Þjóðviljinn - 12.08.1980, Page 8

Þjóðviljinn - 12.08.1980, Page 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 12. agúst 1980 ÞriAjudagur 12. agúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Við verðiaunaafhendinguna. Ólafur Krstjánsson, forseti bæjarstjórnar Bolungarvlkur sá um þá hlið málanna. ur og vakti mikla athygli fyrir snjalla taflmennsku. 1 hópi keppenda voru tvær konur, Sigurlaug Friðþjófsdóttir, fjær á myndinni,og Anna Sigrún Benedikts- Bæjarstjórinn á tsafirði, Bolli Kjartansson,tók þátt I mótinu og stóð sig dóttir. Sigurlaug hefur getiðsér gott orð á skáksviðiniuen Anna haföi ekki komið nálægt skákmótum áð- með prýði. Myndir tók Einar Karlsson Hópur keppenda. Þar má finnan margan kappann Friðrik að tafli. Yfir honum vakir Jóhann Þórir Jónsson, skákstjóri og forvigismaður heigarmót- Slappað af milli umferða. F.v. Daði Guðmundsson, Helgi óiafsson, Jón L. Arnason og Sigurður Danielsson, mesti skákskelfir Vestfjarða. anna. FIDE-forsetínn „Þátttaka min i hdgar- mótum Timaritsins Skák- ar hefur verið ákaflega ánægjuleg. Hér er verið að ryðja nýja braut, skáklifið á landinu er eflt og hinn mikli almenni skákáhugi virkjaður. Það er gott til þess að vita hversu góðan hljómgrunn þessi mót hafa hlotið og ekki verður annað séð en að hér stefni i árvissan atburð. Nýbreytni Jóhanns Þóris Jónssonar mun áreiðanlega skila sér. Frá skákmannssjón- armiði er þátttaka i mót- um sem þessum hvetj- andi og þeir sem teljast i hópi sterkustu skák- manna þjóðarinnar munu halda áfram þátttöku”. A þessa leiö fórust Friöriki Olafssyni orð um helgarmót Skák- ar.en hið þriðja i röðinni var haldiö á Isafirði og Bolungarvik um helg- ina. Allur viöurgjörningur og aö- búnaður þar vestra var eins og best veröur á kosið, enda margir sem löggðu þar gjörva hönd á plóginn. Eftir harða keppni stóðu uppi sem sigurvegarar Friörik ólafeson og Helgi Ólafsson,hlutu báðir 5 1/2 v og þegar fariö var i að reikna stig voru þeir enn jafnir. Röð efstu manna í hópi 42 keppenda varð þessi: 1-2. Friðrik Ólafss. 5 1/2 v. af 6 1-2. Helgi Ólafsson 5 1/2 v. 3. Jón L. Amason 5 v. 4. Kari Þorsteinsson 5 v. 5. ómar Jónsson 5 v. 6. Margeir Pétursson 4 1/2 v. 7. Jóhann Hjartarson 4 1/2 v. 8. Sævar Bjarnason 4 v. 9. Asgeir Þ. Arnason 4 v. sigraði fyrir yestan 10. Jóhannes G. Jónsson 4 v. Þó að nöfn efstu manna hafi sjálfsagt heyrst áöur var þaö þó e.t.v. annar keppandi sem athygli vakti. Ung kona, Anna Sigrún Benediktsdóttir, tók þátt i slnu fyrsta móti. Hún var algjörlega óþekkt stærð þegar haldiö var af stað, en þegar upp var staöiö var mönnum ljóst að þar var öflugur skákmaðurá ferðinni. Hún tefldi á köflum skinandi vel, byggði tíöum upp unnar stöður en litil sem engin keppnisreynsla varð henni fjötur um fót og hlaut hún þvi færri vinn- inga en efni stóðu til. Anna Sigrún er gift Hilmari Karlssyni sem er í hópi sterkustu skákmanna okkar og mætti ætla aö til hans hafi hún sótt holl ráð (þó auðvitað ekki á mótinu skal tekið fram). Húsavík og Akureyri næst á dagskrá Ritstjóri og útgefandi „Skákar”, Jóhann Þórir JónsSon sem á allan heiðurinn af þvl, að af þessum mótum varö, sagði að næstu tvö mót færu fram á Húsavik og Akureyri með viku millibili. Ekki væri búiö að ákveða hvort mótið yröiá undan, en einnig er í ráði að halda mót I