Þjóðviljinn - 08.07.1980, Síða 6
6 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Þrlöjudágut 8.'jÚlI 1980.
STYRKUR TIL HÁSKÓLANÁMS í
JAPAN
Japönsk stjórnvöld bjóöa fram styrk handa Islendingi til
háskólanáms i Japan námsárið 1981—82 en til greina kem-
ur aö styrktimabil veröi framlengt til 1983. Ætlast er til aö
styrkþegi hafi lokiö háskólaprófi eöa sé kominn nokkuö
áleiöis i háskólanámi. Þar sem kennsla viö japanska
háskóla fer fram i japönsku er til þess ætlast aö styrkþegi
leggi stundá japanska tungu um a.m.k. sex mánaöa skeiö.
Umsækjendur skulu ekki vera eldri en 35 ára. Styrk-
fjárhæöin er 159.000 yen á mánuöi og styrkþegi er
undanþeginn skólagjöldum. Auk þess fær styrkþegi 25.000
yen viö upphaf styrktimabilsins og allt að 43.000 yen til
kaupa á námsgögnum. Þá er og veittur feröastyrkur.
Umsóknir um styrk þennan.ásamt staöfestum afritum
prófskirteina, meömælum og heilbrigðisvottoröi, skulu
sendar menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, 101
Reykjavik, fyrir 4. ágúst n.k. — Sérstök umsóknareyöu-
blöö fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráöuneytiö
1. júli 1980.
TILKYNNING
frá Framleiðsluráði
landbúnaðarins til
framleiðenda í aiifugla
og svíharækt
Akveðið hefur verið að afhenda eigendum
alifugla og svina séstök kort, sem veita
þeim heimild til kaupa á kjarnfóðri, án
þess að þurfa að greiða að fullu það kjarn-
fóðurgjald, sem nýlega hefur verið
ákveðið með lögum.
Leyfisveitingin gildir til loka september
næstkomandi og miðast við 25% af þvi
kjarnfóðurmagni sem viðkomandi aðilar
geta fært sönnur á að þeir hafi keypt á sl.
ári til svina- og alifuglaræktar.
Framleiðendur skulu senda Framleiðslu-
ráði samanteknar upplýsingar um kjarn-
fóðurkaup sl. árs ásamt verslunarnótum
yfir kaupin. Þörf nýrra framleiðenda
verður metin sérstaklega. Leyfiskortin
verða siðan send viðkomandi aðilum jafn-
óðum og þau verða tilbúin. Umsóknum
skal fylgja nafn og nafnnúmer
viðkomandi umsækjenda ásamt greini-
legu heimilisfangi.
Þeir sem til þess hafa aðstöðu geta skilað
umsóknum og sótt leyfin sjálfir á skrif-
stofu Framleiðsluráðs i Bændahöllinni
Reykjavik.
Afhending leyfanna hefst mánudaginn 7.
júli.
Reykjavik, 5. júlí 1980.
Framleiðsluráð landbúnaðarins.
Trésmiðir - Trésmiðir
Viljum ráða nokkra trésmiði nú þegar.
Mikil og góð vinna.
Upplýsingar á skrifstofunni i sima 83307.
Byggingarfélagið Ármannsfell.
A ðstoðarverslunarstjóri
Okkur vantar aðstoðarverslunarstjóra i
stóra kjörbúð, helst vanan kjötafgreiðslu.
Þarf að geta leyst verslunarstjóra af.
Upplýsingar á skrifstofu KRON miðviku-
dag og fimmtudag kl. 2-4.
KAUPFELAG REYKJAVÍKUR 0G NAGRENNIS
Brœðraminning
Friðrik Ásmundsson
F. 20.3 1930 — D. 28.11. 1979
Kristinn Ásmundsson
F. 08.06 1928 — D. 22.05. 1980
Þaö mun hafa veriö voriö 1953
aö ég var i framboöi fyrir
Sósialistaflokkinn á Snæfellsnesi.
Og I Grundarfiröi gisti ég hjá vini
minum Jóhanni Asmundssyni og
hans góöu konu á Kverná.
Þegar ég reis úr rekkju og gekk
út i vormorguninn, þá mætti mér
sjón, sem mér hefur aldrei úr
minni liöiö. 1 hlaövarpanum stóö
ungur og einn karlmannlegasti
maður sem ég hef augum litiö.
Hann var meö mjólkurfötu i hendi
og til hans gekk rauöur hestur.
Hesturinn kumraöi og teygaöi
siöan mjóikina úr fötunni.
