Þjóðviljinn - 12.08.1980, Page 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 12. agúst 1980
Skattstjwmn í Norður-
landsumdæmi —vestra
AUGLÝSING samkvæmt 1. mgr. 98. gr.
laga nr 40 18. mai 1978 um tekjuskatt og
eignarskatt með siðari breytingum, um að
álagningu opinberra gjalda á árinu 1980 sé
lokið á þá menn sem skattskyldir eru hér á
landi samkvæmt 1. gr. greindra laga, þó
ekki á böm sem skattlögð eru samkvæmt
6. gr. þeirra.
Tilkynningar (álagningarseðlar) er sýna
þau opinberu gjöld sem skattstjóra ber að
leggja á á árinu 1980 á þessa skattaðila
hafa verið póstlagðar.
Kærur vegna allra álagðra opinberra
gjalda sem þessum skattaðilum hefur
verið tilkynnt um með álagningarseðli
1980 þurfa að hafa borist skattstjóra eða
umboðsmanni hans innan 30 daga frá og
með dagsetningu þessarar auglýsingar
Siglufirði, 12. ágúst 1980
Skattstjórinn i Norðurlandsumdæmi —
vestra
Jón Guðmundsson.
AUGLÝSING
um rannsóknastyrki frá J.E. Fogarty
International Research Foundation.
J.E. Fogarty stofnunin i Bandarikjunum býöur fram'
styrki handa erlendum visindamönnum til rannsókna-
starfa viö visindastofnanir I Bandarikjunum. Styrkir
þessir eru boönir fram á alþjóöavettvangi til rannsókna á
sviöi læknisfræöi eöa skyldra greina (biomedical
science). Hver styrkur er veittur til 6 mánaöa eöa 1 árs.
Til þess aö eiga möguleika á styrkveitingu þurfa um-
sækjendur aö leggja fram rannsóknaáætlun i samráöi viö
stofnun þá i Bandarikjunum sem þeir hyggjast starfa viö.
Umsóknareyöublöö og nánari upplýsingar um styrki
þessa fást I menntamálaráöuneytinu.
Umsóknir þurfa aö hafa borist menntamálaráöuneytinu,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 20. október n.k.
Menntamálaráöuneytiö,
7. ágúst 1980.
Rafsuðumenn
Rafsuðumenn með réttindi frá Iðntækni-
stofnun Islands óskast til starfa við
Skóladagheimilið Skáli við Kaplaskjóls-
veg óskar að ráða
fóstru
i fullt starf og starfsmann til matreiðslu i
hálft starf.
Upplýsingar hjá forstöðumanni i sima
18864.
Blikkiðjan
Ásgaröi 7, Garðabæ
Dnnumst þakrennusmíöi og
jppsetningu — ennfremur
iverskonar blikksmíöi.
Serum föst verðtilboð
Rannsóknarmiðstöð um stefnumörkun og utanríkismáh
„Þurfum aö móta
utanríkisstefnu”
„sjálfstœða, þjóðlega stefnu” — segir Elias Davíðsson íRSU
Hvaö er RSU — Rann-
sóknarmiðstöð um stefnu-
mörkun og utanrikismál?
Þessarar spurningar
spurðu margir á ritstjórn
um daginn, þegar þangað
kom fréttatilkynning und-
irrituð eins og að ofan
greinir. Ég hygg að fleiri
en fréttamenn Þjóðviljans
hafi áhuga á að vita eitt-
hvað um þessa rann-
sóknarmiðstöð og því sneri
ég mér til Eliasar Davíðs-
sonar sem undirritar
fréttatilkynninguna.
Fjölþjóða auðhringir
Hvaöa stofnun er þetta, Elias,
og aö hvaöa verkefnum vinnur
hún?
— RSU er að stofni til starfs-
hópur um auðhringi sem hér
starfaði fyrir nokkrum árum.
Þetta er ekki formleg stofnun,
heldur staöur þar sem unniö er aö
öflun, vinnslu og miölun upplýs-
inga sem varöa fjölþjóöa auö-
hringa og alþjóölegar stofnanir,
einkum hvað varöar afskipti
þeirra af Islandi eöa áhrif þeirra
á islenskt þjóölif. Meöal þeirra
málaflokka sem falla einnig undir
starfsemi RSU vil ég nefna al-
þjóöamál, samskipti Norðurs og
Suðurs og öryggismál íslands.
Ég starfa mest sjálfur viö aö
halda rannsóknarmiðstööinni
gangandi og hef viðað aö mér
miklu efni um málin sem hún
vinnur að. Hins vegar er i vax-
andi mæli leitaö til min bæöi hér
heima og erlendis. Ég fæ bréf,
timarit og aðrar upplýsingar um
starfsemi fjölþjóöafyrirtækja
reglulega erlendis frá og miðla
þeim áfram, bæöi eftir þvi sem
um er beðiö og af eigin frum-
kvæöi.
Þjóðerni, lýðræði, rann-
sóknir, friður
Hvaða hugmyndafræöi iiggur
aö baki þessari starfsemi?
— RSU er ekki hlutlaus stofnun.
