Þjóðviljinn - 01.06.1980, Blaðsíða 11
Sunnudagur 1. júni 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐÁ 11
Rætt vid Hörd
Guðbjartsson
skipstjóra
á skut-
togaranum
Guðbjarti
frá isafirði
Vestfirsku togararnir
hafa allmikla sérstöðu inn-
an skuttogaraf lotans og
kemur þar margt til. Fyrir
þá er ekki nema 6—7
klukkustunda stím á miðin;
þeir geta því brugðið sér
inn og landað, komi slæmt
veður, meðan þeir togarar
sem lengra eiga heim,
þurfa að halda sjó.
Vestfirsku togararnir fá
löndun strax og þeir koma í
höf n, sama hvort er á nóttu
eða degi, virkan dag eða
helgan. Vegna þessa meðal
annars er afkoma þeirra
betri en annarrafiskiskipa
hér á landi. Á dögunum
þegar blaðamaður
Þjóðviljans var staddur á
(safirði var togarinn
Guðbjartur IS í höfn og
haldið var á fund skip-
stjórans, H a r ð a r
Guðbjartssonar til að ræða
þessi mál og fleiri,
varðandi veiðiskap skut-
togaranna. Hörður var
fyrst spurður álits á tak-
mörkun þorskveiðanna,
sem verður meiri í sumar
en áður hefur verið.
Alltof stór f loti
— Sú ákvörðun aö leyfa ekki að
veiða nema 350 þúsund lestir af
þorski i ár er auðvitaö aögerð
sem nýtur takmarkaðra vinsælda
hjá sjómönnum, en vissulega
skiljum við þetta sjónarmið og
sættum okkur við þaö. Mér sýnist
sem að þróunin i þessum málum
hjá okkur sé að verða svipuð og i
landbúnaöinum. Búin eru of mörg
og of stór, en hjá okkur er flotinn
oröinn alltof stór og nýtist þvi
ekki sem skyldi og við sjómenn
erum ekki ánægðir með þróunina.
En þaö sem verra er, enn er veriö
aö stækka fiskiskipaflotann, sem
er aðeins ávisun á minni afla hjá
okkur. 1 hvert skipti sem nýtt skip
kemur til veiða minnkar þaö
magn sem skipin sem fyrir eru
mega veiða. Siðan er okkur att út
I að veiöa verölausar fisk-
tegundir, eins og grálúðu, en verð
á henni hefur veriö óbreytt sl. 3
ár. I þvl 150 til 160 daga þorsk-
veiðibanni sem veröur i ár er okk-
ur att út i þetta bara af þvi að
skipin verða að veiða, sama
hvaða rusl er og sama hvað fyrir
þaö fæst. Þetta er hneyksli,
skripaleikur eintómur.
Vanbúin móttaka
— Ofan á þetta bætist siðan, að
vinnslan i landi, alla vega hér á
tsafirði, er vanbúin þvi að taka
viö öörum fisktegundum en
þorski og ýsu. Allar vinnsluvélar
erú miðaðar viö þær tegundir og
sama er að segja um fólkið, það
er innstillt inná að vinna þessar
fisktegundir. Þegar við svo kom-
um meö karfa eöa grálúðu, þá er
rétt eins og viö séum aö gera
einhvern óskunda með þvi að
koma með þetta að landi.
— Ef við snúum okkur aðeins
að þorskfriðuninni sem slikri,
hvert er þitt álit á þvi máli?
— Ég hygg að það sé samdóma
álit allra togaraskipstjóranna að
friðunin sé nauðsynleg. Um hitt
geta verið deildar meiningar
hversu langt á aö ganga og
hvernig best verður að henni
staðiö i framkvæmdinni. Hitt þori
ég að fullyrða aö fiskifræöingarn-
ir okkar hafa ekki tæki og eru
ekki tæknilega i stakk búnir til að
segja til um stærð hrygningar-
stofnsins. Þeirra tölur eru meira
eða minna ágiskun. Ég er ekki að
segja þetta þeim til hnjóös, siður
en svo, þeir hafa bara ekki þau
tæki, sem þarf til að segja til um
þetta. Þeir geta ekki sagt til um
þetta, svo ekki geti skakkað 100
þúsund tonnum.
Þorskstofninn á uppleið
Telur þú þá að hrygningar-
stofninn sé stærri en þeir gefa
upp?
— Um það skal ég ekkert segja,
ég get það ekki frekar en þeir, en
um hitter ég sannfærður að stofn-
inn er á uppleiö, sem betur fer.
Ég vil aðeins skjóta þvi hér inni,
að ég tel að efla þurfi stórum
rannsóknir á þorskstofninum og
búa fiskifræðingana sem allra
best tækjum i þvi skyni. Ég er
ósammála fiskifræöingunum um
margt. Til að mynda telja þeir
fiskinn miklu staöbundnari en
hann er. Ég lit á allt N-Atlants-
hafið sem eitt veiðisvæði. Ég er
alveg sannfærður um, aö fiskur-
inn fer um allt svæöið þegar hann
er i ætisleit. Þetta allt og margt
fleira tel ég að þurfi aö rannsaka
betur en gert hefur verið.
...og erum svo látnir
veiða grálúðu bara
til að skipin séu að
veiðum, þótt ekkert
fáist fyrir grálúðuna.