Skammt frá stóö Asmundur faöir
hans og muldraöi eitthvaö um
óspillsemi, en þó var eitthvert
blik i augum hans sem sýndlað
honum likaöi þetta ekki meö öllu
illa. Hundurinn flaöraöi upp um
manninn meö gleöilátum. Maöur-
inn var Friðrik Asmundsson.
Hann haföi komiö heim af vertiö
um nóttina. Ég heilsaöi þessum
unga manni og hann bauö mig
velkominn en mér fannst bæði hjá
hestinum og hundinum ég ekki
vera velkominn, þvi þeir vildu fá
aö fagna honum einir.
Slðar átti ég eftir aö kynnast
Friörik nánar. Hann stundaöi
sjómennsku og var einn eftirsótt-
asti og harðduglegasti maður,
sem hægt var aö fá i skipsrúm.
Hann aflaöi sér menntunnar og
réttinda til vélstjórnar og siöar
skipstjórnar. Hann var ýmist
háseti, vélstjóri, stýrimaöur eöa
skipstjóri viö fiskiveiðar. Slikir
menn eru ekki baöaðir frægöar-
ljóma fjölmiöla, en þaö aö stunda
sjó á íslandsmiöum i höröum
vetrarveörum af þvf æöruleysi og
kjarki sem Friörik og félagar
hans geröu, veröur aldrei
fullmetiö, né fullþakkaö af þeim
sem starfa þeirra nutu.
Friörik Asmundsson var fædd-
ur 20. mars 1930 aö Kverná.
Eiginkona hans var Þorgeröur
Gunnarsdóttir frá Reykjavik.
Þau áttu þrjú börn og eina fóstur-
dóttur og áttu heimili sitt i
Reykjavik. Þegar maöur mætti
þessum hjónum á förnum vegi sá
maöur gleöi þeirra yfir aö vera
saman og maöur fann hamingju
þeirra streyma til sin.
A s.l. ári ákvaö Friðrik aö hætta
sjómennsku og hann var ráöinn
afleysingavélstjóri á dráttar-
bátnum „Magna”. Ég minnist
þess er Friðrik kom til min, er
hann sótti um fast starf hjá
Reykjavikurhöfn. Þaö heföi hann
fengiö, þvi menntun hans og
frábær verkhæfni geröu hann
eftirsóttan I þau störf eins og önn-
urf en þar til frá þvi endanlega
væri gengiö, tók Friörik að sér
stýrimannsstarf i einni siglingu
tilEnglands á mótorbát. Or þeirri
ferö átti hann ekki afturkvæmt,
þvi hann druknaöi i höfninni i Hull
28. nóvember s.l.
Ég vil ekki ýfa upp sár ástvina
hans, en hann var aöeins 49 ára og
öllum sem þekktu hann, fannst
hann deyja of ungur. Ég hef áöur
lýst einstakri karlmennsku hans
og vinnuþreki. Ég kann ekki orö
yfir hjartalag hans, en ég held aö
börn hafi fagnað honum jafn inni-
lega og mállausu vinir hans á
túninu á Kverná forðum.
Viö vinir Kristins Asmunds-
sonar voru harmi lostnir, þegar
viö fréttum aö hann heföi
drukknaö i rielsir^i I Finnlandi
22. mai s.l. þar sem hann var
skipverji á m/s Laxá. Enginn
okkar<var búinn aö sætta sig viö
lát bróöur hans nokkrum
mánuðum áöur. Lifsþróttur og
kraftur þessa manns var svo mik-
ill, aö manni datt ekki dauöinn I
hug I nærveru hans.
Hann var fæddur aö Kverná 8.
júli 1928 og var þvi aöeins 51 árs.
Æskuár Kristins munu hafa veriö
Friörik og Kristinn Asmundssynir
svipuö og bróöir hans. Hann
stundaöi sjó af sama kappi og
dugnaði á fiskiskipum öll sin
æskuár. Eftir aö hann fluttist til
Reykjavikur gekk hann i lögregl-
una I Reykjavik. -ðg starfaöi þar
tæplega 5 ár. 1 þaö starf var hann
á margan hátt heppilegur. Ég
gæti ekki nefnt þann lögreglu-.
mann, sem haföi afl og krafta
Kristins. Allir litilsmegnugir áttu
skjól hjá honum, og mildi
hjartans fór saman viö þrek hans
og glæsimennsku.
