Þjóðviljinn - 01.08.1980, Qupperneq 13
Föstudagur 1. ágúst 1980. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Frétt Þjóðviljans staðfest:
F ramk væmdastjj órum
Flugleiða fækkað um 2
í fréttatilkynningu frá frá í gær kemur fram að
kynningardeild Flugleiða nú standi yfir breytingar á
Gjaldskrárhœkkanir:
Fær Hitaveita
Reykjavíkur
13% hækkun?
A fundi rikisstjórnarinnar i
morgun var samþykkt aö heimila
Strætisvögnum Reykjavikur 9%
hækkun á gjaldskrá sinni, en hins
vegar var ekki tekin afstaða til
hækkunarbeina fjölmargra ann-
arra opinberra stofnana og fyrir-
tækja. Væntanlega verða þær
beiðnir afgreiddar á fundi rikis-
stjórnarinnar i dag.
Gjaldskrárnefnd mun hafa
skorið verulega niður hækkunar-
beiðnir þeirra aðila er fóru fram á
mesta hækkun. Þannig er talið aö
Hitaveita Reykjavikur fái um
13% hækkun en hún fór fram á
60%. Ekki er óliklegt að Lands-
virkjun fái svipað en hún fór fram
á 55% hækkun. Spurningin um
hækkunina til Hitaveitu Reykja-
vikur mun hafa verið borin undir
Orkustofnun og hún lagt til að
hækkunin yröi á bilinu 10-20%.
stjórnskipulagi félagsins
sem m.a. hafi það í för
með sér að framkvæmda-
stjórum þess verði fækkað
um tvo.
í fréttatilkynningunni er þó
ekki vikiö að þeim Jóni Júliussyni
og Marin Pedersen heldur segir
aö breytingarnar sem komi til
framkvæmda i dag hafi i för með
sér fækkun yfirmanna og starfs-
sviða. Starfssviðin verða nú
fjögur i stað sex: flugrekstarar-
sviö, fjármálasviö, markaössvið
og stjórnunarsvið, en þeir Jón og
Martin voru framkvæmdastjórar
siðastnefndu sviðanna. Innan-
landsflugið hefur verið fellt undir
markaðssvið en hótel og bilaleiga
undir stjórnunarsvið.
— AI
Trausti vedurfrædingur
Jónsson
Þau leiðu mistök urðu i frétt
Þjóðviljans á forsiðu i gær um
veðurfarið á landinu, að Trausti
Jónsson veðurfræðingur var
sagður Eiriksson. Blaöið biöur
hlutaðeiganda velvirðingar á
mistökunum.
Vinnuskóli
Framhald af bls. 3
skemmtilegan dag en við hringd-
um i Erling Tómasson, skóla-
stjóra Vinnuskólans i Reykjavik
og spurðum hann nokkurra
spurninga um starfsemi skólans.
— Hvenær byrjar unglinga-
vinnan og hvenær hættir hún á
sumrin?
„Hún byrjaði i júnibyrjun og
hættir 1. ágúst.”
— Hvers vegna er ekki unnið i
ágúst?
„Þaö var samþykkt af vinnu-
skólanefnd Reykjavikurborgar
að krakkarnir ættu að hafa ágúst-
mánuð sem sumarfri.”
— Fyrir hvaða aldur er ung-
lingavinnan og hvað starfa marg-
ir þar?
— þm
Þökkum auðsýnda samúð og vinsemd við fráfall og útför
Svövu Einarsdóttur
Aðalstræti 120 Patreksfirði. Óskar Markússon
Guðriður Öskarsdóttir Kristján Adolfsson
Agústa Markrún óskarsdóttir Jóhann Jónsson
Guörún Asa Þorsteinsdóttir Jón G. Guðbjörnsson
Eva Sigurðardóttir og barnabörn. Hreiðar Pálmason
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall móður okkar og
tengdamóður
Guðlaugar Sigurðardóttur
Sólvangi, Djúpavogi
Erna Sigurðardóttir
Baldur Sigurðsson Stella Björgvinsdóttir
„Unglingavinnan er fyrir ár-
ganga fædda 1966 og 1965 og þar
vinna um 1100 krakkar.”
— Hvað er timakaupið?
„Argangur 1966 fær 900 krónur
á timann og vinnur fjóra tima á
dag fimm daga vikunnar. Ar-
gangur 1965 fær 1000 krónur á
timann og vinnur 8 tima á dag
fimm daga vikunnar.”
— Er mikið gagn af unglinga-
vinnunni eða er hún bara til þess
að krakkarnir slæpist ekki um?
„Unglingavinnan gerir mikið
fyrir fegrun Reykjavikurborg-
ar”, sagði Erling Tómasson,
skólastjóri að lokum.
Dlsa, Erna, Lára.
