Þjóðviljinn - 12.08.1980, Side 1

Þjóðviljinn - 12.08.1980, Side 1
DJOOVIIIINN Þriðjudagur 12. ágúst 1980 — 181. tbl. 45. árg. Skýrsla Öryggismálanefndarinnar: Á íslandi eru kjarnorkuvopn **—fullyrða tveir bandariskir hershöfðingjar í skýrslu öryggis- málanefndar sem lögð var fram á fundi utan- rikismálanefndar i morgun kemur m.a. fram að tveir fyrrver- andi bandariskir hers- höfðingjar fullyrða af- dráttarlaust, að hér séu geymd kjarnorkuvopn. Hér er um að ræða þá Bertram K. Gorwitz og Gene LaRocque sem báðir þekkja vel til reksturs bandariska hernaðarkerf isins ’ ’ sagði ölafur Ragnar Grimsson er þjóðviljinn ræddi við hann i gær, en auk yfillýsingar sendi- herra Bandarikjanna sem getið er annars staðar i blaðinu, þá voru á fundi utanrikismála- nefndar i gærmorgun lögð fram svör við 15 fyrirspurnum Ólafs og áðurgreind greinargerð frá öryggismálanefnd- inni. „A undanförnum 20 árum hefur hvaö eftir annaö veriö visaö til þess aö Bandarikjastjórn hafi gefiö sérstaka yfirlýsingu um aö þeir myndu ekki staösetja hér kjarnorkuvopn, jafnvel hefur veriö talaö um samkomulag milli íslands og Bandarikjanna. í svari utanrikisráöherra viö þeirri spurningu minni hvenær sllkt samkomulag hafi veriö gert kem- ur fram aö slikt samkomulag eöa yfirlýsing hafi aldrei verið til. Þaö eina sem komiö hefur frá Bandaríkjastjórnum þetta efnier sU loðna yfirlýsing sem sendi- herrann kynnti i dag. í spurningum minum er einnig vikið aö þvi hvernig háttaö sé öryggisgæslu vopna á Keflavik- urflugvelli. Svörin viö þeirri spurningu eru mjög loöin. Þó er ljóst á lýsingunni aö öryggisgæsl- an á þvi svæöi sem kennt er viö Pattersonflugvöllinn er sláandi lik þeirri öryggisgæslu sem fram- kvæmd er erlendis þar sem kjarnorkuvopn eru geymd. Oryggismálanefndin hefur afl- aö upplýsinga um þaö hvernig öryggisgæslu kjarnorkuvopna sé háttaö erlendis, og er sá lýsing óhugnalega lik þeirri öryggis- gæslu sem mi fer fram á Patter- sonflugvelli i Keflavik. Þab er einnig rétt að benda á aö í svari utanrikisráöherra kemur fram aö Islendingar hafa engar reglulegar skrár yfir þann vopna- bUnaö sem hér er i herstöðinni þó utanrikisráöherra telji aö allt slikt þurfi aö vera háb samþykki Islendinga,” sagöi Ólafur Ragnar aðlokum. —þm Bolungarvik er besti staður i heimi, sögöu strákarnir og vorkenndu ljósmyndaranum okkar, — eik,heil býsn aö búa fyrir sunnan. Þeir uröu á vegi hans á föstudaginn var þegar skákmótiö var aö hefjast i Bolungarvik, en frá þvi er sagt i opnu biaösins i dag. Utanríkisráðherra um kjamorkuvopnayfirlýsingu Bandaríkjastjómar: Engin kjarnorkuvopn Bandarisk kjamorkuvopn verða ekki flutt hingað án samþykkis Islendinga „Þessiyfirlýsing stað- festir ótvirætt að kjarn- orkuvopn verða ekki flutt hingað án sam- þykkis islenskra stjórn- valda”, sagði Ólafur Jóhannesson utanrikis- ráðherra á fundi með fréttamönnum i gær er hann kynnti yfirlýsingu frá sendiherra Banda- rikjanna um þetta efni. Utanrikisráðherra sagði að hann hefði persónu- lega farið fram á það við utanrikisráðherra Bandarikjanna á ráð- herrafundi i Ankara i júni að bandarisk stjórnvöld gæfu opin- bera yfirlýsingu um það að hér yrðu ekki geymd kjarnorkuvopn án sam- þykkis íslendinga. Ekki eru menn á eitt sáttir um að þessi yfirlýsing taki af öll tvi- mæli um þaö hvort hér séu geymd kjarnorkuvopn eins og fram kem- ur i viötali viö Olaf