Þjóðviljinn - 01.07.1980, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 1. júli 1980.
MOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs
hreyfingar og þjóðfrelsis
Otgefandi: (Jtgáfufélag ÞjóDviljans
Framkvæmdastjóri: EiBur Bergmann
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Kjartan ölafsson
Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir.
Auglýsingastjóri: Þorgeir Ölafsson.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaós: Þórunn Siguróardóttir
Rekstrarstjóri: Olfar Þormóösson
Afgreiðslustjóri: Valþór Hlöbversson
Blaðamenn: Alfheibur Ingadóttir, Einar örn Stefánsson, Guójón Friöriks-
son.Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson.
Þingfréttir: Þorsteinn Magnússon.
tþróttafréttamaður: Ingólfur Hannesson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Ellsson
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar.
Safnvörftur:Eyjólfur Arnason.
Auglýsingar: Sigríftur Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa :Guftrún Guftvarftardóttir.
Afgreiftsla: Kristln Pétursdóttir, Bára Halldórsdóttir, Bára Sigurftardóttir
Slmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigrlftur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Bárftardóttir.
Húsmóftir: Jóna Sigurftardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Otkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guftmundsson.
Ritstjórn, afgreiftsla og auglýsingar: Slftumúla 6, Reykjavfk, slml 8 13 33.
Prentun: Blaftaþrent hf.
„Svo gaman
fyrir heiminn ”
• Enn þá gerast ævintýr. 29. júní 1980 fær virðulegan
sess í hópi helstu merkisdaga þjóðarinnar. Það er dagur-
inn þegar Vigdís var kjörinn forseti.
• Kjör Vigdisar Finnbogadóttur er ekki aðeins merkur
íslenskur atburður. Hann hefur tvímælalaust alþjóðlegt
gildi. „Þetta er svo gaman fyrir heiminn", varð
stuðningsmanni að orði á sigurstundinni. Og satt er það
að síst er vanþörf á gleðitíðindum í henni veröld eins og
hún er full með ótíðindi dag hvern.
• Forsetakosningar á fslandi hafa sérstöðu. Það mun
hvergi tíðkast að „valdalaus" þjóðhöfðingi sé kjörinn í
beinum almennum kosningum nema hér. Og þjóðin lætur
sér sannarlega ekki standa á sama hver skipar þann sess
að vera samnefnari þess besta sem hún á. Enginn maður
er ósnortinn af þeirri baráttu sem háð var af miklu kappi
fyrir kosningarnar. Sagan sýnir að undirstraumarnir í
forsetakosningum eru fyrirboðar þess sem með einum
eða öðrum hætti kemur fram í fslenskum þjóðmálum.
• Forsetakosningarnar 1968 voru eindregin skilaboð
frá þióðinni um mat hennar á forsetaembættinu. Skila-
boðiri nú eru að sjálfsögðu ekki eins ótvíræð vegna þess
að fleiri en tveir voru í kjöri og sýnt frá byrjun að allir
frambjóðendur ættu sterk ítök meðal þjóðarinnar. Samt
verður það ekki dregið í ef a að Vigdís Finnbogadóttir er
verðugur arftaki dr. Kristjáns Eldjárn á forsetastóli og
mun bera með reisn það merki sem hann hefur haldið
hátt á loft frá því í „uppreisninni" 1968.
• Þegar reynt er að slá máli á þann atburð sem ís-
lenska þjóðin hefur leyft okkur að verða aðnjótandi
kemur spurning upp í hugann: Hvar í heiminum hefði
það gerst í dag að ógift kona með kjörbarn hefði náð
kosningu til æðsta embættis þjóðarinnar án bakhjarls i
ættarveldi eða voldugri stjórnmálahreyf ingu? Oneitan-
lega verður það helst fyrir að svara HVERGI. En eftir
kjör Vigdísar á Islandi gæti það hvarvetna orðið líklegra.
# Um þrjátíu og f jögur prósent þjóðarinnar kusu Vig-
dísi í þessum kosningum og miklu, miklu fleiri viður-
kenndu hana sem gott forsetaefni og lofuðu kjark
hennar, framkomu og málflutning. Engin vandkvæði
ættu þessvegna að vera á því að landsmenn allir líti á
Vigdisi Finnbogadóttur sem sinn forseta. íslendingar
hafa sýnt að viðjar vanans og fordómar um verkaskipt-
ingu kynjanna eru þeim ekki fjötur um fót þegar á
reynir.
• Glæsilegur fulltrúi íslenskrar menningar tekur nú
senn við merki dr. Kristjáns á Bessastöðum. Úr hinu
táknræna embætti mun hún tala á því táknmáli jafn-
réttishugsjónarinnar sem verður fyrirmynd dætra lands-
ins. Þeir eru og ófáir karlmennirnir sem nú telja sig
hafa greitt ógoldna skuld við mæður, eiginkonur og
minningu góðra kvenna með kjöri Vigdísar.
• Enn einu sinni hefur það sannast að íslendingar
tengja forsetaembættið og sjálfstæðið sterkum böndum.