Fólk hefur
Framhald af bls. 9
Ég er annars bjartsýnn að
eðlisfari. Við höfum alltaf kunnað
að kvarta — og lifum vér enn,
segir i kvæöinu. Hver hefur sinn
djöful að draga, og ég sé ekki
minnstu ástæðu til að vera svart-
sýnni á framtiö Islands en ann-
arra landa. Þegar til lengri tima
er litiö stöndum við aö ýmsu leyti
allvel aö vigi meö þessa miklu
orku sem endurnýjar sig sjálf.
Fegnir mættu Belgar vera. Eða
þá Danir.
Æskilegt jafnvægi
— Finnst þér að forsetaem-
bættið hafi breyst á þinni tiö?
— Það hefur verið sagt um mig,
að mér hafi tekist að sameina al-
þýöleika og virðuleika. Ekkert
skal ég um það segja, en ég mætti
vera mjög ánægður ef þetta hefði
við rök að styöjast. Að minnsta
kosti er ég sannfærður um að
jafnvægi þurfi að rikja milli þess-
ara tveggja skauta. Og fólkið vill
hvort tveggja — eftir þvi sem við
á. Mér finnst ég sjálfur vera svo
gerður, að ég hljóti að vera alþýð-
legur maöur. En mér er lika fylli-
lega ljóst, aðof mikill alþýðleiki á
ekki alltaf við. Það væri óhollt
fyrir þetta embætti ef alþýðleik-
inn hefði alltaf yfirhöndina.
Ég held að hver forseti hljóti að
reyna að gæta þess að embættið
skemmist ekki i hans meöförum
— og ég á þá við það að það haldi
á hans tið sinu gagnvart öllum
þorra manna i landinu.
Það hefi ég einnig viljað, hvort
sem mér hefur tekist það eða
ekki, enginn er dómari i eigin sök.
Mér finnst að ég hafi reyndar
haldið þessu embætti að verulegu
leyti i sama horfi og ég tók við
þvi. Ég hafði að fyrirmynd for-
dæmi þeirra tveggja manna sem
höföu verið á undan mér. En þaö
er ekki þar með sagt, að embættiö
sé alveg eins og það var. Hver
forseti hlýtur að setja á það sinn
persónulega svip — og timinn,
tiöarandinn breytir þvi lika, eins
og öllu öðru. AB
FOLDA
Hvers í ósköpunum
kemur þessi bylting til
með að kref jast
af okkur?
‘
Hæ! Hérna kemur
Mikael, nýr og
betri maður!!
Ég var orðinn svo leiður á \
sjálfum méraðég framdij
byltingu og kollvarpaði (
minum gamla persónuleika
TOMMI OG BOMMI
Sími 86220
FöSTUDAGUR: Opið kl. 19—3.
Hljómsveitin Glæsir og DISKO
’74.
LAUGARDAGUR: Opiö kl
19—03.
Hljómsveitin Glaasir og DISKÓ
’74.
SUNNUDAGUR: Opið kl. 19—01.
Hljómsveitin Glæsir og DISKÓ
’74.
Siubbutinn
Borgartúni 32
Simj 35355.
FÖSTUDAGUR: Opið kl.
22.30—03. Hljómsveitin
Cosinus.
LAUGARDAGUR: Opiö til kl.
23.30 Hljómsveitin Cosinus.
HDTEL
LOFTLEIÐIR
Simi 22322
BLÓMASALUR: Opið alia daga
vikunnar kl. 12—14.30 og
19—23.30.
VÍNLANDSBAR: Opið alla daga
vikunnar, 19—23.30, nema um
helgar, en þá er opiö til kl. 01.
Opið I hádeginu kl. 12—14.30 á
laugardögum og sunnudögum.
VEITINGABCÐIN: Opið alla
daga vikunnar kl. 05.00—21.00.
Skalafeli sími 82200
FÖSTUDAGUR: Opið kl. 19—01.
Organleikur.
LAUGARDAGUR: Opið kl.
12—14.30 og 19—23.30. — Organ-
leikur.
SUNNUDAGUR: Opið kl.
12—14.30 og kl. 19—01. — Organ-
leikur. Tiskusýningar alla
fimmtudaga.
ESJUBERG: Opið alla daga kl.
8—22.
Föstudagur:
Flugkabarett kl. 22. Dansað til
kl. 03.
Jón Vigfússon kynnir.
LAUGARDAGUR:
Dansað frá 21—03.
Jón Vigfússon kynnir.
SUNNUDAGUR:
Gömlu dansarnir kl. 21—01.
Hljómsveit Jóns Sig. og Krist-
björg Löve.
Diskótek frá 01—03.
Óskar Karlsson kynnir.
MANUDAGUR:
Dansað frá 21—01.
Diskótek, Jón Vigfússonar
kynnir.
Kvöldverður frá kl. 19, alla
daga.