Þjóðviljinn - 23.07.1980, Qupperneq 15
ISl
Hringið í síma 8-13-33 kl. 9-5 alla virka
daga eða skrifið Þjóðviljanum
lesendum
Hjól og yindar
Guðbrandur hringdi:
Ég get ekki orða bund-
ist eftir að ég las í Þjóð-
viljanum um daginn um
einhverja Hollendinga
sem þóttust hafa upp-
fundiðeinhverskonar hjól
sem fallhlíf var hengd
utaná og togaði i hjólið ef
vindur var hagstæður.
Þetta þótti mér bæði vond
frétt og gömul.
Þegar ég var ungur sveinn
heima á Akureyri höföum viö
félagarnir séð þennan mögu-
leika I hendi okkar og löngu á
undan Armanni Kr. Einarssyni.
Við áttum flestir einhverjar
hjólatikur, en þar sem seglbáta-
útgerð er litil á staðnum og eins
og mönnum er kunnugt rignir
Siglingar á
reidhjóli
'llir þeir farkosnr sem ekki st>ri reiðhjðls Gert er rað fyrit
•ri'nna eldsneyti eru nu mjog I þvl. að ur nokkru sé að velja
Isku. hvort sem er lii raunveru þ\ I sterkari sem vindunnn et
■ ttiatinttutiiiti»t.i eh.i :ii þeim mun minni a ..seglih ah
• kemmtunar einungis vera Tilfrringar sem fylgja
þessum bunahi eiga ah sogn ah
'kur listamahur Jnaehint geru monnum kleift ah sigla a
Uereuter hefur fundih upp nytt hjoli slnu ekki aheins I mehsindi
'omstundagaman sighngar a heldur einnig I andstrhum hlihar
-eihhjoli Ahferh hans er I stuttu wndi l>etla gaman er þegoi
rnali >u. ah hann notar einskonar korn.h a markahmn eins og
egnhllfar. seni festar eru vih •a'tila matti
afar sjaldan, var höfuð-vandinn
að komast yfir heppilegan orku-
fangara. Það var hreint ógur-
legt erfiði að höndla einu regn-
hlífina sem við vissum af en
hana átti amma min og geymdi
i skáp innihjá sér. Bæði var aö
kerling var með afbrigðum
heimakær og forn i skapi,
þannig að þetta reyndist ekki
létt verk en tókst þó með
bröggöum og lævisi. Þegar út
kom lét vindurinn á sér standa,
bvi að eins og mönnum er
kunnugt er ætið logn á Akureyri.
Það var þó auðsýnt að þetta var
hið gæfulegasta fyrirtæki, þar
sem „nokkuð gekk er blés”.
Að siöustu og I beinu fram-
haldi af þessu vil ég aðeins
segja þetta: Islenska þjóð, búðu
betur að visindamönnum þinum
ungum, og til ykkar, æskufólk
sem ef til vill hyggið á fram-
kvæmdir, munið að leiðin til
baka er ætið erfiðust.
Þekkir þú blómið?
Þekkir þú blómið?
Ef svo er,sendu okkur Ilnu. e.t.v. Ibundnu máli og/eöa fróðleiksmola um jurtina. — Ljósm. —gel.
Miðvikudagur 23. júli, 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Tónlist af ýmsu tagi
Útvarp
Ýmiskonar tónlist er á dag-
skrá úvarps í dag. Orgeltónlist
i morgunútvarpi.aðallega eft-
ir Bach, og er hún frá orgel-
hátiö i Lahti I Finnlandi. Siðan
koma hinir eiginlegu morgun-
tónleikar, með sitt litiö af
hverju: Schumann og
Mendelsohn, þ.á m. syngur sá
frægi ljóöasöngvari Dietrich
Fischer-Diskau ljóðalög eftir
Mendelsohn.
Kl. þrjú kemur poppið, I
umsjá Dóru Jónsdóttur, og
skömmu siðar siðdegistón-
leikar, þar sem Blásarasveit
Islensku sinfóniunnar leikur
og Karlakór Reykjavikur
syngur.
Hreinn Lindal syngur ein-
söng I útvarpssal eftir kvöld-
fréttir, lög eftirýmsa höfunda,
flesta Islenska. Ölafur Vignir
Albertsson leikur undir á
pianó.
KL. 20.30 kemur svo þáttur-
inn „Misræmur” I umsjá
þeirra Astráðs Haraldssonar
og Þorvaröar Arnasonar.
Strauss-feögar eru lika á dag-
skrá, en siðust á dagskrá
kvöldsins er söngkonan Ilona
Maros, sem syngur lög eftir
ýmsa höfúnda við undirleik
Þorkels Sigurbjömssonar.
— ih
Kjarni málsins
#Útvarp
kl. 22.35
Einn af mannvits-
þáttunum hans Sig-
mars B. Haukssonar
er á dagskrá i kvöld,
og heitir „Heili og
hegðun”. Þar ræðir
Ernir Snorrason, rit-
höfundur og sálfræð-
ingur, við læknana
Asgeir Karlsson og
dr. Ásgeir Ellertsson.
Þættirnir bera samheitið
Kjarni málsins og eru
frábrugönir venjulegum um-
ræðuþáttum aö þvi leyti að I
þeim er tekið fyrir ákveöiö,
þröngt mál og þaö brotiö til
mergjar af þeim sem ætla má
aðbest vit hafi á málinu. Þetta
eru þvi ekki rifrildisþættir þar
Sigmar enn á ferð.
sem tveir menn á öndveröum
meiði rifast og reyna alltaf að
hafa siðasta orðið.
Góö tilbreyting!
— ih
Ráðning á þrautinni frá
i gær:
Myndin var af syni
mannsins.
Faðir eða móðir?
Háskólakennari, sem
var mjög utan við sig,
hafði eignast barn.
Hann beið óþreyju-
fullur eftir að fá að vita
hvort það væri sonur
eða dóttir. Þegar ljós-
móðirin birtist loksins
spurði hann af miklum
ákafa:
— Hv.. hv... hvort er
ég nú orðinn faðir eða
móðir?
Gátur
1. Hljóp ég yfir hjartar-
þrá
og hafði það i mundum,
sem er blöðum alheims
á
og ýtar bera stundum.
2. Hálft er nafn á hafi
úti, hálft i hendi mér, —
sagði maðurinn. Hvað
hét hann?
3. Maður kom á bæ og
var spurður að heiti.
Hann svaraði: Ég heiti
það sem ég er. Hvað
hét hann?
Svör á morgun!
Málshættir
• Sá sem ekki safnar i
tima má svelta i ótima.
Dregur hver dám af
sinum sessunaut.
• Það er ekki feitan
gölt að flá þegar flesk
er ekkert á.
• Seldu ekki skinnið
fyrr en björninn er
unninn.
t kristinfræðitíma
Kennarinn: Jón,
getur þú sagt mér hvað
brauðið hét, sem Guð
lét rigna yfir Gyðinga i
eyðimörkinni?
Jón: Það voru smá-
kökur.
Kennarinn: Viltu nú
ekki hugsa þig um, Jón
minn? Heldurðu að það
hafi verið smákökur?
Jón: Nú man ég —
það voru Gyðingakök-
ur!