...yfir veturinn, þegar
veður eru verst,
olíueyðslan mest og
erfiðast að draga fisk
úr sjó, megum við
veiða þorsk', en á
sumrin, þegar best
er að veiða,
olíeyðslan minnst
og vinnan léttust
er sett
bann á okkur
.. fiskifræðingarnir
eru ekki tæknilega
útbúnir til að segja
nákvæmlega til um
stofnstærð þorsksins,
það hlýtur að skeika
minnsta kosti 100
þúsund tonnum
Á móti kvótakerfinu
Nú eru uppi ýmsar skoðanir á
þvi hvernig best sé að
framkvæma þær veiðitakmark-
anir á þorski sem taldar eru
nauösynlegar, þar á meöal hafa
menn nefnt kvótakerfiö, hvert er
þitt álit á þvi?
— Ég er þvi heldur andvigur,
tel það tvieggjað. Skip eru mis-
stór og misdýr I rekstri. Eitt skip
er alveg nýtt og afborganir mikl-
ar, annaö er að fullu afskrifaö og
svo eiga öll þessi skip að fá að
veiöa sama magn yfir árið. Ég
hygg að slikt myndi aldrei ganga.
Nú er þaö þannig aö menn leggja
mismikið á sig við veiðarnar, þeir
sem standa i skuldabasli eöa
gera út dýrari skip eru duglegri
en hinir, eða kannski réttara sagt
iðnari. Þar viö bætist svo að meö
kvótakerfi er allri ábyrgö velt af
útgerðinni. Útgerðarmenn
myndu segja sem svo, tapiö er
svo og svo mikið, skipin fá ekki aö
veiða meira, nú veröur rikið aö
hlaupa undir bagga. Nei, ég held
að kvótakerfi yrði afleit lausn i
þessu máli.
Þrældómur
Farið þið ekkert á karfa i
þorskveiðibanninu, aðeins
grálúöu?
— Já, við erum eingöngu á
grálúöuveiðum. Það er svo langt
á karfamiðin fyrir okkur og þess-
ir togarar ekki nógu buröarmiklir
til aö það borgi sig að sækja
þangað. Sunnlensku togararnir
gera þaö aftur á móti enda stutt
fyrir þá að fara. Hinsvegar er
þetta grálúðuskrap ömurlegt, viö
fáum ekkert fyrir aflann, en vinn-
an um borð er þrældómur. Menn
eru hreinlega útkeyrðir eftir tvo
túra á grálúðu. Aflinn hefur veriö
mikill, viö fyllum skipið á fjórum
dögum eða svo, en vinnan er llka
alveg stanslaus á meðan. Menn
standa i aðgerð þetta 18 til 19 tima
á sólarhring, þaö er hreinlega
unniö eins og menn orka. Og eins
og ég sagöi áðan bætist svo ofan á
að ekkert fæst fyrir grálúöuna,
verðiö er ekki helmingur af
þorskverði. En fyrir 7—8 árum
var grálúða I hærra veröi en
þorskur. Hún er hinsvegar ekkert
verðbætt núna eins og karfi og
ufsi, þannig aö mönnum þykir
þetta heldur daufleg vist.
Allt bitnar þetta á okkur
— Varðandi þorskveiðibannið
þá er aldrei neitt tillit tekið til
okkar sjómannanna né
hagkvæmnissjónarmiöa. Sjáöu
til: Yfir vetrarmánuðina þegar
veður eru verst, ollueyösla mest
og erfiðast að draga fisk úr sjó,
megum við veiða þorsk. En svo
þegar komið er sumar, vinnan er
léttust, oliueyöslan minnst og
minnst fyrir öllu haft, þá er sett á
okkur bann. Ég tel að skynsam-
legra væri að leyfa bara að veiða
þar til heildarkvótinn er orðinn
fullur og stoppa þá. Eftir það
gætu skipin þá farið á þessar
skrapveiðar, grálúðu, karfa eða
ufsa. Ég held aö það sé nauðsyn-
legt aö taka hagkvæmnissjónar-
miöin inni dæmiö lika.
Margt sem kemur til
Er það eingöngu vegna þess
hve stutt er á miðin að afkoman á
vestfirsku togurunum er betri en
á öðrum togurum?
— Þaö á stóran þátt i þvi, en
margt fleira kemur til. Við erum
svona 6 til 8 stundir að sigla á
miöin, en aðrir togarar 12 til 16
tima. Það sem ég tel að valdi
mestu um hve vel gengur hjá okk-
ur er hve við höfum mikinn
sveigjanieika i sambandi við
löndun. Hér á Isafirði geta 3
togarar landað samtimis og það
er alveg sama hvenær við komum
inn, aö nóttu eöa degi, helga daga
eða virka, við fáum alltaf löndun
strax. Það, hve stutt er á miðin
kemur okkur til góða með þeim
hætti að ef við erum búnir að fá
einhvern afla og veður versnar
þannig að ekki er hægt aö veiöa,
þá förum við einfaldlega inn og
fáum löndun með þaö sama og
getum svo veriö komnir út aftur
þegar lygnir. Þetta geta aðrir
togarar ekki. Og við skipstjórarn-
ir erum algerlega einráðir um
það hvenær við komum aö landi. í
þeim efnum segir enginn okkur
fyrir verkum og þaö munar
miklu, skal ég segja þér.
Að lokum Hörður, menn segja
aö þénusta ykkar á vestfirsku
skuttogurunum sé góð?
— Já, hún er það, en gættu að
þvi, þaö er unnið fyrir hverri
krónu, þar vantar ekkert uppá.
Þeir sem hæst hafa um þénustu
akkar sjómanna á skuttogurun-
um ættu að prófa vinnuna; ég er
ekki vissum að þeir myndu hafa
ains hátt um krónutöluna á eftir.
— S.dór