Þjóðviljinn - 23.07.1980, Side 11
Mi&vikudagur 23. júli, 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA II
íþróttir (2
Heimsmet í 100
metra baksundi
A-þýska stúlkan Rick Reinixch og bætti heimsmetiö um 1/100 úr
setti i gær nýtt heimsmet i 100 sekúndu. Þaö fyrra átti landi
metra baksundi kvenna. Hún hennar Ulrike Rechter,sett i Ber-
synti vegalengdina á 1:10,50 min. lin 1976.
Gull tll Sovét
í lyftingum
Gullverölaunin halda áfram aö
streyma til Sovétmanna. t lyft-
ingum vann Sovétmaöurinn Vikt-
or Mazinxkov gulliö I 60 kg flokki
þegar hann lyfti samtals 290 kg. I
2. sæti varö Búlgarinn Stefan
Dimitrov.meö lyftu uppá 287 kg,
og Pólverjinn Marek Sewryn fékk
bronsiö, lyfti 282 kg.
Olympíumet í 400
metra skriðsundi
Svo viröist sem a-þýsku stúlk-
urnar ætli aö hafa mikla yfirburöi
i sundinu á ólympiuleikunum i
Moskvu. I 400 metra skriösundi
vann a-þýska stúlkan Ines Diers
og setti nýtt Ólympiumet. Rööin
varö þessi:
1. Ines Diers
A-Þýskaland
2. Petra Schneider
A-Þýskaland
3. Carmela Schmidt
A-Þýskaland
mln.
4:08,76
4:09,16
4:10,86
Hann heitir Tofil Stevenson sá til hægri á myndinni. Hann varö Ólympiumeistari f þungavigt hnefaleika
bæöi I Mwnchen ’72 og Montreal *76. Frœgt er svar hans þegar bandariskur fréttamaöur spuröi hann
hvort hann hygöist ekki gerast atvinnumaöur i greininni og halda um leiö út I heiminn: „Hvi skyldi ég
yfirgefa 10 miljón bræöur mlna heima á Kúbu?”.Á myndinni, sem tekin var I Moskvu fyrir nokkrum
dögum, en þar freistar hann aö verja sigra sina, er sænskur kollegi hans, Lillen Eklund.
Ungverjl fékk
gullið í grísk-
rómversku
glíirmnni
Danir lágu fyr-
ir Spánverjum
Handknattleikskeppnin á
ólympíuleikunum var á dagskrá I
gær og var leikiö i bæöi A og B-
riöli. Mesta athygli vakti leikur
Danmerkur og Spánverja en þar
sigruöu Spánverjar i æsi-
spennandi leik meö 20 mörkum
gegn 19. Hinum leiknum i riölin-
um, leik Pólverja og Kúbumanna,
lauk meö öruggum sigri Pólverja,
34:19.
1 B-riölinum unnu Rúmenar,
þrefaldir heimsmeistarar i hand-
knattleik, Algeirsmenn meö 26
mörkum gegn 18. Þá unnu Sovét-
menn Kuwait meö 38 mörkum
gegn 10.
Sá fyrsti undir 15 mínútum
Ungverjinn Norbert Nottny
sigraöi I grisk-rómverskri glimu,
90 kg flokki. Hann þótti sýna
mikla yfirburöi og vann alla and-
stæöinga sina léttilega. í 2. sæti
varö Sovétmaöurinn Igor Kany-
gin og 13. sæti kom Petre Dicu frá
Rúmeníu.
Nýtt heimsmet sá dagsins ljós i
1500 metra skriösundi karla á
ólympluleikunum IMoskvu I gær.
Vladimir Salnikov synti vega-
lengdina á 14:58,27 min. og varö
um leiö fyrsti maöurinn i heim-
inum sem fer undir 15 minútum á
þessari vegalengd. Afrek Sovét-
mannsins er stórkostlegt en hann
synti á ákaflega kerfisbundinn
iMMIHi
hátt, tök ávallt 100 metrana á
u.þ.b. einni mfnútu. Viö blaöa-
menn sagöi hann aö eftir 1200
metra heföi hann veriö oröinn
talsvert þreyttur en tókst aö ná I
sig kraft og þaö dugöi til sigurs og
ennfremur til heimsmets. Hann
varö talsvert á undan landa
sinum Alexander Chaev sem
synti vegalengdina á 15:14,30
min.. Astraliumaöurinn Max
Metzker var á 15:14,49.
Gullæðið
Þaö stefnir i algjört einvigi
Sovétmanna og Austur-Þjóöverja
I keppninni um flest verölaunin.
Eftir daginn I gær hóföu Sovét-
menn unniö 10 gullverölaun en
A-Þjóöverjar 5 alls. Aörar þjóöir
voru ekki meö i leiknum og haföi
engin þeirra hlotiö meira en ein
gullverölaun.
Sovétmemi
sigra í
fimleikum
Sovétmenn unnu meö yfir-
buröum i flokkakeppni karla i
fimleikum á Ólympiuleikunum.
Þeir uröu meira en 7 stigum fyrir
ofan næstu þjóö, A-Þjóöverja.
Rööin var þessi: stig:
1. Sovétrlkin 589,6
2. A-Þýskaland 581,15
3. Ungverjaland 575,0
4. RUmenla 572,30
5. BUlgarla 571,55
6. Tékkósltívakla 569,8
7. KUba 563,2
8. Frakkland 559,2
9. Noröur-Kórea 551,35
Kalottkeppnin
Meiösl iþróttamanna geta veriö meö erfiöari meiöslum I hversdagsllfinu. A Iþróttavellinum gerast
atburöir sem geta haft hinar alvarlegustu afleiöingar fyrir viðkomandi iþróttamenn. Eru jafnvel til
þess dæmi aö efnilegir Iþróttamenn veröi aö hætta keppni á unga aldri vegna þess. Þí hafa sumir
knattspyrnumenn átt i erfiöleikum þegar aldurinn færist yfir. Gömul meiösl geta tekiö sig upp og
valdiö miklum óþægindum. Þvi er kappkostaö aö gera allan aöbúnaö fþróttamanna á þessu sviöi
sem bestan og nýlega gaf ISt endurhæfingarstofunni nýtt og fullkomið hljóöbylgjutæki og er myndin
frá afhendingu þess. Taliö f.v.: Siguröur Magnússon, Þóröur Þorkelsson, Sveinn Björnsson, GIsli
Halidórsson, Páli B. Helgason og Haildór Matthiasson.
Kalott-keppnin i frjálsum
iþróttum fer fram i Reykjavik
dagana 9. og 10. ágúst. Er þetta i
annaö sinn sem keppnin fer fram
hérlendis en islenskt frjáls-
Iþróttafólk hefur tekiö þátt i þess-
ari samvinnu jaöarsvæöa
Noröurlanda allt frá árinu 1972.
Finnar hafa veriö mjög sigur-
sælir i keppni þessari og ávallt
sigraö frá þeim tima aö tsland tók
fyrst þátt I keppninni.
Alls veröa keppendur um 300
talsins og má búast viö aö þaö
veröi Frjálsiþróttasambandinu
sæmilega þungur baggi aö halda
þessa keppni. Flestir af okkar
bestu mönnum veröa meöal þátt-
takenda aö þessu sinni en Island
hefur aldrei fariö niöur fyrir 2.
sætiö i keppninni.
R.víkurmót
I frjálsum
1 kvöld hefst á Laugardals-
velli Reykjavikurmeistaramót I
frjálsum tþróttum. Mótiö hefst
kl. 20. Keppt veröur I öllum
venjulegum greinum frjálsra
iþrtítta.