Vestmannaeyjum, Egilsstöðum eða Neskaupstaö og jafnvel á Vik I Mýrdal. Jóhann sagði að það hefði lengi loðað við, að skákmenn úti á landsbyggðinni hefðu ekki fengið nægilega mörg tækifæri til að spreyta sig I keppni við bestu skák- mennina sunnanlands og þessi mót væru tilraun til að bæta þar úr. Skákmótin eru haldin meö öflugum styrk frá bæjarstjórnum hvers þess staðar sem teflt er á. Undirtektir kvað hann hafi verið góðar, nánast hvarvetna. Ekki má heldur gleyma þv^ að hér er um að ræða góða keppni fyrir okkar sterkustu menn fyrir mót s.s. Olympiumótið i haust og mörg önnur mót. Svo vikið sé aö keppninni sjálfri þá var baráttan um efsta sætið feiknarlega spennandi allan tim- ann. Eftir tvo fyrstu dagana, þ.e. umferöir voru 3 skákmenn með fullt hús vinninga, Helgi Ólafsson, Margeir Pétursson og Karl Þorsteins. I 5. umferö gerðu Margeir og Helgi jafntefli en Friörik vann Karl. Sú skák vakti mikla athygli, bauð jafntefli með aðeins lakara tafl en Karl hafnaði. Friörik tókst svo aö snúa á pilt og vinna I framhaldinu þrátt fyrir mikið timahrak. Það er ekki á hverjum degi, sem 15 ára piltur hafnar jafntefli á móti stórmeist- ara hér á landi. Fyrir siöustu um- ferð voru 4 jafnir með 4 1/2 vinning, Friðrik, Helgi, Margeir og Jóhann Hjartarson. 1 siðustu umferö vann Friðrik Margeir meö svörtu og á sömu leið fór fyrir Jóhanni gegn Helga. 1 mótslok voru verðlaun veitt. Friðrik og Helgi hlutu 250 þús. krónur sigurinn og einnig voru veitt verölaun fyrir besta árangur konu, og sá unglingur, 14 ára eða yngri sem fékk flesta vinninga fær að launum friar ferðir og uppihald á skákbúðunum á Kirkjubæjar- klaustri. —hól. Þegar teflt er við stór- meistara... 4its?í4Il llliiil iiiiiiiili á daaskrá >Þá er og vert aö sjá hvort ríkisstjómaraöild okkargetur ekki dugaö vel verkafólki í komandi átökunu Asmundur Asmundsson: ÓKYRRÐ Nú er komið fram yfir mitt sumar og enn fást vart aðrar fréttir af kjarasamningum en þær að menn sjái nú smá skimu. Hefur þetta, og raunar þungur róður við gerð kjarasamninga i vor og sumar farið fyrir hjartað á hinum óliklegustu mönnum, eink- um þeim er viröast tækifæris- sinnaðir varðandi aðild Alþýðu- bandalagsins að rikisstjórn. Þyk- ir þeim nú ýmsum sem flokknum sé ekki stætt i rikisstjórn nema aö kjarasamningar takist innan skamms tima (sé hugsað til þess hve langt er siðan fór að gæta þessarar óþreyju fyrst þá er sjálfsagt eitthvaö orðið um það aö menn vilji segja flokkinn úr rikis- stjórn). Þar með er ekki sagt aö efa- hyggja varðandi aðild Alþýðu- bandalagsins að rikisstjórn geti ekki veriö réttlætanleg. Siður en svo. Þaö væri I meira lagi ein- kennilegt ef flokkur sósialista á Islandi teldi rikisstjórnaraöild sina við núverandi aðstæður sjálfsagðan hlut. En þegar menn efast fyrir hönd flokksins um rétt- mæti stjórnaraöildar þá veröur það að vera á grundvelli hags- muna hans og verkalýösstéttar- innar I bráð og lengd. Þegar Alþýðubandalagið myndaöi rikisstjórn siðsumars 1978, þá var það á grundvelli áskorunar frá Verkamannasam- bandi tslands, sem krafðist þess að flokkurinn ásamt Alþýðu- flokknum stæði við kosningalof- orðin. Þá mátti heyra nokkrar hjáróma raddir á flokksráðsfundi Alþýðubandalagsins, sem bentu á að ekki væru nógu gildar ástæður til rikisstjórnarþátttöku. 