli vinstri
arms sósialista og PCI.
Báknið og
hermdarverkin
Hin nýja stjórn Cossiga setur
þrjú mál efst á dagskrá. Hiö
fyrsta er að gera endurbætur á
rikiskerfi sem mjög er bólgið og
þrútið. Hér er um að ræða það
fyrirbæri sem kallað er
clientelismo, og lýtur að þvi, að á
löngum og óslitnum valdaferli
Kristilegra demókrata, hefur
þróast með þeim ýmisleg spilling
i embættisrekstri, mikil viðleitini
til að hygla „sinum” mönnum eða
troða þeim inn i opinber störf á
öllum mögulegum og ómöguleg-
um forsendum. Ef ætti að taka
þessum málum tak væri um leið
verið að hrófla við sjálfu valda-
kerfi DC, og þvi er varla liklegt að
þetta stefnumál verði meira en
orðin tóm.
I öðru lagi setur stjórn Cossigas
Verkfall I Róm I janúar: sóslaiistar verða milli steins og sleggju.
skýringum á þvi að Cossiga tókst
loksins að mynda meirihluta-
stjórn. Laun hækkuðu nokkuð
meira en verðlag, og greiðslu-
jöfnuður við útlönd varð
jákvæður um sex milljarði
dollara. Kemur þetta fram i
nýlegri skýrslu frá OECD.
Skýrslan er að sönnu ekki trúuð á
að italskt efnahagslif hafi hrest til
langframa. Hún spáir þvi, að á
seinni hluta ársins verði aftur
samdráttur og atvinnuleysi muni
enn aukast.
Og eins og venjulega segja hag-
tölur jafnan aðeins hluta
sögunnar. Hjá OECD er skráð
meðalkauphækkun hjá þeim
hluta verkafólks sem vinnur viö
hefðbundnar aðstæður, sem er
nokkru hærri en hækkun á verði
nauðsynja (20% kauphækkanir,
15% hækkun verðlags). En þessu
verkafólki fer i reynd stöðugt
fækkandi vegna vélvæðingar og
sjálfvirkni. Um leið stækkar her
atvinnuleysingja og ekki siður
þeirra sem vinna fyrir sér með
þvi að taka verk heim til sin, en
slik framleiðsla stendur nú með
miklum blóma við hliðina á tölvu-
byltingunni. Og hin „svarta
vinna” sem unnin er við eldhús-
borðin og verkalýðsfélögin eiga
erfitt með að fylgjast með, gefur
kapitalistum færi á að spara mjög
mikið bæði i verksmiöjuhúsnæöi
og launatengdum gjöldum.
Sósialistar hafa fengið inn i
stjórnarsáttmálann ákvæði um
lækkun skatta á lægstu laun,
stuðning við fátæktarhéruð
Suður-Italiu og ibúðabyggingar á
félagslegum grundvelli. Þegar
litið er á pólitiskt og efnahagsiegt
ásigkomulag landsins i heild er
hætt við þvi, að efndir i þessum
málum sem öörum verði mjög i
skötuliki. Þá kynni það innan
tiðar að verða sósialistum veru-
leg freisting að taka upp á lands-
mælikvarða samflot við
kommúnista, sem nú búa sig
undir harða stjórnarandstöðu.
UNGIR /EÍTl ALDNIR ERU mEÐ