Þjóðviljinn - 08.07.1980, Page 2
2 SIÐA — ÞJÓDVILJINN j>ri6judagur 8. júll 1980.____
Erfið markaösaðstaöa vegna opinbers
stuðnings við samkeppnisaðila í lagmeti
Stjórnvöld grípi
tíl gagnráðstafana
„Stjórn Sölustofnunar
lagmetis skorar á
stjórnvöld að gripa tii
gagnráðstafana vegna
styrktaraðgerða opin-
berra aðila i helstu sam-
keppnislöndum islensks
lagmetis” segir i
ályktun sem gerð var á
stjórnarfundi stofnunar-
innar fyrir skömmu og
send var Iðnaðarráðu-
neytinu og Félagi is-
Ienskra iðnrekenda.
I ályktuninni segir ennfremur
aö styrktaraögerðirnar i sam-
keppnislöndunum séu þegar
farnar aö hafa veruleg áhrif á
alla samkeppnisstööu iönaöarins.
Nærtækt dæmi sé aögeröir
Noröurlandaþjóöa eins og t.d.
Norömanna sem nú greiöa niöur
hráefni (einkum sardlnur) taka
þátt i launakostnaöi fyrirtækj-
anna bæði viö umbúöagerö og
sjálfa niöursuöuna og hafa nú ný-
lega gripiö til styrktaraögerða
meö endurskipulögöu miöstýröu
sölukerfi.
„Hér eru I tafli hagsmunir fleiri
iðngreina en lagmetisiönaöar.
Stjórnin fagnar ákvörðun Félags
islenskra iönrekenda um aö láta
fara fram alhliöa rannsókn á
styrktar og verndaraðgeröum til
stuönings iönaöi hinna ýmsu
landa og vonar, aö stjórnvöld
hagnýti sér væntanlegar upplýs-
ingar til aö ná sambærilegri aö-
stööu viö helstu keppinauta”,
segir i lok ályktunarinnar. — ig.
Bæjarráö Hafnarfjaröar á 2000. fundinum.
HqfiunjfjöríkiK
2000. ftindur bæjarráðs
Nylega var haldinn
2000. fundur bæjarráðs
Hafnarfjarðar, en það
var stofnað 3. febrúar
1942 er bæjarstjórn sam-
þykkti þá breytingu á
starfssviði sinu að kjósa
þrjá menn i bæjarráð og
þrjá til vara til eins árs i
senn.
í fyrsta bæjarráöi Hafnarfjarö-
ar sátu sem aöalmenn Emil Jóns-
son, Kjartan Olafsson og
Þorleifur Jónsson, en varamenn
voru Björn Jóhannesson, Asgeir
Stefánsson og Stefán Jónsson.
Frá upphafi hefur bæjarstjóri
setiö fundi bæjarráös. Þegar
bæjarráö var stofnaö var Friöjón
Skarphéöinsson bæjarstjóri.
Fyrsti fundur var haldinn 9.
febrúar 1942 og var Emil Jónsson
kosinn formaöur þess.
1 upphafi voru bæjarráöi falin
störf ýmissa nefnda á vegum
bæjarins en nú er meginhlutverk
bæjarráös aö fara meö ásamt
bæjarstjóra framkvæmdastjórn á
málefnum kaupstaöarins aö þvi
leyti sem hún er ekki fengin öör-
um aöilum. Auk þess hefur
bæjarráö þaö hlutverk meö hönd-
um aö vera fjárhagsnefnd bæjar-
ins. Þaö hefur eftirlit meö
fjármálastjórn bæjarins og
undirbýr fjárhæagsáætlun hverju
sinni.
Nú eiga sæti I bæjarráöi Arni
Gunnlaugsson, Arni Grétar
Finnsson og Ægir Sigurgeirsson.
Auk þess sitja fundi ráösins tveir
áheyrnarfulltrúar minnihlutans I
bæjarstjórn, þeir Höröur
Zóphanlasson og Markús A.
