Þjóðviljinn - 08.07.1980, Side 16

Þjóðviljinn - 08.07.1980, Side 16
DIOÐVIUINN Þriðjudagur 8. júli 1980. AOalsfmi ÞjóOviljans er 81333 kl. 9-20 mánudaga til föstudaga. L'tan þess tlma er hægt aO nd f blaOamenn og aOra starfsmenn blaOsins f þessum slmum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285. Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aO ná f afgreiOslu blaOsins I sfma 81663. BlaOaprent hefur sfma 81348 og eru blaOamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöltlsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Vestmannaeyjar: Byrjað að segja upp aðkomufólki Þrátt fyrir loforð um að sama gangi yfir alla ,,Atvinnurekendur hér í Vestmannaeyjum komu þeim skilaboðum til okkar að uppsagnir gengju ekki í gildi fyrr en 1. ágúst næst- komandi og sætu þar allir verkamenn við sama borð hvort sem þeir ættu lengri eða skemmri uppsagnar- frest. Nú hafa þær fregnir borist að Isfélagið í Vest- mannaeyjum sé byrjað að segja upp aðkomufólki með vikuf yrirvara og gengur það þvert á fyrri yfirlýsingu", sagði Jón Kjartansson formaður Verkalýðsfélags Vest- mannaeyja i samtali við Þjóðviljann í gær. Jón sagðist ekki enn vita hversu viðtækar uppsagnirnar væru en væri að láta kanna það. Jón sagði að allsherjaruppsagnirnar gætu haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir byggðarlagið f heild og gætu haft það i för með sér að fólk missti trúna á að þar væri lifvæn- legt aö búa. Sagðist hann vita til þess aö nokkrir ungir menn væru nú á förum til Noregs til að vinna i fiski bar. Þá sagðist Jón gruna að eitt- hvað annað lægi á bak við þessar stórfelldu uppsagnir heldur en erfiöleikar einberir þvi aö rikis- stjórnin hefði nú gengið eins iangt til móts við frystihúsaeigendur og unnt væri. Taldi hann ekki ólik- legt að hér væri um pólitiskar og verkalýöspólitiskar aðgerðir að ræða. —GFr Fundur farandverkafólks í Vestmannaeyjum: Mótmælir harðlega fjöldauppsögnum Á almennum fundi farandverkafólks í Vest- mannaeyjum s.l. laugar- dag, sem um 60 manns sóttu/ urðu miklar umræður um fjöldaupp- sagnir verkafólks f sjávarútvegi og var sam- þykkt ályktun þar sem þeim er mótmælt harðlega. Á fundinum kom m.a. fram að fjöldi farandverkakvenna I Vest- mannaeyjum er réttlaus vegna þess að lög Verkakvenna- félagsins Snótar kveöa svo á um aö viðkomandi þarf aö eiga lög- heimili I Eyjum til þess aö öðlast full réttindi en á meöan verka- kvennafélag er á staðnum er konum ekki heimilt að veröa félagar i öðru stéttarfélagi. Þá kom fram hörð gagnrýni á forystu verkalýðshreyfingar og þann seinagang sem hún hefur sýnt málefnum farandverkafólks. Þar kom fram að Sjómannasam- bandið situr við sama heygarös- hornið og neitar að styðja kröfur farandverkafólks þrátt fyrir fjölda sjómanna i röðum farand- verkafólks. Einnig kom fram að Verkamannasambandið hefur ekki staðiö viö þær skuld- bindingar sem það hefur gefið farandverkafólki. A fundinum frumflutti Baráttu- hópur farandverkafólks Gúanó eða Stimpilklukkukabarettinn sem fjallar um mannlíf á Klaka- firði við Drönguldjúp á gagnrýinn og gamansaman hátt viö góðar undirtektir viðstaddra. —GFr JMaökar bara í einu herbergi5 ’ segir Guömundur Ásbjörnsson verhstjóri hjá Vinnslustöðinni „Eins og oft vill verða kemur maðkur i skreið á vorin og það er sprunga i loftinu sem þeir vilja komast niður um en hún er bara yfir einu