1 fyrsta lagi hefði enginn timi verið til þess ætlaður fyrir sjálfa stjórnar- myndunina að sjá hvernig stefnu flokksins yrði best borgið, og þvi vart hægt að taka afstöðu til henriar. I öðru lagi var hvergi að finna gundvöll langtimastefnu- mótunar i efnahagsmálum, sem tryggöi að það svigrúm til efna- hagsráðstafana sem skapa átti með niðurgreiðslum, millifærslu og gengisfellingu, yröi nýtt til þess að tryggja þann kaupmátt launa sem ætlunin var að standa vörö um meö aöildinni að þeirri rikisstjórn. Hins vegar væri all- veruleg hætta á þvi að menn stæöu frammi fyrir þvi að þurfa aö endurskilgreina þennan kaup- mátt á 3 mánaða fresti þar til yfir lyki, og til þeirra óþurftar- verka mætti flokkurinn ekki láta nota sig. Verkalýösstéttinni væri enginn greiði geröur með þvi að verkalýðshreyfingin færi um of að treysta á forsjá rikisvaldsins varöandi tryggingu kaupmáttar. Slikt gæti veikt hana og orðið af- drifarlkt þegar fram i sækti. Hins vegar má það til sanns vegar færa að aðild að rikisstjórn veitir oft lykilaðstöðu til frum- kvæðis á alþingi en i þessu tilfelli var mönnum ekki almennilega ljóst hvernig ætti að nýta þá aö- stöðu, enda þótt reynslan beri þvi vitni að vel hafi til tekist á ýmsum sviöum, t.d. i félagsmálum. Það sem réöi afstöðu flokksins til þessarar rikisstjórnarmynd- unar var hin mjög svo þrönga kjarahyggja sem flokkurinn hafði haldiö á lofti i undanfarandi þing- kosningum. Ég hafði nú gert mér vissar vonir um aö flokksmenn hefðu látiö þrotabú rikisstjórnar ólafs Jóhannessonar sér að kenn- ingu verða, og að ferð án fyrir- hyggju yrði ekki á döfinni á næst- unni. En svo virðist ekki vera þvi nú heyrast raddir um að ganga úr rikisstjórn af þvi er virðist á grundvelli hinnar þröngu kjara- hyggju. Nú sé Alþýðubandalaginu vart stætt I rikisstjórn öllu lengur þvi allt bendi til átaka á vinnu- markaðnum. Flokkurinn hafi ekki, á þeim fáu mánuöum sem hann hefir setiö i rikisstjórn, leyst kjaramálin. Það sé meiri háttar hneysa fyrir verkalýðsflokk aö sitja I rikisstjórn meöan verkföll geysi i landinu. Þykir mér þessi boöskapur ill- ur, einicum og sér i lagi fyrir þær sakir að hann er ekki siður að heyra meöal þeirra sem ákafastir voru til þessarar rikisstjórnar- þátttöku. Höfum við nú aðeins um skamma hrið i rikisstjórn verið en alla tið látið sem kjör launa- fólks væri sá málaflokkur sem einna slst myndi hræða okkur af hólmi. Ókyrrð þessi i okkar rööum er að mlnu mati fallin til alls i senn: 1) aö skemmta VSt-skrattanum, sem nú á sér þá ósk heitasta að rikisstjórnarsamstarfið bresti, Sjálfstæðisflokkurinn renni i eitt, og fram komi ný Viðreisn. 2) Að lýsa þvi yfir aö Alþýðubandalagið sé stefnulaus skripaflokkur sem ekkert erindi hafi átt i rlkisstjórn. 3) Aö einskis sé vert þaö lag sem nú er til sóknar I félags- og rétt- indamálum þeirra sem minnst bera úr býtum. 