Kristinn var maöur
hreinskiptinn og fór aldrei dult
meö skoöanir sinar. Þaö hefur
sjaldnast veriö mönnum til frama
I lögreglunni i Reykjavik. Einnig
held ég aö hafiö hafi togaö hann til
sin aftur, þar sem hann lifði öll
sin djörfu æskuár og honum hafi
fundist hann of múlbundinn i lög-
reglunni. Jafnframt sjómennsku
stundaöi Kristinn pipulagningar-
störf og lagði oft einn lagnir i
heilu húsin, þó aö hann heföi ekki
fullkomin- réttindi til þeirra
starfa. Þegarhann var i lögregl-
unni aflaöi hann sér réttinda sem
mótoristi og starfaði lengi sem
vélstjóri á Arvakri. Siöustu 8 árin
var hann vélstjóri á millilanda-
skipum „Hafskips” og þar var
hann er hann fór sina hinstu för.
Þótt hann hefði hvorki fullkomin
réttindi sem vélstjóri né sem
pipulagningamaöur þá skilaöi
hann þessum störfum af slikri
prýöi, aö hann var eftirsóttastur
manna i þau.
Kristinn haföi mikinn áhuga á
þjóöfélagsmálum. Hann var
bráttumaöur jafnréttis og
bræöralags, og gekk hikiaust á
hólm gegn misrétti, þótt þaö
stundum yröi til aö hann sjálfur
væri beittur misrétti. Ég man
jafnan hversu mikil öryggistil-
finning fór um mig, ef ég á ólgu-
timum sá Kristin.-' nálægt mér.
Hann var kvæntur Helgu
Kristjánsdóttur frá Reykjavik og
hér áttu þau búsetu. Þau áttu
tvær dætur. Sár er sökr.uður
Helgu og dætranna aö sjá * aö
baki Kristni I blóma lifsins.
Nú er þessi glæsilegi,
þrekmikili vinur minn allur og ég
neita þvi ekki aö mér finnst
vinahópurinn litlausari og svip-
minni en áöur. Slikir voru
mannkostir hans — og slikur var
lifsþróttur hans.
Foreldrar þeirra bræöra voru
hjónin Steinunn Þorsteinsdóttir
og Asmundur Jóhannsson, bóndi
á Kverná i Grundarfiröi, sem
bæði eru látin.
Þeir voru komnir i báöar ættir
af annáluöu dugnaöar- og
sæmdarfólki. Forfeöur þeirra
voru þekktir þrekmenn og
sjósóknarar. Sem dæmi má nefna
að móöurbræöur þeirra voru
Báröur og Kristfinnur frá Gröf
sem stóöu i hinum fræga Siglu-
fjaröarslag og sóttu 50 Norðmenn
þá aö þeim bræörum tveim og
létu þeir hvergi undan siga.
Breiöfiröingum þarf ekki að
kynna ættir þeirra bræöra, en
sterkar voru rætur þeirra bræöra
alla tiö til æskustöðvanna i
Grundarfiröi, þar sem Kirkju-
felliö ris og Stööin, og i austri eru
ljósar liparithliöar Manar, i suöri
Helgrindur og i norður Breiöa-
fjöröur. Og sá sem kemur þangaö
á fögru sumarkvöldi skilur þessa
átthagaást. Þau hjónin Steinunn
og Asmundur áttu 9 börn, 2 syni
misstu þau kornunga. Vilhjálmur
drukknaöi fyrir 20 árum frá konu
og 4 börnum, þegar mótorbátur-
inn „Rafnkell” fórst meö allri
áhöfn.
Eftir lifa 4 systkini, bræðurnir
Þorsteinn og Jóhann, bændur á
Kverná, og tvær systur, Asta og
Hallfriöur, giftar og búsettar i
Reykjavik,
Þeir bræður sóttu sjóinn fast,
en fast hefur Ægir sótt aö þeim
bræörum, er hann hefur nú tekiö
þrjá þeirra.
Utför Kristins fór fram I gær
frá Fossvogskapellu. A sllkum
stundum eru orö til litils, en þaö
var hverjum manni dýrmætt aö
kynnast þeim. Eftirlifandi konum
þeirra færi ég samúð mina og
vina minna og þegar viö drúpum
höfði I harmi þá eigum viö eina
ósk aö börn þeirra erfi i rikum
mæli þá reisn og manndóm sem
einkenndi þá bræöur svo mjög i
lifi þeirra.
Guömundur J. Guömundsson.
Blikkiöjan
Asgaröi 7, Garðabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI 53468