Þjóðviljinn - 27.06.1980, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 27.06.1980, Blaðsíða 3
Föstudagur 27. jlinf 1980. ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 3 Jafnréttisráö: Ekki rætt forseta- framboðin Vegna athugasemda sem fram hafa komiö i 29. jilní, blaöi stuön- ingsmanna Péturs Thorsteins- sonar, dags. 26. júni 1980, hefur Jafnréttisráö sent frá sér eftir- farandi: „Jafnréttisráö hefur ekki til þessa rætt um frambjóöendur til forsetakjörs 1980 á fundum sinum og Jafnréttisráö hefur hvorki skoraö á konur né karla aö kjósa ákveöinn frambjóöanda til for- setakjörs.” skrifstofa VIGDÍSAR FINNBOGADÓTTUR Laugavegi17 s:26114-26590 utankjörstaðasími 26774 Dagblaðskönnunin: Sömu línur t gær birti Dagblaöiö úrslit i skoöanakönnun um fylgi forseta- frambjóöenda sem gerö var á þriöjudag og miövikudag. Varö Vigdis Finnbogadóttir hæst meö 24.2% (haföi 20.8% Islöustu könn- un blaösins), Guölaugur fékk 23% (áöur 25%), Albert 14.3% (áöur 12.5%) og Pétur 9.5% (áöur 6.3%). Óákveönir voru nú 22.3% (áöur 29.8%) en 6.7% neituöu aö svara (áöur 5.3%). Rauðsokkar: Veljum VIGDÍSI Refsivert aö kjósa tvisvar Ulla í kaffi Danska skáldkonan Ulla Dahle- rup er stödd hér á landi og kemur i morgunkaffi til Rauösokka á Skólavöröustig 12 á laugardaginn kl. 11. Hún ætlar aö spjalla viö Islenska jafnréttissinna um reynslu sina af kvennabaráttu i Danmörku o.fl. og heyra hvernig málum er háttaö hér hjá okkur. Nánar um Ullu i blaöinu á morg- un. —hs Ulla Dahlerup Helgarskákmót í Borgarnesi: Helgi með flest stig Með sterkustu innlendu skákmótum Annaö helgarskákmót sumars- ins fer fram I Hótel Borgarnesi um helgina. Flestir bestu skák- menn landsins eru meöal þátt- takenda. Mótið hefst i dag kl. 14 og verða tefldar tvær umferðir eftir nokkurs konar Monradkerfi fram á sunnudag. Há verölaun eru i boöi, þrjú, tvö og eitt hundraö þúsund kr. fyrir efstu þrjú sætin,sérstök kvenna- og unglingaverölaun og bóka- verölaun fyrir óvænt úrslit, besta útkomu miöaö viö stig og jafn- teflismetiö. Þrlr unglingar á svæöi Skáksambands Vestur- lands fá ókeypis þátttöku I mót- inu, en mótsgjald er 10 þúsund krónur. Þá hefur Skáksambandiö ákveöiö aö bjóöa einum unglingi frá Bolungarvik og Akureyri þátttöku í mótinu. TIu efstu menn fá punkta til aukaverölauna sem eru ein miljón króna fyrir flesta punkta i þeim fimm helgarmótum sem stefnt er aö i sumar. Eftir fyrsta helgarmótiö I Keflavik standa stig þannig: 1. Helgi Ólafsson 25 p., 2. Margeir Pétursson 15, 3. Friörik Ólafsson 12, 4, Guömund- ur Sigurjónsson 10, 5. Jón L. Arnason 8, 6. Hilmar Karlsson 6, 7. Jóhann Hjartarson 4, 8. Sævar Bjarnason 3, 9. Guömundur Ágústsson 2, 10. Pálmar Breiö- fjörö 1 p. Helgarskákmótin veröa tvimælalaust meö sterkustu skákmótum sem hér hafa veriö haldin innan lands án þátttöku erlendra skákmanna. Hótel Borgarnes býöur I tilefni þess aö þaö er aö opna nýja álmu sérstakt kynningarverö fyrir gistingu og fæöi. Er þaö 50 þúsund kr. fyrir manninn yfir mótstim- ann og 35 þúsund i svefnpoka- plássi. Timaritiö Skák og Skáksam- band Islands standa fyrir helgar- skákmótinu i Borgarnesi i sam- vinnu viö Hóteliö, hreppsfélagiö og Skáksamband Vesturlands. Skákstjóri veröur Jóhann Þórir Jónsson. Aöstaöa fyrir áhorfend- ur er i þokkalegu lagi og veröa skákirnar á efstu boröum sýndar á sýningarborði. Aögangseyrir á mótinu er 1000 kr. daglega. —ekh Dómsmálaráðuneytiö hefur aö gefnu tilefni vakiö athygli á aö kjósanda er ekki heimilt aö senda frá sér fleiri en einn utankjör- fundar kjörseöil við sömu kosn- ingar. Viö