Forsetaframbjóðandi er síður en svo látinn gjalda þess
að hafa staðið einarðlega gegn skaðlegum erlendum
menningaráhrif um og erlendu hervaldi. Fólk ætlast til
þess að forsetinn sé likt og landvættirnir forðum f yrst og
fremst gæslumaður þjóðmenningar og sjálfstæðis.
• Það er gott vegarnesti fyrir Vigdísi Finnbogadóttur í
embætti forseta Islands að ekki hefur fallið blettur á
baráttu stuðningsmanna hennar. Það sem þá skorti á at-
vinnumennsku í áróðursstríðinu bættu þeir fyllilega upp
með yfirvegaðri og prúðmannlegri framkomu.
• Forseti hefur verið kjörinn og sigurvegarinn er að-
eins einn. Enginn hef ur þó tapað vegna þess að það tapar
enginn á því að kynnast þjóðinni með þeim hætti sem
allir frambjóðendur gerðu í aðfara kosninganna. Þjóð-
viljinn óskar íslensku þjóðinni til hamingju með kjör
Vigdísar Finnbogadóttur. —ekh
klippt
j Ofurmannaspil?
Kosningabaráttan fyrir for-
J setakosningarnar var hörö og
Ióvægin fyrir þá sem i framboöi
voru. Auglýsingamennska,
vinnustaöafundir, framboös-
, fundir um land allt og áróöurs-
Iskrif i dagblööin — allt var þetta
upp á nútimavisu meö miklum
fyrirgangi.
, Margir hafa talaö um þaö
Ifeiknaálag sem hlýtur aö hafa
veriö á frambjóöendunum siö-
ustu tvo mánuöina. Þaö er næst-
, um ómennskt og mætti vel huga
Iaö þvi aö ekki má ofgera fram-
bjóöendum i kosningum.
Nokkur hætta viröist vera á þvi
, aö stjórnmálamennska og kosn-
Iingabarátta sé aö veröa af þvi
taginu aö engum nema ofur-
mennum ætlandi sé.
, Hættan er sú aö úr frambjóö-
Iendum sem settir eru undir slikt
álag veröi einhverskonar vél-
menni, auglýsingavara sem
. endanlega veröur aö neita sér
um öll mannleg samskipti til
þess aö passa viö þá Imynd um
ofurmenniö sem er meira eöa
minna tilbúin.
nægt til þess aö senda tólf menn
inn á þing i alþingiskosningum
og er þaö betur aö veriö en bæöi
Alþýöuflokkurinn og Alþýöu-
bandalagiö gera nú.
Guölaugur Þorvaldsson hefur
án efa styrkt stööu sina mjög,
var nærri þvi aö ná kosningu og
ætti aö geta nýtt þaö traust sem
hann hefur fengiö i forsetakosn-
ingunum i starfi sinu sem sátta-
semjari rikisins. Pétur J. Thor-
steinsson þekkti þjóöin litiö áöur
en hann bauð sig fram. Heimar
utanrikisþjónustunnar kunna aö
vera glæstir á yfirboröinu en al-
menningur þekkir sáralitiö til
þeirra. Hann hefur unniö þaö aö
landsmenn þekkja hann nú og
störf hans. Úr þvi mætti spila á
ýmsan hátt eftir þvi sem Pétur
Thorsteinsson hefur hug á.
Réttur andi
I ööru lagi fer ekki á milli
mála aö sá frambjóöandi hlaut
kosningu sem minnsta atvinnu-
mensku haföi i frammi kringum
sitt framboö. Helstu forvigis-
menn framboösins á aöalskrif-
stofunni i Reykjavik eru nú
reynslunni rikari en voru lítt
reynt kosningafólk fyrir þessa
kosningabaráttu. Hinsvegar
rikti réttur andi I þeim herbúö-
um og mikil nákvæmni i smekk-
vilja telja nokkuö altæk eru ekki
eins mikil og stundum er látiö.
öllum frambjóöendum fataöist
meira og minna I beinum út-
sendingum sjónvarpsins, enda
skammur timi til undirbúnings,
og I raun fáránlegt aö setja for-
setaframbjóöendur undir þá
aukapressu sem beinar útsend-
ingar hafa i för meö sér. Slikt
var algjörlega ástæöulaust og
þau áttu öll rétt á þvi t.d. aö
flytja mál sitt á lokaspretti
kosningabaráttu hnökralaust.
En þaö skiptir ekki öllu þvi fólk
lagöi viö eyru og var fyrst og
fremst aö hlusta á hvaö fram-
bjóöendur sögöu.