herbergi og við létum strax loka þvi. Þetta er afskap- lega litið og bara I þessu eina her- bergi”, sagði Guðmundur As- björnsson verkstjóri I Vinnslu- stöðinni I Vestmannaeyjum i samtali við Þjóöviljann 1 gær. Varðandi hertöku farandverka- fólks á verbúðunum sagði Guð- mundur, að þetta hefði verið hálf- drukkiö fólk sem lét eins og fifl en aðgerðir þess hefðu runnið út i sandinn. —GFr Flugleiðir: Fargjöld Veitt hefur verið heimild til að hækka fargjöld Flug- leiða innanlands um 9% en sótt var um 12% hækkun. Farmiðinn fram og til baka til Akureyrar kostar eftirleiðis svo að dæmi sé innanlands hækka tekið 45.800 krónur en kost- aði 42.100 krónur. Reykjavik-Isafjörður báðar leiðir kostar nú 43.300 kr., Reykjavik-Patreksfjörður 39.600, Reykjavik- Sauðárkrókur 41.800 kr., Reykjavik-Húsavik 51.700 kr., Reykjavik-Egilsstaöir 61.400 kr., Reykjavlk-Hornaíjörö- ur 54.500 kr. og Reykjavik Vest- mannaeyjar 30.700 kr.. Flugvall- arskattur er innifalinn i þessum upphæðum. —GFr. Ein af mvndunum sem teknar voru án vitundar Ibúa I verbúðum Vinnslustöðvarinnar og birt I Sjávarfréttum I vor. Eins og sjá má hefur veriö stillt upp á borö piliuglösum, brennivinsflösku og mjólk. Er friö- heigi verbúðarfólks engin? Farandverkafólk í Eyjum: Hertók verbúð Herbergin útbíuð í maðki Faranöverkafólk i verbúðum Vinnslustöðvarinnar h.f. i Vest- mannaeyjum tók þær herskildi aðfaranótt föstudagsins og hélt þeim fram á morgun til að itreka ársgamlar kröfur sinar sem þaö telur ekki hafa náð fram að ganga og einnig til að mótmæla óhróðri sem það telur húsvörö verbúð- anna hafa ausiö sig i viötali I Sjávarfréttum nú i vor. Þá var einnig verið að mótmæla þvi að maökaveita er nú farin að vella niður i herbergi ibúanna i gegnum sprungur og ljósastæði frá skreiðárgeymslu á verbúða- loftinu. Að sögn Þorláks Kristins- sonar starfsmanns Baráttuhóps farandverkamanna hefur tveim- ur herbergjum þegar verið lokað af þessum orsökum en ástandiö mjög slæmt og ekki mönnum bjóöandi. Umrædd hertaka verbúðanna fór fram með friðsamlegum hætti og var i þvi fólgin að lyklavöldin voru tekin af húsverðinum og honum tilkynnt að verbúðirnar væru ekki lengur I umsjá hans eða Vinnslustöðvarinnar heldur ibúanna sálfra. Þetta var gert til að undirstrika að farandverka- fólkið er megnugt að risa upp úr niðurlægingu sinni. Lyklunum var siöan skilað um morguninn án þess að til nokkurra átaka kæmi. Forráðamenn Vinnslu- stöðvarinnar munu hafa kært at- buröinn. Þorlákur Kristinsson sagði I samtalinu við Þjóöviljann aö hann efaðist um að það stæðist skv. lögum að geyma fiskafurðir yfir Ibúöum fólks eins og þarna er um aö ræða og taldi t.d. af og frá að það yröi liðið i venjulegum ibúöablokkum. 1 fyrrgreindu viötali við hús- vörð verbúðanna i Sjávarfréttum 4. tbl. i ár heldur hann þvi fram að umgengni ibúanna sé 80% slæm og að þeir séu sóðar, skemmdar- vargar og þjófar. Þá hafði hús- vörðurinn einnig hleypt blaða- ljósmyndurum timaritsins inn á ibúöir farandverkafólksins i leyfisleysi og að þvi fjarverandi. —GFr Stjórnarandstaðan með meirihluta í stjórn Húsnæðisstofnunar ríkisins ; „V eldur ekkí erfiðleikum” Enginn átti meiri hlut en Benedikt Davíðsson að því að ASÍ fengi beina aðild að stjórninni Ólafur Jónsson: Hálfur Alþýðu- flokkurinn var á móti beinni að- ild ASÍ. Félagsmálaráðherra skipaöi i gær Ölaf Jónssonjxamkvæmda- stjóra, formann og Þráin Valdimarsson, framkvæmda- stjóra, varaformann stjórnar Húsnæöisstofnunar rikisins. 