Þjóðviljinn - 23.07.1980, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 23.07.1980, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 23. júll, 1980 Krappasel, Krókasel, Kögursel Þeim bregst ekki bogalistin i bygginganefnd Reykjavikur þeg- ar þeir eru aö ákveöa ný götunöfn i borginni. Nýjasta samþykktin er um þrjár götur I Seljahverfi og þær skulu heita: Krappasel, Krókasel og Kögursel. —AI. Samkrull hjá Nóa og Mjölni í kvöld veröur sameiginlegt skákkvöld i Félagsstofnun stil- denta (Garösbúö) hjá Taflfélag- inu hans Néa og Skákfélaginu Mjölni. Skákkvöldiö hefst kl. 20 stundvislega og skákmenn beönir um aö láta sig ekki vanta. Árásar- mannsins enn leitað Rannsóknarlögreglan leitar nú biræfins árásarmanns sem hugö- ist i fyrradag komast yfir litlar 20 miljónir króna meö þvi aö ræna starfsmann Oliufélagsins Skelj- ungs hf en sá hefur þann starfa meö höndum aö safna saman fé á bensinstöövum fyrirtækisins. Fékk árásarmaöurinn far meö starfsmanninum ofanúr Arbæ en þegar niöur á Kirkjusand var komiö réöst hann aö honum meö skrúflykli og veitti honum þung höfuöhögg. Bilstjórinn náöi þó aö snúa hann af sér og hvarf hann viö svo búiö. Rannsóknarlögreglan varöist i gær allra frétta af máli þessu. Leikið af fingrum fram Askell Másson og Rúnar Georgsson leika af fringrum fram i Klúbbi eff ess i kvöld, miöviku- dag. Askell leikur á ásláttarhijóö- færi, en Rúnar á tenórsaxófón og flautu. Klúbbur eff ess I Félagsstofnun stúdenta viö Hringbraut er oröinn vinsæll skemmtistaöur, enda er boöiö þar upp á lifandi tónlist I notaiegu umhverfi. Þá eru þar á boöstólum ljúffengir sjávarréttir og pizzur i sérflokki. Klúbburinn er opinn öll kvöld kl. 20-01. Kkki fleiri undanþágur Gerir nokkur betur, strákar? L.josm.— eiK. Dýrðin hjá BÚR sætir gagnrýni: Móttaka Jóns Baldvinssonar kostaði rúmar 9 miljónir Þaö er venjulega mikiö um dýröir þegar tekiö er á móti nýju skipiog svo var einnig þegar hinn nýi skuttogari Bæjarútgeröar Reykjavikur kom hingaö til lands frá Portúgal I fyrra mánuöi. Kostaöi móttökuathöfnin tæpar tvær miljónir króna og var ekkert til sparaö. Hins vegar kostaöi skirnarathöfnin rúmlega 7 miljónir króna, en 7 manna sendi- nefnd fór til Portúgals til þess aö taka viö togaranum og gefa hon- um nafniö Jón Baldvinsson. Samanlagöur kostnaöur vegna komu togarans losaöi þvi niu miljónir króna og hefur sú upp- hæö sætt gagnrýni, m.a. frá Daviö Oddssyni, borgarfulltrúa Sjálfstæöisflokksins. Vigfús Aöalsteinsson, skrif- stofustjóri BOR, sagöi i gær, aö venja væri aö færa kostnaö viö móttöku nýrra skipa undir stofn- kostnaö en ekki risnu. Sundurliö- un reikninga vegna afhendingar Jóns Baldvinssonar er nú lokiö og eru niöurstööutölur 9 miljónir, 277 þúsund og 913 krónur. Þar af 7.451.913 i feröakostnaö, dagpen- inga og risnu erlendis og 1 miljón og 826 þúsund I kostnaö vegna móttökuathafnar heima fyrir. Sjö manna sendinefnd hélt utan til Portúgals til aö vera viöstödd skirn og afhendingu skipsins. Þeir sem þátt tóku i feröinni voru Einar Sveinsson, forstjóri BOR, Björgvin Guömundsson, for- maöur útgeröarráös, Ragnar Júliusson og Kristvin Kristinsson, útgeröarráösmenn. Konur þeirra Einars, Björgvins og Ragnars voru einnig meö i förinni. Nam feröakostnaöur hópsins og dag- peningar 6.779.913 kronum, en tekiö skal fram vegna frétta i blööum i gær aö engin eigin- kvennanna þriggja fékk dagpen- inga i förinni. Risnukostnaöur i Portúgal nam 453 þúsundum króna og kostnaöur viö ýmsar smágjafir til starfs- manna skipasmiöastöövarinnar var 219 þúsund krónur. Viö komu skipsins til íslands var