Þjóðviljinn - 01.08.1980, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 01.08.1980, Blaðsíða 15
Föstudagur 1. ágúst 1980. ÞJöÐVILJINN — SÍÐA 15 Hringið í síma 8-13-33 kl. 9-5 alla virka daga eða skrifið Þjóðviljanum Beöiö eftir Sæmundi — ijósm. gei. tfra lcsendum Klíkustarfsemj algeng hjá BÚR Togarasjómaður hringdi og kvartaði yfir klikustarfsemi við ráðningar á togara BÚR. Sagði hann að yf- ir sumartimann væri mönnum visað frá sem árum saman hefðu ver- ið á sjó og væru full- gildir félagar í Sjó- mannafélaginu, ein- ungis til að koma að einhverju skylduliði toppfigúranna hjá BÚR og borgarráðsmanna. Hann sagöi aö litib heföist upp úr þvi aö tala viö Sjó- mannafélagiö, þvi þó það ætti aö vera hagsmunafélag sjó- manna þá sinnti þaö ekki þess- um málum. Það_ væri mjög bagalegt, þvi nokkurt atvinnu- leysi væri hjá togarasjómönn- um og hart aö vita til þess að heimilisfeðrum og fyrirvinnum væri visað frá plássum meðan skólapiltar og frændaliö ráöa- manna gengju i störfin. Sagöist hann hafa reynt að fá pláss á öllum togurum BÚR, en ekkert heföi gengiö. Þó heföi hann ver- iö á togurum árum saman og teldi sig vel kynntan á þvi sviöi. Hann sagöi að lokum aö alveg sama ástandiö væri á togurum einkafyrirtækjanna, en það yröi aðgera meiri kröfur til BÚR og þeirra aðila sem þar færu með stjórn um aö hafa þessi mál i lagi. 8835 — 8465 Embættistaka Vigdisar Útvarpað veröur frá em- bættistöku Vigdfsar Finn- bogadóttur ki. 15.30 i dag. Athöfnin hefst meö þvi aö for- setaefniö gengur úr Alþingis-i húsinu yfir i Dómkirkjuna ásamt fráfarandi forseta og forsetafrú, sem og handhöfum forsetavaldsins. t Dómkirkjunni leiöir biskup tslands guös- þjónustu en aö henni lokinni ganga boösgestir yfir I Al- þingishiisiö. Þar lýsir forseti Hæstaréttar forsetakjöri og útgáfu kjörbréfs og mælir fram eiöstaflnn sem viötak- andi forseti undirritar. Aö þvf loknu ávarpar forseti Hæsta- réttar nýskipaöan forseta og afhendir honum kjörbréfiö. Síöan gengur forseti islands út á svalir Alþingis og tekur viö hyllingu almennings. Þegar Vigdfs Finnbogadóttir, fjóröi forseti tslands. • Útvarp kl. 15.30 þvi er lokiö flytur forseti ávarp í sal neöri deildar og Þjóösöngur tslands er sung- inn. Olympíuleikarnir Margt og mikiö hefur veríö rætt aö undanförnu um sum- arólympiuleikana í Moskvu og sýnist þar sitt hverjum. Fréttapistlar Stefáns Ivans Hafsteinovich hafa veriö meö allra vinsælasta fréttaefni út- varpsins enda hefur honum tekist aö krydda þá meö ýmsu bitastæöu efni. Sjónvarp’iö mun ekki heldur láta sinn hlut cftir liggja I fréttaflutningi frá leikunum og strax'á fyrsta út- sendingardegi er sjónvarpaö frá setningarathöfn leikanna, kl. 20.40. Bjarni Felixson hjá Sjón- varpinu sagöi i stuttu spjalli aö setningarathöfnin hæfist meö þvi aö ólympiueldurinn væri borinn úr ráöhúsinu á slaginu 16.00 aö Moskvutima og tendraöur á Lenin leik- vanginum. Ýmsar Iþróttasýn- ingar færu fram og stórkost- legt væri aö sjá þegar um 5 Jjjfc Útvarp kl. 20.40 þúsund sovéskir hermenn mynduöu eins konar mosaik myndir meö sérstökum veif- um, svo sem ólympíumerkiö, björninn Misja, skjaldarmerki sovétrikjanna og fjalliö Olym- pus I Grikklandi. Innganga Iþróttafólksins sagöi Bjami aö tæki nokkuö langan tima og þvi væri þaö atriöi nokkuö stytt en sýnt yröi frá þvi þegar ólympiufáninn er dreginn aö húnogþúsundum hvitra dúfna sleppt yfir leikvanginn. Bjarni sagöi aö lokum aö sér skildist aö u m 16 þús. manns kæmu v iö sögu til aö gera þessa setning- arathöfn sem veglegasta, fyr- ir utan allan áhorfendafjöld- ann. —áþj. |—b a rnah orntið-^ Maður stendur með mynd í hendi. Annar maður spyr hann: „Af hvaða manni er myndin?" .Honum er svarað: „ Ég á hvorki bræður né systur, en f aðir þessa manns er sonur föður míns". Af hverjum var myndin? Svar kemur á þriðjudag. Þessi dularfulli náungi er I leynifélagi. Merkið sem þið sjáið yfir höfði hans er einmitt merki leyni- félagsins. Myndina teiknaði Halli, 6 ára.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.