1 samtali við Ölaf Jónsson i gær kvaöst hann fagna þvi tækifæri sem hann nú fengi.aö mega á þennan hátt taka þátt i þvi að móta framkvæmd nýju hús- næðislaganna, einkum upp- byggingar verkámannabú- staðakerfis og annarra nýmæla I löggjöfinni. — Nú vekur það athygli ólaf- ur, að stjórnarandstaöan virðist hafa meirihluta i stjórn Hús- næðisstofnunar. Hvaða áhrif hefur þetta á störf hennar? — ,,Ég kviði engu um að það valdi erfiðleikum. Linurnar skiptast sjaldnast flokkspóli- tlskt i stjórnum sem þessum. Þær stefna yfirleitt I sömu átt eða svipaöa og stjórnvöld á hverjum tima. Stjórnarand- staðan hefur til að mynda verið I meirihluta og formaður verið frá stjórnarandstöðu sl. tvö ár meöan Húsnæðismálastofnun starfaði, og þetta fyrirkomulag kom þar ekki að sök.” — Hver eru næstu verkefni stjórnar Húsnæðisstofnunar? — „Næstu verkefnin eru tvi- mælalaust aö móta framkvæmd hinna nýju laga og undirbúa framkvæmdir á næsta ári á grundvelli þeirra. Þar skiptir ákaflega miklu að sveitarfélög- in bregðist vel við og verði jákvæð I afstööu sinni með þvi að skipa sem fyrst stjórnir verkamannabústaða og undir- búa framkvæmdir af sinni hálfu.” Kuldaleg framkoma — Nokkrar umræður hafa spunnist I blöðum út af skipan fuiltrúa ASt i stjórnina. Hvaða álit hefur þú á kjöri miöstjórnar ASt? — „Ég er þess fullviss að stjórnin hefur kosið vel hæfa menn til þessara starfa af sinni hálfu og ég kviði þvi hreint ekki að starfa með þeim I húsnæðis- stjórn. En ég verö aö segja að það er dálitið kuldaleg framkoma við Benedikt Daviðsson aö snið- ganga hann við þessa kosningu. Það fer ekki á milli mála að það er hans verk meira en nokkurs annars manns, að Alþýðusam- band íslands fékk þessa beinu aðild að stjórn húsnæðismál- anna. Það fór heldur ekki milli mála að hálfur Alþýðuflokkurinn var á móti þvi aö Alþýðusamband Islands fengi beina aöild að Húsnæðisstjórn rikisins. Nú virðast þeir hinsvegar lita á þetta starf sem bitling, enda fór allur flokkurinn I gang til þess að tryggja að flokksmaður hreppti hnossið.” Niu manna stjórn NIu aðalmenn i Húsnæðis- stofnun rikisins eru Þráinn Valdimarsson framkvæmda- stjóri, Gunnar Helgason for- stjóri, Guömundur Gunnarsson verkfræðingur, Ólafur Jónsson framkvæmdastjóri, Jóhann Petersen skrifstofustjóri, Jón H. Guðmundsson skólastjóri, Gunnar S. Björnsson bygg- ingarmeistari, Björn Þórhalls- I son formaður Landssambands I isl. verslunarmanna og Jón I Helgason formaður Verkalýös- 1 félagsins Einingar á Akureyri. I Varamenn eru Hákon Há- I konarson vélvirki, ólafur Jens- • son framkvæmdastjóri, Grimur * Runólfsson framkvæmdastjóri, I Sigurður Magnússon rafvéla- I virki, Salóme Þorkelsdóttir al- I þingismaöur, Gunnar Gissurar- J son tæknifræðingur, Oli Þ. Guð- I bjartsson bæjarfulltrúi, Grétar I Þorsteinsson formaður Tré- * smiðafélags Reykjavikur og J Jón Agnar Eggertsson formaö- I ur Verkalýðsfélags Borgarness. I Tveir siöasttöldu aðal- og • varamenn eru skipaðir af fé- J lagsmálaráðherra samkvæmt I tilnefningu Alþýðusambands I íslands, en hinir eru kjörnir af • sameinuöu Alþingi. Skipun J stjórnar Húsnæðisstofnunar I rikisins gildir frá 4. júli sl. til I fyrsta þings aö afloknum al- J mennum þingkosningum. -ekh. !

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.