Ragnar Grimsson sem sæti á i utanrikis- málanefnd Alþingis. ólafur telur yfirlýsinguna loöna og þaö sé fjarri þvi að máliö hafi nokkuö skýrst. Hér á eftir fer yfirlýsing sendiherra Bandarikjanna i islenskri þýöingu sendiráösins: Meö vi'sun til þess aö gefið hefur veriö i skyn aö kjarnavopn séu á Islandi, skal tekiö fram aö þaö hefur lengi veriö stefna Banda- rikjanna aö játa hvorki né neita tilvist kjarnavopna nokkurs staö- ar. Hins vegar er stefna rikis- stjórnar Bandarikjanna I sam- ræmi viö þá ákvöröun sem tekin var á leiötogafundi aöildarrikja Atlantshafsbandalagsins i Paris 1957, þar sem lýst var yfir aö „staðsetning birgöa þessara (átt erviökjarnaodda sem eru til taks I þágu varna bandalagsins) og flauga, og fyrirkomulag varöandi notkun þeirra, munu samkvæmt þessu veröa ákveðin i samræmi viö vamaráætlanir Atlantshafs- bandalagsins og meö samþykki þeirra rikja sem beinan hlut eiga aö máli”. Þessi skuldbinding er i sam- ræmi viö 3. grein samningsins frá 1951 um Keflavikurstööina, þar sem segir: „Þaö skal vera háö sambvkki lslands, hverrar þjóöar Ólafur Jóhannesson utanrikisráö- herra kynnir yfirlýsingu sendi- herra Bandarikjanna á blaba- mannafundi f gær. Mynd: eik. menn eru i varnarliöinu, svo og með hverjum hætti þaö tekur viö oghagnýtir þá aöstööu á íslandi, sem veitt er meö samningi þess- um”. —þm Óiajiir Ragnar Grimsson um yfirlýsingu sendiherra Bandatikjaima: „Loðin og ófullkomin” / yfirlýsingunni er ekki minnst á þau kjamorkuvopn sem eru undir stjóm Bandaríkjamanna einna „Ég tel viðs fjarri að yfirlýsing sendiherra Bandarikjanna eða önn- ur gögn sem lögð voru fram á fundi utanrikis- málanefndar Alþingis I morgun taki af skarið um það hvort hér séu geymd kjarnorkuvopn eða ekki”, sagði ólafur Ragnar Grimsson er Þjóðviljinn ræddi við hann i gær, en Ólafur á sæti i utanrikismála- nefnd og það var fyrir frumkvæði hans sem ýmis gögn varðandi kjarnorkuvopn hérlend- is hafa nú verið lögð fram i nefndinni. „Yfirlýsing sendiherrans er mjög loöin og ófullkomin”, sagöi Olafur Ragnar ennfremur „og i henni eru fyrst og fremst 2 efnis- atriöi um afstööu Bandarikja- manna. I fyrsta lagi segjast þeir hvorki játa né neita tilvist kjarn- orkuvopna nokkurs staöar og i ööru lagi segja þeir aö stefna Bandarikjanna sé i samræmi viö yfirlýsingar NATO um notkun kjarnorkuvopna er heyri undir varnir NATO. I yfirlýsingu sendiherrans er þvi eingöngu tekiö til þess kjarn- orkuvopnaforða Bandarikjanna er heyrir undir stjórnkerfi NATO, en þar er ekkert minnst á þau kjarnorkuvopn sem eru undir stjórn Bandarikjamanna einna. I þessu sambandi er rétt aö hafa I huga aö varnarsamningurinn er viö Bandarflún ein en ekki NATO. Þá hafa Frakkar tekiö sin kjarn- orkuvopn undan yfirstjórn NATO og þvi ljóst aö stór hluti af kjarn- orkuvopnabirgöum aöildarrikja NATO heyrir ekki undir yfir- stjórn bandaiagsins. Rétt er einnig aö hafa i huga aö þessi yfirlýsing tekur ekki af skarið um þaö hvort kjarnorku- vopn Bandarikjanna kunni aö vera hér tlmabundið i flugvélum sem staðsettar eru hérlendis um lengri eöa skemmri tima. Ég tel þvi aö yfirlýsingin veki fleiri spurningarenhúnsvarar”. —þm Yfirlýsingin svarar þvi ekki hvort hér kunni aö vera stabsett kjarn- orkuvopn timabundið I flugvélum sem staösettar eru hér um lengri eöa skemmri tima.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.