4) Að lýsa þvi yfir að annaö og betra framhald sé i boði hvað varðar störf flokksins. Er ég nú fullur eftirvæntingar þeirra tiðinda sem hinir ókyrru geyma i handraðanum og marka eiga hina nýju braut þvi oft og einatt hefur verið á slikt bent áður og takmarkaðan hljóm- grunn fengið. Það er skoöun min aö sósialisk- iu- verkalýðsflokkur, sem á fyrsta misseri stjórnaraðildar, eygir i henni litla framtið vegna væringa á vinnumarkaði, sé annað hvort búinn að gleyma þvi er til stóð i upphafi stjórnarsamstarfsins, eöa hafi efnt til þess á fölskum forsendum (að undanskildu þvi að tilgangnum sé þegar náð). Þá fæ ég ekki séð að hugsanleg verkföll væru krafa um að Al- þýöubandalagið fari úr rikis- stjórn, fyrr en útséð væri um það hvort flokkurinn gæti komiö verkafólki að gagni með þeirri aðstöðu sinni. Hitt er svo annaö mál að Sjálfsæðisflokkurinn og VSI gera nú það sem þau geta til að draga samningana á langinn, enda vilja þau nú láta reyna á innviði Alþýöubandalagsins og aðildar þess að rikisstjórn. Þeir vita vel af uppgangi hinnar þröngu kjarahyggju I Alþýðu- bandalaginu og vona að dæminu veröi stillt upp á grundvelli hennar. Þá er von aö ókyrrð vaxi. Mér finnast tiltektir VSl miklu frekar marktækar hvaö varðar litinn vilja til aö taka þátt i niður- talningaraðgerðum rikisstjórnar- innar, þar sem VSt veit aö horn- steinn aðgerðanna er verulegt samstarf helstu aöila atvinnulifs- ins. Þvi væri eölilegra aö menn færu aö leita sér aö nýrri stefnu I efnahagsmálum sem tæki mun minna tillit til hagsmuna atvinnu- rekenda. Vaxandi ókyrrð innan Alþýöu- bandalagsins er Sjálfstæðis- mönnum merki um að þeir séu aö ná árangri i stjórnarandstöðunni, um leið og hún á að vera okkur hvatning um aukiö innra starf er gæti orðið bakharl aö hvoru tveggja i senn: þeirri félagslegu sókn sem við viljum aö þessi rikisstjórn beiti sér fyrir og um leiö varnarmúr gegn þeim hrika- legu áformum um aukna „erlenda” stóriöju og stórbætta aðstöðu NATO hér á landi, sem svo mjög eru á döfinni um þessar mundir. Þá er og vert að sjá hvort rikisstjórnaraðild okkar getur ekki dugaö vel verkafólki I kom- andi átökum. Asmundur Asmundsson The Trap and A Dance in the Sun. Dan Jacobson. Secker & Warburg 1980. The Trap and A Dance komu fyrst út fyrir meira en tuttugu árum og gerast báðar sögurnar i heimalandi höfundarins, Suöur- Afriku. Fyrri skáldsagan fjallar um svik og óréttlæti og átök milli hvits og svarts. Báðir aðilar standa skyndilega frammi fyrir þvi hversu litiö þeir vita i raun- inni um sjálfa sig, land sitt og annaö fólk, þegar atburöirnar verða til þess aö ókunn viðhorf og hyldýpi gin við þeim að óvörum, að þvi er virðist. Seinni sagan lýsir atburðum sem koma söguhetjunum i svipaðar aðstæður gagnvart hinu ókunna. Tveir ungir menn sem ferðast um Karro auönina verða þáttakendur i fjölskyldudeilum, þar sem þeir leita náttstaðar á afskektum bóndabæ. Báöar sögurnar eru kunnáttusamlega skrifaðar og i þeim má kenna ýmis einkenni, sem siðar komu fram hjá þessum snjalla höfundi, eins og t.d. I The Confessions og Joseph Baisz. The Rape of Tamar kom út 1970 og var oröin full þörf að fá hana aftur á markaðinn. Höfundurinn segir söguna af nauögun Tamars úr Gamla Testamentinu i nútima- legri gerö. Þessi skáldsaga er meðal þeirrra beztu sem Dan Jacobson hefur skrifaö. Það er eftirtektarvert að margar beztu skáldsögur sem skrifaðar eru nú á dögum, eru skrifaðar af höf- undum frá þeim rikjum og löndum, þar sem barist er upp á líf og dauða, bæði i eiginlegri og óeiginlegri markingu: Rússlandi, Suður-Afriku og Suður-Ameriku, meðan menningarseiði mark- aðsamfélaganna mörg hver snudda i kring um vissa parta eigin likama full af sjálfsupp- hafningu, þekkingarleysi, sjálfs- ánægju og heimslu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.