borgarfulltrúum, og framá- mönnum ýmsum, auk áhafnar skipsins, fréttamanna og starfs- fólks BOR, boöiö I móttökuathöfn. Kostnaöur viö hana var sem áöur sagöi 1. miljón og 826 þúsund krónur. -áþj. ,,Það er alveg á hreinu að við munum ekki veita fleiri undanþágur meðan þetta yfirvinnu- bann stendur yfir” sagði Ingólfur Stefánsson framkvæmdastjóri Farmanna- og fiski- Áhrif yfirvinnubanns farmanna: Liflafeffinu lagt ,,Viö höfum ákveöiö aö leggja Litlafellinu meöan yfirvinnubann yfirmanna á farskipum stendur enda ekki neinn grundvöllur fyrir rekstri þess lengur sagöi Axel Gislason framkvæmdastjóri skipadeildar SIS I samtali viö Þjóöviljann I gær. Eins og kunn- ugt er hdfst yfirvinnubanniö i fyrradag og stendur liklega til 4. ágdst. Axel sagöi aö nú þegar væri tap á rekstri skipa Sambandsins þar eö ekki heföu fengist nauösyn- legar hækkanir á farmgjöldum. Þegar svo yfirvinnubanniö bætt- ist viö þá væri rekstrargrundvöll- urinn brostinn, sérstaklega hjá þeim skipum sem kæmu oftast I höfn á Reykjavikursvæöinu, sem er verkfallssvæöiö. Sum skipanna kæmu viö i höfn á Reykjavfkur- svæöinu 2—3 I viku og stundum daglega þegar þau væru viö dreif- ingu i Faxafltía. Viö yfirvinnubanniö væri sá vinnutimi er skipin heföu til lestunar og losunar aöeins 8 timar á dag, 5 daga vikunnar i staö þess aö venja væri aö þau væru aö nær allan sólarhringinn og þá lika um helgar. — þm Jón Baldvinsson viö komuna til Reykjavikur. Bílageymsla rís í Pósthússtræti: 13 miljónir á stædi Aðeins œtluð íbúum á reitnum mannasambandsins i samtali við Þjóðviljann i gær, en Akraborgin sem siglir milli Reykjavíkur og Akraness hefur feng- ið undanþágu frá yfir- vinnubanni yfirmanna á farskipum. Astæöu þess aö Akraborginni er veitt undanþága kvaö Ingólfur Stefánsson vera þá, aö þaö myndi valda mikilli öánægju Ibúa viö Faxaflóasvæöiö ef feröir skipsins stöövuöust og f ljósi þess aö feröir Akraborgarinnar breyttu litlu I framleiöslustörfum og útgerö annarra skipa, þá heföi veriö ákveöiö aö veita þessa undanþágu. Gert er ráö fyrir þvi aö undirnefnd frá Vinnuveitenda- sambandinu og Farmanna- og fiskimannasambandinu komi saman til fundar á morgun og mun m.a. veröa rætt um þá kröfu vinnuveitenda aö fækkaö veröi i áhöfnum skipanna. — þm Borgarráö samþykkti I gær fyrir sitt leyti samningsdrög viö lóöareigendur um byggingu bila- geymsluhúss á svonefndum Ptísthússtrætisreit, nánar tiltekiö undir húsi sem risa mun á lóöinni nr. 13 viö Pósthússtræti viö hliöina á Hótel Borg. Veröa 24 bflastæöi I geymslunni, 11 koma I hlut hdseigenda en afgangurinn I hlut borgarinnar. 1 samningsdrögunum er m.a. kveöiöá um skipti á lóöarspildum og fleira sem til þarf aö koma til þessaönýsamþykkt deiliskipulag aö þessum reit veröi aö veruleika. í þvi er reiknaö meö ibúöabyggö, I staö verslunar- og skrifstofu- húsnæöis og þvi nauösynlegt aö gera ráö fyrir einkabilastæöum fyrir væntanlega ibúa. Reykja- yikurborg kemur til meö aö greiöa 189 miljónir króna vegna bllageymslunnar og húsbyggjendur 126 miljónir, þannig aö hvert bilastæöileggur sif á 13 miljónir króna. Þessi mikli kostnaöur stafar af þvi aö mjög grurint er niöur á sjávarmál á þessu svæöi og bygging trausts kjallara þvi óhemjulega dýr. Bilastæöum borgarinnar veröur væntanlega ráöstafaö til annarra ibúa á reitnum eftir þvi sem hann byggist upp. Þó hér sé um svo dýra framkvæmd aö ræöa féllust allir borgarráösmenn samhljóöa á hana f gær, enda er hún forsenda fyrir þvi' aö skipulagiö veröi -aö veruleika og ibúum miöbæjarins fjölgi. — AI

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.