Þjóðviljinn - 27.06.1980, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 27.06.1980, Blaðsíða 15
Hringið í síma 8-13-33 kl. 9-5 alla virka daga eða skrifið Þjóðviljanum Föstudagur 27. júnl 1980. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15 Húrra fyrir Pavarotti Ein söngelsk hringdi. Mig langar til aö koma á framfæri þakklæti til aöstand- enda Listahátiöar fyrir skemmtilega og liflega Lista- hátiö. Mér er efst i huga tón- leikar Pavarottis, sem er eitt- hvaö þaö stórkostlegasta sem ég hef upplifaö. Meðan fólk sat heima við aö horfa á frambjóö- endurna áttum viö ógleyman- lega stund i Höllinni með Pavarotti. Islenska sinfóniu- hljómsveitin var upp á sitt allra besta og skemmtileg framkoma stjórnandans Adlers og Pavar- ottis spillti ekki fyrir. Mér fannst Pavarotti sýna þaö með sviösframkomu sinni að hann meinar það þegar hann segir aö áhorfendur séu honum allt. Hann breiddi út faöminn og lagöi hendurnar aö hjarta sér þess á milli og lýsti þannig að allt væri þetta gert fyrir okkur sem sátum þarna. Ég segi afiur kærar þakkir og vonandi veröur tapiö ekki mikið á Listahátiö- inni. Pavarotti — i þetta sinn leggur hann viö hlustir. Svar til HP „Ekki hugðist ég leggja orö i belg i þeirri baráttu sem nú stendur um húsbóndasætiö á Bessastööum. En úr þvi þú spyrö HP á 6. siöu Þjóöviljans sl. miövikudag, ef til svo alvar- legra tiöinda dregur i alþjóða málum aö Islensk rikisstjórn teljisig þurfa sérstaks ráögjafa viö, og ætti völ þeirra fjögurra sem þú nefnir, vona ég að hún beri gæfu til að leita til þess þeirra sem gerst þekkir landiö og okkur sem þaö byggjum. Þess þeirra sem er einlægur boðberi friðarins og raunveru- legs manndóms, en ekki fyrst og siöast meistari hráskinnaleika og refskáka. Þess þeirra sem i hvert sinn er nógu mikill maður til aö hlusta af litillæti eftir okkar hugsun og okkar hjarta. Slikur maður er Vigdis Finn- bogadóttir. Henni treysti ég best til aö finna i hverju máli bestu færa leið. Þess vegna kýs ég hana forseta vorn á sunnudag- inn kemur. Og ég veit aö þú gerir þaö lika sértu hugsandi, óvilhallur og fordómalaus maöur. Trausti Ólafsson. frá lesendum Sjónvarp 17. júní Ég hef orö aö leggja i belg um sjónvarpsdagskrána 17. júni sl. enda þótt meira en vika sé liöin frá þeim ágæta degi. Þannig er mál með vexti aö á minu heimili dvelja afi minn og amma, auk foreldra minna sem komin eru á miöjan aldur. Þau sátu heima aö kvöldi þjóö- hátfðardagsins, enda ekkert um aö vera i bænum sem þau fýsti aö sjá. Þess vegna var nú kveikt á sjónvarpinu til tilbreytingar en hvaö var á dagskrá? Langur þáttur meö þeim hundleiöinlegu Svium sem kalla sig ABBA og þáttur meö Þursaílokknum á eftir. Sem sagt allt saman popp. Þursaflokkurinn er vel viö mitt hæfi, en ekki fulloröins fólks. Ég er viss um aö þaö er aöal- lega fulloröiö fólk sem er heima á þessum degi og hvers vegna er þá ekki eitthvað gert fyrir þaö? Krakkarnir sem hafa gaman af ABBA (sem er reyndar mann- skemmandi fyrirbæri, sem flytur lélega tónlist og leggur allt upp úr ljósum og gljápiku- stælum) þau eru úti aö skemmta sér. Þetta er annaö árið i röö sem 17. júní dagskrá sjónvarpsins er meö þessum hætti. Ég beini þeim tilmælum tildagskrármanna sjónvarpsins aö þeir hugsi betur til þess fólks sem heimr. situr,ogekki væri nú tilof mikils ætlast aö sjónvarpiö geröi eitthvaö sérstakt i tilefni dagsins, eða hvaö? Guörún Pálina Fréttamynd ársins? 1 kvöld fiytja frambjóöendur ávörp og þar meö lýkur hinni opinberu kosningabaráttu I rlkisfjölmiölum. (myndgel) Ávörp frambjóðenda Sjónvarp kl. 21.05 Forsetaefnin ávarpa þjóö- ina i kvöld I beinni útsendingu sjónvarpsins. Þessi þáttur verður hiö siöasta sem til þeirra heyrist á opinberum vettvangi fyrir kosningar, svo aö þeir sem hafa ekki enn tek- iö afstöðu fá nú siöasta sjens. Röö frambjóöendanna er þessi: Vigdis Finnbogadóttir, Albert Guömundsson, Guð- laugur Þorvaldsson og Pétur Thorsteinsson. —ká Keppninni er lokiö meö sigri. Hvaö tekur svo viö? Drottningardagar n Sjónvarp CkL 21,55 Drottningardagar heitir frönsk kvikmynd sem er á dagskrá sjónvarpsins i kvöld. Þar segir frá ungri skrifstofu- stúlku 18 ára gamalli sem tekur þátt i feguröarsam- keppni i von um frægö og frama. Þetta efni ætti að vera okkur Islendingum einkar hugstætt þvi i allan vetur og fram eftir vori hafa dýrkendur kvenkroppa þeyst um landiö i leit aö hinni sönnu fegurö sem auövitaö felst i mjúkum linum en ekki þvi sem undir býr. Ekki vitum vér hvort þaö eru feröaskrifstofur og umboös- menn snyrtivara sem standa aö keppni þeirri sem sýnd er i myndinni, en fróölegt veröur aö sjá hvort hamingjan felst I þvi aö spóka sig um á sviöi og lága vega sig og meta. Myndin hefst kl. 21.55, en meöal leik- ara eru: Anne Papillaud, Olivier Destrex, Henri Marteau og Roger Dumas. — ká Sinfónluhljómsveit lslands stóö I ströngu á Listahátiöinni. Myndin var tekin á útitónleikum á Lækjartorgi, en I kvöld veröur útvarpaö frá tónieikum i Háskóiabiói 1. júni sl. ,Úr nýja heiminum’ Viö njótum enn þá Lista- hátiöar, þvi útvarp og sjón- varp eiga i sinum fórum efni sem tekiö var upp og veröur sett á dagskrá smám saman. I kvöld gefur aö heyra siöari hluta tónleika Sinfóniuhljóm- sveitar Islands sem voru i Há- skólabiöi á fyrsta degi Lista- hátiöar. A efnisskrá er ,,úr nýja heiminum” eftir Antonin Dvorák, en hljómsveitarstjóri er Rafael FrQbeck de Burgos. Dvorák sem var Tékki, dvaldi i þrjú ár i Bandarikjun- um og segir i bókum aö sá timi hafi verið frjóasta skeiöið i tónlistarsköpun hans. Þá samdi hann verkið „tlr nýja heiminum” þar sem gætir áhrifa frá tónlist indiána og svertingja auk þeirrar tékkn- esku arfleiföar sem Dvorák var svo kær. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00, kynnir er Baldur Pálmason. — ká Útvarp kl. 20.00

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.