Einarsson, Einar I. Halldórsson
bæjarstjóri og Guöbjörn ólafsson
bæjarritari. Nú verandi formaöur
bæjarráös er Arni Gunnlaugsson.
Nlð drögum 10. júlí
Endurnýió tímanlega
7. flokkur
18 @ 1.000.000 18.000.000
90 — 500.000 45.000.000
702 — 100.000 70.200.000
8.505 — 35.000 297.675.000
9.315 430.875.000
36 — 100.000 3.600.000
9.351 434.475.000
HAPPDRÆTT! HÁSKÓLA ÍSLANDS
/Menntermáttur
Suimudagsforsíðan
Margir hafa efalaust velt þvi fyrir sér hvar forsiðu-
myndin á heigarbiaðinu hafi verið tekin, og hafa
menn komið með ýmsar uppástungur, Flestir telja
að þetta séu menn á ferð um jökul, en svo er þó ekki.
Þessi mynd er tekin þegar verið var að mála þakið
á Laugardalshöllinni. Myndina tók — gel —
Blómsveigasjóður afhendir gjörgæslutæki
Til notkunar
við fæðingar
Blómsveigasjóöur Þorbjargar
Sveinsdóttur afhenti nýlega kven-
lækningadeild Landspitalans að
gjöf vandaö gjörgæslutæki, til
notkunar viö fæöingar. Eykur
tækiö mjög á öryggi móöur og
barns meðan á fæöingu stendur.
Stjórn sjóðsins, þær Guðrún
Benediktsdóttir, Þorbjörg Jóns-
dóttir og Guörún Jóhannsdóttir,
afhentu tækiö og viö þvi tóku yfir-
læknar og yfirljósmæöur kvenna-
deildarinnar.
Viö þetta tækifæri minntist
Guörún Benediktsdóttir Þor-
bjargar Sveinsdóttur sem var
skipuö ljósmóöir hér I Reykjavik
1864 og gegndi þvi starfi til dánar-
dægurs, 1903. Hún var gáfukona
og skörungur og lét flest mál til
sin taka, landsstjórnarmál,
bæjarmál, prestkosningar o.fL
Gekk hún aö öllum þessum
málum meö röggsemi og
dugnaöi. Auk þess var hún vel
mælsk og gætti þvi áhrifa hennar
þar sem hun beitti sér. Hún þótti
ágæt ljósmóðir og voru jafnan hjá
henni nokkrar stúlkur til náms i
yf irsetukvennafræöum.
Þorbjörg var ein af aðalhvata-
mönnum aö stofnun Hins Islenska
kvenfélags og aö henni látinni
stofnuöu félagskonur þess Blóm-
sveigasjóöinn, sem var til styrkt-
ar fátækum sængurkonum i
Reykjavik.
Veröbólga og breyttir þjóö-
félagshættir hafa rýrt gildi
sjóösins og getu hans til aö gegna
upphaflegu hlutverki. Þvl ákvaö
stjórn sjóösins, aö fengnu sam-
þykki borgarstjórnar, aö verja
sjóönum til kaupa á umræddu
tæki i þeirri von, aö þaö komi aö
gagni og bæti hag heilsu sængur-
kvenna og barna þeirra og þjóni
þannig upprunalegum tilgangi
sjóösins.
—mhg
Alþýðuleikhúsið á
ferð um Vestur-
og Norðurland
Alþýöuleikhúsiö hefur aö
undanförnu sýnt hinn viöfræga
gamanleik Viöborgum ekki — viö
borgum ekki eftir Dario Fo á
Vestfjörðum viö gifurlega aösókn
og miklar vinsældir. Er nú
feröinni heitiö til Noröurlands og
veröur sýnt þar fram undir 20.
júli, en leikferöinni lýkur meö
sýningum I Hrisey og Grimsey.
Sýningar á Viö borgum ekki ....
eru nú orðnar töluvert á annaö
hundraö, en leikurinn var frum-
sýndur I janúar 1979.
Myndin hér aö ofan er úr einu
atriði leiksins.