þessu er beint bann I 64. grein kosningalaganna og sektarrefsing liggur við Tilefni ráöuneytisins var auglýsing stuöningsmanna Pét- urs Thorsteinssonar að „kjósanda sem neytt heföi kosn- ingaréttar sins utan kjörfundar væri leyfilegt aö kjósa aftur annaðhvort utan kjörfundar eöa á kjörstaö. Teppi ofið al 1000 fingrum i myndsmiðju „Umhverfis 80” var afhent borgarstjórn I gær. Sigurjón Pétursson tók við teppinu en þau sem afhentu það voru Dóra Thoroddsen, Borghildur óskarsdóttir, Unnur Jónsdóttir, Sigurður Þórir Sigurðsson, Bjarni Danielsson og Jóhanna Bogadóttir. (mynd Ella) Teppi ofið af 1000 fingrum afhent Reykjavíkurborg Veggteppi ofiö af 1000 fingrum var I gær afhent Reykjavíkur- borg. Það voru aöstandendur Umhverfis 80 sem afhentu verkiö en þaö var unniö I myndsmiöjunni I Breiöfiröingabúö sem starfaöi meöan á Listahátiö stóö. Sigurjón Pétursson tók viö teppinu fyrir hönd borgarinnar og var þaö hengt upp i Laugardals- Alyktun 43-manna nefndarinnar: Atvinnurekendur orda kauplækkun 43-manna nefnd ASl samþykkti i gær ályktun þar sem fordæmd eru vinnubrögð atvinnurekenda og rakinn gangur mála frá þvi að samþykkt var að ganga til samn- ingaviðræðna við VSl 29. mai sl. Segir þar að viðræðunefnd ASt ásamt sérsamböndum þess hafi á undanförnum vikum lagt mikla vinnu i að setja sérkröfur sam- bandanna i samræmt launakerfi og komið þar með til móts við kröfur VSt. Þessar tillögur fékk VSI siöan 19. júni og fengu atvinnurekendur eölilegan umþóttunartima en þá bregöur svo viö aö þeir neita meö öllu aö ræöa flokkaskipanina nema ASl falli frá kröfu sinni um aö beita visitölunni til hækkunar iægstu launa. Aftur á móti lögöu atvinnurekendur ekki fram nein- ar tillögur um þaö hvernig hækka skuli lægstu laun. Sáttanefnd rikisins mæltist til aö VSl endur- skoöaöi afstööu sina en ' It kom fyrir ekki. Siöan segir I ályktuninni orö- rétt: „Á sáttafundi i gærmorgun haföi afstaöa Vinnuveitendasam- bandsins hins vegar harðnaö þvi þá var gerö krafa til þess aö I staö viöræöna um flokkaskipun yröu viöræöur einskoröaöar viö kröfu- gerö VSl um mikla skeröingu gildandi samningaákvæöa, svo sem afnám sjúkrasjóöa, lengingu vinnutima og lækkun visitölubóta um meira en helming. A sáttafundinum i gær kom fram þaö sjónarmiö atvinnu- rekendaaö nauösynlegra væri aö ræöa kauplækkun en bætt kjör. Meö þessu háttalagi sinu hleyp- ur Vinnuveitendasambandiö frá einni afstööu til annarrar til þess aö komast hjá raunhæfum samn- ingaviöræöum. Samninganefnd ASÍ fordæmir harölega þessi vinnubrögö Vinnu- veitendasambandsins. 1 staö þess aö koma til móts viö kröfur ASI um endurflokkun láglaunahóp- anna og bætta stööu þeirra meö lágmarksvisitölubótum tala vinnuveitendur um kauplækkun. Hverfi Vinnuveitendasambandiö ekki frá þessari kjaraskeröingar- stefnu sinni neyöir þaö verkalýös- samtökin til aögeröa. Vinnu- veitendasambandiö axlar þunga ábyrgö ef þaö neitar aö halda áfram viöræöum á grundvelli sinna eigin tillagna um sam- ræmda flokkaskipan. Samninga- nefnd ASI krefst þess aö Vinnu- veitendasambandiö endurskoði afstööu sina og gangi til raun- hæfra samningaviöræöna.” höllinni. Teppiö er 2x4m unniö af fólki frá 5 ára aldri og upp i 75 ára. Viö athöfnina i gær fylgdi svohljóðandi ávarp frá Umhverfi 80: Teppiofiöaf 1000 fingrum gesta I myndsmiöju hjá Umhverfi 80 i Breiðfirðingabúö i júni 1980. Gefiö Reykjavikurborg til að minna á hve æskilegt væri aö koma á fót opnu verkstæöi meö leiöbeinendum, þar sem ungir og aldnir gætu fundiö gleði og athvarf.”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.