Hún tekur afstööu meö þvi að
velja viöfangsefnin og meö
áherslum sinum. Þó er leitast viö
aö gera ströngustu kröfur til ná-
kvæmni, sannsögli og sanngirni
viö vinnslu efnisins. I stuttu máli
má draga hugmyndafræöi þess-
arar starfsemi saman i fjóra
meginpunkta.
— Varöveisla islensks þjóöernis
og sjálfstæöis.
— Barátta til eflingar lýöræöis i
Elias Daviösson: Okkar utan-
rikisstefna á aö vera sjálfstæö og
þjóöleg.
landinu, á stjórnmálasviöi, I
efnahagsmálum og á sviði fé-
lagsmála.
— Jafnaöarhugsjónin: Að allir
eigi sama rétt til gæöa lifsins
án tillits til þjóöernis, uppruna
eöa núverandi skipan efna-
hagsmála i heiminum.
— Barátta fyrir friöi i heiminum
og gegn vigbúnaði.
Aðrar stofnanir duga ekki
— Liggur ekki beinna viö aö
nota einhverjar af þeim stofn-
unum eöa stjórnmálaflokkum
sem fyrir eru i landinu til aö
vinna aö þessum málum heldur
en að efna til nýrrar stofnunar?
— Nei, þaö er ekki hægt. RSU
verður aö vera öllum stjórnmála-
samtökum, fyrirtækjum, félögum
og opinberum stofnunum óháö.
Þaö tryggir aö miðstööin mótist
hvorki af stundarhagsmunum né
annarlegum sjónarmiöum heldur
eingöngu af þeirri rannsóknar-
vinnu sem fram fer á hennar veg-
um.
Ég tel aö starfsemi fjölþjóða-
fyrirtækja á Islandi sé látin óátal-
in og ekki fylgst meö henni sem
skyldi. Þaö er heldur enginn aöili
á Islandi sem skipulega fylgist
með utanrikismálum á þeim
grundvelli sem ég tel aö þurfi aö
gera. Utanrikisráöuneyti höfum
viö aö visu en þaö er hlutdræg og
stöönuö stofnun.
Islendingar þurfa aö móta sina
eigin utanrikisstefnu og aöra en
þá sem stórveldin mata okkur á.
Okkar utanrikisstefna á aö vera
sjálfstæö og þjóöleg.
Flokkarnir sljóir
Þessum málum sinnir enginn
stjórnmálaflokkur. Sumir flokkar
taka á einstökum málum af og til,
sérstaklega fyrir kosningar en
aldrei I samfellu. Alþýöubanda-
lagiö sem segist vera málsvari
verkalýðs og þjóöfrelsins er ekki
betri en hinir flokkarnir.
Flokkurinn vinnur ákaflega litiö
aö utanrikismálum þegar hann á
sæti i stjórn.
ólýðræðisleg forræðishefð
— Ég hef æöi oft rekiö mig á aö
það er erfitt að fá ýmsar upplýs-
ingar hjá sumum embættismönn-
um. Satt aö segja einoka þeir
upplýsingar sem aö réttu lagi
ættu aö vera tiltækar og hverjum
og einum leyfilegt aö fá. Þaö er
raunar forsenda þess aö almenn-
ingur geti myndaö sér sjálfstæöar
skoðanir á mikilvægum málum
en láti ekki mata sig á þeim upp-
lýsingum sem forræðislega
þenkjandi embættismönnum
þóknast að láta I té. Þetta á aö
vera hin almenna regla, en vita-
skuld getur þurft aö gera undan-
tekningar s.s. ef um er aö ræöa
skjöl sem beinlinis snerta öryggi
landsins eöa einkahagi einstakra
manna.
• — Þessi forræðislega hefö I
embættisfærslu er með öllu ólýö-
ræöisleg og embættismönnum á
ekki aö liðast að skjóta sér á bak
viö hana.
Greinar og tilskrif
— Hverju hefur RSU fengiö
áorkaö hingaö til?
— I fyrsta lagi nefni ég marg-
visleg skrif, s.s. skýrslur, greinar
og ritgerðir og hefur nokkuö af
þvi efni veriö gefiö út. Þá hefur
RSU sent fjölmiðlum, alþingis-
mönnum og embættismönnum
bæöi bréf og skýrslur um ýmsa
þætti þessara málaflokka t.a.m.
greinargeröir um starfsemi ísal
og um afskipti Alþjóöagjaldeyris-
sjóösins af innanlandsmálum Is-
lands. 1 þriöja lagi hefur stofnun-
in aðstoöað fjölmarga sem eru að
vinna aö verkefnum sem snerta
þessi mál. Aöallega eru þetta
námsmenn en RSU er opin þeim
sem vilja vinna aö rannsóknum I
samræmi viö þau grundvallar-
sjónarmiö sem stofnunin vinnur
eftir og áöur er getið.
Loks er þess að geta aö RSU
leggur rækt viö aö að styrkja al-
þjóöleg sambönd, einkum viö
samsvarandi miöstöövar I öörum
löndum.
Viöa starfa rannsóknarmiö-
stöðvar eins og RSU i tengslum
viö háskóla, eöa þá viö kirkju-
samtök, sem vilja sýna I verki
hugsjón kærleikans i sambandi
Framhald á bls. 13
SÍMI 53468
Rit frá Rannsóknarmiöstöðinni.