Suðupottur
I fjóröa lagi er þaö ánægjulegt
aö eiga þess kost aö finna nýja
samherja i slikri kosningabar-
áttu. Enginn skyldi vanmeta
þau tengsl sem takast milli
manna úr óllkum stjórnmála-
flokkum og fulltrúa ólikra viö-
horfa sem sameinast um fram-
boö ákveöinnar persónu. 1 litlu
þjóöfélagi getur slikt skipt sköp-
um þvi á vissum stundum
kemur samvinna I staö átaka ef
leysa á deilur i lýöræöis-
þjóöfélagi, og þaö er ekki endi-
lega vist aö þær gryfjum sem
stiórnmálaflokkar grafa á milíi
• Kjörnum forseta fagnaö viö heimili hennar i morgunsáriö i gær. Ljósm. gel.
| Einstætt tœkifæri
■ Þótt lesa megi tilhneigingar I
Iþessa átt úr nýlokinni kosninga-
baráttu sem vissulega eru þess
eðlis aö þær ber aö íhuga er þó
• margt svo sérstætt og ánægju-
Ilegt úr baráttunni aö þaö vegur
hitt upp.
I fyrsta lagi er þaö þetta ein-
■ stæöa tækifæri sem fjórir menn
Ihafa fengið til þess aö kynnast
allri þjóöinni. Einn þeirra var
kjörinn forseti en hinir eru
• heldur ekki samir menn eftir.
IAlbert Guömundsson til aö
mynda er ekki lengur Reykja-
vikurpólitikus heldur stjórn-
• málamaöur á landsmælikvaröa.
Fylgi hans I kosningunum heföi
visri framkomu. Ymis
„áróöursslys” sem hentu stuön-
ingsmenn hinna frambjóöend-
anna komu ekki fyrir hjá stuön-
ingsmönnum Vigdisar og þeir
skila henni i forsetaembættiö án
nokkurs leiöindaslóöa.
Atvinnumennskan segir sem
sagt ekki allt i kosningum hér á
Islandi — og forseti verður ekki
búinn til meö auglýsingum. Þaö
er vel,' aö svo er enn.
Fólkið hlustaði
I þriöja lagi mætti nefna aö
áhrif sjónvarpsins sem margir
manna séu eins óbrúanlegar og
menn vilja vera láta þótt hver
vilji jafnan halda sinu.
Svona mætti lengi telja og aö
öllu samanlögöu eru forseta-
kosningar á tslandi slikur
kraumandi suöupottur aö af
þeim geta miklar gufur oröiö og
langvarandi i þjóömálabarátt-
unni. Ein alvitlausasta pólitiska
kenning sem heyrst hefur á
landinu er sú aö forsetakosn-
ingar séu svo ómerkilegar aö
ekki sé hægt aö koma nálægt
þeim. Þaö eru miklir marsbúar
i pólitik sem halda sliku fram.
— ekh
09 skorið
Brýnast úrlausnar í heilbrigðismálum:
Hjúkrunar- og dag-
deíldir fyrir aldrada
Skortur á hjúkrunar- og dag-
deildum fyrir aldraöa er aö áiiti
lækna eitt brýnasta úrlausnarefn-
iö i heilbrigöisþjónustunni, aö þvl
er fram kemur I einni af ályktun-
um þeim sem samþykktar voru á
aðalfundi Læknafélags Islands á
Húsavik um miðjan mánuö.
Aöaimái fundarins voru rekstur
og stjórn heilsugæslustööva og
endurskoöun læknalaga.
Fundurinn fagnaöi því
samstarfi, sem tekist hefur milli
lækna, atvinnurekenda og
launþega um vottoröamál og var
stjórn L.í. faliö aö vinna aö þvi, i
samráöi viö áöurnefnda aöila, aö
læknisvottorö til atvinnurekenda
leggist niöur, sé um aö ræöa fjar-
vistir I 3 daga eöa skemur.
Samskonar ályktun var gerö um
fjarvistarvottorö fyrir skólafólk
vegna skammtima veikinda.
Um leiö og heilbrigöisráöherra
var þakkaö frumkvæöi i undir-
búningi aö mótun nýrrar
heildarstefnu i heilbrigöismál-
um, lýsti fundurinn furöu sinni á
þvi, aö ekki var leitað til samtaka
lækna um tilnefningu i vinnuhóp
þann, sem undirbýr heilbrigöis-
þing á hausti komanda.
Samþykkt var ályktun um, aö
ekki megi dragast lengur aö
koma á fót framhaldsmenntun
lækna á tslandi, einnig aö hraöa
yröi endurskoöun reglugeröar um
veitingu Iækninga- og sérfræöi-
leyfa.
Samþykkt var aö beina þvi til
heilbrigöisráöherra, aö héröas-
skylda ungra lækna veröi afnum-
in nú þegar, og taldi fundurinn, aö
leysa þyrfti læknaskort dreif-
býlisins meö öörum hætti en
skylduvinnu lækna.
Læknafélag Noröausturlands
sá um allan undirbúning fundar-
ins, sem haldinn var á hótelinu á
Húsavik, en jafnframt var minnst
10 ára afmælis heilsugæslu-
stöövarinnar á Húsavik.
Stjórn Læknafélags tslands
skipa nú: Þorvaldur Veigar
Guömundsson, formaöur,
Guömundur Oddsson, vara-
formaöur, Viöar Hjartarson, rit-
ari, Eyjólfur Þ. Haraldsson,
gjaldkeri og Kristófer Þorleifs-
son, meöstjórnandi.
Framkvæmdastjóri félagsins er
Páll Þóröarson, lögfræöingur.